Morgunblaðið - 28.06.2013, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Smáauglýsingar
Ýmislegt
Teg. 39077 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 37 - 40.
Verð: 15.885.
Teg. 2703 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litur brúnn og svartur.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 14.685.
Teg. 99512 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: svartur og brúnn.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 15.885.
.
Teg. 8745 Flottir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: brúnn og grár.
Stærðir: 36 - 40. Verð: 13.800.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18.
Lokað laugardaga í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
!!"#$
Bílar
BMW X5 3.0D dísel, 2007 árg.
Ekinn 85 þ. Umboðsbíll í toppstandi,
aðeins tveir eigendur. Ásett 6,9 m,
stgr. 6,2 m, áhvílandi er lán uppá 5 m
sem hægt er að yfirtaka. Myndir á
x5.is. Uppl. í síma 898 2001.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum,
hreinsa veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
✝ GuðmundurReyndal
Björnsson fæddist
á Lækjarbæ í
Fremri-Torfu-
staðahreppi 28.
ágúst 1920. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Vest-
urlands á Hvamms-
tanga 19. júní
2013.
Hann var sonur
hjónanna Ingibjargar Jóns-
dóttur húsfreyju, f. 9.12. 1891,
d. 4.6. 1974, og Björns Guð-
mundssonar bónda á Reynihól-
um í Miðfirði, f. 23.2. 1885, d.
24.3. 1985. Börn þeirra hjóna
auk Guðmundar eru Hólm-
fríður Þorbjörg, f. 5.9. 1917, d.
24.11. 2000, Jóhanna, f. 27.1.
1919, Jón Björgvin, f. 16.6.
1925, d. 15.1. 2000, Ólöf, f.
14.12. 1926, Jóhannes Ingvar, f.
1.1. 1930, og Jón Elís, f. 14.7.
1932.
Hinn 20.4. 1950 giftist Guð-
mundur konu sinni, Ilse Björns-
son, f. 10.5. 1926 í Ratzeburg í
Þýskalandi. Hún er dóttir
hjónanna Mariechen og Bern-
hards Novosatko. Börn Guð-
mundar og Ilse eru: 1) Hildur
Ingibjörg, f. 9.12. 1950. 2)
Björg Sigurlaug, f. 21.11. 1951,
maki Jón Gunnar Ásgeirsson, f.
22.10. 1952. Börn hennar eru a)
Arnar Hlynur Ómarsson, f.
12.10. 1974, maki Jóna Guð-
björg Pétursdóttir, f. 5.9. 1979,
börn þeirra eru Arndís Sif, f.
22.3. 1999, og Rannveig Elva, f.
9.3. 2003, b) Elsa Rún Erlends-
dóttir, f. 20.5. 1985, maki Reyn-
ir M. Jóelsson, f. 25.2. 1983. 3)
Sigrún Anna, f.
29.3. 1954. Dóttir
hennar er Henný
Sigurjónsdóttir, f.
9.8. 1980, maki
Lárus Sigurðarson,
f. 28.12. 1977, börn
þeirra eru Alex-
ander, f. 15.11.
2002, og Monika, f.
14.3. 2005. 4)
Björn, f. 7.6. 1956,
maki Ásdís Þ.
Garðarsdóttir, f. 23.2. 1956,
börn þeirra eru a) Guðmundur
Örn, f. 28.12. 1976, unnusta
hans er Áslaug Þorsteinsdóttir,
f. 24.8 1976, b) Emma Rakel, f.
6.2. 1979. 5) Ingvar Helgi, f.
12.2. 1960, maki Bryndís Hulda
Pétursdóttir, f. 3.1. 1969.
Þeirra börn eru a) Dagbjartur
Elís, f. 4.11. 1988, b) Marinó, f.
13.3. 1992, c) Bjarki Már, f. 7.7.
1993, d) Ragna María, f. 19.6.
2002.
Árið 1947 keypti Guðmundur
jörðina Tjarnarkot í Miðfirði og
hóf þar búskap með konu sinni
árið 1950. Meðfram búskapnum
stundaði Guðmundur slátur-
hússtörf hjá Kaupfélagi Vestur-
Húnvetninga, Verzlun Sigurðar
Pálmasonar og síðar Ferskum
afurðum á Hvammstanga. Guð-
mundur sá einnig um sorpeyð-
ingu fyrir Laugarbakka og
Reykjaskóla og starfaði um
árabil við grenjaleit á Miðfirð-
ingaafrétti. Guðmundur og Ilse
hættu búskap árið 1995 og
fluttu þá á Laugarbakka.
Útför Guðmundar fer fram
frá Melstaðarkirkju í dag, 28.
júní 2013, og hefst athöfnin kl.
13.
Elsku pabbi minn, nú hefur þú
kvatt þennan heim og ótal minn-
ingar streyma fram í hugann þeg-
ar litið er yfir farinn veg. Ég vil
þakka þér fyrir allt sem þú varst
mér og kveð þig með miklum
söknuði.
Elsku mamma, ég bið algóðan
Guð um að varðveita þig og
styrkja í þinni sorg.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Þín dóttir,
Sigrún Anna Guðmunds-
dóttir.
Það má segja að pabbi hafi lifað
frá torföld til tölvualdar. Hann
fæddist og ólst upp á heiðarbýli í
torfbæ.
Árið 1947 keypti pabbi jörðina
Tjarnarkot í Miðfirði og hóf bú-
skap ásamt móður minni, Ilse, á
giftingarárinu 1950 og byggði yfir
fjölskylduna nýtt íbúðarhús og
gripahús.
Pabbi erfði það frá móður sinni
að hafa alltaf tíma til að hjálpa öll-
um við nánast hvað sem er, allt frá
því að handsama mannvígan hana
í hænsnahóp upp í að fella illvígan
stóðhest.
Göngur og réttir voru ætíð til-
hlökkunarefni og lét pabbi sig
aldrei vanta. Hann unni heiðunum
Núps-, Húks- og Aðalbólsheiði og
smalaði hann þær allar. Mörg ár
var hann gangnastjóri bæði á
Núps- og Húksheiði. Var hann
ávallt gangnastjóri í seinni göng-
um svo kölluðum en þá var hrossa-
stóði smalað til byggða. Voru þær
upp úr miðjum október er allra
veðra var von og lentu gangna-
menn oft í hrakningum og vosbúð
en allir skiluðu þeir sér til byggða
undir hans stjórn. Stundum þurfti
að beita brögðum er gangamenn
neituðu að fara til byggða og kom
þá húmor og gamansemi pabba
sér vel.
Pabbi gjörþekkti heiðarnar og
hálsana og var hann því fenginn til
að taka að sér grenjaleit á heið-
unum og hálsunum til að halda ref
í skefjum og síðar fylgdu minka-
veiðar með. Var þá farin strand-
lengjan frá Söndum að Mýrum og
leitað með vötnum og ám með
minkahundinn Svejk í farabroddi.
Þær voru margar ferðirnar sem
ég fór með pabba á minkaveiðar.
Pabbi hafði yndi af fallegum
hestum og urðu þeir að vera flug-
viljugir og vakrir. Hann tók þátt í
kappreiðum á hestamannamótum.
Eftirminnilegur var Skjóni, flug-
viljugur og vel vakur rauðskjóttur
hestur, sem hann notaði á kapp-
reiðum í stökki og skeiði. Mörgum
stóð þó stuggur af Skjóna sökum
hraða hans og vilja, þar á meðal
mér. Ég man eftir því þegar ég
var settur í fyrsta skipti á bak
Skjóna, logandi hræddur. Skjóni
var þó fyrst og fremst reiðhestur
pabba og notaður til smala-
mennsku eða til reiðar og oft sát-
um við systkinin fyrir framan
pabba og þá var Skjóni allur hinn
spakasti og fetaði létt með hús-
bóndann og okkur börnin. Fyrir
nokkrum árum eignaðist ég rauð-
skjóttan hest og er mér minnis-
stæður glampi í augum pabba er
ég sýndi honum ljósmynd af
„Skjóna“ mínum. Minningar
streymdu fram.
Peningaspilið lomber, aðalaf-
þreyingin í sveitinni, og er hinn
frægi Lombervegur til vitnis um
það. Ófáar voru ferðirnar á næstu
bæi, Sveðjustaði, Mýrar, Staðar-
bakka og Huppahlíð til að spila
lomber. Pabbu var flinkur í lom-
ber og var aðalsmerki hans að
spila hratt og þá gjarnan er hann
hafði léleg spil á hendi. Spaðasóló
var hans uppáhalds hönd. Því
þótti það við hæfi að hann tæki
með sér lomberspilastokkinn því
líklegt má telja að slegið verði út í
hraðan spaðasóló er komið er í
annan heim og spilafélagarnir
sameinast.
Svo skrýtin tilfinning sem um
mig fer,
Nú farinn ert frá mér á nýjan veg.
Hann tekur á móti þér hinum megin við.
Veginn mun vísa þér við hlið
í annan heim hann fylgir þér, heim.
(Birgitta Haukdal)
Hvíl í friði, elskulegur faðir.
Ingvar Helgi.
Elsku langafi, okkur þykir sárt
að þurfa að kveðja þig, við hlökk-
uðum alltaf svo til að koma í heim-
sókn um helgar til þín og lang-
ömmu í sveitina því þar var sko
nóg að gera og alltaf jafn gaman.
Skemmtilegast fannst okkur þeg-
ar við fengum að prófa rafskutl-
una þína, eða hjólið eins og þú
kallaðir það og varst svo stoltur af
að eiga. Okkur fannst gaman að
bruna á hjólinu og ímynda okkur
að við værum á hraðskreiðu mót-
orhjóli eða kappakstursbíl. Stund-
um sagðir þú okkur líka sögur af
atburðum sem gerðust í gamla
daga og við gleymum aldrei þegar
við sáum mynd af þér standandi
uppi á hesti.
Þú varst alltaf góður við okkur
og þegar þú vissir að von væri á
okkur í heimsókn þá brunaðir þú í
kaupfélagið til þess að eiga örugg-
lega til smá gotterí. Áður en við
héldum heim á leið þá gafstu okk-
ur alltaf smáaura sem þú vildir að
við keyptum okkur eitthvað fal-
legt fyrir. Takk fyrir allt, langafi.
Alexander og Monika
Lárusbörn.
Guðmundur
Björnsson
Dodda mín, ég
náði ekki að hitta þig þótt ég flýtti
ferðinni til Íslands. Mig langaði til
að gera tvennt fyrir utan það að
bara sitja hjá þér. Ég vildi minna
þig á að í huga okkar systkinanna
sem ólumst upp í Lækjargötunni
á Akureyri varst þú alveg jafn-
mikið systir okkar þótt þú hefðir
verið „gefin suður“ til Stebbu
frænku og Óla. En ég veit að áður
en mamma dó gátuð þið talað
saman um þetta sem hafði verið
sár reynsla fyrir báðar, og er gott
að hugsa til þess. Svo langaði mig
líka að raula með þér í síðasta
sinn „Húmar að kveldi“, lagið
sem við höfðum sungið svo oft
saman, tvíraddað, við meira eða
minna hátíðleg tækifæri, seinast
að mig minnir í brúðkaupi Rakel-
Þórunn Sólveig
Ólafsdóttir
✝ Þórunn SólveigÓlafsdóttir
fæddist á Akureyri
13. október 1937.
Hún andaðist á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
5. júní 2013.
Útför Þórunnar
fór fram í kyrrþey.
ar og Sveins í Kaup-
mannahöfn. En
Rakel Edda, söng-
kona og dótturdóttir
þín, og við öll sem
viðstödd vorum
sungum þetta sam-
an á ógleymanlega
fallegri stundu við
gröf þína í Lög-
mannshlíðarkirkju-
garði á Akureyri ör-
stutt frá heimilinu
sem þú bjóst þér síðustu sjö árin.
Minningarnar um þig frá ýms-
um æviskeiðum okkar ber ég allt-
af með mér. Við skrifuðumst á um
árabil þegar ég var krakki og þú
unglingur. Þú skrifaðir svo
skemmtileg bréf. Ekki furða þótt
þú færir að skrifa smásögur
seinna og fengir verðlaun fyrir.
Heimsóknirnar í Fagrahvol á
sumrin voru ævintýri. Sumrin
mín á Ásvallagötu 10 1956 og ’57
sem barnapía hjá Jóu systur voru
líka skemmtilegri en ella því að á
Ásvallagötu 20 bjóst þú með Ste-
fönu þína litla, og kom ég oft til
ykkar með litlu systurnar tvær,
Guðbjörgu og Elnu. Minnisstætt
frá þessum tíma er líka þegar Jói
móðurbróðir okkar, Skagfirðing-
ur og söngmaður góður, kom
stundum við og þið tókuð lagið
saman. Hina léttu lund, söng-
röddina og tjáningarhæfileika
ýmiss konar höfðuð þið bæði;
erfðir trúlega úr móðurætt
mömmu þar sem margir voru
góðir söngvarar. Á Álfaskeiðið
kom ég svo mjög oft til þín á sjö-
unda áratugnum þegar ég bjó
með börn og buru í Kópavoginum
og eldri börnin okkar beggja léku
sér saman. Mér finnst gaman að
Óli Gylfi þinn á góðar minningar
frá þessum árum og að Stefana og
Systa urðu vinkonur á fullorðins-
árum í Svíþjóð. Litlu dætur
þeirra, Rakel Edda og Eydís,
undu sér oft saman að leik heilu
dagana. Þið Gylfi tókuð líka Sif
minni opnum örmum 1989 þegar
hún sótti heim í íslenskar rætur
sínar, fékk sumarvinnu á Hrafn-
istu, og bjó hjá ykkur á Suður-
vanginum. Hún kynntist þá vel
yngri börnunum þínum, Rakel og
Þresti. Síðast en ekki síst komst
þú, þá búsett í Kaupmannahöfn,
til Gautaborgar þegar ég varði
doktorsritgerðina mína og hélst
tvímælalaust skemmtilegustu
ræðu kvöldsins í veislunni sem
fylgdi.
Einstaklega gaman var að sjá
og hlusta á þig leika og syngja
með Bessa Bjarnasyni í sjón-
varpsþættinum um hans langa
leikferil. Eins og eftir pöntun frá
okkur ættingjum þínum var þátt-
urinn sýndur rétt eftir andlát þitt.
Að lokum þakka ég þér innilega
fyrir diskinn með lögunum þín-
um. Það er gott að geta hlustað á
Hallarfrúna og Vor í Vaglaskógi,
minnst þín og allra hér heima.
Anna Guðrún Jónasdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda
inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka
og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar