Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 STOFNAÐ 1987 M ál ve rk : Ú lf ar Ö rn einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | Sk ipholt 50a Sími 581 4020 | www.gal ler i l i s t . i s Stórt ónefnt málverk eftir banda- ríska graffitílistamanninn Jean- Michel Basquiat (1960-1988) var slegið ónefndum kaupanda á upp- boði hjá Christie’s, fyrir næsthæstu upphæð sem fengist hefur fyrir verk eftir listamanninn. 29 millj- ónir dala voru greiddar fyrir verk- ið, um 3,6 milljarðar króna. Málverkið skipti síðast um hend- ur á uppboði fyrir ellefu árum, fyrir 1,6 milljónir dala. Fyrir mánuði fékkst metverð fyr- ir málverk eftir Basquiat þegar „Dustheads“, verk frá 1982, var selt hjá Christie’s fyrir 48,8 milljónir dala, um sex milljarða króna. Líflegt Verk Basquiats tengjast götulist. Málverk Bas- quiats verðmæt Cameron Diaz mun fara með hlutverk Miss Hannigan, fram- kvæmdastýru munaðarleys- ingjahælisins, í endurgerð söng- leiksins Annie fyrir hvíta tjald- ið sem Jay-Z framleiðir í samvinnu við Will og Jada Pinket Smith. Upphaflega átti dóttir þeirra Smith-hjóna, Willow, að fara með hlutverk Annie, en hún þykir ekki lengur nógu ung fyrir það og því var Quvenzhané Wallis boðið það. Af öðrum leikurum myndarinnar má nefna Jamie Foxx. Cameron Diaz Diaz verður með í Annie Kristján Jóhann- esson baritón og Lilja Eggerts- dóttir píanóleik- ari flytja tvo ljóðaflokka eftir Ludwig van Beethoven á há- degistónleikum í Háteigskirkju í dag kl. 12.00- 12.30. Um er að ræða „An die ferne Geliebte“ og „Gellert-ljóðin“, en textarnir eru eftir Alois Isidor Jeitteles og Christian Fürchtegott Gellert. List- rænn stjórnandi hádegistónleika- raðarinnar í Háteigskirkju er Lilja Eggertsdóttir. Kristján Jóhannesson Tveir ljóðaflokk- ar Beethovens Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is All Tomorrow’s-hátíðin hefst í kvöld og má fastlega búast við því að mikil stemning verði í gömlu herstöðinni á Miðnesheiði. Gífurlegur fjöldi áhugaverðra hljómsveita kemur fram á hátíðinni sem hefur verið lýst af þeim sem hafa sótt hana víða um heim sem heimilislegri og notalegri hátíð. „Við spiluðum á hátíðinni fyrir rúmum tíu árum og andrúmsloftið og stemningin á henni er þægilegt og gott,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, trommuleikari Botnleðju. Nálægðin við áhorfendur og af- slappað andrúmsloftið er það sem Haraldur nefnir sem eitt af helstu einkennum hátíðarinnar. „Umgjörð- in er líka öll mjög góð og frá sjón- arhóli listamannsins er þetta topp- tónlistarhátíð.“ Fjöldi flottra hljómsveita Fyrir utan Botnleðju og fjölda annarra íslenskra hljómsveita verð- ur á sviðinu í gömlu herstöðinni fjöldinn allur af góðum erlendum hljómsveitum. „Ég hlustaði töluvert á þýsku hljómsveitina The Notwist á mínum yngri árum og það verður gaman að sjá þá spila í kvöld,“ segir Haraldur en hann býst fastlega við því að fara á einhverja viðburði á há- tíðinni sjálfur. The Notwist er indírokk-hljóm- sveit sem var stofnuð árið 1989 og prófaði sig áfram í þungarokki en færði sig fljótlega yfir í indírokk og hefur á síðari árum verið að prófa sig áfram í raftónlist og hlotið lof fyrir. Bandaríska hljómsveitin Deer- hoof kemur einnig fram á hátíðinni en hljómsveitin er frá San Francisco og hóf sinn feril sem „noise band“ en hefur verið að þróa sig áfram í indí- rokk á síðari árum. Fótbolti og pop quiz „Þegar við spiluðum á hátíðinni á Englandi á sínum tíma voru hljóm- sveitir í íbúðum á tónleikasvæðinu og oft sátu menn bara úti í garði og voru jafnvel að spila fyrir aðdáendur og skemmta sér með þeim,“ segir Haraldur og er það lýsandi fyrir stemninguna á hátíðinni. Við Atl- antic Studios er fálátur fótboltavöll- ur en þar gefst tónlistarmönnum og aðdáendum þeirra tækifæri til að spila fótbolta ef veður leyfir. Eins verður Dr. Gunni með pop quiz í Officeraklúbbnum og geta allir tekið þátt. „Við stóðum okkur ekki neitt voðalega vel í spurningaþættinum hans á sínum tíma en það getur vel verið að við tökum þátt núna,“ segir Haraldur og bendir á að þetta sé dæmigert fyrir afslappaðan og þægilegan anda hátíðarinnar. „Þetta er virt tónlistarhátíð og nokkuð stór á íslenskan mælikvarða en um leið dálítið öðruvísi og það er mikil ná- lægð milli hljómsveita og tónleika- gesta.“ Þekkt og óþekkt nöfn á sviðinu Eins og sjá má á dagskránni er fjöldi hljómsveita sem koma fram, allt frá litlum minna þekktum hljóm- sveitum til heimsþekktra hljóm- sveita. Ástralska rokkbandið Nick Cave and the Bad Seeds hlýtur að vera ein þekktasta hljómsveitin á tónlistarhátíðinni en Nick Cave hef- ur spilað nokkrum sinnum á Íslandi og á því dyggan stuðningsmannahóp hér á landi. Mikil eftirvænting er því eflaust hjá mörgum Íslendingum að Nick Cave stígi upp á svið. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna kemur einnig fram og ættu allir að þekkja strákana í Botnleðju, HAM, Mugison, Hjaltalín, Amiinu og fleiri frábærar íslenskar hljómsveitir. „Við hlökkum til að spila á hátíð- inni og komum heitir af útgáfu- tónleikunum okkar og beint upp á svið í gömlu herstöðinni,“ segir Har- aldur en að hans sögn er aðstaðan á svæðinu góð og ekki ætti að vera mikið mál að koma upp góðu tón- leikasviði á gamla vellinum og skapa þar skemmtilega og notalega stemn- ingu. „Mikil nálægð milli hljóm- sveita og tónleikagesta“  All Tomorrow’s Parties hefst í kvöld í gömlu herstöðinni í Keflavík Morgunblaðið/Golli Tónleikar Hljómsveitir alls staðar að úr heiminum koma til Íslands til að spila á tónleikahátíðinni á gamla varn- arliðssvæðinu í Keflavík. Þar á meðal eru Nick Cave and the Bad Seeds og þýska rokkbandið The Notwist. Föstudagur 28. júní Atlantic Studios 17:30 Æla 18:30 Apparat Organ Quartet 19:30 The Notwist 20:45 Múm 21:50 The Fall 23:10 Mugison 00:15 Thee Oh Sees 01:20 Ham 02:20 Ghostigital Andrews Theater 16:00 Diabolik* 18:00 Snorri Helgason 19:00 Kimono 20:00 Our Man Flint* 22:00 The 10th Victim* 00:00 The Boxer’s Omen* Officers Club 19:00 Lord Sinclairs Book Bingo 20:00 - 03:00 DJ’s Laugardagur 29.júní Atlantic Studios 17:30 Mono Town 18:30 SQURL 20:15 Nick Cave & The Bad Seeds 22:15 Hjaltalín 22:20 Deerhoof 00:40 Chelsea Light Moving 02:00 Dead Skeletons Andres Theater 13:00 My Neighbour Totoro* 15:00 ToBe or Not To Be* 17:30 Puzzle Muteson 18:35 Valgeir Sigurðsson 19:35 Amiina 21:00 I Know Where I’m going!* 23:00 The Night of the Hunter* Officers Club 17:00 - 18:00 Pop Quiz DR. Gunna 20:00 - 03:00 DJ’s * Kvikmyndir Dagskráin ALL TOMORROW’S PARTIES

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.