Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 67
Gleðilegt ár
Höfuðborgarstofa (Visit Reykjavík) þakkar borgarbúum fyrir frábært samstarf á árinu;
góða þátttöku í jólaviðburðum í desember, Vetrarhátíð, Barnamenningarhátíð,
Menningarnótt og fallega stund við tendrun Friðarsúlunnar í Viðey.
Aldrei hefur jafn mikill fjöldi erlendra gesta heimsótt Reykjavík og það er ekki síst
jákvætt viðmót borgarbúa gagnvart erlendum gestum sem tryggir áfangastaðnum
Reykjavík veru á topp tíu listum erlendra fjölmiðla yfir áhugaverðustu vetraráfangastaði
og jólalegustu borgir heims.
Tenórarnir þrír, ásamt Kristjáni Jóhannssyni, á Þorláksmessutónleikum Höfuðborgarstofu.
Höfuðborgarstofa stýrir markaðs- og kynningarstarfi sínu í samræmi við Ferðamálastefnu Reykjavíkur þar sem ein meginstoðin er
áhersla á Reykjavík sem vetraráfangastað. Margir leggjast þar saman á árarnar s.s. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur sem
skreytt hefur borgina svo fallega, auk menningarstofnana Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar og annarra hagsmunaðila.
Áherslan á vetrarferðamennsku er einnig í samræmi við almenna landkynningu Íslandsstofu, upplegg herferðarinnar
Inspired By Iceland og markaðsátakið Iceland Naturally í Norður-Ameríku.
10 best cities
for a winter vacation
www.visitreykjavik.isVisit Reykjavík - Aðalstræti 2 - 101 Reykjavík - Tel. +354 590 1550 - Fax +354 590 1501 - info@visitreykjavik.is
10 best places
to spend Christmas 2013
og þakkir fyrirárið sem er að líða