Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 19
NÝTT FRÁ ÍTALÍU Í BETRA BAK
!
" ## " $$$%
% Tekur sáralítið pláss þegar hann er ekki í notkun
Pop-up svefnsófiQuatro svefnsófi með vandaðri pokagormadýnu
Kr. 92.650
Fullt verð 109.000
Fæst dökkgrár,
rauður, lillblár
og grænn.
Dýnustærð:
140x200 cm.
Afsláttur
15%
Afsláttur
15%
Kr. 264.415 Fullt verð 289.900
Pedro de Alcântara, blómum
skreyttur garður með útsýni yfir
Baixa að kastalanum Castelo de
Sao Jorge sem gnæfir yfir Alfama
hverfið. Þarna blómstrar mannlífið,
hugljúfir gítartónar, elskendur í
keleríi, fögur kona á barmi tauga-
áfalls horfir yfir dalinn, tísku-
myndataka. Ef leiðin liggur upp
Rua da Misericordia er maður
kominn í skemmtilegasta hluta
borgarinnar þar sem hverfin
Chiado og Bairro Alto mætast.
Koparskreytta kaffihúsið Café
Brasilaira við Largo do Chiado á
sér langa hefð og eftir nokkur skref
í viðbót er maður kominn á torgið
Praça Luís de Camões. Vínbar á
miðju torgi. Hér spriklar allt af
ungu og hressu fólki. Rétti stað-
urinn til að hefja djammið. Forn-
eskjulegir sporvagnarnir skrölta
framhjá.
Í Bairro Alto óma fado-
söngvar í saltfiskilminum
Handan torgsins hlykkjast hinar
þröngu götur Rua das Gávais og
Rua do Norte þar sem salt-
fiskilmurinn berst frá veitingastöð-
unum. Margir þeirra bjóða upp á
fado-tónlist, sem er eins og sálin í
Lissabon. En tónlistin á þó uppruna
sinn í Alfama-hverfinu þar sem sjó-
mannafjölskyldur bjuggu gjarnan á
19. og 20. öld. Þema Fadosöngva er
gjarnan „saudade“, sem þýða má
sem söknuð og fortíðarþrá. Einnig
er sungið um ástamálin, heimahag-
ana eða örlögin, góð eða slæm, en
„fado“ má einmitt þýða sem örlög.
Söngvari er karl eða kona. Undir-
leikarar yfirleitt strengjatríó skipað
bassa, klassískum gítar og sér-
stökum portúgölskum 12 strengja
gítar sem hefur nánast tæra hljóma
hörpunnar. Undirritaður leit inn á
fado-kvöld í Adega Machado við
Rua do Norte. Afbragðs matur og
frábær tónlist. Hinn þokkafulli
söngvari Marco Rodrigues heillaði
kvenþjóðina upp úr skónum, þó
hann reyndi að leyna kynþokka sín-
um með sixpensara.
Margt að skoða í Belém
Á torginu Praça do Comércio er
upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn. Þar er sala í skoð-
unarferðir, tónleika o.þ.h. Á
veggnum er skilti sem varar við
vasaþjófum. Með smá forvörnum
og skynsemi á að vera auðvelt að
varast þá. Frá torgi þessu er
hægt að skrölta með sporvagni 15
út í hið fornfræga hverfi Belém í
útjaðri borgarinnar. Þaðan lagði
sæfarinn Vasco da Gama í hina
fræknu för að finna sjóleiðina til
Indlands. Til minningar um hann
og aðra portúgalska sæfarendur
er risavaxið minnismerki. Hægt er
taka lyftu upp á toppinn þar sem
virða má fyrir sér klaustrið Mos-
teiro de Jerónimos og aðrar glæsi-
byggingar. Þarna er einnig tákn
borgarinnar, Torre de Belém,
virki reist úti í sjó árið 1515 til að
verjast innrásum í borgina. Fjöldi
safna er á þessum slóðum, auk
klaustursins, svo sem sjóminja-
safnið, forngripasafnið o.m.fl. Ekki
er hægt að yfirgefa Belém án
þess að líta við í einni elstu köku-
gerð landsins, Antiga Confeitaria
de Belém sem starfað hefur frá
1837. Smákökurnar „Pasteis de
nata“ njóta gríðarlegra vinsælda
og er löngu orðin þjóðarkaka
portúgala. Kökugerðin hefur teygt
anga sína inn í öll nærliggjandi
hús og tekur nú mörg hundruð
manns í sæti. Uppskriftin að Pas-
teis de nata getur ekki fylgt með
hér, því hún er vel varðveitt
leyndarmál.
Ein elsta kökugerð landsins, Antiga Confeitaria de Belém sem starfað hefur frá
1837. Smákökurnar „Pasteis de nata“ njóta gríðarlegra vinsælda og er þetta
löngu orðið þjóðarkaka Portúgala. Kökugerðin hefur teygt anga sína inn í öll
nærliggjandi hús og tekur nú mörg hunduð manns í sæti.
Ljúfir gítartónar krydda tilveruna á
útsýnisstaðnum Miradouro de São
Pedro de Alcântara.
* Ef leiðin liggur upp Rua da Miseri-cordia er maður kominn í skemmti-legasta hluta borgarinnar þar sem hverfin
Chiado og Bairro Alto mætast.
Litlu gulu sporvagnarnir eru áberandi
í götumynd Lissabon.
Spænski arkitektinn Santiago Calatrava hannaði hina framúrstefnulegu lest-
arstöð Estação do Oriente í hverfinu Parque das Nações.
Hressir guttar í
Alfama-hverfinu.
18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19