Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 57
18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Viljandi óvart eftir Mary Pols er
bók um ást og barneignir. Mary
er að verða fertug og er ein-
hleyp og nánast allir vinirnir
eru giftir og komnir með börn.
Dag einn tekur Mary ákvörð-
un, hún ætlar að eignast barn.
En hvern velur hún til að eiga
barnið með? Og mun pabbinn
vilja skipta sér af barninu? Svo
kemst Mary að því að það er
tvennt ólíkt að eignast barn og
eiga barn.
Hér er á ferð formúlukennd,
rómantísk og gamansöm af-
þreyingarbók, en margir eru
einmitt hrifnir af slíkum bók-
um.
Höfundurinn, Mary Pols, er
kvikmyndagagnrýnandi hjá
bandaríska tímaritinu Time.
Mary vill
eignast barn
Með haustinu aukast hannyrðirnar. Hand-
bækur um hannyrðir hafa notið mikilla
vinsælda undanfarin ár. Nú er von á
minnst þremur nýjum slíkum með haust-
skipunum. Þar má nefna Vettlingaprjón
sem er þriðja bók Guðrúnar S. Magn-
úsdóttur sem áður hefur gert skemmti-
legar bækur um húfur og sokka. Einnig
kemur út ný íslensk heklbók, Heklað
fyrir smáfólkið en höfundur hennar er
Marín Þórsdóttir. Þriðja bókin er þýdd
bók, hannyrðabiblía, Stóra handa-
vinnubókin, fyrir allt áhugafólk um
prjóna- og saumaskap.
Áhugafólk um hannyrðir ætti því að fá
nóg af hugmyndum fyrir veturinn og getur
nýtt hráslagaleg haustkvöld, sem sennilega
verður nóg af, til að sinna prjónaskap,
hekli og alls kyns handavinnu. Haust-
kvöldin ættu því að geta orðið ansi skap-
andi.
Guðrún S. Magnúsdóttir sendir frá sér bókina
Vettlingaprjón.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
HANNYRÐABÆKUR
KOMA MEÐ
HAUSTSKIPUM
Nú fer að styttast í Bókmenntahátíð í Reykjavík en
fjölmargir þekktir höfundar hafa boðað komu sína.
Þar á meðal er danski rithöfundurinn Kim Leine en
bók hans Profeterne i Evighedsfjorden hefur
hlotið gríðarlega góðar viðtökur lesenda og gagnrýn-
enda. Bókin hefur hlotið fleiri en ein virt verðlaun í
heimalandinu og er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Hér er á ferð söguleg skáldsaga um
Norðmanninn Morten Falck sem á 18. öld heldur til
Grænlands til að boða trú. Bókin mun koma út í þýð-
ingu Jóns Halls Stefánssonar í febrúar á næsta ári.
Rachel Joyce, höfundur bókarinnar vinsælu Hin
ótrúlega pílagrímsganga Harold Fry, er einnig
væntanlega á Bókmenntahátíð. Hún sendi nýlega frá
sér skáldsögu sem slegið hefur rækilega í gegn. Bókin,
sem nefnist á ensku Perfect, stökk þegar í topp sæti
metsölulistanna og hefur fengið afar góða dóma. Daily
Telegraph segist vilja óska að fleiri skáldsagnahöf-
undar væru eins og Rachel Joyce og Literary Review
segir að bókin sé hrífandi og skemmtileg. Á Bók-
menntahátíð mun Joyce lesa úr nýju bókinni sem
kemur út á íslensku um svipað leyti, auk þess sem
þýðandi bókarinnar, Ingunn Snædal, ræðir við hana
á sviði.
STJÖRNUR Á BÓKMENNTAHÁTÍÐ
Höfundur verðlaunabókarinnar
Profeterne i Evighedsfjorden
mætir á Bókmenntahátíð.
Mennirnir með bleika þríhyrn-
inginn er átakanleg sannsöguleg
saga um samkynhneigðan ung-
an mann í Vín sem á árum
seinni heimsstyrjaldar er send-
ur í þrælkunarvist í fangabúð-
um nasista vegna kynhneigðar
sinnar. Hann þarf að þola skelfi-
legar raunir og verður vitni að
ótal grimmdarverkum.
Þorvaldur Kristinsson skrifar
upplýsandi eftirmála um þessa
merkilegu bók sem kom fyrst
út árið 1972 í Þýskalandi.
Í fangabúðum
vegna samkyn-
hneigðar
Mannleg
grimmd og
niðurlæging
NÝJAR BÆKUR
HELSTU TÍÐINDIN ÞESSA VIKUNA ER SAGAN
MENNIRNIR MEÐ BLEIKA ÞRÍHYRNINGINN, BÓK
UM MANNLEGA GRIMMD OG SKELFILEG ÖRLÖG.
ÞEIR SEM VILJA RÓMANTÍK MEÐ GAMANSÖMUM
BLÆ FÁ AFÞREYINGU VIÐ SITT HÆFI. HELGI ING-
ÓLFSSON YRKIR SVO UM GRÍSKAN GOÐA- OG
HETJUHEIM.
Út er komin bókin Guðatal eftir
Helga Ingólfsson. Hér er að finna
ljóðmæli sem sækja efnivið til grísk-
rómverskra goð- og hetjusagna.
Um helmingur ljóðanna birtist í
blöðum og tímaritum á tíunda ára-
tug 20. aldar. Titill ljóðasafnsins er
fenginn að láni frá kvæðabálki hins
forn-gríska Hesíódosar, Þeógóníu.
Hverju ljóði fylgja lausamálsskýr-
ingar.
Guðatal Helga
Ingólfssonar
Þórey vill verða prinsessa eftir Sirrý Sig. er saga um
Þóreyju, fjöruga stelpu sem er í pössun hjá ömmu sinni.
Þórey breytir venjulegum degi í ævintýri þegar hún fer í
hlutverkaleik með ömmu sinni. Þegar afi kemur heim úr
vinnunni þarf prinsessan að forða sér frá tröllkarlinum.
Kjartan B. Sigurðsson myndskreytir söguna. Sirrý Sig.
hefur áður sent frá sér barna- og unglingabók, drauga-
sögu og smásögur.
*Heimili er staðurinn sem maður fer tilþegar maður hefur ekkert skárra að gera.Margaret Thatcher BÓKSALA 7.-13. ÁGÚST
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Eymundsson
1 Leðurblakan - kiljaJo Nesbo
2 InfernoDan Brown
3 Iceland Small world- small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
4 Maður sem heitir Ove - kiljaFrederik Backman
5 Lost in Iceland mini enskSigurgeir Sigurjónsson
6 I Was HereKristján Ingi
7 Áður en ég sofna - kiljaS.J.Watson
8 Lág kolvetna lífsstíllinn LKLGunnar Már Sigfússon
9 Leynd - kiljaL.Marie Adleine
10 Rósablaðaströndin - kiljaDorothy Koomson
Kiljur
1 LeðurblakanJo Nesbo
2 InfernoDan Brown
3 Maður sem heitir OveFrederik Backman
4 Áður en ég sofnaS.J.Watson
5 LeyndL.Marie Adleine
6 RósablaðaströndinDorothy Koomson
7 Rutt úr vegiLee Child
8 Þerraðu aldrei tár án hanskaJonas Gardell
9 Hún er horfinGillian Flynn
10 SnjókarlinnJo Nesbo
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Svo kólnar hjartað frá samvisk-
unni sem kroppurinn þornar af elli.
Stelpa sem vill
verða prinsessa