Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 29
vildir þú hafa það. Sönn vinátta er fjársjóður og nýlegur póstur frá þér var svo falleg lesning að ég hreinlega táraðist við lestur- inn og eins og góðum vini sæmir þá lét ég þig vita af því. Við erum báðir trúaðir svo það er auðvelt að sjá ykkur fyrir sér, þú og Beggi að gantast með okk- ur Humarhúsfélaga og Bósi að galdra þannig að þið skiljið ekki upp né niður, ekki amalegur fé- lagsskapur. Vertu sæll, kæri vin- ur, sjáumst síðar. Halldór og Esther. Ég þekkti Hemma allt mitt líf, hann var besti vinur pabba og mömmu. Ein mín fyrsta minning er um Hemma, þegar hann steig út úr leigubíl hlæjandi, á leiðinni í partý til foreldra minna í Langagerðinu. Hermann og pabbi, Bergur Guðnason, áttu ótrúlega gott skap saman. Það var hrein unun að fylgjast með þeim fabúlera um menn og mál- efni. Þeir gátu endalaust prjónað við frásögn og oft á tíðum fór það út í tóma þvælu sem var engri lík. Hlátrasköllin og gleðin var svo mikil að maður gat ekki ann- að en smitast og hlegið. Það er svo gott að hlæja og þeir tveir gerðu mikið af því. Ég ólst upp við þennan húmor og var fljótur að tileinka mér þessa samræðu- list þegar ég talaði við Hemma. Stundum þurftum við ekkert að segja heldur tókum bara göngu- lag ánægða mannsins og það var nóg til að gera okkur glaða. Hemmi var alltaf boðinn og bú- inn að hjálpa mér, ég tók mörg viðtöl við hann fyrir þáttinn minn, Mín skoðun, og hann kom líka í heimsókn í sjónvarpsþætt- ina Liðið mitt. Viðtölin voru auð- vitað oft á tíðum stórfurðuleg, þar sem við hlógum það mikið og komum bara með stikkorð inná milli og hlógum enn meira. Hlustendur eða áhorfendur skildu sennilega ekki neitt í neinu en það skipti litlu máli hjá okkur, það var svo gaman. „Hann snýr sér pínulítið í hringi?“ „Já segðu, það veit eig- inlega enginn hvort hann sé að koma eða fara?“ Hlátur. „Hann er einn af þessum mönnum sem koma alltaf seint heim.“ Og þá trylltumst við. Það var mikið áfall fyrir Hemma þegar pabbi lést árið 2009, hann var hans lærimeistari og Hemmi leit upp til hans. Minn heimur varð fátækari við það, að heyra ekki þessa snillinga tala saman og hlæja. Ég veit að nú verða miklir fagnaðarfundir þeg- ar þessir kappar hittast á ný. Það er erfitt fyrir mig að lýsa því með orðum hvað Hemmi var fyrir mér, hann var svo margt. Vænt- umþykja er líklega besta orðið. Eru sálir samankomnar á hæðinni hér fyrir ofan, heyrði ég brölt, eða er þetta hugmynd liðinna stunda? Vona ég, að í heimi hér, lifi forfeður, sem funda? Trú á eitthvað meira en er, kemur ekki af sjálfum sér. Um garða ég gekk, ungur og brattur. Sú vissa um svör, var minn auður. Tíminn bætir blómum við og spurn- ingar vakna, var ég kannski eftir allt, ríkur og snauður? Mitt ríkidæmi er, minn aldur og þessi staður. Að efast um eigið ágæti, og kveðja glaður. (Böðvar Bergsson) Ég sendi fjölskyldu, börnum og vinum mínar samúðarkveðjur. Böðvar Bergsson. Hemmi fylgdi fjölskyldu minni alla tíð. Hann og pabbi heitinn, Bergur Guðnason, voru bestu vinir. Þegar ég fæddist fögnuðu þeir félagarnir því saman á eft- irminnilega hátt. Þannig voru tímarnir í den og ófáar sögurnar til af félögunum í Val sem stund- uðu íþróttirnar af kappi og skemmtanir af þrótti. Gleðin og grínið aldrei langt undan og vin- áttan varði fyrir lífstíð. Íþróttirnar og þessi gleði vörðuðu veginn fyrir Hemma. Hann var bestur bæði í hand- bolta og fótbolta, flottastur og fyndnastur. Hann var stjarna þess tíma. En í kjölfar þessarar miklu lífsgleði og sviðsljósi fylgdi skuggi á tímabili. Bakkus getur verið harður húsbóndi og sú varð raunin í lífi Hemma. Hann tókst á við þessa baráttu. Stundum gaf á og vegurinn var ekki alltaf al- veg beinn. En Hemmi hafði bet- ur. Í gegnum þessa baráttu náði hann alltaf að stíga upp og vera í fararbroddi, fyrst í útvarpi sem viss brautryðjandi og síðan í sjónvarpi með vinsælasta þátt í sjónvarpssögu okkar. Á þessari vegferð vann hann hug og hjörtu þjóðarinnar og hans verður sárt saknað. Við sem samfélag erum góðum dreng fátækari. Hemmi sýndi mér og fjöl- skyldunni alltaf mikla væntum- þykju. Hann fylgdist með okkur og var til staðar ef með þurfti og öfugt. Þannig var það alltaf. Hemmi tók mig á eina séræfingu þegar ég var 12 ára og við vorum sammála um að það hefði bjarg- að ferli mínum sem knattspyrnu- manns. Hemmi var stórbrotinn per- sónuleiki, gleðigjafi með hlýtt faðmlag og stórt hjarta. Ég á eft- ir að sakna þín, Hemmi minn. Þakka þér fyrir allan stuðning- inn, gleðina og vináttuna í gegn- um árin. Hvíl í friði, kæri vinur, og reyndu að ná upp smá stemningu hinum megin með mömmu og pabba. Ég sendi börnum hans Hemma, Sigrúnu, Björgu, Eddu, Evu, Hendrik og Þórði, barna- börnum, systkinunum Ragnari og Kolbrúnu mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Guðni Bergsson. Fyrir réttri hálfri öld vann ég í tvær vikur við jarðvinnu í Laug- ardal og lenti í verkefni með 16 ára unglingi, sem varð mér svo minnisstæður, að jafnvel þótt ég hefði aldrei hitt hann aftur, hefði ég ekki getað gleymt honum. Ekki aðeins komst ég á snoðir um að hann þætti sérlega efnileg- ur knattspyrnumaður, heldur einnig það að hann bjó yfir mörg- um fleiri mannkostum, einstakri lífsgleði, glettni og hæfileikum til þess að gera skurðgröftinn okkar að tilhlökkunarefni á hverjum morgni. Og síðan var það þessi undursamlega hjartahlýja og væntumþykja. Umræðuefnin og uppátækin voru óþrjótandi. Þarna bjuggum við til dæmis til sérstakt form af tveggja manna spurningaþáttum með tveimur spyrlum, tveimur svarendum og tveimur dómurum, sem sýndu mér að hann var vel að sér, ein- staklega hugkvæmur og skemmtilega kappsamur. Ekki óraði mig þá fyrir að báðir ættum við eftir að stjórna spurninga- þáttum í sjónvarpi og að leiðir okkar og viðfangsefni myndu aft- ur og aftur liggja saman næstu 50 ár og skapa djúpa og nána vin- áttu, byggða á einstakri tryggð. En fljótlega var hinn ungi skurð- grafari orðinn nokkurs konar Pele Íslands og tók Pele jafnvel fram að því leyti að verða líka landsliðsmaður í annarri íþrótt – metmarkaskorari í handbolta. Hann var þannig skapaður lík- amlega að hann hefði getað orðið í fremstu röð í hvaða íþróttagrein sem var. Hann var til dæmis vel liðtækur í körfubolta og skák. Hann greip meira að segja í það með Vilhelm G. Kristinssyni að flytja eftirhermur á skemmtun- um. Alltaf var Hemmi einhvers staðar nálægur eins og bróðir, báðir vorum við íþróttafrétta- menn, saman í Sumargleðinni, í þáttagerð, söng og gríni. Hann var ógleymanlegur kynnir á af- mælisskemmtunum mínum á Ak- ureyri 1984-85, magnaður sam- starfsmaður með svonefndum Fjörkálfum sumarið 1994. Örlög Hemma minna mig á örlög ann- ars náins vinar, Vilhjálms Vil- hjálmssonar. Báðir að hefja nýj- an og enn glæsilegri feril en fyrr þegar kallið kom. Daginn fyrir lát Hemma skaut maður að mér vísu þar sem við biðum í banka, og hún hlaut að koma upp í huga mér eins og forspá daginn eftir vegna þess hvernig hún endaði. Ekki veit ég hver höfundurinn er, en hún fjallar um síðustu ævi- árin og er svona: Ævin er týnd í töf og kák. Tækifærin að baki. Síðustu leikir í lífsins skák leiknir í tímahraki. Ævi Hemma var að vísu ekki týnd heldur mun hún lifa í björt- um ljóma með þjóðinni. Og tæki- færin nýtti hann vel og sigraðist á erfileikum. En eftir alvarlegt hjartaáfall hér um árið var eins og skákmaðurinn góði hefði skynjað að lífsins skák gæti end- að í tímahraki eins og hún gerði. Ég er ekki einn um það að hafa misst náinn og stórkostlegan vin. Missir hinna mörgu vina og skyldmenna er mikill sem og þjóðarinnar allrar. Ómar Ragnarsson. „Við feðgarnir erum báðir á vissum tímamótum þessa dag- ana.“ Þetta voru síðustu skila- boðin frá mínum kæra vini Her- manni. Við vorum kallaðir feðgarnir þar sem undirritaður var pabbinn og Hemmi sonurinn. Við höfðum verið í samskiptum nær daglega síðustu 25 árin. Stundum oft á dag, sérstaklega ef „United“ var að spila þá hringdi Hemmi ef eitthvað mark- vert gerðist. Það var ekki ama- legt að fá lýsingu frá besta íþróttafréttamanni landsins beint í æð gegnum símann. Mín upplifun af Hemma var kannski ekki eins og landsmenn sáu hann. Í huga landans var hann „Hemmi Gunn“, knatt- spyrnuhetjan, sjónvarpsstjarnan og skemmtikrafturinn, öryggið uppmálað á vellinum og sviðinu. Hermann Gunnarsson var annar maður, feiminn, óöruggur og mjög viðkvæmur fyrir gagnrýni og stríðni á hans kostnað. Þegar hann stríddi öðrum var hann á heimavelli og lenti ég frekar oft í klónum á Hemma. Eitt sinn vorum við að fljúga langt næturflug frá Bangkok og hafði ég ákveðið að sofa alla leið- ina. Þar sem gallabuxur eru ekki þægilegar var ákveðið að fara úr þeim og vera á nærbuxunum með gott teppi yfir sér. Svaf eins og steinn. En hálftíma fyrir lend- ingu var ég í spreng og þurfti að fara á salernið. Þá voru buxurnar horfnar. „Æi Hemmi, láttu mig fá buxurnar,“ sagði ég. Þá byrj- aði hann að tala ensku við mig: „Have you lost your pants?“ og byrjaði að spyrja alla farþega í kringum okkur hvort þeir hefðu séð buxurnar mínar. Ég fékk ekki buxurnar fyrr en við vorum lentir og almennur hlátur í vél- inni. Eitt dæmi um óörugga og feimna Hermann var þegar hann spurði mig hvort ég væri til í að fara með honum í þessa IKEA- búð. Það var eina skiptið sem Hemmi fór í IKEA og hafði á orði: „Pabbi, ég ætlaði ekki að fara í maraþongöngu um eina búð.“ Þeir sem til þekkja vita að Hemmi var ekki mikið fyrir hreyfingu síðustu árin. Hemma var annt um mig og dóttur mína, sýndi okkur mikla væntumþykju, góðmennsku og greiðvikni. Hann hjálpaði okkur með ógleymanlegt skemmtiatriði í fermingu hennar sem við mun- um minnast alla ævi. Ef ég minntist á gott leikrit sem ég vildi sjá, þá var minn maður kominn með 2 miða dag- inn eftir. Svo ég minnist ekki á utanlandsferðina sem hann gaf mér fyrir það eitt að hjálpa hon- um með fimmtugsafmælið sitt. Svona var Hemmi, ég á eftir að sakna hans ótæpilega; Hum- arhúsið í hverju hádegi, kaffihús- ið á laugardegi, hringingarnar og síðast en ekki síst sakna ég stríðnispúkans Hemma. Hver ætlar að stríða mér núna? Þetta eru búnir að vera skrítn- ir dagar hjá okkur félögum hans á Humarhúsinu. Stærsta skarðið hefur verið höggvið. Ég sendi mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til barnanna, systk- ina og fóstru. Kóngurinn er farinn. Gunnar Kristjánsson. Hvað vita þessir menn um sælu og sorg, er supu aldrei lífsins veig í dreggjar. Þannig orti stórskáldið, at- hafnamaðurinn og hinn breyski og viðkvæmi maður, Einar Bene- diktsson, sem vissi mikið um sælu og sorg og sigra og töp lífs- ins. Þegar Hermann Gunnarsson er kvaddur langt fyrir aldur fram kemur margt upp í hugann. Hann var stjarna íþróttanna, stjarna sjónvarpsþáttanna, opn- aði almenningi gátt gleðinnar. Við sem áttum hann að vini þekktum kærleikann, hláturinn og faðmlagið. Hvernig hann gaf orku frá sjálfum sér í hvert sinn sem hann varð á vegi manns. Aldrei illt umtal eða stóryrði í garð nokkurs manns. Kveikti í rauninni á annarri rás eða bylgjulengd en hinni illa umta- landi síbylju samtímans. Samt sem áður sótti að honum vágest- ur sem stundum hreif hann burt með sér og ætlaði hann lifandi að drepa. Oft var sú glíma hörð og reyndi á alla vini hans og ætt- ingja en mest á hann sjálfan. Hann kom þó alltaf sem sigur- vegari úr þeirri sjóferð og tók að tala við þjóð sína um fegurðina, blómin, lífið og tækifærin með þessum magnaða hlátri, súrefni sálarinnar, og allt varð svo bjart á ný. Það bjó svo margt gott við hjarta Hermanns Gunnarssonar sem gerði hann að þeirri almenn- ingseign sem fáir Íslendingar hafa náð. Því guð metur aldrei annað í heim en auðmýkt og hjartans trúnað. (E. Ben.) Hann var viðkvæmur og vand- virkur maður, verk sín grundaði hann vel og undirbjó með þeim hætti að betur varð ekki gert. Margir telja oft að gleðimenn séu kærulausir en það varð ekki sagt um Hemma. Götur og stræti tæmdust þegar hans mögnuðu sjónvarpsþættir voru sýndir á sjónvarpsstöðvunum. Hver sá sem lenti í settinu hjá honum upplifði afslappað andrúmsloft og þá tilfinningu að hann eða hún væri í eldhúsinu heima. Hann var listrænn og fjölhæfur, í honum bjó frábær hæfileikamaður, sönn stjarna og mannvinur. Stundum, þegar ekki sást til sólar í heift og orðræðu um menn eða málefni, kom hann fram sem ljósgeisli og sló illskuna niður og setti sólina í sálinni upp á himininn. Stundum hringdi ég í hann til að láta þakk- læti mitt í ljós og hvað mikilvægt væri fyrir eina þjóð að eiga slíka gleðigjafa á erfiðum tímum. Ég kveð Hermann Gunnars- son með söknuði, það er vel skilj- anlegt að hann gæti ekki verið lengur með okkur því verkefnin eru ærin guðs um geim. – Eilífðin sjálf, hún er alein til. – Vor eigin tími er villa og draumur. (Einar Ben.) Far í friði bróðir og vinur. Ég votta börnum Hermanns Gunnarssonar og ástvinum djúpa samúð. Guðni Ágústsson. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson) Þetta ljóð stórskáldsins kom mér í hug þegar mér barst and- látsfregn æskuvinar míns. Mig langar í örfáum orðum að kveðja kæran æskuvin minn Hermann Gunnarsson. Hemmi vinur minn var drengur góður. Hann vildi hvers manns vanda leysa og var ávallt hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Hann var vinmargur og voru vin- irnir aldrei langt undan, gleðin var honum í blóð borin. Þær eru elskulegar allar minningarnar sem ég get yljað mér við nú frá uppvaxtarárunum okkar og allt til dagsins í dag. Við Hemmi urðum vinir þegar við vorum litlir drengir í ný- byggðu smáíbúðahverfinu; hann átti heima í Melgerðinu en ég í Teigagerðinu, hann sjö ára en ég árinu eldri. Það er einstök gæfa að eignast góða vini strax á æskuárum, vin eins og Hemma. Þær eru elskulegar allar minn- ingarnar sem ég á og get yljað mér við nú frá uppvaxtarárunum okkar, skákin, fótbolti og hand- bolti á Hlíðarenda, körfubolti hjá KFR í gamla Hálogalandi og skíðaferðir í Valsskálann í Sleggjubeinsdal, keppnisferðir innanlands og fræg Danmerkur- ferð 3. flokks Vals 1961 þegar við vorum 15 og 16 ára og rétt byrj- aðir að bragða á lífinu. Þegar árin liðu urðu samskipt- in strjálli eins og gengur, lífsbar- áttan tók við af áhyggjulausu æskuárunum okkar. Ávallt héld- um við vinskapinn þótt langt gæti liðið milli endurfunda en alltaf var eins og við hefðum hist í gær þegar við hittumst. Undanfarin ár höfum við átt okkar prívat samband um sjúk- dóm sem við báðir þekkjum vel og var okkur afar hugleikinn. Á þessum stundum okkar kom oft og iðulega fram hjá Hemma hversu sárt hann saknaði ynd- islegrar móður sinnar, sem féll frá fyrir mörgum árum, og hversu mikið hann missti við frá- fall hennar. Hún var akkerið hans. Við hugsum um tilgang lífsins, örlög okkar allra og um hvert stefnir við fráfall ástvina okkar og óvissa ríkir í huga okkar um stund. Þegar að er gáð er dauð- inn ekki aðeins dauði og lífið ekki aðeins líf, heldur er því stundum öfugt farið, dauðinn aðeins áframhaldandi líf og lífið stund- um harðara en hel. Af hverju er þetta svo? Ég á ekki eitt svar til við því, en hef samt skilið, að þeir sem við elsk- um eru alltaf hjá okkur, í ein- hverri mynd, og veita okkur styrk í sorginni. Á tímamótum sem þessum öðlast kærleikurinn aukið gildi. Sama er að segja um þá sem elska okkur. Þeir halda áfram, hvert sem leið þeirra ligg- ur, því ástin er sterkari en dauð- inn og það sem lifir í minning- unni eigum við áfram. Það verður aldrei frá okkur tekið. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. (Kristján Hreinsson) Ég bið góðan guð að styrkja alla ástvini þína, sér í lagi börnin þín og systkini. Hvíl þú í friði, elsku vinur. Sigurður Snævar Gunnarsson. Persónuleg kynni mín af Hemma báru að með sérkenni- legum hætti. Ég leit alltaf upp til hans sem knattspyrnumanns, en þekkti hann ekkert. Það var Andrés Indriðason hjá Sjónvarp- inu sem átti að stjórna Áramóta- skaupi 1980. Leikarar voru í verkfalli og Andrés bjó til hóp til að hlaupa í skarðið. Það var Hemmi, ég, Laddi, Raggi Bjarna og Þú og ég söngdúettinn, ásamt gestum. Það var lítill tími til stefnu, en okkur tókst að gera Skaup sem er eitt það skemmti- legasta. Engin pólitík, bara söng- ur, grín og gleði. Hemmi var þar fremstur í flokki með sinn létt- leika og lífsgleði. Seinna áttum við eftir að vinna saman í Sum- argleðinni og þá byrjaði fjörið og fíflagangurinn. Ég man þegar Hemmi kom inn í Sumar- gleðihópinn í staðinn fyrir Þor- geir vin minn Ástvaldsson, sem var orðinn yfirmaður á Rás 2. Hemmi hélt að þetta væri ekkert sem hann réði við og spurði hvernig við æfðum þetta lands- þekkta skemmtiprógram sem færi um landið. Ég man að Bessi Bjarna sagði, að við hittumst reglulega, töluðum saman, kæm- um með hugmyndir og hlæjum að því sjálfir og næst þegar við hittumst myndum við ekki neitt Glatt á hjalla Þrír íþróttafréttamenn með meiru hressir í bragði á Ríkisútvarpinu á síðari hluta áttunda áratugarins: Sigurður Sigurðsson, Hermann Gunnarsson og Jón Ásgeirsson. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.