Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013
HÆGINDASTÓLAR
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16
FREYJA
Vel hannaðir og vandaðir hægindastólar með innbyggðum
skemmli, stillanlegum hnakkapúða, 360° gráðu snúningi og
stillanlegu ruggi. Stærð B:72 D:80 H:102
NÝTT - KYNNINGARVERÐ
kr. 165.900
Kynningarverð
KR. 149.300
kr. 133.700
Kynningarverð
KR. 119.900
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að skapa þér betri yfirsýn yf-
ir verkefni þitt. Stundum er ekki allt sem sýn-
ist og því nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
eðli hlutanna.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú mátt aldrei missa sjónar á takmark-
inu, jafnvel þótt einhver dagamunur sé á vel-
gengni þinni. Notaðu meiri háttar látbragð til
að lýsa gjafmildi vina þinna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er svo djúpt á sumum persónu-
göllum að það væri kraftaverki líkast að
reyna að laga þá á stuttum tíma. Mundu að
það má oft rekja vonbrigði til væntinga sem
ekki hafa verið látnar í ljós.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til að íhuga hvað það
er sem skiptir þig máli. Að skrifa gæti ekki
bara hjálpað til við að vinna úr þessum til-
finningum. Athugaðu vel þinn gang.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn í dag er gæddur einhverjum
töfraljóma. Hikaðu ekki við að kanna mögu-
leikana sem þér bjóðast.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki draga fljótfærnislegar ályktanir
eða dæma aðra á næstu vikum, ekki er víst
að allar forsendur séu deginum ljósari. Sýndu
dirfsku og mættu óundirbúinn og skildu
helminginn eftir heima.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú kannt að kaupa eitthvað óvenjulegt
en þægilegt í dag. Nú kemur sér vel að eiga
gott samstarfsfólk. Sýndu ákveðni og gefðu
eða hentu fimm hlutum í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert tilbúinn til þess að takast
á við sjálfan þig og gera þig að betri manni.
Gönguferð úti í náttúrunni myndi hjálpa til.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Á meðan fólk í kringum þig á það
til að vera leiðinlega ýkt og dramatískt, sýnir
þú af þér einstaka fágun, mikla smekkvísi og
heldur þig við efnið. Sýndu umburðarlyndi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leitaðu upplýsinga hjá öðrum um
þau mál, sem þú veist að þig vantar vitneskju
um. Þú veist að það er rétt og líka gott. Fólkið
í vinnunni er misjafnt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ættir að þiggja hjálp sam-
starfsmanna þinna. En öllu máli skiptir að þú
sért sjálfum þér samkvæmur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú færð góðar hugmyndir um hvernig
þú getur aflað meiri tekna en áður. Njóttu
þeirra ávaxta erfiðis þíns öfundarlaust. Gerðu
þetta „eitthvað“ að veruleika og dagurinn
mun snúast um það.
Sandá í Þistilfirði er skemmti-leg laxveiðiá og var það
löngum svo, að sömu hóparnir
skiptu með sér ánni ár eftir ár.
Einhverju sinni voru þeir þar
saman Arngrímur Jóhannsson
flugstjóri og Ólafur G. Einarsson.
Jóhannes Sigfússon á Gunn-
arsstöðum heilsaði upp á þá og
orti:
Misjafnt hefur maður hvur
af manndómsþreki vöndu.
Alltaf fiskar Arngrímur
en Ólafur fær ei bröndu.
Öðru sinni hitti Jóhannes þá fé-
laga við ána og kvað:
Þetta er orðið eintómt baks,
ellin þessu veldur:
Arngrímur fékk engan lax
og Ólafur ekki heldur.
Enn var það, að þeir félagar
voru þar saman við Sandá. Arn-
grími skrikaði fótur og féll í ána.
Ólafur stóð nokkru neðar og hló
dátt að óförum hans. Þeir sögðu
Jóhannesi frá atvikinu:
Drjúga stund hans drukknun beið,
dauðinn mátti vægja,
er hann loksins upp úr skreið
Ólafur hætti að hlæja.
Ólafur segir svo frá, að þeir
Lárus Jónsson hafi ásamt fleirum
verið að veiðum í Sandá í lok
ágúst árið 2006. Lárus hafði verið
maðkadorgari, en nú mátti aðeins
veiða á flugu og til þess ætlast að
stærri löxum yrði sleppt. Ólafur
sagði Lárusi, að þó mætti hann
drepa laxinn, ef flugan væri kok-
gleypt. En auðvitað var það ekki
Lárus heldur Ólafur sem fékk
einn slíkan. Lárus orti:
Einhverjir á mig því lugu
að ætti ég til þá smugu
að slátra hrygnu
úr Sandárlygnu
ef hún kokgleypti Collie-Dog flugu.
Það hafði verið afar gott veður,
en nú voru veðrabrigði í vændum.
Ólafur taldi það vita á góða veiði.
Svo varð þó ekki, þar sem hann
rauk upp með slagveðursrigningu.
Áin óx og varð illviðráðanleg og
veiðin eftir því. Lárus orti:
Víst áttu formannsins veðrabrigði
veiði að auka þótt ekki dygði,
því engu líkt
kom úrfelli slíkt
að laxana stórlega styggði.
Einhvern tíma heimsótti ég þá
Ólaf og Lárus í Sandá:
Þótt dauði í Sandánni sé
ég segi ekki að vel mætti ske
ef lax yrði að fá
að fengist hann á
flugu hjá Ólafi G.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af laxveiði Ólafs G. og félaga
Í klípu
„ÞÚ VERÐUR ÁNÆGÐUR AÐ SJÁ AÐ ÉG
HEF LOKSINS NÁÐ AÐ SNÚA HLUTUNUM
VIÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞVÍ MIÐUR, DR. RÚNAR GETUR AÐEINS
HITT ÞIG LEITI HANN TIL ÞÍN“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna Valentín-
usarkort frá honum í
pósthólfinu þínu.
HAGNAÐUR
ÞÚ GETUR EKKI
UNNIÐ! GEFSTU UPP
Á KASTALANUM ÞÍNUM
OG ÉG MUN TAKA YFIR
SEM NÝR EIGANDI!
ÓKEI, EN
ÞÚ MUNT
SJÁ EFTIR
ÞVÍ!
AF-
HVERJU?
VIÐ ERUM EKKI MEÐ
TVÖFALT GLER Í
GLUGGUNUM..
„EF GEIMVERUR MYNDU YF-
IRTAKA JÖRÐINA GÆTU ÞÆR
UMBREYTT SÉR Í DÝR.“
KEMUR ÞÚ
Í FRIÐI?
FARÐU MEÐ MIG
AÐ ÍSSKÁPNUM
ÞÍNUM.
Víkverji var viðstaddur brautskrán-ingu kandídata sem luku fram-
haldsnámi við Háskóla Íslands um
nýliðna helgi. Skipulagið var sem
smurð vél og gaman var að sjá ánægj-
una sem skein úr hverju andliti. Sér-
staka athygli Víkverja vakti glæsilegt
Tímarit Háskóla Íslands, sem er 128
síður að þessu sinni og unnið að
mestu af starfsfólki markaðs- og sam-
skiptasviðs háskólans.
x x x
Hjátrúin í fótboltanum eykst meðhverri umferð. Vinnufélagi Vík-
verja var í vinnunni þegar Fylkir sótti
FH heim sl. mánudagskvöld. Honum
leist ekki á blikuna þegar Fylkir
skoraði snemma leiks og kvaddi Há-
degismóana í hálfleik með þeim orð-
um að þetta gengi ekki, hann yrði að
fara í Krikann til að FH skoraði. Það
var sem við manninn mælt, okkar
maður var ekki fyrr mættur á svæðið
en FH jafnaði og skömmu síðar
gerðu heimamenn sigurmarkið. Hér
eftir mætir viðkomandi ekki á völlinn
til að sjá FH fyrr en í seinni hálfleik,
ef að líkum lætur.
x x x
Einn stuðningsmaður KR missti affyrstu sigurleikjum KR í fyrra og
það varð til þess að hann vildi ekki
rugga bátnum það sem eftir var
keppnistímabilsins. Sá ekki einn ein-
asta leik fyrir vikið. Góð byrjun KR-
inga í ár varð til þess að hann sat
áfram heima með þeim orðum að
hann vildi ekki verða sakaður um
fyrsta tapið. Þegar KR tók á móti ÍA
var hann búinn að sannfæra sjálfan
sig um það að sennilega skipti ekki
neinu máli hvort hann væri á vell-
inum eða ekki og lét slag standa.
Mætti á KR-völlinn með KR-trefil og
KR-húfu. Þótt Skagamönnum hafi
ekki gengið vel til þessa þekkja þeir
ekki uppgjöf og þegar þeir skoruðu
runnu tvær grímur á okkar mann.
Hann færði sig um set í seinni hálf-
leik, stóð á pöllunum við klukkuna
hægra megin við ákveðinn KR-ing,
sem var líka að mæta í fyrsta sinn, og
fagnaði sigri. Þeir voru sannfærðir
um að staðsetningin hefði gert gæfu-
muninn, endurtóku leikinn á móti
Víkingi frá Ólafsvík og verða í sömu
sporum þar til eitthvað óvænt gerist á
heimavelli. víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins nema fyrir mig.
Jóhannesarguðspjall 14:6