Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 33
Öll bíðum við með óþreyju eftir bjartasta tíma ársins. Tímanum sem kveikir líf og sýnir okkur það fegursta í náttúru landsins. Hið óvænta birtist samt alltaf og varp- ar skuggum inn í líf okkar. Í dag kveðjum við vin okkar og félaga Methúsalem, eða Dúa eins og hann var alltaf kallaður af skóla- félögum frá Bifröst. Við sáum hann fyrst fyrir næst- um hálfri öld þegar við hófum nám. Eftir stuttan tíma smitaði glaðværð hans og glettni allan hópinn. Hann var ljós yfirlitum, bjartsýnn og jákvæður. Alltaf tilbúinn að taka þátt, vera með og gefa af sér. Varð fljótt vinmargur og það var glatt á hjalla í kringum hann. Félagsstarfið átti hug hans, námið sat stundum á hakanum, án þess að það væri beint vanrækt. Íþróttir, tónlist og útivera var að hans skapi. Skólahljómsveitin, sem var feiknavinsæl, ákvað að gefa fleirum kost á að njóta af- rakstursins og spila undir nafninu Straumar um sumarið. Einn gat ekki verið með og þá sýndi Jóhann Georg Jóhannsson sína alkunnu bjartsýni með því að kenna Dúa að spila á bassagítar á nokkrum löngum kvöldum. Þeir gerðu síðan mikla lukku á böllum í Borgar- firði. Síðan lá leiðin út í atvinnulífið og kom hann víða við. Hann var mörgum góðum kostum búinn og kom sér vel í starfi. Hjálpsemi og vinsemd við samferðamenn öfluðu honum velvildar og viðurkenning- ar. En hann vildi meira. Í honum blundaði löngunin til að hafa áhrif á samfélagið og styðja þá sem minna máttu sín. Hann tók þátt í stofnun Flokks mannsins fyrir næstum þremur áratugum og fór í framboð til Alþingis. Ég kynntist honum á nýjan leik í kosningabar- áttu á Austurlandi. Hann átti ræt- ur þar og var meðal annars í sveit hjá afa sínum Methúsalem á Burstafelli. Í kosningabaráttunni birtist mannvinurinn Dúi, sem barðist fyrir hugsjónum sínum. Þær voru göfugar og settar fram af ein- lægni. Hljómgrunnurinn var hins vegar lítill, en hann hélt ótrauður áfram. Allar götur síðan hélt hann málstað sínum og félaga hátt á loft án þess að ná kjöri til Alþingis eða í borgarstjórn. Hann var með stöðugum áhuga og ósérhlífni virkur þátttakandi í lýðræðislegu starfi í þjóðfélaginu. Mannvinurinn Dúi lét jafn- framt til sín taka í alþjóðlegu starfi. Hann fór með Húmanista- hreyfingunni til Haítí árið 2004 og þá urðu straumhvörf í lífi hans. Honum tókst ekki aðeins að hjálpa fátækum börnum, hann kynntist þar jafnframt eftirlifandi eigin- konu sinni sem var skólastjóri. Á Haítí störfuðu þau saman að sameiginlegri hugsjón og hjálp- uðu börnum til mennta. Þau fluttu síðan heim til Íslands 2006 og settu á stofn Cafe Haiti, sem þau hafa rekið með myndarbrag. Þangað hafa skólafélagar hans frá Bifröst lagt leið sína og notið þar gestrisni og ánægjulegra sam- vista. Ég vil fyrir hönd vina og félaga frá námsárunum í Samvinnuskól- anum þakka vináttu og hlýhug. Við vottum eiginkonu hans og börnum okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í miklum missi. Halldór Ásgrímsson. Methúsalem Þórisson hefur lagt upp í sína hinstu för og skilið eftir marga sem sakna hans. Kynni okkar Methúsalems hófust fyrir um 30 árum þegar við skipt- umst á pólitísku áróðursefni á göt- um borgarinnar. Þó að sjónarmið okkar væru þá nokkuð ólík tókum við oft tal saman og áttum oft skemmtilegar umræður þar sem gagnkvæm virðing ríkti. Segja má að á þessum 30 árum höfum við nálgast í sjónarmiðum hægum skrefum. Methúsalem var skemmtilegur og eftir að hann og Elda konan hans opnuðu Café Haiti hef ég oft gert mér erindi þangað til að fá kaffi í hæsta gæðaflokki og freista þess að hitta á Methúsalem. Methúsalem var meðal upp- hafsmanna Húmanistaflokksins og var nokkrum sinnum í fram- boði á hans vegum. Í nýliðnum kosningum kom til tals að Húm- anistaflokkurinn og Alþýðufylk- ingin byðu fram sameiginlega enda er margt í stefnu þeirra líkt þó að nálgun sé ólík í sumum efn- um. Þótt ekki hafi orðið af sameig- inlegu framboði ríkti mikill dreng- skapur okkar í milli og málefnaleg samstaða í mörgum málum. Methúsalem kom mér alltaf fyrir sjónir sem einlægur hug- sjónamaður um betra og réttlát- ara samfélag. F.h. Alþýðufylkingarinnar votta ég Eldu og öðrum aðstand- endum hans dýpstu samúð. Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylking- arinnar. ar, sem lagði í ferðalagið mikla fyrir tæpum fjórum árum, tekið henni opnum örmum á áfanga- stað. Já, rétt eins og hann umvafði hana hér í rúmlega 51 ár. Við nágrannar hennar við Garðarsveginn, og aðrir Seyðfirð- ingar, þökkum notalegt nábýli í rúma fimm áratugi. Anna setti sterkan svip á nágrenni sitt, með garðinum sem hún ræktaði af mikilli alúð að Garðarsvegi 8, þar sem þau hjónin byggðu sitt bú. Garðurinn sá segir sögu af konu með græna fingur sem hlúðu bæði að viðkvæmum blómum og trjá- gróðri. Garðinn skreytti hún einn- ig með fallega máluðum fjöru- steinum og hlöðnum veggjum. Allt þetta gaf garðinum sterkan listrænan svip. Að sjálfsögðu stóð hún ekki ein í þessu. Eiginmaður hennar, Hjálmar Jóhann, átti að sjálfsögðu sinn þátt í sköpunar- verkinu, þar sem þau hjónin voru einstaklega samhent við allt sem gert var bæði innandyra og utan. Allt frá unglingsárum sínum á Eskifirði átti Anna samneyti við flóru landsins, sem að sjálfsögðu rofnaði ekki þótt hún flyttist til Seyðisfjarðar. Það hlýtur að vera nokkuð ein- stakt, að á Eskifirði ólst hún upp í næsta húsi við heimili vinkonu sinnar, sem er mín kona. Þar var einnig stutt á milli vinnustaða þeirra, þar sem Anna vann í versl- un Pöntunarfélagsins, gegnt Markúsarbúð, þar sem vinkonan vann. Anna gekk í heilagt hjóna- band með náfrænda mínum á sama degi og vinkonan gekk að eiga sinn karl. Frá árinu 1962 bjó Anna í næsta húsi við þessa vin- konu sína, eða þar til kallið kom 23. júní sl. Aldrei bar skugga á vináttu þeirra öll þessi ár. Anna og Hjálmar eignuðust þrjá syni. Þá Níels Atla. lögreglu- þjón og rafvirkja, sem búsettur er í Neskaupstað, Þorvarð Ægi tré- smið og Agnar Inga vélstjóra, báðir búsettir í Vestmannaeyjum. Barna- og barnabarnabörnin eru orðin það mörg, að ég treysti mér ekki til að telja þau upp hér í stuttri grein. Á því er beðist vel- virðingar. Anna var einstaklega um- hyggjusöm bæði sem móðir og húsmóðir, enda sérlega þrifin og reglusöm kona. Mann sinn missti hún 20. október 2009. Það varð mikið áfall sem henni var erfitt að jafna sig á. Hún var félagi í sam- tökum eldri borgara hér á Seyð- isfirði og tók þátt í félagslífinu á meðan heilsan leyfði. Við hjónin þökkum Önnu meira en hálfrar aldar notalegt nábýli og kisan Depla saknar vinar í stað og þakkar fyrir sig. Við vottum son- um hennar, systrum og öðrum ættingjum samúð okkar. Henni biðjum við blessunar í annarri til- veru, vitandi að „þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti“. Jóhann B. Sveinbjörnsson og fjölskylda. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 ✝ GuðmundurAlfonsson fæddist í Ólafsvík 27. ágúst 1933. Hann lést á gjör- gæsludeild LSH Fossvogi 19. júní 2013. Foreldrar hans voru Alfons Krist- jánsson, f. í Ólafs- vík 8. des. 1905, d. 4. ágúst 1961, sjó- maður og Ásthildur Guðmunds- dóttir, f. í Mýrdal, Kolbeins- staðahreppi 3. mars 1910, d. 20. maí 1989, húsfreyja. Systk- ini hans eru Ingveldur, f. 31. ágúst 1935, Kristján, f. 26. mars 1937, d. 1993, Randver, f. 16. mars 1939, d. 2006, Svava, f. 2. apríl 1940, Sigríður, f. 19. febrúar 1945, og Aldís, f. 14. júní 1950. Guðmundur kvæntist 31. des- ember 1958 Matthildi Kristjáns- dóttur, f. í Melkoti í Staðarsveit 7. maí 1936, d. 25. ágúst 2005. Foreldrar hennar voru Guðrún 1937, Erlendur, f. 7. apríl 1939, Stefán, f. 4. september 1942, Sigurður, f. 21. mars 1944, og Sólveig, f. 12. desember 1947. Börn Guðmundar og Matthildar eru: 1) Bryndís, f. 24. febrúar 1961. Maki hennar er Samúel Valsson, þau eiga Margréti, f. 6. mars 1986, unnusti hennar er Bryngeir Arnar, þau eiga Samúel Bryngeir, f. 24. febrúar 2012, og Guðmundur, f. 5. júlí 1988, unnusta hans er Sara Mjöll. 2) Finnur, f. 11. desem- ber 1962. Sambýliskona hans er Petrína Kristjana, dóttir hans er Heiðrún Huld, f. 3. febrúar 1988. 3) Albert, f. 6. febrúar 1965. Maki hans er Samran Sela, dætur þeirra eru Eydís, f. 12. júlí 1999, og Matthildur, f. 24. nóvember 2003. 4) Hjörleif- ur, f. 21. janúar 1967. Maki hans er Fríða Sveinsdóttir, son- ur hans er Sigurlaugur, f. 28. nóvember 1989, unnusta hans er Guðrún, synir Hjörleifs og Fríðu eru tvíburarnir Hjörvar og Arnleifur, f. 3. júlí 2000. Guðmundur fæddist og bjó alla tíð í Ólafsvík. Hann vann sem vörubílstjóri frá unga aldri þar til starfsaldri hans lauk. Útför Guðmundar verður gerð frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 28. júní 2013, kl. 13. Hjörleifsdóttir, f. 20. júní 1907, d. 12 október 1991, hús- freyja í Melkoti, og Kristján Erlends- son, f. 28. apríl 1896, d. 23. ágúst 1973, bóndi í Mel- koti og orgelleik- ari í Staðastað- arkirkju. Hún ólst upp á Hofstöðum frá unga aldri hjá móðurafa sínum Hjörleifi Björnssyni og konu hans Matt- hildi Jóhannesdóttur, ásamt frænku sinni Áslaugu Sigurð- ardóttur, f. 30. ágúst 1926, d. 23. desember 1997. Systkini Matthildar eru Kristjana El- ísabet, f. 28. júlí 1926, d. 1. jan- úar 2013, Elín, f. 30. nóvember 1927, Magðalena, f. 13. nóv- ember 1928, Theodór, f. 19. mars 1930, d. 4. janúar 1979, Aðalheiður, f. 4. október 1931, d. 3. mars 2005, Gunnar, f. 22. febrúar 1933, d. 6. janúar 2000, Hjörleifur, f. 16. desember Elsku pabbi. Nú er þinni síð- ustu bílferð lokið. Kannski vant- aði bílstjóra á nýjum stað, stað sem bíður okkra allra. Þetta bar brátt að og við sem vorum rétt farin að ræða áttræðisafmælið þitt í ágúst. Þú varst sannur Ólsari, fædd- ist þar og bjóst þar alla tíð, fórst ekki suður nema af brýnni nauð- syn, allavega seinni árin. Amma mín sagði að þú hefðir fæðst með bíl í hendi, því þú varst snemma farinn í bílaleik og varðst þú síðar bílstjóri, tókst fyrst bíl- próf 1951 í Ólafsvík, síðan meira- próf 1954 í Borgarnesi. Fyrst varst þú nokkur ár í ferðum milli Ólafsvíkur og Reykjavíkur fyrir Kaupfélag Ólafsvíkur, þrisvar í viku keyrðir þú á milli og tók ferð- in um sjö klukkustundir aðra leið, svolítið breyttir tímar. Á þeim árum var ekki nóg að keyra vörur á milli staða, heldur komst þú með útborgunarseðla fyrir fiskvinnslufólkið í Ólafsvík, frá Reykjavík, þar sem engin seðlageymsla var í Sparisjóði Ólafsvíkur, vafðir seðlunum í slopp og lést undir sætið, sem síð- an var afhent gjaldkera HÓ. Þetta kallar maður mikla ábyrgð og sýnir hve traustur þú varst. Þú eignaðist þinn fyrsta vöru- bíl árið 1959 og urðu þeir nokkrir í gegnum tíðina. Alltaf hafa bíl- arnir þínir verið til fyrirmyndar, enda hugsaðir þú mjög vel um þá. Þú vannst mikið við vegavinnu og landanir úr bátum og skipum og varst mjög eftirsóttur til þeirra verka. Einnig vannstu mikið fyrir Stakkholt ásamt Ranna bróður þínum og Jóni Steinari frænda þínum, sem eru líka látnir. Ég er viss um að þið eruð að dytta að bílum í himna- ríki. Elsku pabbi. Þú varst mjög duglegur eftir að mamma dó, sást um matseld, þvotta og blóm. Systur þínar sögðu mér að þær hefðu nú stjanað við þig þegar þú bjóst í foreldrahúsum, einnig móðir þín, sem sá ekki sólina fyrir þér, síðan tók mamma við, enda vannst þú mikið á yngri árum. Þú varst svo hjartahlýr og góð- ur maður, sannur í gegn og traustur. Alltaf að spyrja eftir okkur og barnabörnunum, mjög áhugasamur um þeirra hagi og alltaf spurðir þú um litla langafa- barnið, hvað hann væri farinn að gera, skríða, ganga og þess hátt- ar, og hlóst þegar amman var að kvarta yfir orkunni í barninu þeg- ar hann var í pössun hjá mér. Elsku pabbi. Þín verður sárt saknað. Það verður tómlegt á bryggjunni þar sem þið vinirnir hittust alltaf og rædduð málin og fylgdust með bátunum að fara út og koma að landi og dóttirin fylgdist með á vefmyndavélinni, bara öðru hvoru og það þótti þér nú fyndið. Það verður skrítið að koma í Sandholtið og enginn heima. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. (Hugrún) Ég kveð þig nú með söknuði í hjarta og hafðu þökk fyrir allt, bið að heilsa mömmu. Þín dóttir, Bryndís. Elsku afi. Nú ertu farinn frá okkur, svo óvænt og óviðbúið. Amma hefur væntanlega tekið á móti þér með opnum faðmi. Það er gott að vita að þið séuð saman á ný eftir lang- an tíma þótt við hefðum viljað hafa þig lengur hér hjá okkur. Við munum alltaf eiga minningarnar um þig og geymum þær í hjart- anu og gleymum þér aldrei. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þín barnabörn, Margrét, Heiðrún Huld og Guðmundur. Nú, þegar ég kveð í hinsta sinn elskulegan bróður minn, Guð- mund Alfonsson (Gumma) þá koma upp í hugann ótal minning- ar frá æskuárum okkar í Ólafsvík. Gummi var elstur af okkur sjö systkinum sem ólumst upp hjá foreldrum okkar Ásthildi og Alf- onsi í húsinu okkar, Dvergasteini. Ég leit ávallt upp til Gumma stóra bróður míns en tólf ára aldurs- munur var á okkur. Hann var mér alltaf svo góður og gaf mér gjafir sem ég á ennþá. Gummi hafði mikinn persónuleika, var heiðar- legur og nákvæmur og bar mikla umhyggju fyrir okkur systkinum sínum og foreldrum. Hann byrj- aði snemma að vinna eins og tíðk- aðist á þeim árum í Ólafsvík. Rétt rúmlega tvítugur hóf hann störf hjá kaupfélagi Ólafsvíkur og keyrði flutningabíl milli Ólafsvík- ur og Reykjavíkur. Þá voru sam- göngur erfiðari en þær eru í dag, mjóir og holóttir malarvegir og heiðin oft illfær á vetrum. Þessu starfi gegndi Gummi í fjöldamörg ár. En í þessum ferðum var ham- ingjan honum hliðholl því þar kynntist hann elskulegri eigin- konu sinni, Matthildi Kristjáns- dóttur (Hiddu) sem starfaði á veitingastaðnum Vegamótum. Þau byrjuðu sinn búskap í Ólafs- vík, eignuðust fjögur myndarleg börn og bjuggu þar alla tíð. Þegar Gummi og Hidda byrjuðu sinn búskap var ég daglegur gestur á þeirra heimili enda vorum við Hidda miklar vinkonur. Þegar Gummi var í ferðum til Reykja- víkur gisti ég alltaf hjá Hiddu svo hún væri ekki ein. Gerðum við okkur þá ýmislegt til skemmtun- ar á kvöldin. Hún Hidda mín var alveg sérstök kona, mér fannst hún geta allt, sérstaklega hand- lagin sama við hvað hún starfaði, greind og fróð um alla hluti. Hún reyndist okkur svo vel, allri fjöl- skyldunni hans Gumma. Það var mikill söknuður þegar hún féll frá allt of snemma. Það var mikill missir fyrir Gumma sem mér fannst ósköp einmana eftir það enda öll börnin flutt að heiman. Þegar Gummi hætti að keyra flutningabílinn keypti hann sér vörubíl og var þá mikil vinna við að endurbæta vegi á Snæfellsnesi og framkvæmdir við höfnina í Ólafsvík. Ég byrjaði minn búskap í Reykjavík og það var mér mikil ánægja að geta tekið á móti Gumma og leyft honum að gista hjá mér þegar hann þurfti að út- rétta ýmislegt í borginni. Þá kynntust börnin mín Gumma frænda, hann var svo barngóður. Strákunum mínum fannst alltaf svo gaman að koma til Ólafsvíkur og er þeim enn í fersku minni þegar Gummi frændi tók þá með í stóra vörubílinn sinn. Börnin mín, Ellert, Ómar og Gunnhildur Ásta þakka Gumma frænda fyrir allt sem hann gerði fyrir þau og kveðja hann með söknuði. Á þess- ari stundu er ég svo ósköp fegin að við Trausti skruppum til Ólafs- víkur í ágúst í fyrrasumar til þess að heimsækja Gumma. Hann tók svo vel á móti okkur. Hann var svo hress og stoltur af fyrsta langafabarninu sínu og sýndi okk- ur myndir af litla drengnum og þannig vil ég hafa hann í minning- unni. Hvíl þú í friði, elsku bróðir, og takk fyrir allt. Elsku Bryndís, Finnur, Albert og Hjörleifur, tengdabörn, barna- börn og langafabarn, við vottum ykkur innilega samúð við fráfall ástvinar. Sigríður Alfonsdóttir og fjölskylda. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Það er víst það eina sem við vit- um að allt tekur einhvern tímann enda og alltaf erum við sem eftir erum jafn óviðbúin því þegar kærir vinir kveðja þennan heim. Guðmundur, eða Gummi frændi, er farinn og eftir sitja minning- arnar um góðan frænda sem var mér meira en bara frændi og það er varla að ástæðulausu sem tveir yngstu synir hans hafa verið mér sem bræður. Alltaf var hann tilbúinn að hjálpa manni ef eitt- hvert vesen var á hlutunum hjá mér og mig vantaði einhverja hjálp, þá gat maður alltaf beðið Gumma um að hjálpa sér. Æsku- minningarnar eru frá því þegar ég var pínulítill, þá dreymdi mig um að fá að fara í vörubílinn hans og það voru ófáar stundirnar sem við frændurnir vorum á rúntinum með Gumma í vörubílnum þegar hann var að landa úr bátunum og það var alltaf ævintýri að leika sér í kjallaranum heima hjá honum í vörubíladekkjunum. Seinna, þeg- ar við feðgar vorum búnir að stofna okkar útgerð og vorum að beita, þá komst þú alltaf í skúrinn til að spjalla og svo nú í seinni tíð þegar heilsan fór að versna þá hittumst við svo oft hjá Ísmann- inum og ræddum svo oft þar sam- an um fiskinn og fiskiríið og það sem var að gerast í bæjarfélag- inu. Okkur strákunum fannst nú alltaf gaman þegar þið í þrjúbíó- genginu voruð á spjallinu á bryggjunni og svo oft sem ég kom í land þá varst þú á bryggjunni og alltaf fékk maður vink áður en lagst var undir kranann til lönd- unar, en nú verður það bara minningin um þig sem verður að brúa það bil sem þarna hefur myndast. Hvíl þú í friði, elsku frændi. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku Bryndís, Finnur, Albert og Hjörleifur og ykkar fjölskyld- ur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma sem nú er. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Haukur Randversson. Guðmundur Alfonsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.