Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 Auðvinnanleg Fín áferð 1-10mm Aukin vörn gegn myglu Vatnsfráhrindandi Þolir sterk hreinsiefni FYRIR ÞÁ SEM ELSKA HÖNNUN Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is waterdrop effect easy to clean effect resistance effect protection effect Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Útgjöld til heilbrigðismála jukust nokkuð ört hér á landi á seinasta áratug en eftir 2008 urðu mikil um- skipti og er Ísland í hópi ríkja inn- an OECD þar sem heilbrigðis- útgjöldin drógust mest saman á árunum 2010 og 2011 í kjölfar kreppunnar og aukins aðhalds og niðurskurðar. Í nýjum samanburði OECD á stöðu heilbrigðismála í aðildarríkj- unum, OECD Health Data 2013, kemur fram að 2010-2011 minnk- uðu útgjöld til heilbrigðismála að raungildi í tíu löndum, mest á Grikklandi og Írlandi en Ísland er hið þriðja í röð landa þar sem sam- dráttur varð. Áframhaldandi vöxt- ur var hins vegar á útgjöldum til heilbrigðismála í 22 ríkjum á þess- um árum þó verulega hafi dregið úr honum miðað við vöxtinn á umliðn- um áratug. Drógust saman um 7,5% 2010 og stóðu í stað á árinu 2011 Heilbrigðisútgjöld jukust árlega að raungildi um rúmlega 3% að jafn- aði hér á landi frá 2000 til 2009. Að meðaltali nam árlegur vöxtur út- gjalda til heilbrigðismála í OECD löndunum um 5% á þessu tímabili. Útgjöldin hér á landi drógust hins vegar saman um 7,5% á árinu 2010 og stóðu í stað 2011. Ef heilbrigðisútgjöldin eru skoðuð sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu kemur í ljós að þau voru að meðaltali um 9% af landsframleiðslu hér á árinu 2011 og lækkaði hlut- fallið frá árinu á undan þegar það var 9,3%. Var Ísland í 19. sæti meðal OECD landanna þegar þessi mæli- kvarði er notaður á heilbrigðis- útgjöldin, og nokkuð undir meðaltali OECD. Sé hins vegar útgjöldum til heil- brigðismála deilt niður á íbúana er samanburðurinn örlítið hagstæðari, þó Ísland sé enn undir meðaltali OECD. Útgjöldin hér á landi skv. samanburði OECD, umreiknuð í bandaríkjadali og reiknuð á svo- nefndu jafnvirðisgildi að teknu til- liti til mismunandi kaupmáttar í hverju landi, voru 3.305 Banda- ríkjadalir á hvern Íslending á árinu 2011. Það samsvarar rúmlega 400 þúsund krónum á mann miðað við gengi í loks þess árs. Þar er Ísland lítið eitt undir meðaltali OECD landanna. Útgjöld á mann voru mest í Bandaríkjunum (8.508 Bandaríkja- dalir), í Noregi, Sviss og Hollandi. Hér á landi er langstærsti hluti útgjalda til heilbrigðismála greiddur af hinu opinbera eða 80,4%. Samanburðurinn verður Íslandi hagstæðari þegar bornar eru saman aðstæður í heilbrigðisgeiranum Fullyrt er í skýrslu OECD að Ísland hafi á að skipa fleiri sérhæfðu starfs- fólki í heilbrigðisþjónustunni en er í flestum öðrum löndum innan OECD. Á árinu 2011 voru 3,5 starf- andi læknar á hverja 1.000 íbúa á Ís- landi en meðaltalið innan OECD var 3,2 læknar. Samanlagður fjöldi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða var 14,8 á hverja 1.000 íbúa á Íslandi samanborið við 8,7 að meðaltali í löndum OECD. Ástand heilbrigðismála er að mörgu leyti gott hér og ævilíkur langar. Meðalævilengd var komin í 82,4 ár á Íslandi 2011, sem er tveim- ur árum hærri lífslíkur en nemur meðaltalinu innan OECD. Bestar lífslíkur eru í Sviss, Japan og á Ítal- íu. Í hópi þjóða sem ná bestum árangri í baráttu gegn reykingum Athygli er vakin á að náðst hefur verulegur árangur í baráttunni gegn reykingum. Dregið hefur verulega úr reykingum á seinustu 25 árum í flestum OECD löndum. Reykinga- mönnum fækkaði mikið á Íslandi á þessum tíma. Árið 1987 reyktu 33% fullorðinna Íslendinga en á árinu 2011 hafði reykingamönnum fækkað í 14,3%, sem er mun lægra hlutfall en í flestum löndum OECD, þar sem hlutfall þeirra sem reyktu var 20,9% að meðaltali 2011. Fram kemur að Ísland, Svíþjóð, Bandaríkin og Ástr- alía hafi náð hvað bestum árangri í að draga úr reykingum. Offituvandamál eru hins vegar vaxandi bæði hér sem og meðal allra annarra þjóða OECD en ástandið er þó misalvarlegt í ein- stökum löndum. Svokallaður lík- amsþyngdarstuðull hefur hækkað verulega meðal fullorðins fólks og var hlutfall of feitra karla og kvenna á Íslandi komið upp í 21% á árinu 2011 samkvæmt OECD. Þetta er mun hærra hlutfall en á öðrum Norðurlöndum og langt yfir með- altalinu innan OECD sem var 15% meðal 29 OECD þjóða. Ástandið er þó sýnu verst í Bandaríkjunum þar sem hlutfall offitu var 28,5% meðal íbúa. Fast á hæla Grikkjum og Írum  Ísland í þriðja sæti yfir mestan samdrátt útgjalda til heilbrigðismála 2011 í samanburði OECD  Starfsemi og fjöldi sérhæfðs starfsfólks í heilbrigðisþjónustunni hér á landi sögð með því besta Árlegur vöxtur heilbrigðisútgjalda í löndum OECD 2000-2011 Heimild: OECD Health Data 2013 15% 10% 5% 0% -5% -10% -15% Gr ikk lan d Írla nd Ísl an d Eis tla nd Po rtú ga l Da nm örk Sp án n Br etl an d Sló ven ía Té kk lan d Íta lía Au stu rrí ki OE CD Fra kk lan d Ás tra lía Me xík ó Ho lla nd Pó lla nd Be lgí a Þý ska lan d No reg ur Ný ja S jál an d Ka na da Fin nla nd Ba nd arí kin Un gv erj ala nd Sv iss Sló va kía Sv íþj óð Ísr ae l Ja pa n Síl e Kó rea 2000-09 2009-11 Morgunblaðið/Golli Gæði en sparnaður Heilbrigðisþjónusta er góð á Íslandi en heilbrigðiskerfið hefur mátt taka á sig meiri niðurskurð í kreppunni en flest önnur OECD-ríki. Fram kemur í samanburði OECD að ör vöxtur varð á tækjabúnaði til greininga í heilbrigðisþjón- ustunni á umliðnum áratug í flestum OECD-löndum og er sérstaklega fjallað um fjölgun tölvusneiðmyndatækja og seg- ulómunartækja. Staða þeirra mála virðist vera góð hér á landi í samanburði við margar aðrar þjóðir. Fjöldi tölvusneiðmynda- og segulómunartækja meira en tvöfaldaðist hér frá 2000 til 2011. Að meðaltali voru 13,3 tölvusneiðmyndatæki á hverja milljón íbúa í löndum OECD á árinu 2011 en hér á landi voru þau 21,9 á þennan mælikvarða og nær tvöfalt fleiri segulóm- unartæki en að meðaltali í OECD miðað við höfðatölu. Fleiri grein- ingartæki OECD BER SAMAN TÆKJA- BÚNAÐ HEILBRIGÐISKERFA Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur með sjö samhljóða atkvæðum hafnað umsókn H-Eyja um lóð í Hásteinsgryfju undir 120 her- bergja hótel. Þess í stað samþykkti bæjar- stjórn að láta vinna faglega skipulagsúttekt á Vestmanna- eyjum með það að leiðarljósi að greina þrjá til fjóra heppilega staði undir hótel. Þegar slíkt liggur fyrir verður niðurstaða kynnt í safnahúsi og bæjarbúum gefinn kostur á að koma á fram- færi athugasemdum. Í ráðgefandi íbúakosningu í síðasta mánuði höfnuðu Vest- mannaeyingar því að bærinn veitti byggingarleyfi fyrir hóteli á lóð við Hásteinsgryfju. Alls greiddi 1.041 atkvæði og var þátttakan því um 33%. Nið- urstaða könnunarinnar var með þeim hætti að 44% sögðu já og 56% sögðu nei. Bæjarstjórnin í Eyjum hafnar hóteli í Hásteinsgryfju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.