Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.08.2013, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.8. 2013
Menning
Á
Hólahátíð fyrir ári
var séra Solveig
Lára Guðmunds-
dóttir vígð í embætti
vígslubiskups í Hóla-
stifti en að þessu sinni verður há-
tíðin, sem fram fer um helgina, að
miklu leyti helguð 250 ára afmæli
dómkirkjunnar á Hólum, elstu
steinkirkju landsins.
„Það var mikil áskorun að takast
á við þetta verkefni,“ segir Solveig
Lára við Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins. „Það fyrsta sem ég átt-
aði mig á þegar ég flutti hingað að
Hólum var að kirkjan ætti stór-
afmæli í ár og við vildum auðvitað
halda stóra og mikla hátíð.“
Solveig Lára segir að kirkju-
byggingin sjálf sé í brennidepli á
hátíðinni nú, m.a. verður opnuð
vegleg sögusýning, sem Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt hefur veg og
vanda af ásamt Guðmundi Oddi
Magnússon, Goddi, prófessor.
Fjölbreytt dagskrá
Auk sýningarinnar má nefna að
flutt verður leikrit um múr-
arameistarann Sabinsky, sem
stjórnaði byggingu kirkjunnar.
Verkið skrifaði Björg Bald-
ursdóttir, kennari við Grunnskól-
ann á Hólum, en félagar úr Leik-
félagi Hofsóss leika undir stjórn
Maríu Grétu Ólafsdóttur.
Gengin verður pílagrímaganga
yfir Heljardalsheiði, messað í
Gvendarskál og gengið upp í Nám-
una í Hólabyrðu, þangað sem Sab-
insky sótti rauða steininn í bygg-
inguna. Agnes M. Sigurðardóttir,
biskup Íslands, prédikar í hátíð-
armessu á Hólahátíð kl. 14.00 á
sunnudag, Kristján Jóhannsson
syngur einsöng, Vilhjálmur Eg-
ilsson, rektor háskólans á Bifröst,
flytur Hólaræðuna og Hjörtur
Pálsson flytur frumsamið afmæl-
isljóð.
Sérstök tilfinning
„Það verður mjög sérstök tilfinning
að taka þátt í Hólahátíð að þessu
sinni. Ég var vígð á hátíðinni í
fyrra og er því í raun að gera allt í
fyrsta skipti; hryggjarstykkið í
mínu starfi síðasta árið hefur verið
að heimsækja mjög marga söfnuði
í Hólastifti og seinni hluti vetrar
og sumarið hefur farið í að und-
irbúa hátíðina. En svo tekur alltaf
eitthvað nýtt við; 400 ára fæðing-
arafmæli Skagfirðingsins Hallgríms
Péturssonar er til dæmis á næsta
ári og við munum taka þátt í há-
tíðahöldum í tilefni þess,“ segir
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt
er fróðastur manna um dómkirkj-
una á Hólum og stjórnaði lokakafla
breytinga hennar á árunum 1987
til 1988. „Þetta er slæðusýning
með barokktónlist undir og lesinn
texti þar sem farið er í gegnum
söguna; fyrst er gerð grein fyrir
eldri timburkirkjum á staðnum og
svo greint frá arkitekt kirkjunnar
og list hans; danska arkitektsins
Thurah,“ segir hann við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins, spurður
um sýningu þeirra Godds.
„Kirkjan er barokkhús, teiknað
árið 1757, elsta steinkirkja landsins
og raunar elsta kirkja landsins í
sinni upprunalegi mynd, má segja,“
segir Þorsteinn.
Í sýningunni er kirkjan borin
saman við aðrar steinkirkjur frá
18. öld. „Hóladómkirkja er hluti af
framtaki danskra stjórnvalda á
seinni hluta 18. aldar til að reisa
hér opinberar byggingar úr var-
anlegu efni; andlegu húsin eru Við-
eyjarkirkja, Landakirkja í Vest-
mannaeyjum, Bessastaðakirkja og
Dómkirkjan í Reykjavík og þau
veraldlegu Bessastaðastofa, Viðeyj-
arstofa, Nesstofa og tukthúsið við
Arnarhól, sem nú er stjórnarráðs-
húsið.“
Fjallað er um turninn við Hóla-
dómkirkju sem reistur var 1950, og
breytingar sem gerðar voru á
kirkjunni þegar búnaðarskóli var
settur á stofn á staðnum 1880, end-
ursmíð Matthíasar Þórðarsonar
þjóðminjavarðar á innréttingum
kirkjunnar og svo lokakafla end-
urreisnar kirkjunnar seint á níunda
áratug síðustu aldar sem Þorsteinn
Gunnarsson stjórnaði.
Sú eina í barokkstíl
„Hóladómkirkja er merkilegt hús
að því leyti til að hún er eina stein-
kirkjan sem við eigum í barokkstíl.
Það er líka merkilegt að kirkjan er
að hluta til byggð úr rauðum sand-
steini og var upphafleg öll úr rauða
steininum úr Hólabyrðu,“ segir
Þorsteinn. Það glæsilega fjall rís
yfir Hólastað.
„Í Lárentíusarsögu, segir að
Auðunn rauði biskup hafi fundið
steininn, dregið heim til Hóla og
lagt grunn að dómkirkju sem hann
hugðist reisa úr þessum rauða
steini.“ Ekki náðist að ljúka þeirri
steinbyggingu en Auðunn lét reisa
mannhæðarháan múr í kringum
timburkirkjuna sem þá stóð.
Dómkirkjan var múrhúðuð laust
fyrir aldamótin 1900, eftir að bún-
aðarskólinn var stofnaður, og hvít-
máluð þegar turninn var reistur.
„Ég var í dálitlum vandræðum með
hvað ætti að gera við hana,“ segir
Þorsteinn þegar hann rifjar upp
vinnuna við endurreisn kirkjunnar
undir lok níunda áratugar síðustu
aldar, „en lausnin var að forkirkjan
– sem ekki var teiknuð af arkitekt-
inum – er klædd rauða steininum
en kirkjan sjálf múrhúðuð, eins og
arkitektinn hafði teiknað hana, og
máluð hvít, annars hefði hún
stungið mjög í stúf við turninn.“
Þorsteinn segir innri gerð kirkj-
unnar líka sérstaklega merkilega,
m.a. vegna þess að gólfið er lagt úr
hellum úr þessum sama rauða
steini.
„Upphaflegu innréttingarnar
sem voru teknar úr kirkjunni 1888,
endurgerði Matthías Þórðarson.
Ég endurskoðaði endurgerð Matt-
híasar og breytti nokkrum atriðum,
þeim sem voru ekki alveg í stíl
arkitektsins, vegna þess að Gísli
Magnússon, biskup sem þá var, gat
ekki fallist á barokkstílinn innan-
dyra.“
FJÖLMENNI HEIM AÐ HÓLUM UM HELGINA
Haldið upp á 250 ára afmæli elstu
steinkirkju landsins á Hólahátíð
HÓLAHÁTÍÐ ER AÐ MIKLU LEYTI HELGUÐ 250 ÁRA AFMÆLI DÓMKIRKJUNNAR Á STAÐNUM. OPNUÐ ER SÝNING UM KIRKJUBYGGINGUNA ÞAR SEM
SAGA HENNAR ER RAKIN Í MÁLI OG MYNDUM. FYRSTA HÓLAHÁTÍÐ SOLVEIGAR LÁRU GUÐMUNDSDÓTTUR FRÁ ÞVÍ HÚN VARÐ VÍGSLUBISKUP.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hóladómkirkja, elsta stein-
kirkja landsins, sem vígð var
20. nóvember árið 1763.
Turninn var reistur um miðja
síðustu öld.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir og Solveig Lára Guðmundsdóttir,
vígslubiskup á Hólum. Biskup Íslands predikar í hátíðarmessu um helgina.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson