Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Blaðsíða 49
18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
þá voru dátarnir 21. Bragi botnaði
hvorki upp né niður í því.
„Nú veistu ekki hvers vegna það
er?“ spurði Tryggvi.
„Nei.“
„Þeir hafa dátana aldrei fleiri en
sex ef einhver frá Morgunblaðinu
er um borð.“
Sem kunnugt er skrifaði Bragi
um myndlist í Morgunblaðið ára-
tugum saman.
Bragi hefur ekki farið utan á
þessu ári en hann hefur gegnum
tíðina lagt sig fram um að fylgjast
með framvindunni í heimslistinni.
„Það er orðið alltof dýrt að fara til
útlanda. Synd og skömm. Ísland er
að verða að vanþróuðu ríki.“
Svaf á milli
Tryggvi var tvær vikur í Madríd í
vor og sneri endurnærður til baka.
„Ég þræddi söfn og skrapp líka út
fyrir borgina. Þetta gekk eins og í
sögu, ég var með tvær konur með
mér, eiginkonuna og hjálparhellu,“
segir hann.
„Og svafst á milli þeirra á nótt-
unni,“ flýtir Bragi sér að segja.
Þeir hlæja.
Fjölgað hefur á kaffistofu Gall-
erís Foldar, Daði Guðbjörnsson
málari er kominn í kaffi með hund
mikinn. Sá veltir sér fram og til
baka við fætur meistaranna.
„Hann skilur ykkur, þessi,“ seg-
ir Daði og fullyrðir að hundurinn
sé með þessu athæfi að búa sig
undir að skoða sýninguna.
Tryggvi veltir vöngum. „Í gamla
daga var stelpa í sveitinni sem
sagði öllum sem vildu heyra að
tíkin á bænum væri kærastan
mín,“ segir hann. „Ég var á við-
kvæmum aldri og fannst það
óþægilegt.“
Bragi hefur meiri áhuga á
mannaferðum í galleríinu, öllu
heldur kvennaferðum.
„Hefurðu tekið eftir því,
Tryggvi, hversu margar konur
hafa komið hingað inn í morgun?
Hvort eru þær að koma út af mér
eða þér?“
Þegar stórt er spurt …
Tryggvi Ólafsson og Bragi
Ásgeirsson bregða á leik.
Vinátta þeirra spannar
meira en hálfa öld. Sýning-
unum lýkur 1. september.
Vinur við veginn