Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
• Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
66
73
2
11
/1
3
VIÐ ERUM Á VAKTINNI
ALLAN SÓLARHRINGINN
Við erum
til taks Við treystum sjaldan meira á orkuna en um jól og áramót. StarfsfólkOrkuveitu Reykjavíkur er í viðbragðsstöðu til að tryggja þér birtu og ylum hátíðarnar. Gleðilega hátíð.Íslandsbankitekur þátt í sam-bankaláni tilnorska skipa-
félagsins Havila
til að endur-
fjármagna fjög-
ur skip félags-
ins.
Sambankalánið
sem Íslandsbanki tekur þátt í er
að upphæð 475 milljónir norskra
króna eða um níu milljarðar ís-
lenskra króna, segir í tilkynningu.
Umsjónaraðili sambankalánsins
var SpareBank1 SMN í Noregi og
verður láninu ráðstafað til að end-
urfjármagna fjögur skip Havila,
sem þjónusta olíuiðnaðinn.
Norska skipafélagið Havila er
eitt af leiðandi félögum í þjónustu
við olíuiðnaðinn á hafi. Sam-
stæðan á og rekur 27 þjón-
ustuskip, er með höfuðstöðvar í
Fosnavaag í Noregi og með skrif-
stofur í Brasilíu og Asíu. Velta
Havila fyrstu þrjá ársfjórðungana
var um 21,5 milljarðar íslenskra
króna.
9 millj-
arða sam-
bankalán
Íslandsbanki lánar
til norsks fyrirtækis
Björgvin Guð-
mundsson hættir
sem ritstjóri Við-
skiptablaðsins
um áramót.
Bjarni Ólafsson,
blaðamaður á
Viðskipta-
blaðinu, tekur
tímabundið við
ritstjórn þess.
Björgvin hefur
ásamt Friðjóni R. Friðjónssyni al-
mannatengli keypt rekstur al-
mannatengslafyrirtækisins KOM.
Þeir munu taka við rekstri fyrir-
tækisins af stofnandanum Jóni Há-
koni Magnússyni.
Jón Hákon mun starfa áfram hjá
KOM við ráðgjöf og vera stjórnar-
formaður fyrirtækisins. Engar
breytingar verða á starfsliði fyrir-
tækisins aðrar en þær að Björgvin
og Friðjón ganga til liðs við fyrir-
tækið, segir í tilkynningu.
Friðjón hefur á undanförnum ár-
um starfað sem almannatengill en
hefur jafnframt verið aðstoðar-
maður Bjarna Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins.
Taka við
rekstri
KOM
Björgvin hættir
sem ritstjóri
Björgvin
Guðmundsson
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Þrír fjölmiðlar sem fjalla um við-
skipti hafa hver um sig valið mann
ársins í íslensku viðskiptalífi.
Handhafar Viðskiptaverðlauna
Viðskiptablaðsins í ár eru sam-
starfsmennirnir Andri Þór Guð-
mundsson, forstjóri Ölgerðarinnar,
og Októ Einarsson, stjórnarformað-
ur fyrirtækisins, en þeir keyptu Öl-
gerðina skömmu fyrir hrun. Í tíma-
riti Viðskiptablaðsins, Áramótum,
sem kom út í gær, segir að þeir hafi
stýrt fyrirtækinu í gegnum fjár-
hagslega endurskipulagningu við
gríðarlega erfiðar aðstæður og tek-
ist á sama tíma að auka markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins á miklum
samkeppnismarkaði.
Dómnefnd Frjálsrar verslunar
valdi Grím Sæmundsen, lækni og
forstjóra Bláa Lónsins, sem mann
ársins í íslensku atvinnulífi. Í til-
kynningu segir að hann hljóti þenn-
an heiður fyrir framsækni, nýjungar
í ferðaþjónustu, arðbæran rekstur
til góðs fyrir íslenskt samfélag, fag-
mennsku, stórhug og útsjónarsemi
sem gert hafi Bláa Lónið að ein-
stæðu fyrirtæki í heiminum.
Dómnefndar Markaðar Frétta-
blaðsins valdi Þorstein Baldur Frið-
riksson, framkvæmdastjóra leikja-
fyrirtækisins Plain Vanilla, sem
mann ársins. Í umfjöllun Markaðar-
ins segir að síðustu mánuðir hafi
verið rússíbanareið fyrir Þorstein.
Fyrir tæpum tveimur árum var Pla-
in Vanilla nálægt gjaldþroti en er nú
með einn vinsælasta tölvuleik í
heimi fyrir spjaldtölvur og snjall-
síma. Nýverið var gefið út nýtt
hlutafé sem nemur 2,5 milljörðum
króna.
Viðskiptablaðið valdi jafnframt
Plain Vanilla sem frumkvöðul árs-
ins. Það var stofnað fyrir þremur
árum. Þorsteinn segir í viðtali í Ára-
mótum, tímariti Viðskiptablaðsins,
að þrátt fyrir mikinn vöxt eigi fyr-
irtækið mikið inni. Stefnt sé að því
að spurningaleikurinn QuizUp komi
út fyrir Android-stýrikerfið eftir
áramótin, þ.e. í janúar á nýju ári.
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdastjóri Þorsteinn B.
Friðriksson, hjá Plain Vanilla.
Fjölmiðlar völdu viðskiptamenn ársins
Viðskiptablaðið og Markaðurinn horfðu til árangurs leikjafyrirtækisins Plain Vanilla