Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Aðsókn í bæði leikskólakennara- námið og í grunnskólakennaranámið hefur dregist saman. Þessi þróun hefur verið í gangi nokkuð lengi,“ segir Anna Kristín Sigurðardóttir, forseti kennaradeildar Háskóla Ís- lands. Í ár hafa 160 nemendur skráð sig til náms við kennaradeild háskól- ans, samanborið við 234 árið 2010, en þessi fækkun nemur 31,6%. „Það eru auðvitað margar ástæður fyrir þessu. Líklega er ein sú að í gegnum tíðina hafa mjög margir far- ið í kennaranám án þess að ætla sér endilega að verða kennarar,“ segir Anna Kristín. Hún segir einnig að námið hafi faglega breidd og í því sé hægt að sérhæfa sig á mörgum svið- um auk þess sem auðvelt hafi verið að fá vinnu að námi loknu. „Nú er aftur á móti komið meira framboð á námsleiðum með þessa breidd. Fólk sem vill vinna með börnum og unglingum hefur mun fleiri möguleika í dag en það hafði áður. Ég get til dæmis nefnt nám í tómstundafræðum, sem fer mjög vaxandi,“ bætir Anna Kristín við. Mikið brottfall úr náminu Umsóknum um kennaranám hefur fækkað mikið undanfarin ár en auk þess hefur verið mikið brottfall úr náminu. Til að mynda hófu 189 nem- endur nám í grunnskólafræðum árið 2010, en úr þessum sama árgangi út- skrifuðust núna 80 nemendur, eða einungis 42,3% þeirra sem upphaf- lega hófu nám við deildina. Sömu sögu er að segja um nám í leikskóla- kennarafræðum, en árið 2010 hófu 45 nemendur slíkt nám og nú í vor útskrifuðust 20 nemendur úr sama árgangi. Anna Kristín telur að lenging námsins sé ein ástæða þess hvers vegna brottfallið er eins mikið og raun ber vitni, en einnig spili aðrar ástæður þarna inn í. „Lenging náms- ins er ein og sér ekki ástæða brott- fallsins, enda eru mörg nágranna- lönd okkar með jafnlangt og lengra nám og ekki hefur lengdin teljandi áhrif þar. Við teljum þetta vera tíma- bundið ástand,“ segir Anna Kristín. Spurð að öðrum ástæðum fyrir brottfallinu nefnir hún að laun, starfsaðstæður og neikvæð umfjöll- un fjölmiðla um kennarastarfið hafi áhrif: „Þetta hefur því miður ekki góð áhrif. Ungt fólk velur sér alla jafna það starf sem það vill vinna við í framtíðinni. Ég held að launin skipti ekki aðalmáli þegar náms- brautin er valin. En við þær að- stæður sem við búum við á Íslandi í dag þá kunna launin og starfsað- stæður hugsanlega að skipta meira máli en ella.“ Ekki stendur til að stytta námið „Það stendur ekki til að stytta námið aftur í þrjú ár. Ísland hefur verið með styttra nám en í flestum nágrannalöndum, en námið er fjögur ár mjög víða, og þegar við lítum á skýrslur OECD ríkjanna sést að við erum í hópi þeirra sem hafa námið einna styst. Algengt er að það sé í 4-6 ár,“ segir Anna Kristín. Hún segir að fjölmargar rann- sóknir hafi leitt í ljós að styrkur menntakerfisins felist í þekkingu og hæfni kennara og bætir við að í ljósi þess hve flókið starfið er og sam- félagslega mikilvægt sé mikilvægt að námið haldist í núverandi mynd. Nemendur fresta meistaranámi Af þeim 119 grunnnemum sem út- skrifuðust á laugardaginn síðastlið- inn með B. Ed.-gráðu hafa einungis 81, eða 68%, sótt um áframhaldandi nám til meistaragráðu, en slík gráða er skilyrði fyrir kennararéttindum samkvæmt núgildandi lögum. „Töluverður hluti fer út á vinnu- markaðinn og kennir í 1-2 ár og kem- ur svo aftur í meistaranámið,“ segir Anna Kristín, en núverandi lög kveða á um að ef ekki fáist kennari með réttindi ráðinn þá hafi þeir sem lokið hafa 3ja ára bakkalárgráðu for- gangsrétt umfram aðra í kennslu- störf. Fleiri hafa skráð sig í meistara- nám í ár heldur en í fyrra, en deildin hefur einungis þessi tvö ár til viðmið- unar. Brottfall úr kennaranámi  Af þeim 189 nemendum sem hófu nám árið 2010 útskrifuðust 80  Umsóknum í kennaradeild fækkar árlega  Lengd náms, laun og starfsaðstæður skipta máli „Þetta er það sem kallað hefur verið biðstöðuverkefni,“ segir Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- sviðs hjá Reykjavíkurborg, og vísar til leiktækja sem sett hafa verið upp á auða reitnum vestan við slippinn við Mýrargötu í Reykjavík. Lóðin var áður í eigu Faxaflóa- hafna en Reykjavíkurborg hefur keypt hana og áformar að byggja þar allt að 250 íbúðir í náinni fram- tíð. Segir Hrólfur nú unnið að gerð nýs deiliskipulags sem kynnt verður innan tíðar. Á meðan er reiturinn í biðstöðu og hefur því umhverfis- og skipulagssvið látið koma fyrir leik- tækjum til þess að lífga upp á svæðið og gera það meira aðlaðandi. Aðspurður segir Hrólfur borgina áður hafa staðið fyrir sambærilegum verkefnum, t.a.m. á Hljómalind- arreitnum svokallaða. khj@mbl.is Fjölbreytt leiktæki við slippinn Morgunblaðið/Styrmir Kári Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu, sem er fyrrverandi starfsmaður Kaupþings, til tveggja ára skilorðsbundinnar fangels- isvistar fyrir fjárdrátt. „Brot hennar er stórfellt,“ segir í dómnum. Auk þess segir dómurinn að konan hafi brotið gróflega gegn trúnaðarskyldum sem starfi hennar fylgdu. „Þykir refsing ákærðu hæfi- lega ákveðin fangelsi í tvö ár. Langt er liðið frá brotunum og ákærða er roskin að aldri,“ segir í dómi héraðs- dóms. Konan var sökuð um fjárdrátt með því að hafa í starfi sínu í einka- bankaþjónustu á eignastýringarsviði Kaupþings dregið sér 50 milljónir kr. í 18 skipti á tímabilinu 30. apríl 2004 til 24. janúar 2008. Dæmd fyrir stórfellt brot „Eftir því sem líður lengra á milli þess að katlarnir tæma sig, því stærri verða hlaupin,“ segir Gunnar Sigurðsson, hópstjóri vatnamælakerfis Veðurstofu Íslands. Undir Skaftárjökli eru jarðhitasvæði þar sem vatn safnast síðan í tvo katla. Sá eystri er stærri og hefur hlaup úr honum átt sér stað á um tveggja ára fresti. Sá vestri er minni og hlaup úr honum geta verið árleg. „Nú eru þrjú ár síðan hlaup varð síðast úr eystri katli jökulsins og það er alveg líklegt að hlaup þaðan verði nokkuð stórt,“ segir Gunnar. Lítið hlaup varð úr vestri katlinum í fyrra. Það er því líklegt að hlaup þaðan á þess- um tímapunkti yrði aftur frekar lítið. Hræringar undir jöklinum í síðustu viku Gunnar segir hræringar undir jöklinum geta verið fyr- irboða hlaups. Veðurstofan fylgist með mælingum á skjálftavirkni jöklinum og leiðni í Skaftá, en hækkuð leiðni í ánni getur einnig verið undanfari hlaups. „Það voru einhverjir ísskjálftar í jöklinum í síðustu viku, en við sjáum engin merki þess að það séu að koma hlaup ennþá.“ Gunnar segir einnig möguleika á að hlaup verði úr báðum kötlum á svipuðum tíma. „Það er oft þannig að þegar einn hleypur þá fylgir hinn fljótlega á eftir.“ bmo@mbl.is Skaftá safnar kröftum  Ekki komið hlaup úr eystri katli Skaftárjökuls í þrjú ár  Hlaup kom úr vestri katli í fyrra, en þau geta komið árlega Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kraftmikið Frá síðasta hlaupi úr eystri Skaftárkatli. Anna Kristín segir að nemendur í kenn- aradeild finni fyrir því að deildin sé að fara í gegnum breytingatímabil. „Það er verið að breyta náminu og þessi hópur upplifir kannski óvissu í deild- inni, til dæmis hvaða réttindi þau hafa og hafa ekki,“ segir Anna Kristín. Hún segir að meðal kenn- ara í deildinni sé mikil áhersla lögð á stuðning við nýnema. „Við viljum tengja þá betur við kenn- arastarfið og kynna hvað í því felst, og vekja þannig áhuga þeirra strax í upphafi. Við viljum að nemendur komi af krafti inn á vinnumarkaðinn og sýni meiri áhuga og áræði til kennarastarfs- ins.“ Meiri stuðningur við nýnema NEMENDUR FINNA FYRIR ÓVISSU Í NÁMINU Umsóknir nemenda í kennaradeild Háskóla Íslands eftir árum Líklegur fjöldi miðað við hlutfall útskrifaðra sem hófu nám árið 2010Fjöldi sem hefur útskrifast Fjöldi sem sótti um nám Ath. Ofangreindar tölur eru yfir fjölda umsókna til náms og endurspegla því ekki endilega hversu margir nemendur hófu námið. 200 150 100 50 0 154 80 234 71 137 208 65 128 193 55 105 160 2010 2011 2012 2013 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 2010 2011 2012 2013 20 69 89 12 43 55 13 46 59 18 63 81 40% 30% 20% 10% 0% -10% -20% -30% -40% 2010-2011 2011-2012 2012-2013 Breyting á milli ára LeikskólakennarafræðiGrunnskólakennarafræði -11,1% - 8,2% -16,2% -38,2% 7,3% 37,3% Grunnskólakennarafræði Leikskólakennarafræði Heimild: Háskóli Íslands Anna Kristín Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.