Morgunblaðið - 28.06.2013, Page 17

Morgunblaðið - 28.06.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur sam- þykkt umsókn Þjóðskjalasafns Ís- lands um að setja fyrsta manntalið sem tekið var á Íslandi, árið 1703, á lista Sameinuðu þjóðanna yfir Minni heimsins (Memory of the World). Í tilkynningu frá Þjóðskjalasafn- inu segir að þetta séu stórkostleg tíðindi og kærkomin viðurkenning á sérstöðu og mikilvægi þessrar einstöku heimildar. „Sérstaða manntalsins 1703 er að það er elsta manntal í heiminum sem varðveist hefur og nær til allra íbúa í heilu landi þar sem getið er nafns, aldurs og þjóðfélags- eða at- vinnustöðu allra þegnanna. Þessar upplýsingar gera það kleift að greina samfélagsgerð og fjöl- skyldugerð hér á landi á traustari grunni og af meiri nákvæmni en annars staðar er hægt. Þá er mann- talið varðveitt í heild sinni og eykur það gildi þess. Auk þess var skipu- lagning manntalstökunnar og framkvæmd talningarinnar mikið afrek,“ segir ennfremur í tilkynn- ingu safnsins. „Ákvörðun um töku manntalsins var sprottin af slæmu efnahags- ástandi á Íslandi á 17. öld og stöð- ugum harðindum í lok aldarinnar. Vegna þessa voru þeir Árni Magn- ússon prófessor og Páll Vídalín varalögmaður valdir til þess að rannsaka hag landsins og gera til- lögur til úrbóta. Meðal verka í þeirri rannsókn var að láta skrá og telja alla landsmenn,“ segir um manntalið. Manntalið þótti óvenju- legt tiltæki og vakti mikla athygli meðal landsmanna og var veturinn 1702-1703 nefndur manntalsvetur. Á vef Hagstofunnar má sjá að samkvæmt manntalinu 1703 voru Íslendingar þá 50.358 talsins. Þeir voru 321.857 1. janúar 2013. Manntalið frá 1703 hluti af Minni heimsins Allir Brot úr manntalinu úr Ytri-Hreppi, hluta af Minni heimsins. Ungliðahreyfing Amnesty Int- ernational mun á morgun, laug- ardaginn 29. júní, sýna pynding- araðferðir sem beitt hefur verið víðs vegar um heiminn. Tilefnið er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóð- anna til stuðnings fórnarlömbum pyndinga sem er 26. júní. Aðgerð ungliðahreyfingarinnar mun standa yfir á Austurvelli frá kl. 13-15. Gestum og gangandi verður boðið að kynnast nokkrum pyndingaraðferðum en í tilkynn- ingu er skýrt tekið fram að engum verði meint af tilburðunum. Gestir og gangandi geta prófað pynd- ingar á Austurvelli Morgunblaðið/Þorkell Skynfæri Amnesty hefur áður staðið fyrir mótmælum gegn pyndingum. Stofnaður hefur verið Minning- arsjóður Ólafs E. Rafnssonar, for- seta Íþrótta- og ólympíusam- bands Íslands, sem varð bráð- kvaddur 19. júní sl. Sjóðurinn verður notaður í þágu íþróttahreyf- ingarinnar í minningu Ólafs og hans mikla og óeigingjarna starfs innan hennar, að því er segir í til- kynningu frá ÍSÍ. Ólafur Eðvarð verður jarðsung- inn frá Hallgrímskirkju fimmtu- daginn 4. júlí klukkan 15.00. Erfi- drykkja verður haldin í Íþrótta- miðstöð Hauka að Ásvöllum að lokinni athöfn. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu heiðra minningu hans er bent á reikningsnúmer Minning- arsjóðsins 0537-14-351000, kenni- tala sjóðsins er 670169-0499. Minningarsjóður um Ólaf E. Rafnsson Hlutfall kynja í nefndum og ráð- um velferðarráðuneytisins hefur verið nánast jafnt síðastliðin tvö ár. Upplýsingar um hlutfallið eru birtar á vef ráðuneytisins en þar kemur fram að ráðuneyti skuli birta upplýsingar um hlut kynja í nefndum og ráðum samkvæmt þingsályktun um áætlun í jafnrétt- ismálum til fjögurra ára sem sam- þykkt var á Alþingi 19. maí 2011. Árið 2012 voru nefndir og ráð að 48,3% hluta skipaðar körlum en 51,7% konum. Árið 2011 var hlut- fallið 49,8% karlar og 50,2% kon- ur. Hlutfall kynja í nefndum og ráðum nánast jafnt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.