Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Qupperneq 61
18.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) • Kópavogi • sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is
Rúmgott er eini aðilinn á
Íslandi sem býður upp
á legugreiningu.
ÍS
LE
N
SK GÆ
I60
ÁR
ÞÉR ER BOÐIÐ Í FRÍA
LEGUGREININGU
20-50%
afsl. af öllum
heilsurúmum
Boltinn byrjaði að rúlla í nokkr-um Evrópulöndum um síð-ustu helgi og að þeirri lokinni
sem nú er gengin í garð, verður ball-
ið alls staðar byrjað nema hvað Ítalir
opna sín knattspyrnuleikhús eftir
viku. Allt er sem sagt klárt og hægt
að taka undir með Sigurði Guð-
mundssyni í laginu góða; Nú mega
jólin koma fyrir mér.
Loks hefst keppni fyrir alvöru,
eftir langa kjánatíð, sem stendur að
vísu út mánuðinn; Silly season, eins
og Englendingar kalla sumarið þeg-
ar mest er spáð og spekúlerað um
það hvaða leikmaður verði keyptur
eða seldur og hvert. Nóg hefur verið
að frétta af þeim vettvangi í sumar,
eða að „ekki frétta“ og varla sér fyr-
ir endann á vangaveltum um Luiz
Suarez hjá Liverpool, Manchester
United-manninn Wayne Rooney og
Gareth Bale, leikmann Tottenham.
Forráðamenn félaganna lýsa því
reyndar yfir nær daglega að snill-
ingarnir séu ekki til sölu en eigendur
komast stundum snögglega á aðra
skoðun rétt áður en félaga-
skiptaglugganum er lokað, þegar
áhugasamir birtast með fúlgur fjár.
Vafasamt er að veðja gegn því að
Bayern München verði þýskur
meistari; við nær fullkomið lið hafa
bæst frábærir leikmenn og Pep Gu-
ardiola, maðurinn á bak við Barce-
lona-veldið síðustu ár, er kominn í
brúna. Dortmund og jafnvel fleiri
gæti þó vissulega strítt stórliðinu.
Real Madrid og Barcelona bítast
án efa um titilinn á Spáni en Atletico
Madrid gæti blandað sér í barátt-
una. Keppni á Ítalíu verður spenn-
andi og líklega einnig í Frakklandi
þar sem París Saint-Germain og
Mónakó keppast um að eyða sem
mestum peningum. Á Englandi
verður rimman um titilinn hugs-
anlega harðari en nokkru sinni;
Manchester City og Chelsea hafa
keypt eðalmenn, Manchester United
ekki enn en er að sögn með nokkra í
sigtinu, Arsenal og Tottenham verða
bæði sterk í vetur og spennandi að
sjá hvernig Everton, Liverpool og
Newcastle reiðir af. Sannarlega
áhugaverður vetur framundan.
Nú mega
jólin koma...
Pep Guardiola, nýr þjálfari Bayern, og fyrirliði hans, Philipp Lahm.
AFP
Real Madrid hefur 32 sinn-
um orðið spænskur meistari,
tíu sinnum oftar en næsta lið,
Barcelona.
Manchester United hefur
oftast orðið enskur meistari,
20 sinnum; þar af 13 sinnum á
síðustu 20 árum! Liverpool
hefur unnið titilinn 18 sinnum.
Juventus er langsigursælast
ítalskra liða, hefur orðið
landsmeistari 29 sinnum.
Bayern München hefur
unnið þýska meistaratitilinn
langoftast allra, 23 sinnum.
St. Etienne og Marseille eru
sigursælust í Frakklandi, bæði
lið hafa unnið deildarkeppnina
10 sinnum.
Ajax er langsigursælast í
Hollandi. Liðið hefur 32 sinn-
um orðið meistari.
SIGURSÆLUST