Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Skeifunni 8 og Kringlunni
Sími 588 0640
casa@casa.is | www.casa.is
Glæsileg matarstell
frá
Brúðhjón með gjafalista
hjá okkur fá 10% af sölu-
verðmæti gjafalistans til
úttektar í verslun okkar
Rosenthal Silver Dust
Undirdiskur (Framreiðsludiskur) kr. 10.750
Matardiskur kr. 7.950
Súpudiskur kr. 6.450
Salatskál 26 cm kr. 24.850
Fat 40 cm kr. 18.650
Rosenthal Tac Dynamic
Matardiskur kr. 6.650
Súpudiskur kr. 5.450
Forréttardiskur kr. 4.350
Kaffibolli og undirskál kr. 8.400
Salatskál 26 cm kr. 23.950
Tekanna kr. 39.950
Rosenthal Loft
Matardiskur kr. 2.950
Súpudiskur kr. 2.750
Salatskál 23 cm kr. 7.950
Desertskál kr. 2.550
Kaffibolli og undirskál kr. 2.900
Forréttadiskur 22 cm kr. 1.850
Varðliðar vinstri stjórnarinnarsem hrökklaðist frá völdum í
kosningunum í vor hafa síðan lagt
sig fram um að verja verk þessarar
óheillastjórnar. Breytir engu þó að
almenningur hafi vísað henni úr
stjórnarráðinu með sögulegum
hætti.
Einn helsti varð-liðinn, prúð-
mennið Björn Valur
Gíslason, var vegna
sumarþingsins sótt-
ur úr sæti annars
varaþingmanns
flokksins í
Reykjavíkur-
kjördæmi norður til að taka þátt í
umræðum um sjávarútvegsmál á Al-
þingi.
Björn Valur hefur fyrir löngu get-ið sér orð fyrir atlögu að sjáv-
arútveginum og hefur engu gleymt
þó að hann hafi nú dvalið um hríð á
aftari varamannabekknum.
Hann og fleiri slíkir taka sérstöðu til að verja árásir vinstri
stjórnarinnar á sjávarútveginn og
láta einskis ófreistað við að halda
uppi ofursköttum á greinina þó að
vitað sé að það yrði mörgum fyr-
irtækjum víða um land að falli.
Álit þeirra sem til þekkja hrann-ast upp með harðri gagnrýni á
hin háu veiðigjöld. Nýjasta dæmið
um gagnrýnina er skýrsla OECD
sem varar eindregið við þessum háa
skatti og bendir á að hann sé hærri
en sjávarútvegsfyrirtækin þoli.
En varðliðar vinstri stjórn-arinnar munu ekki gefa sig við
þessa ábendingu frekar en aðrar.
Byggðir landsins munu því ekki
sækja neinn stuðning þangað, en
ættu að geta treyst á skilning nýrra
stjórnvalda sem töluðu skýrt gegn
ofursköttunum fyrir kosningar.
Björn Valur
Gíslason
Varðliðarnir verja
ofurskattana
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.6., kl. 18.00
Reykjavík 8 rigning
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 12 alskýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:02 24:02
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:17 23:45
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Framkvæmdirnar eru hafnar og
við stefnum að því að geta klárað
verkið í júlí,“ segir Ingólfur Eyfells,
verkefnastjóri hjá Landsneti, en
fyrirtækið vinnur nú að því að
leggja nýjan rafstreng til Vest-
mannaeyja. „Bæði á Landeyjasandi
og í Vestmannaeyjum eru fram-
kvæmdir við landhluta strengsins
hafnar en skipið sem kemur með
sæstrenginn til landsins liggur nú í
vari í Færeyjum vegna veðurs,“
segir Ingólfur. Alls þarf að leggja
þriggja og hálfs kílómetra lands-
treng um Landeyjasand og um kíló-
metra langa leið í Vestmannaeyjum.
Lagning strengsins í sjónum er talin
munu taka um fjóra daga ef veður
helst gott.
Þriðji rafstrengurinn í röðinni
Strengurinn ber heitið Vest-
mannaeyjastrengur 3 og mun hann
geta borið 66 kílóvolta spennu sem
er töluvert meira en núverandi
strengir. Strengurinn mun leysa af
hólmi Vestmannaeyjastreng 2 sem
er illa farinn og ótraustur. Nokkur
fyrirtæki í Vestmannaeyjum hafa á
undanförnum árum lýst yfir áhyggj-
um af ástandi Vestmannaeyja-
strengs 2 og hafa bent á þær afleið-
ingar sem bilun á strengnum kunni
að hafa til dæmis á loðnubræðslu á
miðri loðnuvertíð. Ljóst er að með
nýjum streng færist aukið öryggi í
rafmagnsflutning til Vestmannaeyja.
Til að byrja með mun strengurinn
einungis flytja svipað mikið rafmagn
og áður hefur verið, en hann býður
þó upp á möguleikann á að auka raf-
magnsflutninginn töluvert. Hætt
verður notkun á Vestmannaeyja-
streng 2 en strengur 1, sem lagður
var árið 1962, verður áfram í notk-
un. Sá strengur ber þó ekki mikið
rafmagn.
Enn fleiri strengir væntanlegir
Áætluð er líka lögn fjórða raf-
strengsins til Vestmannaeyja, Vest-
mannaeyjastreng 4, á næstu árum.
Ingólfur segir þann streng verða
jafnspennumikinn og þann sem
lagður er nú. Fyrst og fremst séu
strengirnir lagðir til að viðhalda
grunnþjónustu en með samvinnu við
HS-veitur og hagsmunaaðila í Vest-
mannaeyjum er hægt að auka raf-
magnsflutning.
„Helst viljum við geta haft tvær
öflugar tengingar við eyjuna, það er
markmið okkar. Það er ekki hægt
að segja nákvæmlega hvenær það
verður, þetta er mjög stór fjárfest-
ing.“ Áætlað er að lagning hvers
rafstrengs kosti um 1,6 milljarða.
Nýr rafstrengur lagður til Eyja
Landeyjar Strengurinn verður sá
þriðji sem liggur milli lands og Eyja.
Leysir af hólmi illa farinn streng
1,6 milljarða króna framkvæmd