Morgunblaðið - 28.06.2013, Qupperneq 18
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fyrstu mánuðina sem fjölskyldan
bjó hér í dalnum fannst mér ég
stundum eins og staddur í stríðs-
hrjáðu landi, á vígvelli þar sem her-
liðin voru þó hlaupin á brott. Sú lýs-
ing er ekki fráleit, búslóðina bárum
við inn þann 11. október 2008, í lok
vikunnar sem Ísland féll,“ segir
Kristinn Steinn Traustason, formað-
ur Íbúasamtaka Úlfarsárdals í
Reykjavík.
„Eftir hrunið var næsta tómlegt
hér næstu misserin eftir; húsin hálf-
byggð, smiðirnir farnir og þegar
kvölda tók sáust óvíða ljós. Nú er
þetta hins vegar að komast af stað
aftur. Hér er að myndast samfélag
fólks sem kemur sitt úr hverri átt-
inni en á þó margt sameiginlegt.“
Spegilmynd þjóðfélagsástands
Byggðin í Úlfarsárdal er eins-
konar spegilmynd af þjóðfélags-
ástandi síðustu ára. Landnám þar
hófst árið 2006, með útboði á 120 lóð-
um fyrir 408 íbúðir í ein- og fjölbýli.
Eftirspurnin var strax mikil; götur
voru lagðar og farið í margvíslegar
aðrar framkvæmdir. Allt var á
fleygiferð og fyrstu Úlfdælingarnir
voru fluttir inn þegar efnahagskerfið
fór að hökta sumarið 2008, sem end-
aði svo með hruni um haustið.
En nú eru framkvæmdir að kom-
ast af stað aftur, iðnaðarmenn eru
víða að störfum, og Úlfarsárdalurinn
og uppbygging aðstöðu þar er
áherslumál hjá borgaryfirvöldum.
Með öðrum orðum sagt: í þessu
hverfi sjást þenslan, hrunið og end-
urreisnin – í öllum sínum birting-
armyndum – svart á hvítu.
Borgin með fimm ára áætlun
„Hverfi eins og Úlfarsárdalurinn
verða alltaf vinsæl; enda snýr það
beint mót suðri og í nágrenninu eru
falleg útivistarsvæði. Fyrir borg-
aryfirvöld er líka mjög áhugavert að
geta mótað umgjörð hverfisins til að
skapa gott og lifandi samfélag, til
dæmis með samþættingu skóla-,
íþrótta- og menningarstarfs,“ segir
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs Reykjavíkur.
Hönnunarsamkeppni um upp-
byggingu þjónustumannvirkja fyrir
Grafarholt og Úlfarsárdal var sam-
þykkt í borgarráði Reykjavíkur.
Stendur til að byggð verði sundlaug,
skóli, íþróttahús til æfinga og keppni
með áhorfendaaðstöðu, auk þess
sem gert er ráð fyrir að aðstaða fyrir
menningarstarfsemi og bókasafn
verði samtengd.
„Þetta eru áform sem komin eru
inn í samþykktar áætlanir borg-
arinnar,“ segir Dagur.
Uppbygging fyrir milljarða
Gerð hefur verið fimm ára áætlun
um uppbyggingu hverfisins og henni
eyrnamerktir 3,7 milljarðar kr.
„Líklega setjum við eitthvað meiri
fjármuni í þetta þegar allt er talið,“
segir Dagur. Hann vekur jafnframt
athygli á víðtæku samstarfi borg-
arinnar við þá sem tengjast málum í
Úlfarsárdalnum. Hugmyndir eru
uppi um að skólinn í dalnum og
íþróttafélagið Fram samnýti aðstöðu
og þannig náist samlegðaráhrif. Þá
standi til að endurskoða deiliskipu-
lags hverfisins. Áður hafi verið gert
ráð fyrir 10.000 manna byggð, en
nýjar áætlanir sem gilda fram til
ársins 2030 segja til um 3.500 íbúa í
1.400 íbúðum.
„Við hugsum reyndar Úlfarsárdal
og Reynisvatnsás ásamt Grafarholt-
inu sem heildstætt hverfi. Þar með
erum við með einingu sem er svipuð
Árbæjarhverfi að stærð, segir Dag-
ur. „Eðlilega gera íbúar í nýjum
hverfum kröfu um sterka innviði. Í
Árbænum þurfti fólk að bíða í ára-
raðir eftir íþróttaaðstöðu, sundlaug,
bókasafni og verslunum. Í Úlfars-
árdal og Grafarholti eru þessar
grunnstofnanir ýmist komnar eða á
teikniborðinu og farið verður í fram-
kvæmdir á næstu árum.
Aftur af stað
Hlutverk Íbúasamtaka Úlfars-
árdals er meðal annars að þrýsta á
borgaryfirvöld um uppbyggingu og
úrbætur í ýmsum málum.
„Þetta er allt á góðri leið. Við höf-
um sérstaklega óskað eftir því að
hálfbyggðum húsum sé lokað og
slysagildrum fækkað. Og það er allt
á réttri leið, en mestu skiptir auðvit-
að að byggingaframkvæmdir í daln-
um eru aftur farnar af stað,“ segir
Kristinn Steinn Traustason, formað-
ur íbúasamtaka Úlfdælinga – sem
stofnuð voru 2009 og eru félagsmenn
nú um 200 talsins.
Hér er að
myndast
samfélag
Kristinn Steinn
Traustason
Dagur B.
Eggertsson
Úlfarsárdalur
Fram svæði
Loftmyndir ehf.
Reykjavík
Uppbygging í Úlfarsárdal aftur af
stað Borgin ver 3,7 milljörðum kr. til
framkvæmda á svæðinu á næstu árum
Samþætta skóla og íþróttastarf
Gert ráð fyrir 3.500 íbúum
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Græðandi og
slakandi
Ég var með slæmt sár í fimm mánuði eftir skurðaðgerð og búin að reyna
allskonar krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu gerði kraftaverk
og sárið greri á einni viku. Svo er það líka gott á sprungur, útbrot og
þurrkbletti. Slakandi olían er góð fyrir húðina og himnesk í baðið!
– Lena Lenharðsdóttir
www.annarosa.is
Sáramyrslið græðir sár og
sprungur og hefur líka gefist
afar vel við kláða, frunsum,
sveppasýkingum og bleiuútbrotum.
Slakandi olían
hefur róandi áhrif
og er frábær nudd-