Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 34
34 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
Á
ramót eru hrífandi tími, stund friðar með fjölskyldu
og vinum þar sem tækifæri gefst til að líta yfir far-
inn veg, meta hvernig til hefur tekist, læra af mis-
tökum jafnt sem sigrum, með þá ósk í brjósti að
nýtt ár verði gæfuríkt.
Áramót gefa líka gott tækifæri til að velta því fyrir sér hvern-
ig landsmálin hafa þróast og hvort hægt sé að gera hlutina
öðruvísi og betur á vettvangi stjórnmálanna.
Það er og á að vera markmið stjórnmálamanna að vinna að
því að veita þjóð sinni það öryggi og velferð sem allir þrá og þó
að stjórnmálabarátta virðist oft illvíg þá er það engu að síður
svo að flestir sem taka þátt í stjórnmálastarfi vinna að sameig-
inlegu markmiði. Því að auka hagsæld og hamingju þjóð-
arinnar.
Flestir geta verið sammála um að á Íslandi eigum við að
stefna að því að reka heilbrigðiskerfi á við það sem best gerist í
heiminum og að allir eigi að hafa jafnan aðgang að heilbrigð-
isþjónustu. Við viljum búa við menntakerfi sem við getum
treyst til þess að veita börnum okkar, hverju og einu, menntun
sem stenst samanburð við það sem best gerist í öðrum löndum.
Öll viljum við búa við lagalegt öryggi þar sem réttur ein-
staklingsins er virtur án þess að skaða aðra og flest viljum við
samfélag þar sem óskorað traust ríkir til löggæslu og dómstóla.
Margir velta því eðlilega fyrir sér hvers vegna mismunandi
stjórnmálastefnur geti þá ekki lagfært það sem upp á vantar,
án frekari umræðu, ef endamarkið er hið sama? Svo eru þeir til
sem telja að litlu skipti hvaða stefna verður ofaná, engin þeirra
sé til þess fallin að skila árangri. Slíkar vangaveltur eru eðlileg-
ar en raunveruleikinn er engu að síður sá að þjóðfélag er flókið
fyrirbæri þar sem óteljandi kraftar virka hver á annan. Fyrir
vikið verða álitaefnin óteljandi líka.
Sagan sýnir hins vegar, svo ekki verður um villst, að það
skiptir sköpum um velferð þjóða hvaða stjórnmálastefna ræður
för. Öfgakennd stefna er iðulega boðuð með því að vísa til knýj-
andi þarfar til að ná góðum markmiðum. En pólitísk bók-
stafstrú hefur aldrei reynst vel til þess fallin að ná hinum góðu
markmiðum. Þar reynast skynsemi og rökhyggja best. Stefna
sem byggir jafnt og þétt upp þá innviði, áþreifanlega og óá-
þreifanlega, sem veita kröftum einstaklinganna og þjóðarinnar
bestan farveg.
Stefna sem nýtir það afl sem liggur í framtakssemi og hug-
kvæmni einstaklinganna en einnig þá miklu verðmætasköpun
sem leiðir af samvinnu þeirra og hámarkar með því ávinning
samfélagsins alls. Samfélags þar sem öll hin ólíku störf skipta
máli. Það er undirstaða framfara.
Þegar vandamálin sem samfélag stendur frammi fyrir eru
óhefðbundin getur þurft að fara óhefðbundnar leiðir til að leysa
þau og þegar vandinn er stór getur það kallað á róttækar lausn-
ir. Í slíkum tilvikum getur hið róttæka verið hið rökrétta og
skynsamlega.
Ný ríkisstjórn vinnur eftir þessu.
Fyrstu mánuðirnir eftir kosningar voru nýttir til að koma á
stöðugleika og undirbúa skynsamlegar og rökréttar aðgerðir.
Við erfiðar aðstæður í rekstri ríkisins hefur verið forgangs-
raðað í þágu heilbrigðismála og annarra velferðarmála en um
leið er unnið að því að skapa skilyrði sem geta af sér aukna
verðmætasköpun, fleiri störf og betri kjör. Árangurinn er þeg-
ar farinn að koma í ljós þótt mikið verk sé enn óunnið. Á síðustu
mánuðum ársins 2013 jókst hagvöxtur verulega, meðal annars
með aukinni fjárfestingu sem mun skila sér í aukinni verð-
mætasköpun til framtíðar.
Um leið er ríkið hætt að safna skuldum svo að á næstu árum
verður hægt að fjárfesta í auknum mæli á öllum þeim fjölmörgu
sviðum sem gefa lífinu í þessu landi gildi.
Skuldafargið, sem haldið hefur aftur af íslenskum heimilum
og þar með samfélaginu öllu í mörg ár, kallaði á umfangsmiklar
aðgerðir. Í því tilviki var róttæk lausn skynsamleg og nauðsyn-
leg.
Nú liggur fyrir að verðtryggð húsnæðislán verða færð niður
sem nemur öllum þeim verðbótum sem talist gátu ófyrirséðar á
árunum í kringum bankahrunið. Auk þess munu skattaafsláttur
og önnur úrræði nýtast til að létta enn frekar á skuldum heim-
ilanna, skuldum sem hafa staðið efnahagslegum framförum fyr-
ir þrifum.
Takist svo að auka kaupmátt launa samhliða aðgerðum til að
draga úr skuldavandanum mun staða íslenskra heimila taka
stakkaskiptum til hins betra. Við sjáum nú að full ástæða er til
að ætla að sú geti orðið raunin.
Kjarasamningar sem voru undirritaðir í lok ársins voru hugs-
aðir sem grundvöllur stöðugleika svo að hægt yrði að auka
kaupmátt og bæta lífskjör jafnt og þétt næstu árin. Það þurfa
aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld að gera í sameiningu og í
þeirri vinnu þarf að huga sérstaklega að kjörum þeirra lægst-
launuðu og því að millitekjuhópar njóti ávinningsins af betri tíð
eftir þær miklu fórnir sem sá hópur var látinn færa á síðast-
liðnum árum.
Að þessu sinni gefa áramótin okkur Íslendingum tilefni til að
vera bjartsýn.
Ísland er sannarlega land tækifæranna, hvort sem litið er til
þróunarinnar á norðurslóðum, gríðarmikilla og verðmætra auð-
linda eða sterkra innviða og samfélagsgerðar sem er til þess
fallin að skapa verðmæti á nánast öllum sviðum.
Okkar bíður það verkefni að tryggja annars vegar að það tak-
ist að nýta tækifærin og hins vegar að afraksturinn gagnist
samfélaginu öllu. Það ætti að vera okkur góð hvatning í þeim
efnum að þetta tvennt fer jafnan vel saman. Þjóðskipulag sem
stuðlar að jafnræði og almennri velferð er best til þess fallið að
nýta tækifærin og skapa verðmætin sem standa undir velferð-
inni.
Við Íslendingar eigum að baki óvenjulega tíma. En eins og
Sveinn Björnsson, forseti, sagði í innsetningarávarpi sínu árið
1945 þá er mannlífið sem betur fer svo „auðugt að tilbrigðum,
að ekkert er til sem mætti nefna „venjulega tíma“. Ýmsir eru
bölsýnir á það sem framundan er, aðrir bjartsýnir.“ Forsetinn
benti svo á að við fáum ekki varðveitt trúna á land og þjóð nema
nokkurrar bjartsýni gæti. Það að hafa trú á landi og þjóð er svo
forsenda þess að bjartsýnin eigi rétt á sér.
Sá sem ekki hefur trú á sjálfum sé nær ekki árangri og það
sama á við um samfélögin sem einstaklingarnir mynda. Þjóð
verður að trúa á sjálfa sig og að hægt sé að gera hlutina öðruvísi
og betur.
Við Íslendingar höfum fulla ástæðu til að hafa trú á landið og
þjóðina og vera bjartsýn á framtíðina við áramótin sem nú
ganga í garð.
Kæru landsmenn, ég óska ykkur öllum gleðilegs árs, far-
sældar og friðar á nýju ári.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Morgunblaðið/Ómar
Horfum bjartsýn til framtíðar
Okkar bíður það verkefni að tryggja annars veg-
ar að það takist að nýta tækifærin og hins vegar
að afraksturinn gagnist samfélaginu öllu. Það
ætti að vera okkur góð hvatning í þeim efnum
að þetta tvennt fer jafnan vel saman.