Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 59
fjarðar var síldarævintýrið í algleym-
ingi. Á sumrin var fjörðurinn fullur af
skipum og bærinn svo troðfullur af
aðkomufólki að Siglfirðingar týndust
í öllu þessum mannfjölda.
Ég byrjaði að vinna á síldarplani
þegar ég var 14 ára og krakkar og
unglingar voru að salta öll sumur. All-
ir höfðu meira en nóg að gera. En það
átti nú eftir að breytast.“
Kristinn var vélvirki hjá Síld-
arverksmiðju ríksins á árunum 1960-
95 og var verkstjóri á vélaverkstæði
verksmiðjunnar síðustu starfsárin
þar. Hann hóf að reka leigubíl með
aðalstarfinu 1965 og var leigubílstjóri
á Siglufirði til 1989. Auk þess stund-
aði hann ökukennslu á Siglufirði og
nágrenni um árabil.
Var nokkuð að gera fyrir leigubíl-
stjóra á Siglufirði á þessum árum?
„Já, það var glettilegur reytingur í
langferðum til Akureyrar, á Austfirði
og jafnvel til Reykjavíkur, en minna í
innanbæjarakstri. Auk þess var alltaf
töluvert að gera í ökukennslunni.
Þetta hvort tveggja var nú alltaf
aukabúgrein sem maður sinnti á
kvöldin en aðallega þó um helgar.“
Kristinn varð vélgæslumaður
Slökkviliðs Siglufjarðar 1962, starfaði
síðan og var slökkviliðsstjóri Siglu-
fjarðar á árunum 1991-2003.
Kristinn átti mótorhjól á árunum
1955-65. Hann fékk sér svo aftur hjól
árið 1997 og hefur þeyst um á mót-
orhjóli síðan. Hann hefur farið á hjól-
inu víða um heim, m.a. um Flórída í
Bandaríkjunum og fór í Evrópureisu
árið 2007.
Kristinn var meðlimur í mót-
or8hjóla8klúbbnum Smölunum en er
nú í mótorhjólaklúbbnum Örnum í
Reykjanesbæ, Röftum í Borgarnesi
og Tíunni á Akureyri.
Fjölskylda
Kristinn kvæntist 1955 Hönnu
Stellu Sigurðardóttur, f. 26.11. 1935,
d. 21.12. 1996, skrifstofumanni hjá
bæjarfógeta, síðar fulltrúa hjá sýslu-
manni á Siglufirði og loks launafull-
trúa hjá Siglufjarðarkaupstað.
Hún var dóttir Sigurðar Magn-
ússonar, múrarameistara á Siglufirði,
og k.h., Bjarnveigar Þorsteinsdóttur
húsfreyju.
Börn Kristins og Hönnu Stellu eru
Inga Sjöfn Kristinsdóttir, f. 28.7.
1954, skrifstofumaður, búsett í
Reykjanesbæ en maður hennar er
Þorgeir Ver Halldórsson flugvirki og
á hún fjögur börn; Fríða Birna Krist-
insdóttir, f. 9.10. 1955, þroskaþjálfi,
búsett í Reykjavík en maður hennar
er Jón Gunnar Jónsson skrifstofu-
maður og eiga þau þrjú börn; Georg
Páll Kristinsson, f. 8.2. 1961, húsa-
smíður með eigið verktakafyrirtæki,
búsettur í Ólafsfirði en kona hans er
Líney Hrafnsdóttir, starfsmaður í
Hornbrekku, dvalarheimli aldraðra á
Ólafsfirði, og eiga þau þrjár dætur en
tvær á lífi.
Sambýliskona Kristins er Ester
Guðlaug Karlsdóttir, f. 6.10. 1939,
húsfreyja.
Systkini Kristins eru Soffía
Georgsdóttir, f. 15.4. 1931, lyfjatækn-
ir, búsett í Hafnarfirði, og Ingvar
Georgsson, f. 26.8. 1943, fyrrv. banka-
gjaldkeri, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Kristins voru Georg
Pálsson, f. 21.12. 1908, d. 25.8 1957,
bókari og skrifstofumaður á Siglu-
firði, og Hólmfríður Ingibjörg Guð-
jónsdóttir, f. 9.7. 1907, d. 2.9. 2010,
húsfreyja á Siglufirði og síðar versl-
unarmaður í Reykjavík.
Úr frændgarði Kristins Georgssonar
Kristinn
Georgsson
Ingibjörg Jónadabsdóttir
húsfr. á Vatnshóli
Árni Árnason
b. á Vatnshóli í Línakradal
Kristín Árnadóttir
húsfr. í Neðra-Vatnshorni
Guðjón Helgason
b. á Neðra-Vatnshorni í V-Hún
Hólmfríður Ingibjörg Guðjónsdóttir
húsfr. og verslunarm.
á Siglufirði og í Rvík
Hólmfríður Jónsdóttir
húsfr. á Gunnarsstöðum
Helgi Jónsson
b. á Gunnarsstöðum á Strönd
Halldóra Halldórsdóttir
húsfr. á Hellu
Vigfús Vigfússon
b. á Hellu á Árskógsströnd
Soffía Vigfúsdóttir
húsfr. á Akureyri og Seyðisfirði
Páll Andrés Pálsson
bókari og kaupm. á
Akureyri og Seyðisfirði
Georg Pálsson
bókari og skrifstofum.
á Siglufirði
Björg Benjamínsdóttir
húsfr. á Seyðisfirði
Páll Árnason
sjóm. á Seyðisfirði
Afmælisbarnið Kristinn Georgsson
ÍSLENDINGAR 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
Franch fæddist á Sauðárkrókifyrir einni öld og ólst þarupp. Foreldrar hans voru
Jörgen Frank Michelsen, úrsmiður
og kaupmaður á Sauðárkróki, frá
Horsens í Danmörku, og Guðrún
Pálsdóttir Michelsen húsfreyja, frá
Draflastöðum í Sölvadal.
Systkini Franchs: Karen Edith;
Pála Elínborg; Hulda Ester; Rósa
Kristín,; Georg Bernharð; Paul
Valdimar; Aðalsteinn Godfred; Ottó
Alfreð; Elsa María; Kristinn Pálmi
og Aage Valtýr.
Eftirlifandi eiginkona Franchs er
Guðný Guðrún Jónsdóttir, fyrrv.
verslunarstjóri, en börn þeirra eru
Ingibjörg Ásthildur; Guðrún Rósa;
Lilja Dóra; Frank; Frank Úlfar;
Hlynur Jón, og Anna Birna.
Franch lauk prófi frá Iðnskólanum
í Reykjavík, lærði úrsmíði hjá föður
sínum og stundaði framhaldsnám í
Den Danske Urmagerskole í Kaup-
mannahöfn.
Franch starfaði hjá Carl Jonsén,
konunglegum hirðúrsmið í Kaup-
mannahöfn og bauðst sú nafnbót. Við
hernám Þjóðverja neyddist hann til
að afþakka störf hjá virtum úrafyr-
irtækjum í Berlín og Genf en kom
heim í Petsamoferðinni 1940. Hann
rak eigin úrsmíðavinnustofu á Sauð-
árkróki 1940-43 og síðan í Reykjavík
og var framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins Franch Michelsen ehf. 1943-92
er sonur hans tók við rekstrinum.
Franch var meistari 12 úrsmiða,
fylgdist vel með nýjungum á því sviði,
starfaði um árabil fyrir Úrsmiðafélag
Íslands og var sæmdur gullmerki
þess, sinnti trúnaðarstörfum fyrir
Kaupmannasamtök Íslands, var for-
maður ASKÍ, var sæmdur gullmerki
KÍ, stofnaði skátafélagið Andvara og
var formaður þess, tók Gilwell-
foringjaþjálfun í Danmörku og kom á
Gilwellskólanum á Íslandi, var land-
gildismeistari St. Georgsgildisins, sat
í stjórn BÍS, var sæmdur Skáta-
kveðjunni úr gulli fyrstur íslenskra
skáta, gullmerki BÍS, Þórshamr-
inum, gullbjálka St. Georgsgildisins
og gullmerkjum sænska skáta-
sambandsins.
Franch lést 7.6. 2009.
Merkir Íslendingar
Franch
Michelsen
Gamlársdagur
95 ára
Hjörtur Einarsson
90 ára
Steinunn Pétursdóttir
85 ára
Erla Kristjánsson
Helgi Héðinsson
80 ára
Bára Vestmann
Guðlaug Jóhannsdóttir
75 ára
Auðrún Sjöfn
Valentínusdóttir
Ásgeir L. Guðnason
Ásta Axelsdóttir
Guðný Björnsdóttir
Monika Margrét
Stefánsdóttir
Sigríður Ingibjörg
Jónsdóttir
70 ára
Anna Sigurðardóttir
Ágústa Sveinsdóttir
Ármann Þráinn Alfreðsson
Árný Freyja Alfreðsdóttir
Einar Haraldur Esrason
Guðfinna Gunnarsdóttir
Hannes Sigurðsson
Ingibjörg E. Daníelsdóttir
Ingi Þór Bjarnason
Kristín Einarsdóttir
60 ára
Bryndís Ólafsdóttir
Guðbrandur Björnsson
Inga Jónsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir
Ingibjörg J. Ingólfsdóttir
Margrét Einarsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Steingrímur Ari Arason
50 ára
Dagný Albertsdóttir
Halldóra N. Gunndórsdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir
Sigþrúður Elínardóttir
Sæunn Gísladóttir
40 ára
Aðalheiður Björk
Gylfadóttir
Árni Sigurður Pétursson
Birgir Sigurðsson
Björk Þorvaldsdóttir
Guðrún Anna Antonsdóttir
Guðrún Hauksdóttir
Haukur Jóhann
Hálfdánarson
Ingibjörg Dagný
Jóhannsdóttir
Jaroslaw Ganiec
María Krista Hreiðarsdóttir
Sigurður Rúnar
Freysteinsson
Sóley Snædís Stefánsdóttir
Sólveig Olga Sigurðardóttir
Stefán Þór Jónsson
Steinunn Rósa
Guðmundsdóttir
30 ára
Freyja Hólm Ármannsdóttir
Hrafn Guðmundsson
Sigríður Sigurjónsdóttir
Sigurborg Benediktsdóttir
Willem Adriaan De Beer
Nýársdagur
90 ára
Gunnar Sigurðsson
85 ára
Ársæll Hannesson
Halldór Bjarnason
Tómas Á. Tómasson
80 ára
Elísabet Eszter Csillag
Þorsteinn Júlíusson
75 ára
Anný L. Guðmundsdóttir
Fanney Árdís Sigvaldadóttir
Sigrún Guðveigsdóttir
Svanhildur Óskarsdóttir
70 ára
Anna Margrét
Hákonardóttir
Árný Bjarnadóttir
Bragi Steingrímsson
Friðrik Jónsson
Ríkarður Bergstað
Jónasson
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir
Ævar Lúðvíksson
60 ára
Emil K. Thorarensen
Eybjörg Einarsdóttir
Hafsteinn Linnet
Margrét Sigurðardóttir
Maria Matyszczyk
Sveinn Karlsson
Þórarinn E. Þórarinsson
Þórey Einarsdóttir
50 ára
Annika Poulina Olsen
Bragi Gunnarsson
Dagný Þórunn Jónsdóttir
Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir
Helena Hólm
Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir
María Einarsdóttir
Ólafur Kolbeinsson
Sigmar Ármann Sigurðsson
Sigurður Orri Steinþórsson
Slavko Viktor Velemir
Teresa Mieczyslawa Mazur
Vilhjálmur Árni Ásgeirsson
Þórhallur V. Vilhjálmsson
40 ára
Arnar Þór Jónsson
Fanney Dóróthe
Halldórsdóttir
Fexhrie Poroshtica
Gopal Debnath
Ivo Bartkevics
Kolbrún Mjöll Hrafnsdóttir
Mieczyslawa Ewa
Bogalecka
Þór Guðnason
30 ára
Berglind Ólafsdóttir
Ellert S. Breiðfjörð
Sigurðarson
Eva Ósk Elíasardóttir
Liis Vitsut
Rasha Brikhan
Snorri Birgisson
Valgerður Guðmundsdóttir
Yasmin Hamada
Til hamingju með daginn
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gleðileg jól
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi árum.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.