Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2013, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2013 Ferðalög og flakk Samspil náttúrunnar og arkitektúrsins á grísku eyjunum er gullfallegt. É g get ekki annað sagt en að nú elski ég Grikkland,“ segir Ása Reginsdóttir, sem ásamt eig- inmanni sínum, Emil Hallfreðs- syni, dvaldi á grísku eyjunum Santorini og Mykonos í júní sl. „Við fórum í ferð- ina alveg laus við væntingar enda vissi ég í raun ekkert um Grikkland, annað en að fetaostur kemur þaðan og að efna- hagsmálin þar standa illa,“ bætir hún við. Segja má að ferðin hafi verið síðbúin brúðkaupsferð, en þau gengu í það heil- aga fyrir ári. Skömmu eftir brúðkaupið ferðuðust þau að vísu saman til Dubai, en þá var nýfæddur sonur þeirra með í för. Í þetta sinn fóru þau bara tvö og segir Ása grísku eyjarnar tilvalinn stað fyrir álíka ferð. „Ég held að ferðirnar gerist ekki mikið rómantískari. Okkur leið oft og tíðum eins og við værum ein í heiminum og svo var útsýnið þarna gullfallegt. Sumir segja að sólsetrið sé hvergi fallegra en einmitt á Santorini.“ Hjónin dvöldu fjóra daga í senn á hvorum staðnum og bera báðum stöðum söguna jafnvel. Ása nefnir að þau hafi verið sérstaklega heppin með staðsetn- ingu á Santorini, sem sé afar mikilvægt. „Ég fann hótel á heimasíðunni Trip- advisor, sem var síðan alveg dásamlegt, en það er í þorpinu Imerovigli. Staðurinn er frekar rólegur og ekki yfirfullur af ferðamönnum, eins og mér skilst til dæmis að höfuðborg Santorini, Fira, sé. HEILLANDI GRÍSKAR EYJAR Gerist varla rómantískara ÁSA REGINSDÓTTIR OG EMIL HALLFREÐSSON FÓRU Í RÓMANTÍSKA AFSLÖPPUNARFERÐ TIL GRÍSKU EYJANNA SANTORINI OG MYKONOS. MATURINN OG FALLEGT ÚTSÝNI HEILLUÐU HJÓNIN UPP ÚR SKÓNUM. Einar Lövdahl elg@mbl.is Einhver veginn svona lítur draumsýn hvers Íslendings í júlíregninu út. Er nokkuð rómantískara en stórglæsilegt útsýni með kældu víni?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.