Morgunblaðið - 28.06.2013, Page 10
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
„Mig langaði að draga fram þá staði
sem skipta mig máli og heiðra minn-
ingarnar,“ segir Björg Magnúsdóttir
rithöfundur sem setti nýlega upp
sýningu í opnu rými í Hafnarfirði.
Sýningin samanstendur af 9 örsög-
um sem hefur verið komið fyrir á
jafnmörgum stöðum. Sögurnar eru
byggðar á æskuminningum Bjargar
en hún sleit barnsskónum í Hafn-
arfirði. „Þetta eru allt staðir sem
mér þykir mjög vænt um. Það er
svolítið fyndið að þegar maður verð-
ur eldri þá áttar maður sig á öllum
góðum minningum fortíðar án þess
að hafa gert sér grein fyrir þeim
endilega á sínum tíma.“
Sálmur Valdimars Briem
innblástur
Hugmyndin kviknaði hjá
Björgu síðastliðin áramót en þá sem
oftar þegar tvö ár renna saman var
lagið Nú árið er liðið sungið. „Ein-
hvers staðar í textanum kemur fram:
En hvers er að minnast og hvað er
það þá, sem helst skal í minningu
geyma? Ég fór þá að velta fyrir mér
hvað það hefði margt gerst hjá mér
þó að ég sé nú ekki gömul mann-
eskja í árum og fór að hugsa um
hvað mig langaði að geyma í minn-
inu, muna og varðveita.“
Upplifun í göngutúr
Sögurnar eru prentaðar á ál-
þynnur og var þeim komið fyrir í
samstafi við Hafnarfjarðarbæ en
Björg hlaut styrk frá Menningar- og
ferðamálaráði til verkefnisins. Sög-
Æskuminningar rata í örsögur í Hafnarfirði
Göngutúr um
bæinn með innsýn
í líf Hafnfirðings
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundurinn Björg Magnúsdóttir
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
• Gler og umgjörð frá 16.900 kr.
plast með glampavörn
• Margskipt gleraugu frá 39.900 kr.
umgjörð og gler.
• Verðlaunaglampavörn frá NEVA MAX,
150% harðari, sleipari og þægilegri í
þrifum 8.000 kr.
Öll verð miðast við plast-gler
SJÓNARHÓLL
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi
Við höfum lækkað gleraugnaverðið
Nú geta ALLIR
keypt sér gleraugu
Reykjavíkurvegur 22, Hafnarfirði | S. 565 5970 | sjonarholl.is
Margverðlaunuð
frönsk gæðagler
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta var afar vel lukkuð ferðog við komum víða fram,“segir Eydís Franzdóttir,stjórnandi unga þjóðlaga-
hópsins Gljúfrabúa, sem er nýkomin
heim frá Tékklandi. „Gljúfrabúi er
sjö manna hópur nemenda á aldr-
inum fimmtán til tuttugu ára úr Tón-
listarskóla Kópavogs sem spilar
þjóðlagatónlist. Í fyrrasumar feng-
um við í heimsókn þjóðlagahóp nem-
enda frá tónlistarskóla í Prag sem
smitaði okkur algerlega af þessum
þjóðlagaáhuga. Við unnum með
þeim hér heima og upp úr því varð
Gljúfrabúi til,“ segir Eydís og bætir
við að þau hafi farið að leita eftir ís-
lenskum þjóðlögum sem gætu verið
skemmtileg í flutningi. „Við fundum
fullt af hressum og skemmtilegum
lögum og við höfum því verið að æfa
íslensk þjóðlög allan síðasta vetur,
eða frá því við fengum þessa frá-
bæru krakka frá Tékklandi til okk-
ar. Þannig varð þessi flotti hópur
Gljúfrabúi til.“
Þau leita fyrir sér sjálf
Eydís segir að krakkarnir í
Gljúfrabúa leiki öll á hljóðfæri, enda
séu þau fyrst og fremst tónlist-
arnemar, en ein í hópnum er þó að
læra söng sem aðalfag. „Hópurinn
syngur samt allur. Þetta eru mjög
fjölhæfir krakkar, þau leika sum á
fleira en eitt hljóðfæri, dansa þjóð-
dansa og kveða líka rímur. Þau hafa
verið að hlusta á gömlu Silfurplöt-
urnar og fletta upp í Bjarna Þor-
steinssyni. Þau leita fyrir sér sjálf.“
Eydís segir að þau hafi lært mikið af
tékknesku krökkunum gestum sín-
Spila, syngja, dansa
og kveða rímur
Þau eru fjölhæf krakkarnir í þjóðlagasveitinni Gljúfrabúa, spila sum hver á fleiri
en eitt hljóðfæri og fara létt með að dansa líka þjóðdansa þegar þau koma fram.
Auk þess kveða þau rímur. Þau hafa uppgötvað hversu íslensk þjóðlög eru
skemmtileg og þau eru nýkomin heim frá Prag, þar sem þau slógu í gegn.
Söngur Bryndís er að læra söng og sér hér um einsönginn í hópnum.
Dansinn dunar Stúlkurnar stíga hér dans en piltarnir spila undir.
Mikið verður um dýrðir í Borgarnesi
um helgina, en þá verður hin árlega
Brákarhátíð. Dagskráin er fjölbreytt
og allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi. Götugrillið verður í kvöld en þá
draga Borgnesingar fram grillin sín
og bjóða nágrönnum, gestum og
gangandi að skella sínum mat á heit
grillin hjá þeim. Hægt er að prenta út
sönghefti á vefsíðunni brakarhatid.is
og taka lagið. Á morgun laugardag
verður nóg að gera allan daginn, má
þar nefna víkinga- og skartgripagerð
fyrir börnin, skrúðgöngu, Brákar-
hlaupið, bátasiglingu á Brákarsundi,
fjölskylduskemmtun og vík-
ingamarkað í Skallagrímsgarði, leðju-
bolta í Englendingavík, leikritið Ást-
arsaga úr fjöllunum að ógleymdri
þéttri kvöldvöku með hljómsveitinni
Festival. Fyrir þá allra fjörugustu er
svo alvöru sveitaball á laugardags-
kvöldið með Sálinni í Hjálmakletti.
Vefsíðan www.brakarhatid.is
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sálin hans Jóns míns Leikur fyrir dansi annað kvöld á Brákarhátíðinni.
Brjálað fjör á Brákarhátíð
Á morgun laugardag ætlar Stefanía
Svavars að halda blústónleika á Kex
Hosteli við Skúlagötu. Hún ætlar að
flytja tónlist eftir uppáhaldslistamenn
sína sem hafa haft áhrif á hana sem
söngkonu, t.d. Janis Joplin, Ettu
James, Ellu Fitzgerald, Arethu Franklin
o.fl. Um undirleik sjá Þórir Úlfarsson,
hljómborð, Jón Kjartan Ingólfsson,
bassi, Þröstur Þorbjörnsson, gítar,
Rubin Pollock, gítar og Jón Borgar
Loftsson, trommur.
Stefanía hefur sungið undanfarin ár
á skemmtunum, böllum, tónleikum,
keppnum, hátíðum og með ýmsum
listamönnum og hljómsveitum.
Endilega…
…kíkið á tón-
leika á KEXinu
Morgunblaðið/Eggert
Stefanía Blússöngkonan góða.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.