Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 37
Amma, mamma þín, var búin að ganga í gegnum erfið veikindi og var lömuð hægra megin en samt tókuð þið öll á móti okkur eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þegar árin liðu og þú giftir þig og þú áttir fyrsta barnið hann Benna, ég passaði hann stundum og svo kom Eyi og svo Þórey og alltaf fannst mér gaman að passa þau, orðin stálpaður krakki. Þú átt 6 yndisleg börn og ég þekki þau öll mjög vel nema yngsta soninn Róbert, en ég veit að þau eru öll yndisleg og öll vel gift og eiga yndisleg börn. Þegar ég segi þetta við þau svara þau mér öll strax: já, við eigum bestu mömmu í heimi og þess vegna er- um við svona. Elsku Beta, það var erfitt að horfa á þig berjast við veikindin síðustu vikurnar, þú barðist eins og hetja og varst ekki tilbúin að kveðja en svo kom að því að þú vildir fara, veikindin sigruðu. Ég veit að fjölskylda þín er í sorg og þau eiga um sárt að binda og Gulli maðurinn þinn hefur misst mikið og erfitt að hugga hann. Hann sagði við mig einn daginn þegar ég talaði við hann eftir að þú fórst á spítalann og ég var að hrósa honum fyrir hvað hann væri sterkur og hugsaði vel um þig í veikindunum: hún Beta er búin að dekra við mig alla ævi og nú er kominn tími til að ég dekri við hana. Elsku Gulli, Benni, Eyi, Þórey, Nonni, Arnar, Róbert og fjölskyldur, ég sendi ykkur sam- úðarkveðjur. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga) Jónína frænka. Elsku Elsabet mín. Þegar ég kom í sveitina til ömmu og afa (pabba þíns og mömmu) þá varstu alltaf svo góð við mig. Maður gæti ímyndað sér að þú hefðir haft margt skemmtilegra að gera á unglingárunum en að hafa mig, krakkann, alltaf í eft- irdragi. En það var bara svo gott að vera í fanginu á þér og þú varst endalaust þolinmóð við mig. Ég man að ég elti þig enda- laust og alltaf léstu undan suðinu í mér um að fá að koma með þér, líka þegar þú fórst að hitta vini og vinkonur. Ég lenti stundum í ævintýrum með þér og lofaði að segja engum frá. Þú varst líka svo flink að sauma og saumaðir stundum eitt- hvað fallegt á mig og Jónínu syst- ur mína. Svo kom að því að þú hittir hann Gulla þinn. Hann hélt í fyrstu að þú ættir mig og þyrðir bara ekki að segja honum frá því. Þið Gulli genguð í hjónaband og eignuðust sex börn og hafa þau öll verið heppin að fá að vera börnin þín. Ég fékk fréttir af veikindum þínum en alltaf vonaði maður það besta. Þessar síðustu vikur sem ég heimsótti þig veika á spítala hugsaði ég hversu ósanngjarnt það væri að leggja þessi veikindi á þig en maður gat ekkert gert. Elsku Elsabet, þakka þér fyrir allt. Guð verði með ykkur elsku Gulli, Benni, Eyi, Þórey, Nonni, Arnar og Róbert og tengdabörn- unum og barnabörnum. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Ingveldur. Maður verður ekki fullorðinn, fyrr en hann hefur misst móður sína, kvað Tómas Guðmundsson. Þá slitnar þráðurinn við æskuna, menn geta ekki lengur leitað í hlýjan faðm. Þótt alkunna sé, að foreldrar elski börn sín heitar en börnin foreldrana, er samband móður og barns dýpst alls. Móðir spyr sjaldnast, hvort barnið hennar eigi eitthvað skilið: móð- urástin er skilyrðislaus; konan bar barnið í móðurkviði, fæddi það, gaf því brjóst, ól það upp, fylgdist með því stíga skref út í lífið. Sex börn Elísabetar Jónu Benediktsdóttur, sem lést 19. júní síðastliðinn, aðeins 73 ára að aldri, eiga margs að minnast, því að hún helgaði líf sitt þeim nán- ast óskipt. Hin mörgu handtök móðurinnar rata sjaldnast í sögu- bækur, en engar sögubækur hefðu verið skrifaðar, hefðu höf- undarnir ekki notið slíkra hand- taka. Elísabet Jóna fæddist 2. des- ember 1940 og ólst upp í Þykkva- bænum, dóttir hjónanna Bene- dikts Jóhanns Péturssonar, bónda og kúsks að Stóra-Rima- koti í Djúpárhreppi, og Jónínu Þorgerðar Jónsdóttur húsfreyju. Þykkvibær er elsta sveitaþorp á Íslandi, þúsund ára gamalt. Nafnið vísar sennilega til þess, að byggðin hafi verið þétt eða þykk. Land er flatt og sendið, enda gamall sjávarbotn. Þótt landslag sé fábreytt, er fjallasýn fögur um allt Suðurland, ekki síst til Heklu og Eyjafjallajökuls. Ég var ein- mitt á leið í fermingu fósturdótt- ur minnar og sonardóttur Elísa- betar Jónu, Anítu Ylfu Jónsdóttur, þegar Eyjafjallajök- ull gaus í apríl 2010, svo að ég tepptist erlendis. Í Þykkvabæn- um hentar jarðvegur betur til kartöfluræktar en grasnytja, jafnframt því sem hann er 1,6 kílómetra frá sænum, eins og segir í frægum söngtexta. Elísabet Jóna kynntist ung að árum Guðlaugi Konráð Jónssyni úr Reykjavík. Hann var jafn- gamall henni, sonur Jóns Einars Konráðssonar sjómanns og konu hans Þóreyjar Guðlaugsdóttur. Þau Elísabet og Guðlaugur tóku saman og fluttust til Reykjavík- ur, þar sem fyrstu börn þeirra fæddust, Benedikt Jón 1961, Ey- þór 1962, Þórey 1964 og Jón Ein- ar 1966. Þau fluttust síðan um skeið í Þykkvabæinn og tóku við kartöflubúi foreldra Elísabetar Jónu, jafnframt því sem Guð- laugur stundaði sjó til að drýgja tekjurnar. Hann er forkur til vinnu og öðlingur undir hrjúfu yfirborði. Arnar bættist í barna- hópinn 1968 og Róbert 1976. Fjölskyldan fluttist aftur til Reykjavíkur, og Guðlaugur vann ýmis störf, meðal annars í ál- verinu í Straumsvík, en nýtti sér einnig, að hann er hagur báta- smiður. Elísabet Jóna vann líka úti, þegar hún kom því við, og stundaði aðallega afgreiðslu- störf. Eftir að börnin uxu úr grasi, fluttust þau Elísabet Jóna og Guðlaugur til Hveragerðis og þaðan á Hellu. Börn þeirra eru annálað dugnaðarfólk, flestir synirnir vélskólagengnir og hafa allir lagt fyrir sig störf úti í at- vinnulífinu, ýmist á sjó eða landi. Á Elísabet Jóna margt barna- barna, sem öll sakna hennar sárt. Hún var alþýðukona í bestu merkingu orðsins, hógvær, vinnusöm og ósérhlífin. Það er fólk eins og hún og fjölskylda hennar, sem skapar verðmætin. Hannes Hólmsteinn Gissurarson. ómunatíð. Guð geymi þig, elsku afi minn. Kristín Hallsdóttir. Ég dvaldi mörg góð sumur á Stapa sem barn og þegar ég minnist afa koma mörg lítil myndbrot upp í hugann. Afi á litla traktornum að slá með heyrnarskjólin á skallanum en ekki yfir eyrunum. Afi að spila á orgelið með bossanova-taktinum. Afi að leggja kapal og drekka te. Afi að lesa fyrir mig undir bestu sæng í heimi (stundum var stutt í hroturnar!). Afi og ég á leið upp á Ketillaugarfjall, hann að reyna að sannfæra mig um að ég myndi ekki hrapa. Afa fannst gaman að kitla mig, enda mjög stríðinn. Ég man eftir ömmu og afa fíflast hvort í öðru, eftir afa og Gísla saman úti í skemmu, eftir afa og Huldu að girða. Afa fannst skemmtilegast að vera innan um fólk og oft fórum við í heimsókn út á Dynjanda og út á Höfn og svo var líka alltaf einhver í heim- sókn. Undanfarin ár höfðum við ekki hist mikið enda er ég alltaf í útlöndum. Mér þótti samt alltaf vænt um að hitta afa og hlusta á smáharmonikkuspil þótt það væri oft langt á milli. Við erum mörg sem eigum eftir að sakna hans, hópurinn sem að honum stóð er stór en minningarnar um afa lifa í okkur öllum. Vala Hjörleifsdóttir. Þristurinn lagði upp frá Reykjavíkurflugvelli og innan- borðs er 9 ára stúlkubarn sem var á leið í „sveitina“ til alls ókunnugs fólks. Millilent var á Fagurhólsmýri og áfangastaður- inn var Höfn í Hornafirði. Þá var flugvöllurinn á Suðurfjörum. Þaðan var siglt í land og svo kom Jói lóðs og sótti mig á jeppanum og ók mér inn að Stapa í Nesjum. Allt þetta þótti sjálfsagt í þá daga og þarna dvaldi ég í sex sumur. Afi minn Björn Þorgrímsson, sem var fæddur Hornfirðingur, átti marga vini þar og var mér komið fyrir hjá einum þeirra, Nanna, Jóni Sigurðssyni á Stapa. Þarna var tvíbýli eða réttara sagt þríbýli. Systkinin Lauga og Nanni sem ég dvaldist hjá bjuggu austurí, en bróðir þeirra Sigurbergur og kona hans Björg bjuggu suðurí, ásamt syni sínum Sigga og konu hans Völu og þremur börnum og síðar bættust þrjú við. Allt þetta fólk hefur ver- ið mínir bestu vinir. Sigga kveð ég nú eftir meira en hálfrar aldar afar góð kynni. Siggi og Vala voru ungu hjónin á bænum, hann laglegur og snaggaralegur og Vala alltaf svo sæt í dásamlega góðu skapi og hlæjandi. Þetta var samt ekki alltaf auðvelt fyrir ungt par, þar sem þröngt var búið, og ekki greinargóð skil milli þess hver stjórnaði ferðinni í búskapnum. Á þessum árum var vélvæð- ingin að ryðja sér til rúms og voru dráttarvélar teknar við af hestum, mjaltavélar komnar í fjósin, en samt var verið að hand- raka og snúa heyinu, raka dreifar og einnig voru nokkrar kýrnar handmjólkaðar til að flýta fyrir. Siggi var fljótur að tileinka sér allt sem laut að vélum og drátt- arvélum. Hans hlutverk varð fljótt að sinna öllu sem hafði með það að gera, slá, raka, hirða og svo að halda öllum vélunum gangandi og var hann því oft fram á nótt að gera við og smyrja fyrir næsta áhlaup. En Siggi horfði lengra og langt út fyrir túnfótinn, því hann varð það sem mætti kalla vísi að ferðabónda. Var hann því iðinn við að sinna gestum sem bar að garði, ók þeim um helstu staði Hornafjarðar, og á meðan Vala stóð í eldhúsinu og eldaði og bak- aði fór hann með vísur og sagði sögur við matarborðið. Mér þótti ætíð mjög skemmtilegt að heyra hann herma eftir körlunum í sveitinni, hvort sem það var Villi í Krossbæ, Helgi í Hoffeli, Sig- finnur í Stórulág, Bensi á Mið- skeri, séra Skarphéðinn, Hjalti í Hólum og fleiri, þó þeir hljómuðu allir næstum eins, drógu seiminn dálítið nefmæltir og stundum örl- aði á flámæli. En alltaf var það jafn skemmtilegt því það varð svo fyndið sem þeim var lagt í munn. Siggi var mjög músíkalskur og söng vel. Hann söng mjög lengi í karlakórnum og spilaði seinni ár- in á harmonikku sem veitti hon- um mikla hugarró, ekki síst þeg- ar erfiðleikar steðjuðu að. Ég ætla að þakka Sigga fyrir langa samfylgd og held að hann hafi verið farinn að þrá hinstu hvíld- ina, en síðast þegar ég hitti hann fyrir rúmum mánuði, sagðist hann alveg vera búinn. Það er samt alltaf sárt fyrir okkur sem eftir erum að sjá á eftir góðum vinum. Völu og allri fjölskyldunni, systkinum Sigga og þeirra fólki, vottum við Þórarinn og synir okkar dýpstu samúð. Unnur Ólafsdóttir. Kynni okkar af Sigurði Sigur- bergssyni á Stapa, eða Sigga á Stapa eins og hann oftast var nefndur, ná aftur til ársins 1975. Þá hafði Skeiðarárbrú verið byggð árið áður og ferðalag aust- ur í Hornafjörð var ekki eins fjarlægt takmark og fram að því. Næstu árin þar á eftir vorum við að störfum á Höfn og á Lóns- öræfum og annar fóturinn, og stundum báðir, voru á Stapa hjá því öndvegisfólki. Það var mikið lán að góður vinur okkar kynnti okkur fyrir heimafólkinu á Stapa, þar sem hann hafði verið í sveit, og sú viðkynning breyttist fljótt í vináttu sem okkur hefur verið dýrmæt æ síðan. Sigurður var mjög músíkalsk- ur og skemmtilegur maður, hafði gaman af tónlist og áhuga á öllu sem fyrir bar, sagði vel frá, var söngmaður góður og manna kát- astur á góðum stundum. Hann var fæddur og uppalinn á Stapa og þekkti umhverfið eins og lóf- ann á sér, sem kom okkur vel þegar jarðfræði svæðisins var könnuð, rennt var fyrir fisk í sveitinni eða lagst á magann og bragðað á vatni úr ölkeldu í skriðunni vestan bæjar. Góðar minningar eru það dýr- mætasta sem maður eignast á ævigöngunni og margar slíkar eru frá samverustundum á Stapa. Slíkar veislur í farangr- inum þökkum við og varðveitum. Síðustu árin voru erfið okkar góða vini en eftirminnilegur verður bíltúrinn út í Skógey á lygnu og björtu sumarkvöldi í júlí fyrir tæpum þremur árum. Engir staðir jafnast á við Hornafjörð á slíkum stundum og nú verður slíkur bíltúr ekki endurtekinn en ljúf minning lifir um góðan vin. Við vottum stórfjölskyldunni á Stapa okkar dýpstu samúð á erf- iðri stund. Ella B. Bjarnarson og Helgi Torfason. Rúmum tuttugu árum síðar man ég enn hversu döpur ég varð þegar mín kæra systir Ella ákvað að setjast að á Hornafirði. Ég vissi sem var að fundir okkar yrðu færri. Það var þó huggun harmi gegn að mægjast og kynn- ast því góða fólki sem Stapafjöl- skyldan er. „Siggi og Vala eru svo góð“ sagði dóttir mín ung að árum upp úr eins manns hljóði eftir eina af heimsóknum okkar fjölskyldunnar að Stapa, þar sem dekrað var við hana á alla lund. Það voru orð að sönnu. Fáum greiðviknari og gestrisnari mönnum en Sigurði Sigurbergs- syni hef ég kynnst um ævina, ekkert var nógu mikið, allt var sjálfsagt. Hann var óþrjótandi að sýna okkur dásemdir Horna- fjarðar, segja frá staðháttum og mannlífi og endalaust var veislu- borðið á Stapa. Nú er skarð fyrir skildi – Siggi er farinn á annan stað og hans verður sárt saknað en „orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur“. Ingibjörg Hallbjörnsdóttir. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 ✝ SæmundurJónsson fædd- ist í Baldurshaga í Grindavík 30. júní 1933. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík 21. júní 2013. Hann var sonur hjónanna Jóns M. Gíslasonar, f. 1906, d. 1984, og Val- gerðar Sigurðardóttur, f. 1911, d. 1982. Systkini Sæmundar eru Erla Borg, f. 1932, maki Þorleif- ur Guðmundsson, f. 1931 og Gísli, f. 1939, maki Margrét Brynjólfsdóttir, f. 1945. Árið 1967 kynntist Sæmund- ur eiginkonu sinni, Steinunni Svölu Ingvadóttur, f. 9. mars 1936, d. 2000. Þau giftust 2. september 1973 í Laugarnes- kirkju. Steinunn átti fyrir dæt- urnar: 1) Lilju Ósk, f. 3. júní 1954, maki Jónatan Ingi Ás- geirsson, f. 1953, þau eignuðust fjögur börn, Sædísi Maríu, Steinunni Björk, Kristján Jón og Lilju Ósk, d. 1986. 2) Árnýju, f. 25. október 1958, d. 1986, maki hennar var Örn Kærnested, f. 1956, d. 1998, þau eignuðust tvö börn, Hildi og Sæ- mund Örn. 3) Ingi- björgu Karen, f. 31. maí 1962, maki Bryan Lynn Thom- as, f. 1960, þau eiga þrjú börn, Egil Lynn, Lilju Char- lene og Karel Eu- gene. Barna- barnabörnin eru 19. Sæmundur gekk í barnaskólann í Grindavík. Hann byrjaði snemma til sjós, aðeins 14 ára gamall. Árið 1955 fór hann í Stýrimannaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 1956. Næstu árin var hann stýrimaður eða skipstjóri á ýms- um bátum sem gerðir voru út frá Grindavík. Árið 1966 stofn- uðu þeir bræður Sæmundur og Gísli ásamt frænda sínum Bjarna Ágústssyni útgerð- arfélagið Víkurhraun. Þar starf- aði hann sem skipstjóri á Hraunsvíkinni til ársins 1999. Ævistarf Sæmundar snerist um sjómennsku, enda var hann til sjós í 53 ár. Útför Sæmundar fer fram í Grindavíkurkirkju í dag, 28. júní 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Þegar ég kveð afa minn Sæ- mund er mér þakklæti efst í huga. Minningar um afa Sæmund tengjast ömmu og Grindavík, sjó- mennsku, ferðalögum og yndis- legri hlýju. Afi var farsæll og metnaðarfull- ur skipstjóri. Ég sé hann fyrir mér hlusta á veðurfréttirnar einbeitt- an á svip, fara svo í símann og taka ákvörðun um brottför og fá sér því næst í nefið. Afi tengdist Hrauns- víkinni sinni sterkum böndum og sjómennskan einkenndi hans kar- akter og líf. Hann var mikill Grindvíkingur og því svo viðeig- andi að við barnabörnin hans í Súðavík kölluðum hann afa í Grindó. Á heimili afa og ömmu í Grinda- vík var gaman að dvelja og oft líf og fjör. Alltaf var heimili þeirra hjóna einstaklega fallegt og til fyr- irmyndar hvað afi var liðtækur við heimilisstörfin. Afi var einnig ánægður með sig í eldhúsinu og gerði t.d. alveg æðislega góðar fiskbollur. Amma og afi voru ein- staklega hlý og nutu þess að dekra við barnabörnin sín og Böggul mætti sennilega kalla heppnasta hund í heimi. Yfir útilegunum og ferðalögun- um með ömmu og afa er ævintýra- blær og ekki síst þegar við fórum í siglingu með Eddunni sem var mín fyrsta ferð til útlanda. Afi Sæmundur hafði notalega nærveru og væntumþykju skynj- aði ég ávallt í augnaráði hans og viðmóti. Hann hafði gaman af því að segja sögur sem yfirleitt höfðu spaugilegan undirtón og því skemmtilegur heim að sækja. Ég er afar þakklát fyrir ljúfar minningar um frábæran afa. Afi minn, mér þótti ákaflega vænt um þig. Fyrir mig ertu sterk fyrir- mynd sem ég lít upp til. Sædís María Jónatansdóttir. Sæmundur Jónsson Elsku besti pabbi minn, nú eru komnar nokkrar vikur síðan þú kvaddir þennan heim og ég er enn að reyna að sætta mig við það að þú sért far- inn en það er eitthvað sem ég á ef- laust aldrei eftir að geta. Eftir að mamma kvaddi okkur þá tókst þú við kyndlinum af henni og lagðir mikið á þig til að fylla í það stóra skarð sem hún skildi eftir sem þér tókst að miklu leyti og í leið- inni urðum við nánari en nokkru sinni. Þó að við fjölskyldan værum öll flutt svolítið í sundur þá var samt alltaf gott að vita af þér þarna hinum megin við ána og varð mér oft hugsað til þín og litlu systur þegar ég horfði út um gluggann en nú fyllist hjartað bara af sökn- uði í hvert sinn sem ég horfi yfir. Það var alltaf hægt að hringja í þig og þú varst alltaf til staðar Ragnar Heiðar Guðsteinsson ✝ Ragnar HeiðarGuðsteinsson fæddist í Reykjavík 5. október 1954. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 27. maí 2013. Útför Ragnars fór fram frá Bú- staðakirkju 6. júní 2013. þegar maður þurfti á því að halda. Ég sé mikið eftir því núna hversu sjaldan ég lét í mér heyra en þú varst alltaf duglegur að fylgjast með manni. Mig hafði dreymt um það í mörg ár að flytja að heiman, samskipti okkar voru erfið um tíma og ég hreinlega bara þráði að fá frið og öðlast meira sjálfstæði en nú þrái ég ekkert heitar en að fá að faðma þig og vera hjá þér aft- ur. Ég er alveg óendanlega þakk- látur fyrir alla þá hjálp og allan þann stuðning sem þú veittir mér þegar ég tók loksins það risastóra stökk að kaupa mína fyrstu íbúð og þó að það hafi allt verið á ein- hverjum rosalegum spretti eins og allt var alltaf hjá þér þá hefði ég eflaust aldrei komist í gegnum það allt án þín. Það er fyrst núna eftir að þú ert farinn að ég sé hversu mikil áhrif þú hafðir á líf mitt og hversu líkir við vorum í raun og veru. Hvar sem þú ert núna niðurkom- inn er það mín heitasta ósk að það sé hjá mömmu. Bless, elsku besti pabbi minn. Óskar Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.