Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ífyrradag voruliðin 50 ár fráþví John F. Kennedy lýsti því yfir við mikil fagn- aðarlæti að hann væri Berlínarbúi og síðan þá hafa Bandaríkja- forsetar átt í ástarsambandi við Berlínarborg og borgin oft- ast goldið þeim líku líkt. Það var því ekki að undra að Bar- ack Obama valdi að fara til Berlínar í síðustu viku til þess að boða hugmyndir sínar um kjarnorkuafvopnun. Obama hafði raunar tekið sér drjúgt forskot á forsetasæluna árið 2008 þegar hann fór í heimsókn til Berlínar löngu áður en ljóst var hvort hann eða Hillary Clinton yrðu merkisberar demókrata í komandi forseta- kosningum. Þá var honum tek- ið líkt og rokkstjörnu. Eitthvað voru móttökurnar daufari nú fimm árum síðar. Vænting- arnar hafa breyst í vonbrigði. Ræðan sjálf vakti líka minni lukku en hægt hefði verið að búast við. Tillögur Obama um fækkun kjarnavopna risavelda kalda stríðsins um þriðjung eru allra góðra gjalda verðar. Vonirnar til þess að þær næðu fram að ganga brugðust hins vegar furðufljótt, þar sem Vla- dimir Pútín Rússlandsforseti sló þær nánast út af borðinu áður en Obama var búinn að koma sér fyrir við ræðupúltið. Einnig má vel fagna þeim áherslum á sterkt bandalag Vestur-Evrópu og Bandaríkj- anna sem komu fram í ræðu Obama. Reynslan hefur þó sýnt að orð eru ekki það sama og gjörðir. Einnig var athyglisvert við ræðu Obama hversu lítið hún snerti á uppljóstr- unum þeim um gagnaöflun banda- rískra yfirvalda sem hafa tröllriðið heimsfréttunum undanfarna daga. Fram að Berlínarræðunni hafði Obama einungis sagt að hann fagnaði umræðunni og að það myndi gefast tækifæri til þess að ræða þessi mál betur á næstu dögum. Síðan þá hefur Obama forðast að taka sjálfur þátt í umræðunni sem hann fagnaði en eftirlátið undir- mönnum sínum að verja gagnaöflunina. Í ræðunni var fjallað um þessi mál í algjöru framhjáhlaupi og Obama hefur síðan aftur fallið í skuggann af undirmönnum sínum. Kennedy hvatti til þess fyrir 50 árum að menn kæmu til Berlínar til þess að sjá muninn á þjóðfélagi þar sem manns- andinn fengi að vera frjáls og þjóðfélagi þar sem fylgst væri með hverju skrefi. Það er kald- hæðnislegt að þegar eftir- maður hans kemur til borg- arinnar hálfri öld síðar sé komið í ljós að í forysturíki lýð- ræðisins sé nú möguleikinn til staðar til þess að fylgjast með fólki á svo nákvæman hátt að leyniþjónustur austantjalds- landanna hefðu verið full- sæmdar af. Það er rétt hjá Obama að það er þess virði að eiga um- ræðu um mörkin á milli örygg- is og lýðræðis. Hins vegar verður leiðtogi hins frjálsa heims að hafa forystu um að skilgreina hvar þau mörk liggi. Það, að hann skuli beinlínis forðast þessa mikilvægu um- ræðu verða því enn ein von- brigðin á forsetaferlinum. Þegar væntingum er ekki stillt í hóf er boðið upp á vonbrigði} Brostnar vonir Það hefurþvælst að óþörfu fyrir byrj- unarstarfi nýrrar ríkisstjórnar að hafa ruglanda í kringum Evrópusambands- málið. Ályktanir stjórn- arflokkanna og úrslit kosning- anna gáfu ekkert tilefni til slíks og gerðu þann vandræða- gang óþarfan. Ásmundur Einar Daðason, varaformaður utanríkismála- nefndar Alþingis, hefur nú gert sitt til að koma ríkis- stjórninni á beinu brautina á ný. Hann sagði aðspurður á fundi þingmannanefndar Alþingis og Evrópuþingsins: „Það liggur alveg ljóst fyrir að ferlið verður þannig að verið er að vinna ákveðna skýrslu um málið og sú vinna fer í gang. Bæði varð- andi stöðu við- ræðnanna og stöðu Evrópusambands- ins. En stjórn- arsáttmálinn, og þær samþykktir sem ríkis- stjórnin hefur til grundvallar, segir ekkert um að það muni fara fram þjóðaratkvæða- greiðsla um málið heldur að- eins að það muni fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla ef við- ræður verði hafnar á nýjan leik.“ Það segir sig sjálft að for- senda þjóðaratkvæðagreiðslu er að Alþingi vilji sækja um aðild að ESB. Núverandi stjórnarflokkar og þjóðin vilja það ekki. Breytist sá vilji mun ekki lagt í slíka för án þess að þjóðin verði spurð. Þetta er í senn einfalt og sjálfsagt. Ásmundur Einar Daðason er ekki villtur í þokunni} Rofar fyrir heiðglugga F riðhelgi einkalífsins er einn af hornsteinum lýðræðissamfélags. Krafan um að bera virðingu fyrir friðhelgi einkalífsins er sterk og skýlaus og stjórnvöld eiga að gæta þess að hún sé virt. Persónuvernd er ein birtingarmynd þess, en sömuleiðis lög og stjórnarskrá. Um leið keppumst við við að gera líf okkar opinbert í samfélagsmiðlum á borð við Facebook. Umræðan um friðhelgi einkalífsins hefur farið á flug eftir að gögnum var lekið um að bandarísk stjórnvöld stunduðu umfangsmiklar tölvupóstsnjósnir, sem væru hluti af vörnum gegn hryðjuverkum. Fram hafði komið að þessar njósnir væru stundaðar þótt ekki lægi fyrir staðfesting. Uppljóstrarinn, sem nú er innlyksa á flugvelli í Moskvu, hefur fengið sinn skerf af umfjöllun, en verður látinn liggja milli hluta hér. Bandarísk stjórnvöld fengu aukið svigrúm til eftirlits með löggjöf í kjölfar hryðjuverkanna 11. september 2001. Þjóðaröryggisstofnunin NSA hefur safnað upplýsingum árum saman. Að sögn dagblaðsins The Washington Post hefur stofnunin farið beint inn á netþjóna níu stærstu net- fyrirtækja landsins síðan Prism-verkefnið hófst árið 2007. Árið 1844 spruttu harðar deilur þegar Giuseppe Mazz- ini, ítalskur útlagi í London, varð sannfærður um að bresk stjórnvöld hefðu opnað póstinn hans. Mazzini var byltingarsinni, sem hafði lagt á ráðin um að sameina kon- ungdæmi Ítalíu og stofna ítalskt lýðveldi. Hann grunaði að James Graham innanríkisráðherra hefði fyrirskipað að póstur hans yrði opnaður að beiðni austurríska sendiherrans, sem óttaðist að uppreisn á Ítalíu yrði kveikja að byltingum um alla Evrópu. Mál Mazzinis hefur verið kallað fyrsta atlagan að opinberri leynd- arhyggju. Í ljós kom að Mazzini hafði rétt fyrir sér. Hjá breska póstinum var sérstök leynideild. Öldum saman hafði tíðkast að veita leyfi til að lesa bréf þegna breska konungsins. Í lýðræðisríkjum eru borgararnir hins veg- ar ekki þegnar valdhafanna. Valdhafarnir starfa í umboði borgaranna. Borgararnir eiga kröfu á að einkalíf þeirra njóti friðhelgi, en öðru máli gegnir um verk valdhafanna. Tölvupóstsnjósnir Bandaríkjamanna vekja til umhugs- unar. Austur-þýska öryggislögreglan, Stasi, njósnaði um almenna borgara Austur-Þýskalands við hvert fótmál. Það var til þess að hafa stjórn á borgurunum, knýja þá til hlýðni. Þar var friðhelgi einkalífs mótsögn í sjálfu sér. Bandaríkin breytast ekki í alræðisríki við tölvupósts- njósnir, en lýðræðisríki er komið út á varasama braut þegar gildum og réttindum, sem hampað er í hátíð- arræðum, er fórnað dag hvern. Í lýðræðisríki getur ákvörðun um slíkt eftirlit ekki verið háð geðþótta stjórn- valda. Það verður að fara fram með samþykki almenn- ings. Þá er spurningin hvort fórnarkostnaðurinn sé ör- yggisins virði. Verður niðurstaðan sú að til þess að vernda friðhelgi einkalífsins verði að afnema það? kbl@mbl.is Karl Blöndal Pistill Tölvupóstsnjósnir og einkalíf STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Draumahúsnæði hins dæmi-gerða Reykjavíkurbúa ereinbýlishús í hverfi nærrimiðborginni, þar sem húsa- gerð er blönduð. Þetta kemur fram í skýrslu sem Land-ráð sf. hefur unnið fyrir Betri borgarbrag og Reykjavík- urborg en hún er byggð á könnun sem gerð var dagana 14.-25. mars á þessu ári og 1.421 borgarbúi tók þátt í. Nærri helmingur svarenda, eða 47%, sagðist reikna með því að skipta um húsnæði innan fimm ára og þar af sagðist yfir helmingur, eða 55%, gera ráð fyrir að leita að húsnæði innan sama hverfis. Stærsti hópurinn, 43%, sagðist þurfa að stækka við sig en svarendum þótti mikilvægast að hverfið sem þeir byggju í væri frið- sælt, að stutt væri í verslun og þjón- ustu og að góðir leik- og grunnskólar væru í nágrenninu. Hverfisverslunin mikilvæg „Óskir og kröfur fólks um hús- næði virðast hafa dregist saman í framhaldi af kreppunni og bílaeign minnkað, eins og eðlilegt er,“ segir Bjarni Reynarsson skipulagsfræð- ingur, sem vann skýrsluna, en hann hefur áður unnið sambærilega skýrslur fyrir Reykjavíkurborg, árin 2003 og 2007. Bjarni segir ýmislegt hafa komið á óvart, m.a. hversu mikla áherslu fólk lagði á að hafa verslun og þjónustu inn- an hverfisins en flestir svarenda, eða 27%, nefndu aukna þjónustu, s.s. versl- un, sem þær umbætur sem myndu bæta hverfi þeirra mest. „Það kom á óvart hvað menn virð- ast versla mikið innan hverfis og þá var um helmingur tilbúinn til að sjá veitingastaði með vínveitingaleyfi inn- an íbúðasvæða,“ segir hann. Háhýsin heilla ekki Bjarni segir sumar niðurstöður könnunarinnar vekja spurningar varð- andi nýtt aðalskipulag Reykjavík- urborgar, sem gerir ráð fyrir að 90% nýrra íbúða rísi innan núverandi borg- armarka. „Menn hafa frekar neikvæða ímynd af þéttingu byggðar svo það gæti orðið erfitt að fylgja þessu eftir,“ segir hann en ítrekar að sérfræðingar séu þó almennt sammála um mikil- vægi þess að þétta byggð innan höf- uðborgarinnar. „Svarendur máttu velja í einni spurningu í hvernig hverfi þeir vildu helst búa og þá kom Fossvogurinn langbest út. Ekki nema 4% nefndu þéttingarsvæði í miðborginni.“ Bjarni segir að í fyrri könnun hafi viðhorf fólks til háhýsa verið kannað en það hafi verið fremur neikvætt. Því sjái fólk e.t.v. frekar fyrir sér eldri byggðina þegar það nefnir miðbæinn sem ákjósanlegt hverfi, frekar en turnana við Skúlagötu t.d. Ungt fólk í húsnæðisvanda Samkvæmt skýrslunni reyndist þriðjungur svarenda á aldrinum 18-29 ára búa í foreldrahúsum. Bjarni segir húsnæðismarkaðinn erfiðan fyrir þennan hóp, það vanti meira af 2-3 herbergja íbúðum og að menn þurfi að vanda sig þegar kemur að skipulags- málum í borginni. „Ef það á að leysa húsnæðis- vanda unga fólksins þá gerist það ekki hratt ef það á að fara að þétta byggð á íbúðasvæðum. Það er miklu flóknara en að taka opið land og skipuleggja þar byggð,“ segir hann og bendir einnig á að þrátt fyrir allt séu nokkuð margir sem vilji búa á útjaðri byggð- ar. Alls reyndust 75% þátttakenda hlutlaus eða hlynnt þéttingu byggðar með nýrri íbúðabyggð á gömlum at- vinnusvæðum en þegar svarendur voru beðnir um að gera upp á milli ný- byggingasvæða völdu flestir miðborg- ina og Vatnsmýri en fæstir Skeifuna og Elliðaárvog. Flestir vilja einbýlis- hús í miðborginni Byggð og búseta » Spurðir að því hvað þeir tengdu helst við hugtakið „þétt- ing byggðar“ sögðu 57% minni græn svæði, 56% þrengsli og skortur á bílastæðum og 54% meiri skuggi. » 76% svarenda bjuggu í eigin húsnæði, 14% í leigu- húsnæði og 9% í foreldra- húsum. » Meira en helmingur þátt- takenda í könnuninni sagði góð- ar svalir eða aðgengi að garði skipta mestu máli hvað varðaði afstöðu íbúar til nærumhverfis. » 33% sögðu bílaumferð helsta ókostinn við hverfið sem þeir bjuggu í. » Þriðjungur sagði helst vanta íbúðir í lægri fjölbýlis- húsum í borginni. » 34% svarenda sögðust eiga vikuleg félagsleg samskipti við nágranna sína en 32% að þeir ættu sjaldan eða aldrei samskipti við granna sína. Búseta og búsetuóskir eftir hverfum 2013 Heimild: Könnun á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 - Land-ráð sf. 20% 15% 10% 5% 0% Ve stu rbæ r Mi ðb org La ug ard alu r Kja lar ne s Hl íða r Há ale iti og Bú sta ðir Gr afa rvo gu r Br eið ho lt Ár bæ r Gr afa rho lt Búsetuóskir Búseta 14 % 12 % 15 % 8% 16 % 14 % 1% 0% 9% 9 % 13 % 11 % 13 % 18 % 8% 15 % 11 % 13 % Bjarni Reynarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.