Morgunblaðið - 28.06.2013, Page 43
Óskar byrjaði að gera stuttmyndir
13 ára gamall, sú fyrsta hét Rán á
Ránargötu, sama nafni og fyrirtækið
hans heitir í dag, og gerði fjöldann
allan af myndum á unglings- og
menntaskólaárunum, líklega vel á
annan tug. Í VÍ stofnaði Óskar stutt-
myndahátíðina sem enn lifir góðu lífi
sem einn helsti atburður í félags-
lífinu. Á háskólaárunum hélt Óskar
áfram að gera stuttmyndir og stóð
m.a. fyrir stuttmyndakvöldum ásamt
Ragnari Bragasyni o.fl. þar sem
nokkrir ungir kvikmyndagerð-
armenn sýndu stuttmyndir sínar.
Árið 1997 stofnaði Óskar Þeir
tveir kvikmyndagerð ásamt Gunnari
B. Guðmundssyni í kringum gerð
stuttmyndarinnar Á blindflugi sem
var sýnd í bíóhúsum. Í kjölfarið
gerðu þeir svo auglýsingar í nokkur
ár, en einnig Karamellumyndina
(sem Óskar framleiddi og var töku-
maður á, en Gunnar leikstýrði) en
hún var valin stuttmynd ársins á
Edduverðlaununum 2003. Síðan þá
hefur Óskar gert fjölda mynda ýmist
sem leikstjóri eða kvikmyndatöku-
stjóri og unnið til verðlauna. Má þar
nefna Nylon (2004) og Misty Mount-
ain (2007), sem Óskar leikstýrði, sem
og Góðir gestir (2006) og Njálsgata
(2009) sem Ísold Uggadóttir leik-
stýrði og Óskar sá um kvikmynda-
töku. Hann var einnig kvikmynda-
tökustjóri í myndunum Dance Mania
Fantastic og Elephant Garden sem
Sasie Sealy leikstýrði. Þær urðu báð-
ar sigurmyndir á
Tribeca-kvikmyndahátíðinni. Allt
eru þetta stuttmyndir.
Svartur á leik
Óskar sló rækilega í gegn með
myndinni Svartur á leik frá 2012 sem
var fyrsta myndin í fullri lengd sem
hann leikstýrði. Hún var gerð eftir
sögu Stefáns Mána og varð næst-
vinsælasta mynd ársins í bíóhúsum.
Tæplega 63.000 manns sáu hana.
Svartur á leik er 6. tekjuhæsta mynd
allra tíma hér á landi og sú næst-
tekjuhæsta íslenska. Hún er enn
fremur sú langtekjuhæsta sem hefur
verið bönnuð innan 16 ára. Næsta
mynd þar á eftir sem er bönnuð inn-
an 16 ára er Karlar sem hata konur
sem er í 33. sæti. Myndin hlaut 15 til-
nefningar til Edduverðlauna og
hlaut þrenn verðlaun: fyrir besta
handritið og fyrir leikara og leikkonu
í aukahlutverki.
Óskar er nú um stundir að vinna
að ýmsum myndum sem eru mis-
langt á veg komnar, m.a. einni sem
er byggð á skáldsögu Yrsu Sigurð-
ardóttur, Ég man þig.
Áhugamál
Óskar hefur áhuga á öllu er snýr
að kvikmyndum eins og t.d. kvik-
myndasögu. Hann hefur gaman af
því að fara á tónleika og horfa á Ars-
enal í enska boltanum. Hann hefur
einnig gaman af ferðalögum; að
ferðast á nýjar slóðir og njóta
íslenskrar náttúru.
Fjölskylda
Kona Óskars heitir Hulda Þór-
isdóttir, f. 19.10. 1974, lektor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands. Börn
þeirra eru Valtýr H. Óskarsson, f.
3.5. 2010, og Unnur H. Óskarsdóttir,
f. 21.4. 2012.
Systkini Óskars Þórs eru Kristín
Axelsdóttir, f.25.2. 1958, kerfisfræð-
ingur í Reykjavík; Svanhvít Axels-
dóttir, f. 8.2. 1960, héraðsdóms-
lögmaður í Reykjavík; Einar Baldvin
Axelsson, f. 16.10. 1965,
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík
og einn eigenda LOGOS.
Foreldrar Óskars Þórs eru
Axel Einarsson, f. 15.8. 1931, d.
19.12. 1986, hæstaréttarlögmaður í
Reykjavík, og Unnur Óskarsdóttir, f.
17.11. 1932, fyrrverandi bóka-
útgefandi í Reykjavík.
Úr frændgarði Óskars Þórs Axelssonar
Óskar Þór
Axelsson
Kristrún Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Hannes Ólafsson
kaupmaður í Reykjavík
Jóna S. Hannesdóttir
bókaútgefandi í Rvík
Óskar Gunnarsson
verslunarmaður og
bókaútgefandi í Rvík
Unnur Óskarsdóttir
bókaútgefandi í Rvík
Þorbjörg Pétursdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Gunnar Björnsson
skósmiður í Reykjavík
Jóhanna Jósafatsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ingvar Pálsson
verslunareigandi í Rvík
Kristín Ingvarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Einar Baldvin Guðmundsson
hæstaréttarlögmaður í Rvík
Axel Einarsson
hæstaréttarlögmaður í Rvík
Jóhanna Stefánsdóttir
húsfreyja, síðar
símadama í Hfj.
Gerður G. Óskarsdóttir
fyrrv. skólastj., háskólakennari
og fræðslustj. Reykjavíkur
Pétur Þ.J. Gunnarsson
framkv.stj. í Rvík, einn
stofnenda og eigandi Nýja bíós
Sigríður Blöndal
skrifstofum.
í Kóp. og Rvík
Pétur
Blöndal
alþingism.
Guðmundur Einarsson
verslunarm. og bóndi á Hraunum í Fljótum,
faðir hans var Einar Baldvin Guðmundss. stórb.,
útgerðarm., alþm. og brúarsmiður á Hraunum
Páll Einarsson
hæstaréttard. og fyrsti borgarstjórinn í Rvík.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
Sveinbjörn tónskáld fæddist áNesi við Seltjörn 28.6. 1847 enólst upp í Reykjavík frá fjög-
urra ára aldri. Hann var sonur Þórð-
ar Sveinbjörnssonar, háyfirdómara
við Landsyfirréttinn, og s.k.h., Kir-
stínar Katrínar Knudsen. Systir
Kirstínar var Guðrún, kona Péturs
Guðjohnsen, dómorganista og kór-
stjóra, en meðal afkomenda þeirra
eru tónskáldin Jórunn Viðar og Emil
Thoroddsen.
Sveinbjörn lauk stúdensprófi frá
Latínuskólanum og útskrifaðist úr
Prestaskólanum 21 árs. Hann hafði
lært á píanó hjá frú Ástríði Melsted,
og lært söngfræði hjá Pétri Guð-
johnsen, og var staðráðinn í að ryðja
sér braut erlendis sem píanóleikari
og tónskáld. Hann var því í tónlist-
arnámi í Kaupmannahöfn í tvö ár, og
síðan hjá Reinecke, yfirkennara
Tónlistarskólans í Leipzig, frægum
hljómsveitarstjóra.
Sveinbjörn var lengst af hátt laun-
aður píanókennari og virt tónskáld í
Edinborg. Hann kom tvisvar í heim-
sókn til Íslands, 1907 og 1914, flutti
svo loks heim 1922, er Alþingi hafði
veitt honum heiðurslaun og hugðist
alkominn, en flutti fljótlega til Kaup-
mannahafnar og bjó þar til æviloka.
Eiginkona Sveinbjörns var skozk,
Elenor Christie, vel menntuð, glæsi-
leg og mun yngri en hann og eign-
uðust þau tvö börn, Þórð lækni í
Kanada, og Helen kennara.
Sveinbjörn var ljóðrænt tónskáld
rómantísku stefnunnar undir áhrif-
um frá Mendelssohn og Gade. Bestu
sönglög hans eru almennt talin með
því fremsta í safni íslenskra söng-
laga, en meginhluti tónverka hans
hefur verið Íslendingum framandi.
Af stærri verkum hans er Konungs-
kantatan þekktust, samin í tilefni af
komu Friðriks VIII til Íslands 1907.
Matthías Jochumsson hafði sjálf-
ur beðið Sveinbjörn að semja lag við
hátíðarljóðið „Ó, guð vors lands“ og
það var lengi eina lagið sem hann
samdi við íslenskt ljóð. Á því varð þó
breyting og hann átti eftir að semja
fjölda sönglaga við íslensk ljóð.
Sveinbjörn lést í Kaupmannahöfn
23.2. 1927 og hvílir í Hólavallagarði,
örfáa metra frá Jóni forseta.
kjartangunnar@mbl.is
Merkir Íslendingar
Sveinbjörn Sveinbjörnsson
95 ára
Anna Guðmundsdóttir
Ragna Gamalíelsdóttir
90 ára
Jytte Karen Michelsen
Sigurður Stefánsson
85 ára
Bára J. Olsen
Halldór Júlíusson
Magðalena S. Hallsdóttir
Þorgerður Þorleifsdóttir
80 ára
Anna S. Steingrímsdóttir
Friðrika Karlsdóttir
Gísli Bjarnason
María Víglundsdóttir
Sólrún Helgadóttir
Trausti Runólfsson
75 ára
Auður Ófeigsdóttir
Björg Björnsdóttir
Erna Tryggvadóttir
Kjartan Reynir Ólafsson
Sverrir Marinósson
70 ára
Anna Einarsdóttir
Baldur Bjartmarsson
Elín Magnúsdóttir
Eyjólfur B. Karlsson
Gréta Björnsdóttir
Guðmunda L. Hauksdóttir
Héðinn Ólafsson
Sigríður Árnadóttir
Sigríður Guðmundsdóttir
60 ára
Anna Keneva Kunz
Birgir Sigurjónsson
Freyja B. Benediktsdóttir
Halla Kristín Sverrisdóttir
Halldóra K. Ólafsdóttir
Ólafur Pálsson
Rannveig Sigurðardóttir
Stefanía Erlingsdóttir
50 ára
Bóas Jónsson
Bylgja Kristín Héðinsdóttir
Fanney Kristjánsdóttir
Guðný Lilja Björnsdóttir
Halla Benediktsdóttir
Halldóra Jóhannsdóttir
Haraldur Ingólfsson
Heiða H. Theódórsdóttir
Iðunn Lára Ólafsdóttir
Inga Lára Pétursdóttir
Ingrida Kareiviené
Katrín Stefánsdóttir
Rósa Guðmundsdóttir
Sigurður Óli Hilmarsson
Sólrún Guðmundsdóttir
Unnur Guðrún Óskarsdóttir
Þórður Daníelsson
40 ára
Böðvar Þór Kárason
Fríða Breiðfjörð Arnardóttir
Guðmundur Jóhannesson
Jón Karl Arnarsson
Karl Björgvin Marteinsson
Magnús F. Guðmundsson
Óskar Þór Axelsson
Sverrir Halldórsson
Valur Norðri Gunnlaugsson
Wirot Khiansanthia
30 ára
Árni Már Markússon
Daníel G. Guðmundsson
Elísabet Ásta Eyþórsdóttir
Elva Guðrún Ólafsdóttir
Guðný Ósk Unnarsdóttir
Hulda Guðrún Jónasdóttir
Kristín Hjartardóttir
Leópold Kristjánsson
Sylvía Hlynsdóttir
Víðir Örn Ómarsson
Þórdís Erla Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn
60 ára Ólafur er bóndi í
Saurbæ í Holtum í Rang-
árvallasýslu og hefur bú-
ið í Saurbæ alla tíð.
Maki: Guðrún Hálfdánar-
dóttir, f. 1959, bóndi.
Börn: Lára, f. 1986,
Margrét, f. 1989, Ingi-
björg, f. 1992, og Hjör-
dís, f. 1994.
Foreldrar: Páll Elíasson,
f. 1918, d. 1984, og
Margrét Svanhvít
Erlendsdóttir, f. 1912, d.
2001, bændur í Saurbæ.
Ólafur
Pálsson
40 ára Valur er Reykvík-
ingur og verkefnastjóri
hjá Matís ohf.
Maki: Laufey Kristjáns-
dóttir, f. 1975, gæðastjóri
hjá Mannviti.
Börn: Þórunn, f. 2008, og
Hanna Kristín, f. 2010.
Foreldrar: Gunnlaugur
Sigurðsson, f. 1932, fyrr-
verandi rannsóknar-
lögreglumaður, og
Jóhanna Guðrún Steins-
dóttir, f. 1934, fyrrverandi
iðnverkakona.
Valur Norðri
Gunnlaugsson
30 ára Kristín er grunn-
skólakennari og býr í
Reykjanesbæ.
Maki: Gustav Helgi Har-
aldsson, f. 1981, netsér-
fræðingur.
Börn: Esther Júlía, f.
2005, Þóra Vigdís, f.
2009, og Freyja Kristín, f.
2012.
Foreldrar: Hjörtur Zak-
aríassson, f. 1949, bæjar-
ritari í Reykjanesbæ, og
Hjördís Hafnfjörð, f. 1950,
listamaður.
Kristín
Hjartardóttir
Frískandi húðvörur úr
suðrænum sítrusávöxtum
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaíslandÚtsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir
Hin dásamlega sítruslína frá Weleda inniheldur afurðir úr lífrænt ræktuðum sítrónum frá Salamita
Cooperative á Sikiley. Hún dekrar við og frískar húðina - í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is