Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Ég er að undirbúa Everest-verkefnið, mynd- in á að fara í tökur í október, samkvæmt nýj- ustu fréttum […] grænt ljós á það ætti að koma í lok þessarar viku eða byrjun þeirrar næstu,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormákur, spurður að því hvað sé framundan hjá honum. Á hann þar við kvikmynd byggða á sannsögu- legum atburðum, þegar átta fjallgöngumenn fórust í aftakaveðri á hæsta fjalli jarðar þann 11. maí 1996, mannskæðasta slys sem orðið hefur á fjallinu. Baltasar er vægast sagt önn- um kafinn, með mörg járn í eldinum og helst þyrfti að hringja í hann á tveggja vikna fresti til að fá nýjustu fréttir. Þrátt fyrir annríkið gefur hann sér þó góðan tíma til að ræða við blaðamann í leit að fréttum. Baltasar segir aldrei hægt að ganga að neinu vísu í kvikmyndageiranum en er þó bjartsýnn á að tökur á Everest hefjist á fyrr- nefndum tíma. Hann segist ekkert mega segja um val á leikurum í myndina nema það að ein- hverjir þekktir verði þeirra á meðal. Síðasta myndin sem hann leikstýrði í Hollywood, 2 Guns, var með Hollywood-stjörnunum Mark Wahlberg og Denzel Washington í aðal- hlutverkum og það verður því forvitnilegt að sjá hverjir klífa Everest. „Það verða stór nöfn þarna, alla vega tveir sem eru mjög þekktir. Ég er að fá réttu karakterana í hlutverkin, ekki að elta stjörnur,“ segir Baltasar um leik- araleitina. Tökurnar muni hefjast í Nepal, á Everestfjalli og næsti tökustaður hugsanlega í Dólómítunum á Ítalíu. Þetta verða líklega erfiðar tökur? „Þetta verður rosalegt. En ég hugsa að þetta verði ekkert erfiðara en Djúpið,“ svarar Baltasar og hlær. Byggð á sönnum atburðum Ég sá á vefnum Deadline að þú ert að fara að framleiða og leikstýra þriller á ensku. Hvaða mynd er átt við þar? „Það komu til mín strákar frá XYZ Films, fyrir um ári, með hugmynd eða blaðagrein réttara sagt um að á Filippseyjum og í Mexíkó hefði föngum verið hleypt út til að myrða með fjarvistarsönnun. Gengin eru komin með þetta mikla stjórn á fangelsunum og þetta komst upp, á báðum stöðum,“ svarar Baltasar. Hann hafi í kjölfarið mótað grunnhugmynd að kvik- mynd sem hann hafi spunnið út frá þessum at- burðum. XYZ Films hafi komið að dreifingu filippseyskrar kvikmyndar, On the Job, sem frumsýnd var á síðustu kvikmyndahátíð í Can- nes og byggð er á sömu atburðum. „Pitch-ið mitt [grunnhugmynd að kvikmynd] var búið að fara á stúdíóin og nú eru stúdíóin öll æst í að kaupa það af mér og munu sjálfsagt kaupa endurgerðarréttinn að hinni myndinni líka svo að það verði engir árekstrar. En þetta er ekki endurgerð á þeirri mynd, ég var búinn að semja söguna og svo sá ég þessa mynd tveim- ur vikum síðar, þegar hún var búin að vera í Cannes,“ segir Baltasar og á við þá filipps- eysku. Hans hugmynd og filippseyska myndin séu ekki lík að neinu leyti nema því að vera byggð á sömu atburðum. „Þetta er alls ekki endurgerð,“ ítrekar Baltasar. „Ég á nú í samningaviðræðum og það eru reyndar öll stúdíóin: Sony, Fox, Warner Bros., Paramo- unt og Universal búin að reyna að komast í þetta, hafa öll sýnt þessu áhuga. Ég er á loka- sprettinum í viðræðum við eitt af þeim og stóran framleiðanda sem vinnur hjá því stúd- íói sem ég mun framleiða myndina með. Síðan mun ég skrifa handrit að þessu með ein- hverjum Ameríkana, hugsanlega, sem ég get valið sjálfur.“ Hafnaði Fast and the Furious 7 Baltasar segir stúdíóin vilja að hann leik- stýri myndinni og segir stöðu sína hafa breyst heilmikið í Hollywood, nú fái hann nánast dag- lega leikstjórnartilboð. „Ég hafnaði m.a. því stórvirki Fast and the Furious 7, mér var boð- in hún. Það er 240 milljóna dollara mynd,“ segir Baltasar kíminn, engin smáupphæð lögð í þá hasarmynd. „Þetta er ekki sú leið sem ég hef áhuga á að fara,“ segir Baltasar um mynd- ina, þá sjöundu í vinsælli syrpu. Hann segir þó ákveðinn heiður fólginn í því að vera boðið að leikstýra mynd af þessari stærðargráðu. Talandi um peninga, veistu hvað Everest mun kosta í framleiðslu? „Já, það er talað um tæpar 60 milljónir doll- ara nettó, svona 80 milljónir með skattaaf- sláttum og slíku. Þú hefur 80 milljónir dollara til ráðstöfunar en hún kostar framleiðendurna svona 20% minna. Þetta er allt frá 20-40% sem þú getur fengið endurgreitt á þessum stöðum sem þú tekur á. Þetta er ekkert svo hátt á Ís- landi miðað við víða,“ segir Baltasar. „Þetta eru sömu aðilarnir sem gerðu með mér Contraband og gerðu Les Misérables og þetta er gert fyrir svipaða upphæð og Les Miséra- bles.“ Byggt á sögum úr leiknum Og svo er það EVE Online … „Já, EVE Online, það er sjónvarpssería sem við ætlum okkur að gera og vonandi fyrir al- þjóðamarkað, við gerum hana þannig eða ekki. Í haust förum við sennilega að þreifa á sjón- varpsstöðvum og fleiri aðilum með það,“ segir Baltasar. Nú er heimur tölvuleiksins ansi stór, hvern- ig í ósköpunum á að búa til þætti úr honum? Verður þetta teiknað? „Nei, þetta verður leikið efni, bara eins og Star Trek, nútímaútgáfa. Það sem mér finnst svo flott við þetta er að þetta er byggt á sög- um sem hafa gerst inni í leiknum þannig að þetta er að einhverju leyti gagnvirkt. Ef þetta gengur þá getur það sem gerist í leiknum, í framhaldi af þessu, haft áhrif á hvert sjón- varpsserían fer og öfugt. Þannig að þetta er stór pæling, við erum að vinna þetta með CCP [framleiðanda leiksins] og það munu hugs- anlega 500 milljónir manna horfa á sjónvarps- þáttinn og svo er ákveðinn fjöldi sem kemur til með að fara inn í leikinn. Þeir [hjá CCP] sjá þetta sem möguleika á að efla leikinn en ég sé möguleika á að gera eitthvað spennandi,“ seg- ir Baltasar. „Þetta er eins og Game of Thro- nes í geimnum. Sögurnar geta farið hvert sem er, þú ert með heim sem er búið að búa til í leiknum og svo eru karakterar sem lifa í hon- um og geta farið út um víðan völl.“ Þetta virðist vera risavaxið verkefni. Er stefnt að því að gera þetta á Íslandi? „Já, það er það og það er planið. Þú færð bara það fólk sem þú þarft. Eins og Fram- estore, sem er reyndar að breyta nafninu í Reykjavík Visual Effects, gerði brellur fyrir 2 Guns og fólk var mjög hrifið af því hvað þau gátu gert,“ segir Baltasar. Vissulega komi fólk erlendis frá til að vinna í verkefninu. „Draum- ur minn er að byggja upp bransa hérna sem getur tekið þátt í og unnið svona verkefni frá a til z.“ Hvatning til stjórnvalda „Oblivion og Prometheus voru teknar hérna út af landslaginu en stúdíótökurnar fóru ekki fram hérna. Við þurfum að koma þessu á það stig að menn taki líka stúdíóið hérna. Þetta gæti verið frábær staður, bæði fyrir okkur og fyrir aðra til að koma á og vinna,“ segir Balt- asar. Hann sé að einhverju leyti að gera þetta sjálfur og vonandi sé hægt að telja stjórnvöld- um trú um að þetta sé málið. „Þetta er brillj- ant iðnaður sem gengur ekki á neina náttúru- afurð, skilur engin sár eftir sig, ef rétt er á málum haldið og þá er þetta bara brilljant. Fullt af vinnu, skemmtilegri og áhugaverðri og það kemur afurð út úr því.“ Erum við þá að tala um að 200 manns, svo einhver tala sé nefnd, komi að EVE Online- þáttunum? „Já, það er svakaleg vinna sem fylgir svona verkefni, miklu meira. Ef við náum að búa til stúdíóaðstöðu hérna, ef EVE Online er orðin meiriháttar sjónvarpssería. Þetta er ekki svo fjarlægt […] ég var að gera pilot [prufuþátt, fyrsti þáttur mögulegrar sjónvarpssyrpu] fyr- ir HBO í síðasta mánuði, það er stærsta sjón- varpsstöð í heimi. Þetta er ekki eins fjarri lagi og menn halda. Ef fjármagn fæst til má alveg eins gera þetta hérna,“ segir Baltasar. HBO- þátturinn var fyrir þættina Missionary en sögusvið þeirra er Berlín árið 1969 og segja þeir af bandarískum trúboða sem gengur til liðs við neðanjarðarhreyfingu sem er að reyna að hjálpa fólki að komast yfir Berlínarmúrinn. Tökur á þeim fóru fram í Ungverjalandi og Þýskalandi. „Þetta var eins og að gera ís- lenska mynd, bara aðeins stærra „budget“,“ segir Baltasar og hlær. Áhugi á að endurgera Ófærð Svo ertu líka að framleiða sjónvarpsþætti sem verða teknir upp á Seyðisfirði … „Já, það er planið að gera það, þeir heita Ófærð, Trapped á ensku. Trapped er eiginlega betra heiti af því það nær utan um karakter- inn líka. Það eru sakamálaþættir sem við Sig- urjón Kjartansson byrjuðum að skálda sam- an,“ svarar Baltasar en fleiri komu að handritsskrifum, m.a. Ólafur Egilsson. Baltas- ar stofnaði í fyrra fyrirtækið RVK Studios með Sigurjóni og Magnúsi Viðari Sigurðssyni og framleiðir það þættina. „Við erum í sam- starfi núna við Þýskaland, það er mikill áhugi í Frakklandi og áhugi á að endurgera þetta þó ekki sé farið að sýna þættina, ekki einu sinni búið að taka þá. Það er annað sem er áhuga- vert, þetta hefur opnast miklu meira, alla vega fyrir mig. Ef ég er að gera eitthvað svona er strax farið að sýna því áhuga erlendis. Svo er- um við með fleiri seríur í gangi, erum að þróa þær. Við erum líka að gera teiknimyndaseríu með Hugleiki Dagssyni, Hulli, sem á að sýna í haust á RÚV. Fyrirtækið er komið á fullt og við vorum að kaupa kvikmyndaréttinn á Hús- inu eftir Stefán Mána. Þannig að RVK Studios er framtíðarfyrirtæki sem ég er að byggja upp.“ Baltasar nefnir að auki kvikmynd Dags Kára Péturssonar, Rocketman, sem fyrirtæki hans Blueeyes framleiðir. Útvarpsþáttur BBC um Djúpið Hvað borðarðu eiginlega í morgunmat? Hvernig hefurðu orku í þetta allt saman? Baltasar hlær. „Það er ommeletta. Það eru hænur hérna fyrir utan hjá mér. Þar er náð í eggin og svo er búin til spænsk ommeletta. Þetta er algjör töfraformúla. Íslenskar hænur og spænsk ommeletta.“ Og hún er ekkert verri köld … „Nei, alls ekki. Þá er þetta orðinn spænskur tapas,“ segir Baltasar. Og ekki eru öll verk- efni talin upp enn því hann stefnir að því að kvikmynda skáldsögu Arnalds Indriðasonar, Grafarþögn, við fyrsta tækifæri og segist mjög spenntur fyrir því. Að lokum getur Balt- asar þess að kvikmyndin Djúpið verði frum- sýnd í Englandi eftir tvær vikur og mun breska ríkisútvarpið, BBC, fjalla um hana sér- staklega í klukkustundar löngum útvarps- þætti og þá út frá þeim merkilega atburði sem hún er byggð á, þegar Guðlaugur Friðþórsson synti í land eftir að vélbáturinn Hellisey sökk við Vestmannaeyjar árið 1984. „Það á að taka hann upp 10. júlí og ég held að hann verði í út- varpinu 12. júlí. Það er verið að reyna að fá mig til að koma til Bretlands í stúdíó með ein- hverjum vísindamönnum,“ segir Baltasar að lokum, fullur orku úr spænskri eggjaköku.  „Þetta er alls ekki endurgerð,“ segir Baltasar Kormákur um kvikmynd sem hann mun leikstýra og stúdíóin í Hollywood bítast um  Mörg hundruð manns gætu komið að gerð EVE Online-þátta Ljósmynd/Patti Perret. Birt með leyfi Universal Pictures Í tökum Baltasar Kormákur við tökur á kvikmyndinni 2 Guns sem verður opnunarmynd kvik- myndahátíðarinnar í Locarno í Sviss 8. ágúst og verður sýnd á torgi sem rúmar 8.000 manns. Vígalegir Mark Wahlberg og Denzel Wash- ington vopnaðir á veggspjaldi 2 Guns sem verður frumsýnd 2. ágúst í Bandaríkjunum. Baltasar klífur tindinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.