Morgunblaðið - 28.06.2013, Síða 52
Íslenska óperan frumsýnir 19.
október óperuna Carmen eftir
Georges Bizet en hún var síðast sett
á svið hér á landi fyrir tæpum 30 ár-
um. Hljómsveitarstjóri verður Guð-
mundur Óli Gunnarsson, leikstjóri Ja-
mie Hayes og leikmyndahöfundur
Will Bowen. Hanna Dóra Sturludóttir
mun fara með titilhlutverkið og Sess-
elja Kristjánsdóttir hjá Íslensku óp-
erunni mun syngja það á nokkrum
sýningum. Kolbeinn Jón Ketilsson og
Garðar Thór Cortes
munu skiptast á að
syngja Don José. Kór
Íslensku óperunnar,
barnakór og sextíu
manna sinfón-
íuhljómsveit taka
einnig þátt í upp-
færslunni ásamt
dönsurum.
30 ára bið eftir Car-
men lýkur 19. okt.
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. „Mér er nóg boðið“
2. Of dökkar augabrúnir…
3. Fyrstir til að ættleiða barn
4. Inga Lind stýrir Biggest Loser
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
SkjárEinn og Saga Film ætla að
framleiða íslenska þáttaröð eftir for-
skrift bandarísku þáttanna Biggest
Loser, Biggest Loser Ísland, en í þátt-
unum keppist fólk í yfirþyngd við að
missa sem flest kíló. „Í þáttunum er
keppendum boðið upp á að snúa við
blaðinu og láta draum sinn um betra
líf rætast undir handleiðslu og hvatn-
ingu The Biggest Loser-teymisins
sem inniheldur meðal annars lækna,
sálfræðinga, næringarfræðinga og
líkamsræktarþjálfa,“ segir í tilkynn-
ingu. Þátttakendur munu dvelja í tíu
vikur á heilsuhótelinu á Ásbrú.
Áhugasamir geta skráð sig á vefnum
biggestloser.is en þar má sjá mynd-
band vegna þáttanna. Í því ávarpar
Inga Lind Karlsdóttir áhorfendur og
hvetur til þátttöku.
Íslensk útgáfa gerð
af Biggest Loser
Á laugardag Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Bjart með
köflum suðaustan- og austanlands, annars skýjað og víða smá-
skúrir. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt, 3-10 m/s, en heldur hvassara
við suðurströndina. Bjartviðri í fyrstu austantil, annars rigning eða
skúrir. Úrkomuminna í kvöld. Hiti 7 til 13 stig, mildast eystra.
VEÐUR
Selfoss vann
toppliðið á útivelli
Róbert Aron Hostert, handboltamað-
urinn snjalli úr Íslandsmeistaraliði
Fram, er kominn með tilboð í hend-
urnar frá spænska liðinu Ademar
León. Fleiri
erlend fé-
lög eru
með Róbert
Aron undir
smásjánni.
»1
Róbert Aron með tilboð
frá Ademar León
Ásdís Hjálmsdóttir þarf enn að bíða
eftir því að ná lágmarki fyrir heims-
meistaramótið í frjálsum íþróttum
sem fram fer í Moskvu í ágúst. Í gær-
kvöld kastaði hún spjótinu 59,97
metra á Grand Prix móti í Stokkhólmi
en það er aðeins rétt rúman þumlung
frá HM-lágmarkinu sem er 60 metrar
sléttir. Ásdís fékk silfur- og pen-
ingaverðlaun á mótinu. 1
Ásdísi vantaði þumlung
upp á að komast á HM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Það er allt að komast á fullt,“ segir
veitingamaðurinn Eyþór Þórisson,
sem rekur veitingastaðinn Kaffi
Láru á Seyðisfirði, staðinn sem
nefndur hefur verið hjarta bæjarins.
Fyrir rúmu ári stórskemmdist
veitingastaðurinn í bruna en hann er
í rúmlega aldargömlu þriggja hæða
timburhúsi. Eyþór, sálin í veitinga-
staðnum, keypti húsið um aldamótin
og opnaði veitingastaðinn þar
skömmu síðar. Hafist var handa við
að endurbyggja húsið þegar eftir
brunann og var fyrsti hluti staðarins
opnaður skömmu fyrir nýliðin jól.
„Miðhæðin er tilbúin og þar er pláss
fyrir 90 manns,“ segir Eyþór og
bætir við að hann geri ráð fyrir að
húsið verði að fullu uppgert síðar á
árinu. Kannski áður en hann verður
75 ára í desember.
Yfir hálfa öld í bransanum
Eyþór hefur marga fjöruna sopið
og komið víða við síðan hann byrjaði
16 ára að vinna í olíustöðinni í Hval-
firði, sem var gjarnan fyrsti áningar-
staður ferðalanga á leið úr bænum.
Hann hóf eigin veitingarekstur á
Geithálsi fyrir rúmlega hálfri öld,
var þjónn í Danmörku í nokkur ár,
var í siglingum og kom að opnun
veitingahússins Caruso í Þingholts-
stræti með bróður sínum áður en
hann hélt austur.
„Ég fór í afvötnun og fór að vinna
í síld til þess að hressa mig,“ segir
Eyþór um flutninginn til Seyðis-
fjarðar á sínum tíma. „Þá var hér
fullt af fiskibátum en þeim hefur
fækkað,“ segir hann. Eyþór áréttar
að samt hafi rekstur kaffihússins
gengið vel og hann hafi haft opið allt
árið þar til bruninn stöðvaði rekstur-
inn um tíma. En hann hefur tröllatrú
á Seyðisfirði og Lárunni.
„Seyðisfjörður er að verða svo
mikill listamannabær,“ segir hann
og vísar til þess að til standi að
stofna leiklistarskóla þar á næsta
ári. „Hér eru því miklir möguleikar.“
Margir útlendingar
Norræna kemur til Seyðisfjarðar
vikulega og er mikið um að vera á
sumrin í tengslum við ferðirnar.
„Bærinn fyllist tveimur dögum
fyrir brottför og í raun er allt fullt af
útlendingum hérna á sumrin,“ segir
Eyþór. Hann bætir við að góð gisti-
aðstaða sé í bænum og hún eigi eftir
að batna enn frekar í sumar.
Eyþór segir að í raun hafi ekkert
breyst í veitingarekstrinum síðan
hann byrjaði blautur á bak við eyr-
un. „Það þarf alltaf að hafa fyrir
hlutunum, en Seyðisfjörður á fram-
tíðina fyrir sér.“
Hjartað farið að slá á ný
Eyþór segir að
framtíðin sé
Seyðisfjarðar
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Veitingamaðurinn Eyþór Þórisson fyrir utan veitingastaðinn Kaffi Láru á Seyðisfirði.
Norræna kom til Seyðisfjarðar í
gær og segir Eyþór Þórisson að
sennilega hafi verið um 800
manns með skipinu. „Þeir stopp-
uðu reyndar stutt að þessu sinni
en þetta verður betra.“ Seyð-
isfjörður lifnar allur við í kringum
komur og brottfarir Norrænu en
auk þess er ýmislegt í boði í bæn-
um. Íþróttafélagið Huginn verður
til dæmis hundrað ára nú um
helgina og þá verður mikil hátíð á
Seyðisfirði. Í tilefni af afmælinu er
meðal annars gefið út veglegt
blað, haldin er sögusýning og
margt fleira.
Kaffi Lára – El Grilló bar er kaffi-
hús á daginn en bar og skemmti-
staður á kvöldin. Í hádeginu er
meðal annars boðið upp á heima-
gerðar súpur og samlokur ásamt
kökum og vöfflum. Útisvæðið hef-
ur fengið nýtt útlit og þegar sólin
skín er þar margt um manninn.
Stoppuðu stutt að þessu sinni
AUKIÐ LÍF MEÐ NORRÆNU
Selfyssingar virðast ætla að
blanda sér í baráttuna um
sæti í Pepsideildinni eftir að
þeir unnu kærkominn 3:1
sigur á toppliði Grindavíkur
suður með sjó í gær, í 8.
umferð 1. deildar karla í
knattspyrnu. Sindri Snær
Magnússon skoraði tvennu
fyrir Selfoss. Haukar kom-
ust upp í 2. sæti með
markalausu jafntefli við
Leikni R. en Þróttur R. er
enn í fallsæti. 2