Morgunblaðið - 28.06.2013, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Það sem við þurfum að gera á
næstu mánuðum er að ræða um hvað
Evrópusambandið raunverulega
snýst og ákveða síðan hvort við vilj-
um ganga þar inn. Í kjölfar slíkrar
umræðu verður skýrsla lögð fyrir
þingið, vonandi í september eða
október í haust, um viðræðurnar á
milli Íslands og sambandsins til
þessa og þróun mála innan þess.“
Þetta sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra í
ávarpi á fundi sameiginlegrar þing-
mannanefndar Alþingis og Evrópu-
þingsins vegna umsóknar Íslands
um inngöngu í Evrópusambandið
sem fram fór á Hotel Natura í
Reykjavík í gær. Þar útskýrði hann
stefnu ríkisstjórnar sinnar í Evrópu-
málum fyrir þingmönnum Evrópu-
þingsins sem staddir voru á fund-
inum. Þótt numið yrði staðar í
viðræðunum um inngöngu í Evrópu-
sambandið legði Ísland eftir sem áð-
ur áherslu á gott og náið samstarf
við sambandið og ríki þess.
Umræðan á villigötum
Sigmundur sagði fyrri ríkisstjórn
hafa sótt um inngöngu í Evrópusam-
bandið með það að yfirlýstu mark-
miði að kanna hvað sambandið hefði
upp á að bjóða en ekki endilega að
ganga í sambandið. Ástæðan hefði
verið sú að ríkisstjórnin hafi verið
klofin í afstöðu sinni til málsins. Um-
ræðan hér á landi hefði fyrir vikið
aðallega snúist um þetta og hvort
innganga í Evrópusambandið væri
lausn á þeirri stöðu sem væri fyrir
hendi í efnahagsmálum Íslendinga í
stað þess að snúast um hugsanlega
kosti og galla sambandsins og hvort
Íslendingar ættu þar heima eða
ekki.
Þá lagði hann áherslu á að ríki
sem ætlaði að sækja um inngöngu í
Evrópusambandið þyrfti að vera
skuldbundið til þess að ganga þar
inn og fylgja reglum þess og sátt-
málum. Sama ætti við um ríkisstjórn
slíks ríkis sem þyrfti ennfremur að
hafa nauðsynlegan stuðning þjóð-
arinnar á bak við sig. „Það sem við
þurfum að gera á næstu mánuðum
er að ræða um hvað Evrópusam-
bandið raunverulega snýst og
ákveða síðan hvort við viljum ganga
þar inn. Í kjölfar slíkrar umræðu
verður skýrsla lögð fyrir þingið, von-
andi í september eða október í
haust, um viðræðurnar á milli Ís-
lands og sambandsins til þessa og
þróun mála innan þess,“ sagði Sig-
mundur.
Pólitískur vilji
fyrir inngöngu
nauðsynlegur
Forsætisráðherra segir skýrslu um
ESB-málin vonandi liggja fyrir í haust
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fundur Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson á þingmannafundinum.
Evrópusambandið
» Fundir sameiginlegrar þing-
mannanefndar Alþingis og Evr-
ópuþingsins hafa verið haldnir
reglulega frá því að viðræður
um inngöngu Íslands í ESB
hófust.
» Fundur nefndarinnar fór
fram í gær í Reykjavík en það
var fyrsti fundur hennar eftir
að ný ríkisstjórn tók við völd-
um hér á landi með breyttar
áherslur.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Dótturfélag Regins hf., Reginn A1
ehf., hefur undirritað samkomulag
við óstofnað félag kröfuhafa þotabús
Norðurturnsins ehf. um heildsölu-
leigu á tveimur hæðum Norður-
turnsins við verslunarmiðstöðina
Smáralind. Aðilar að samkomulag-
inu eru einnig Byggingarfélag Gylfa
og Gunnars ehf. Hið óstofnaða félag
verður eigandi turnsins, samkvæmt
tilkynningu á vef OMX í gær.
Þar kemur fram að um er að ræða
leigu á 1. og 2. hæð Norðurturnsins
sem tengist Smáralind á báðum
hæðum, leigusvæðið getur orðið allt
að 2.500 fermetrar. Samkomulag er
háð fyrirvörum, þar á meðal um fjár-
mögnun byggingar turnsins.
Hálfbyggður Norðurturn hefur
truflað starfsemi Smáralindar
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hinn hálfbyggði
Norðurturn, sem var í eigu Norður-
turns ehf., hefði í raun truflað starf-
semina í Smáralind allt of lengi.
Helstu kröfuhafar í þrotabú Norð-
urturnsins ehf. eins og Íslandsbanki,
þrotabú Glitnis, TM og Lífeyrissjóð-
ur verkfræðinga ætluðu sér að
stofna félag sem myndi leysa til sín
bygginguna.
„Við hjá Regin höfum gert heild-
söluleigusamning við þetta óstofn-
aða félag um tvær hæðir, þ.e. fyrstu
og aðra hæð sem tengjast Smára-
lind,“ sagði Helgi, „og samhliða er-
um við búin að gera leigusamning við
Baðhúsið, þannig að Baðhúsið fer
inn á aðra hæðina í Norðurturninum
og verður með rúmlega helming
þeirrar hæðar undir starfsemi sína
og við teygjum leigusvæðið inn í
Smáralind, við hliðina á Útilífi og
þeim verslunum sem þar eru, þannig
að hluti af sameigninni okkar fer
undir leigurými til Baðhússins.“
Helgi sagði að þannig yrði aðkom-
an að Baðhúsinu bæði utanfrá, frá
bílastæðunum við Norðurturninn, og
innanfrá gegnum Smáralind.
„Reginn A1 mun í framhaldi fram-
leigja allt rýmið til þriðja aðila, nú
þegar hefur verið undirritað sam-
komulag við Baðhúsið ehf. um gerð
leigusamnings á 2. hæð Norður-
turnsins með tengingu og aðkomu
inn í Smáralind á 2. hæð.
Að mati Regins hefur ofangreint
samkomulag og samningar ekki telj-
andi bein áhrif á afkomu félagsins,
sem og er fjárhagsleg áhætta Regins
lítil. Það er hins vegar mat Regins að
útleiga turnsins að hluta eða öllu
leyti muni hafa mjög jákvæð áhrif á
rekstur og starfsemi þeirra félaga
sem starfandi eru í Smáralind,“ segir
orðrétt í tilkynningunni.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Truflað Helgi S. Gunnarsson segir að hálfbyggður turninn hafi truflað starfsemi Smáralindar.
Ætla að klára Norð-
urturn og leigja út
Kröfuhafar stofna félag og leysa bygginguna til sín
Helgi S.
Gunnarsson
Linda
Pétursdóttir Ef marka má fréttir um að helstu
kröfuhafar í þrotabú Norður-
turns ehf. ætli að stofna félag og
leysa til sín hálfkaraðan Norð-
urturn við Smáralind eru miklar
líkur á að turninn verði brátt
kominn í gagnið.
Til marks um það er leigu-
samningur sem Linda Péturs-
dóttir, eigandi Baðhússins, og
Reginn hafa gert með sér um að
Baðhúsið leigi hálfa aðra hæð
turnsins og hefji starfsemi þar
hinn 1. desember nk.
Reginn hf. hefur gert heild-
söluleigusamning við hið óstofn-
aða félag helstu kröfuhafa þrota-
búsins og telur forstjóri Regins
að það að ljúka framkvæmdum
við turninn muni hafa jákvæð
áhrif á starfsemi Smáralindar.
Norðurturn
brátt í gagnið
BREYTT UMHVERFI SMÁRA-
LINDAR Á NÆSTUNNI?
Rafrænar ljósvakamælingar sem
Capacent gerir mánaðarlega gefa
nákvæmari og réttari mynd af þró-
un áskriftar sjónvarpsstöðvanna en
neyslu- og lífsstílskönnun fyrirtæk-
isins sem gerð er einu sinni á ári, að
sögn Einars Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra Capacent rann-
sókna.
Tölur sem Pipar Media birtinga-
hús vann úr neyslu- og lífsstílskönn-
un Capacent Gallup benda til að
SkjárEinn hafi styrkt stöðu sína
meðal heimila landsins frá því stöð-
in varð áskriftarstöð árið 2010 en að
áskrifendum Stöðvar 2 hafi fækkað
á sama tíma. Capacent sendi í gær
frá sér fréttatilkynningu þar sem
tekið er fram að neyslu- og lífsstíls-
könnun Capacent sé ekki ætlað að
mæla áskrift sjónvarpsstöðvanna og
að óheimilt sé að birta upplýsingar
úr henni.
Einar segir að
heimilið sé ein-
ingin í neyslu- og
lífsstílskönnun-
inni. Í fjölmiðla-
mælingum fyrir-
tækisins séu
niðurstöður vigt-
aðar upp eftir
fjölskyldustærð.
Það sé hinn rétti
mælikvarði til að nota við skoðun á
þróun í ljósvakafjölmiðlun. Þá segir
hann að neyslukönnunin sé gerð á
mismunandi tímum ársins og þekkt
sé að árstíðasveiflur séu í áskrift að
sjónvarpsstöðvum. Þar sem fjöl-
miðlamælingin sé mánaðarleg sé
hægt að meta árstíðabundnar sveifl-
ur með henni.
Segir ekkert um annað
Spurður hvort aðrar upplýsingar
í könnuninni séu ekki sama marki
brenndar og niðurstöður svara við
spurningunni um áskrift að sjón-
varpsstöðvum segir Einar að
neyslu- og lífsstílskönnunin mæli
neyslu á ýmsum vörum, áhugamál-
um og lífsstíl. Svör við spurningu
um áskriftina séu fyrst og fremst
notuð sem bakgrunnsbreyta við
markhópagreiningar. Hún segi ekk-
ert um aðra þætti könnunarinnar.
Tilkynning Capacent kom í fram-
haldi af viðtölum við Ara Edwald,
forstjóra 365 miðla og eigendur Pip-
ar auglýsingastofu þar sem fram
koma skiptar skoðanir um gildi nið-
urstaðna rannsóknar Pipar á þróun
áskrifta hjá sjónvarpsstöðvunum.
Einar Einarsson neitar því að Capa-
cent hafi verið undir þrýstingi frá
365 miðlum. „Nei, við ákváðum
sjálfir að leiðrétta þetta,“ segir
hann. helgi@mbl.is
Segir fjölmiðlakönnun
gefa réttari mynd
Capacent segir neyslukönnun ekki ætlað að mæla áskrift
Einar Einarsson