Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 39

Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 39
nafna þinn langaði til að ég kæmi og hitti fjölskylduna hans á þrettándanum heima hjá Hönnu frænku sinni. Þú, kona þín og fjölskylda öll gripuð mig og það varð ekki aftur snúið úr þinni ætt. Ég settist í kaffiboðið ekki vitandi hverju ég átti von á en var svo heppin að fá að hlusta á þig rifja upp yngri ár þín, þeg- ar þú fórst í herinn og ferðaðist heimshorna á milli. Þessum degi mun ég seint gleyma. Hvernig þú sagðir frá og það sem þú mundir eftir var alveg ótrúlegt. Næstu ár heyrði maður ótal margar sögur sem skemmtilegt var að hlusta á. Ég gleymi held- ur seint 21. ágúst 2009 þegar þú varst mjög veikur og öll fjöl- skyldan kom til Eyja til að heim- sækja þig á spítalann. Ég var byrjuð með hríðar og áttum við von á barni þennan dag. Ég og Þorbjörn fórum upp á fæðing- argang, hugsandi það að jafnvel færi afi hans á þessum sama degi. Þegar ég var búin að eiga og komin niður á sængurkon- ustofuna á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja með litla stúlku í fanginu komst þú hlaupandi með stafinn þinn, hávær og glaður. Búinn að jafna þig og ánægður að allir væru mættir á staðinn. Nú eru Jenný Svava og Jökull kannski of lítil til að muna eftir þér í framtíðinni en við verðum dugleg að halda minningunni þinni á lofti, með myndum og vídeóum sem við eigum af þér. Hvíl í friði, elskulegi afi long. Agnes Guðlaugsdóttir. Elskulegur tengdaafi. Með dýpstu hrifningu ég upp til þín leit. Með grásprengt svart hárið og augun grá og heit. Með virðingu að vopni þú tókst á við hvern dag. Sagðir sögur, þuldir rímur, því það var þitt fag. Kryddblandaður reykurinn upp af pípunni leið. Með sæta snúða og te í könnu ég tekst á við það, er fyrir ég kveið og kveð þig með orðum þínum „Velkominn á þennan bæ, do you know why? Neither do I.“ Anna Karen. Jæja Tobbi minn, þá hefurðu kvatt okkur og tekur mig það mjög sárt því þú varst mér svo afskaplega kær. Þú varst alltaf svo almennilegur og góður við mig, þú varst hreint og beint yndisleg manneskja og á ég eftir að sakna þín og góða skapsins mikið. Það var alltaf brosað og hlegið þegar maður kom til þín, alltaf svo hlýlegt og góður andi á heimilinu. Ég verð þér ætíð þakklát fyrir að þegar við Helgi vorum að bíða eftir íbúð þá leyfðirðu okkur Helga þínum ásamt litlunni okk- ar, henni Kristínu Lilju, að dvelja í íbúðinni þinni á meðan þú varst í Svíþjóð, kærar þakkir elsku Tobbi minn. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, það var svo gaman að hlusta á sög- urnar þínar og hvað þú gerðir margt og fórst á þínum yngri ár- um. Því miður náði ég ekki að hitta og kynnast eiginkonu þinni, henni Önnu Fjólu, en ég veit að þú skilar góðri kveðju frá okkur Helga og dætrum okkar og skellir kannski kveðju á afa minn og ömmu sem einnig hafa kvatt þennan heim. Það kemur bros og hlátur upp í hugann þegar ég hugsa til þess þegar við Helgi sátum heima hjá þér og þú varst alltaf að segja mér eitthvað á öllum þessum tungumálum sem þú kunnir, Jesús minn hvað þú kunnir þau mörg. Ég kveð þig í þetta sinn en veit að við munum öll hittast aft- ur einn daginn. Elsku Tobbi minn, hvíldu í friði og þakka þér fyrir allt sam- an, þín verður svo sannarlega sárt saknað. Guð geymi þig elsku Tobbi minn. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Súsanna Halla Guðmundsdóttir. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 ✝ Róbert HarryJónsson sím- virki fæddist 5. febrúar 1949. Hann lést 10. júní 2013. Móðir hans var Erna Ólsen, f. 1926, d. 2011, og faðir Gerald Bill- ington, bandarísk- ur, f. 1911, d. 1986. Uppeldisfaðir Ró- berts er Jón Ágúst Ólafsson, f. 1925. Róbert átti þrjú systkini, Guðmund Geir, d. 1983, og tví- burana Ellen Ragnheiði og Arn- ar, f. 1962. unni Ósk Steinarsdóttur. Börn þeirra eru Emilía Ósk, f. 2002, og Embla Nótt, f. 2005. Matt- hildur býr nú í Ástralíu, gift Malcolm J. Sheard. Róbert kvæntist Sonju Ósk Jónsdóttur. Börn þeirra eru: 1) Róbert Már, f. 1980, og Eydís Ósk, f. 1983. Róbert kvæntist Snæfríði Telmu Cabaluna frá Filippseyjum. Barn þeirra er: Karítas, f. 1988. Róbert kvæntist Jessicu Joy Owie, f. 1976, þau skildu 2009. Róbert Már á eina stúlku. Róbert lærði hjá Pósti og síma en starfaði hjá Radíóþjón- ustu Bjarna, Álverinu í Straums- vík, BM Vallá, Pólar rafgeyma- þjónustu, ÁTVR og síðast hjá Loftorku. Útför Róberts fór fram frá Fossvogskapellu 19. júní 2013. Róbert giftist Matthildi Björns- dóttur, f. 1947, dótt- ur Björns Guð- brandssonar barnalæknis og Sig- ríðar Guðbrands- dóttur ritara. Börn þeirra eru: 1) Snæ- dís, f. 1971, dagmóð- ir. Börn Snædísar eru: Alexander, f. 1994, Aþena Sól, f. 2002, og Matthildur Marín, f. 2007. Snædís er í sambúð með Gunnlaugi Egilssyni. 2) Björn, f. 1973, kerfisstjóri hjá ISNIC. Björn er í sambúð með Stein- Elsku pabbi, nú hefur þú yf- irgefið þennan heim okkar og svífur í skýjunum þar sem uppáhaldsáhugamálin hafa allt- af verið, flugvélar, talstöðvar og veðrið. Við minnumst þeirra stunda sem við höfum átt sam- an jafnt með fögnuði og trega – þær voru margar ánægjulegar og hefðu þær mátt vera fleiri. Í gegnum uppvaxtarárin höfðum við ömmur og afa til að veita okkur dygga aðstoð við skólann, en til þín mátti helst leita ef það vantaði afþreyingu eða viðgerðir (og eitt og annað tæki sem losnaði af því þú hafð- ir keypt nýtt). Flestar samverustundir okk- ar áttum við í byrjun unglings- áranna og fór mestur tíminn í tölvuna og myndbönd og leiddi það mig á endanum í starfs- grein mína og ennþá ríkjandi áhugamál. Aldrei festist þó áhuginn á talstöðvum og fjar- stýrðum tækjum eða flugvélum. Þegar kom að áhugamálun- um varst þú ástríðufullur og áhugasamur, en þegar kom að fjölskyldumálum hefði áhuginn mátt vera meiri, það mátti eyða endalausum tíma í viðgerðir, tónlist, flugvélasmíði, talstöðv- ar og tölvur, og oftast til mik- illar ánægju, enda eru áhuga- mál eitthvað sem lyftir okkur upp á annað plan, ofar þessari veraldlegu tilveru. Núna er það ástand varanlegt hjá þér, kæri pabbi, og ég kveð þig með mikl- um söknuði og trega. Ég þakka fyrir þessa síðustu daga sem ég gat eytt hjá þér og vil jafn- framt þakka starfsfólki Heilsu- gæslu Suðurnesja, D-deildar, sem kynntist þér vel og hugsaði enn betur um þig í gegnum baráttu þína síðastliðin ár. Ég vona að minn tími með þér hafi veitt þér stuðning þessa síðustu daga þína. Björn Róbertsson. Ég og Róbert hittumst í Glaumbæ á miklum tímamót- um, bæði í heimsmálum og lífi einstaklinga. Á þessum tíma héldu margir ættingjar dauða- haldi í forn viðhorf um hjóna- bandið og einstæðar mæður voru litnar hornauga, að vera á sveitinni þótti afar neikvætt og einnig var barnlaus kona neðar í metorðastiganum heldur en sú sem átti barnaláni að fagna. Búist var við að hver kona gæti haldið heimili sem væri bónda sínum til fyrirmyndar. Álagið var slíkt og tækifæri til að komast að því hver við vorum í raun og veru, og ákvörðunar- vald um hvernig við vildum lifa lífinu, var ekki í hugsunarhætti eða orðaforða þjóðarinnar. Börnin urðu til út frá þrýstingi úr einni átt og tómleika okkar hið innra á hinn veginn. Samt hefur ræst úr börnunum þrátt fyrir takmörk okkar foreldr- anna. Engin kennsla var í þess- um málum, en ætlast var til að viðkomandi gæti rekið heimili, með mikilli sæmd, búið að góðu sambandi, og verið fullkominn uppalandi. Tíminn hefur sýnt að svo var ekki. Þessi hópur stóð uppi í hárinu á gamla hugsunarhættinum og afneitaði gömlu formúlunum. Ég og Ró- bert gengum ekki saman þá braut og stefna mín var ekki að leika einleik heima og fagna peningaöflun makans. Hjóna- bandi okkar Róberts lauk eftir sjö ár. Viðhorfi kirkjunnar og samfélagsins um smánina að slíta hjónabandi var hafnað fyr- ir ákvörðun um að vilja vera ánægður með líf sitt og hlut- verk. Ekki að beygja sig undir kerfi sem var skapað án innsæ- is og skilnings, kerfi sem byggðist meira á búskap en samfélagslegum gildum, vægi einstaklings, frelsi og ham- ingju. Skammsýnin virkaði ekki þá og virkar ekki neitt frekar í dag. Róbert var meinlætismað- ur, kaus að vera mikið einn í sínum eigin heimi, frekar en að taka þátt í uppeldi barna, eða aðkomu að uppeldi barnabarna. Nú þegar hann kveður þetta jarðlíf, sé ég að við áttum mikið sameiginlegt sem ungmenni, við vorum bæði týnd og án þeirrar leiðsagnar sem við þurftum. Upphaf lífs okkar var mjög svipað og það hefur átt sinn þátt í að leiða okkur sam- an, skapaði visst öryggi og kunnugleika. Orkan okkar hef- ur verið svipuð og val okkar verið að miklu leyti ómeðvitað. Ég hef lært að við veljum oft fyrsta maka út frá þeirri upp- lifun, frekar en eftir því sem er í heilabúi okkar. Ég kveð hann, með von um að hann nýti sér veruna hinum megin til að læra. Ég vaknaði sjálf, á minn hátt, og kannski hefur hann vaknað á sinn hátt frá þessu öllu? Ég votta börnum hans, með mér og öðrum konum hans, alla mína samúð sem og systkinum hans og föður. Matthildur Björnsdóttir, Ástralíu. Róbert Jónsson ✝ Rólant DalChristiansen fæddist í Þórshöfn í Færeyjum 1. des- ember 1928. Hann lést á Landspít- alanum 12. júní 2013. Foreldrar hans voru Johan Sophus Dal Christiansen, f. 31.8. 1888, d. 4.12. 1969 og Rosa Dal Christiansen, f. 13.5. 1890, d. 17.6. 1986. Systkini Rólants: Jona, f. 6.12. 1916, d. 24.2. 1997, Gunnvør, f. 16.2. 1919, Christi- an, f. 23.10. 1923, d. 6.7. 1990, Helena, f. 2.10. 1922, Hjørdis, f. 12.12. 1924, Terje, f. 8.12. 1926, d. 8.11. 2000, Sonja, f. 16.6. 1931 og Guðrun, f. 13.6. 1935. Fyrri kona Rólants var Björg Árna- dóttir, f. 21.6. 1930, þau skildu. Börn þeirra: 1) Margrét Rosa Dahl-Christiansen, f. 8.9. 1952, maki Pétur Hlöðversson, f. 4.7. 1959. Börn Margrétar og Auð- uns Kjartanssonar, 1a) Steinunn Arndís, f. 20.1. 1971, maki Jó- hann Midjord Jóhannsson, f. 8.5. 1968, synir þeirra, Gabríel Ernir, f. 2.5. 1998 og Auðunn Elí, f. 27.11. 2001. 1b) Sigurlaug Rósa, f. 30.11. 1975, maki Loft- Rólants er Finnbjörg Gríms- dóttir, f. 20.4. 1934, börn henn- ar og Antons Björnssonar 1) Anna María, f. 13.12. 1956, maki Valgarður Unnar Arnarson og eiga þau 3 börn og 4 barnabörn. 2) Linda Petterson Sanda, f. 27.7. 1960, maki Björn Sanda, á hún 3 börn og 1 barnabarn. 3) Ragnar, f. 5.5. 1963, maki Guð- björg Jensdóttir og eiga þau 4 börn. 4) Björn, f. 3.9. 1966, maki Cecilie Antonsson og eiga þau 2 dætur. Rólant stundaði sjómennsku frá unga aldri, fyrst með föður sínum á opnum báti og síðar á fiskiskipum þar til hann fluttist til Íslands um miðbik síðustu aldar. Rólant nam vélvirkjun í Iðnskóla Reykjavíkur og starf- aði fyrst hjá Járnsmiðju Árna Gunnlaugssonar, síðan hjá Plastiðjunni Eyrarbakka í Reykjavík og síðustu starfsárin hjá Húsasmiðjunni. Rólant var mikill útivistarmaður og ferð- uðust þau hjón mjög víða, höfðu þau líka mjög gaman af að fara saman á fugla- og hrein- dýraveiðar í góðra vina hópi. Rólant var hornsteinn stórfjöl- skyldunnar og unni henni mjög, hann lagði ríka áherslu á að tengslin rofnuðu ekki við hans föðurland Færeyjar, og hafa börn hans og barnabörn við- haldið því. Rólant starfaði með Oddfellowreglunni á Íslandi. Útför Rólants fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 28. júní 2013, og hefst athöfnin kl. 13. ur Jens Magnússon, f. 15.8. 1979, sonur Sigurlaugar er Ról- ant Bjarni, f. 30.4. 1997. 1c) Auðunn Þór, f. 19.10. 1980, maki Erla Margrét Leifsdóttir, f. 10.2. 1983, dætur þeirra, Amanda Sól, f. 26.3. 2005 og Em- ilía Heiða, f. 23.12. 2012. 2) Johan Sophus Dahl-Christiansen, f. 6.3. 1955, maki Lilja Eiríks- dóttir, f. 31.8. 1956, börn þeirra 2a) Rólant Dahl Christiansen, f. 26.11. 1979, börn hans Jóhannes Viðar, f. 24.1. 2006 og Steinunn Lilja, f. 7.9. 2007. 2b) Tinna Dahl Christiansen, f. 7.8. 1981, maki Björn Már Sveinbjörnsson, f. 6.11. 1979, sonur þeirra Sveinbjörn Sophus, f. 24.6. 2010. 3) Arna Soffía Dahl- Christiansen, f. 10.5. 1957, maki Jón Ingi Arngrímsson, f. 8.3. 1955, dóttir Örnu og Óskars Gunnlaugssonar, 3a) Guðrún Björg Óskarsdóttir, f. 4.9. 1972, maki Hilmar Jónasson, f. 21.5. 1973, þeirra börn, Arnór, f. 3.11. 1993, Andri Marís, f. 3.10. 1998 og Eva Guðrún, f. 9.12. 2004. Eftirlifandi eiginkona Elsku pabbi, nú sest ég niður og skrifa nokkur orð til þín. Fyrst og fremst kemur upp í huga mér þakklæti, þú varst alltaf kletturinn hjá okkur öll- um í stórfjölskyldunni. Kenndir okkur svo vel að bera virðingu fyrir landi okkar og þjóð og þá á ég við bæði Ísland og Fær- eyjar, þar sem við eigum stóran ættlegg sem stendur þétt sam- an. Þú varst mikill útivistar- maður, hafðir gaman af göngu- ferðum um landið vítt og breitt. Einnig voru veiðiferðir mjög of- arlega hjá þér. Við fórum oft saman til Færeyja og Dan- merkur, ýmist fljúgandi eða siglandi, allur hópurinn, og þá oftar en ekki á ættarmót. Einn- ig komu okkar ættingjar hingað og þá keyrðum við stolt með allan hópinn hringinn í kringum landið. Þú varst mjög stoltur af því hvað þinn leggur sem er hér á landi var duglegur að mæta á þessi ættarmót og oft höfðum við vinninginn í mæt- ingu, því bæði var mjög gaman að ferðast saman og enn skemmtilegra var eftir því sem við vorum fleiri. Ég vil þakka þér samfylgd- ina og einnig hvað þú hefur stutt mig í gegnum mitt líf, við vorum kannski ekki endilega alltaf sammála en það gerði ekkert til, við máttum alveg hafa hvort sína skoðunina og skildum alltaf sátt og fyrir það er ég afskaplega þakklát. Elsku pabbi minn, nú er komið að leiðarlokum og það verður erf- itt að fylla skarð þitt þegar við stórfjölskyldan komum saman – en minningin lifir og ég mun gera mitt til þess að bera hana hátt. Ég sendi þér ljóð með um Sumarlandið og ég bið að heilsa þangað, þar þekki ég nokkra. Langur dagur að kvöldi kominn er kærar minningar ylja okkur hér. Okkur kenndir það lífsins leyndarmál að lífsgleðin er sótt í eigin sál. Þá stóru brimskafla og boðaföll sem buldu á, þú tókst á við þau öll. Á æviskeiðinu lagðir mörgum lið nú loks þú hvílist, öðlast ró og frið. Þitt sólarlag, svo er komin nótt þitt sólarlag, þú hvílir vært og rótt. Þitt Sumarland, bjart nú bíður þín, þitt Sumarland, bæna þinna sýn. Senn vaknar þú á björtum betri stað sem bíður þín, þú sagðir okkur það. Þar læknast allt sem áður þjáði þig þú ert komin á nýtt tilverustig. Við söknum þín en vitum það víst öll að vegurinn í þína draumahöll liggur beinn, þar brosir allt þér við brátt þar finnur vini þér við hlið. Þitt sólarlag, svo rís sólin hlý Þitt sólarlag, við tekur veröld ný Þitt Sumarland, sem að þráðir þú Þitt Sumarland, sem þig faðmar nú. (Jón Ingi Arngrímsson) Arna Soffía. Í dag kveðjum við kæran vin og Oddfellowbróður. Kynni og vinátta okkar Rólants hófust fyrir alvöru er við bræður í st. nr. 3 Hallveigu ásamt eiginkon- um okkar fórum árið 1983 í ferðalag um sjö lönd Evrópu. Upp frá þeirri ferð vorum við hjónin í miklu og góðu vina- sambandi við þau Boggu og Rólant. M.a. vorum við ásamt góðum vinum úr stúkustarfinu með svokallaðan Lundaklúbb en eina takmark hans var að snæða saman lunda og hafa gaman hvert af öðru. Sameig- inlegt með þessum ágæta hópi var að allir áttu á einhvern hátt tengingu við annað tveggja, Vestmannaeyjar eða Færeyjar. Snemma var ákveðið að fara á æskuslóðir Rólants í Þórs- höfn í Færeyjum og af ferðinni varð árið 2000 og verður þeim sem í ferðina fóru með öllu ógleymanlegt. Gist var við bestu aðstæður hjá ættmenn- um Rólants og fjölskyldan og vinir hans tóku þannig á móti okkur að seint mun gleymast. Rólant var búinn að búa á Ís- landi í um eða yfir 50 ár. Hann var það sem kalla má „orginal“ Færeyingur, fastur fyrir, jafn- vel dálítið þrjóskur en umfram allt frábær félagi og vinur. Að- eins mátti heyra á mæli hans hvaðan hann var ættaður, en fáa menn umgengst ég sem hafa betri kunnáttu um ís- lenskt mál og málfar en hann hafði. Enda feikivel lesinn jafnt á íslenskar sem færeyskar bók- menntir. Bókasafn hans bar þar um en hann átti gott safn bóka. Þau hjónin ferðuðust mikið um landið og þekkti hann Ís- land og hálendið mjög vel eftir fjölmargar jeppaferðir og veiði- ferðir. Þau hjónin voru afar góð heim að sækja og gestrisn- in upp á allt það besta, enda frúin með betri og hagsýnni húsmæðrum. Rólant var afar vel á sig kominn líkamlega, en fyrir um það bil tíu árum greindist hann fyrst með alvarlegan sjúkdóm en baráttuþrek hans og líkam- legt sem andlegt atgervi gerði honum kleift að margsigra þennan bölvald sem þó að lok- um hafði betur. Að leiðarlokum vil ég færa vini mínum bestu þakkir fyrir allt spjallið og allan fróðleikinn sem ég naut í spjalli við hann, og þá sérstaklega fyrir fróð- lega upprifjun á skútuárum hans hér við Íslandsstrendur sem ungur maður. Fjölskyldu hans allri vottum við Ágústa samúð yfir fráfalli góðs drengs og frábærs félaga. Anton Örn Kærnested. Rólant Dal Christiansen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.