Morgunblaðið - 31.12.2013, Page 41
STJÓRNMÁL 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
Þ
að er góð tilfinning að verja og efla réttindi fólks.
Það færir manni frið að hafa við þá iðju fullan
þunga mestu tæknibyltingar mannkynssögunnar
að baki sér. Í lok síðustu aldar spáði faðir nútíma-
stjórnunnar, Peter Drucker, að það væri nánast
öruggt að upplýsingabyltingin, sem hegðaði sér eins og aðrar
tæknibyltingar, myndi bylta sviði stjórnmálanna innan 20 ára.
Á þessu ári voru Píratar, stjórnmálaarmur upplýsingabylting-
arinnar, í fyrsta sinn kosnir á þjóðþing. Alþingi okkar Íslend-
inga.
Sá sem lifir við miðil eins og sjónvarp tileinkar sér önnur
gildi en sá sem lifir mikið á internetinu. Ólíkt sjónvarpsáhorf-
andanum þá tekur internetnotandinn þátt í sínum fréttum og
afþreyingu. Honum finnst sjálfsagt að hafa aðgang að upplýs-
ingum og að taka þátt í mótun síns samfélags. Krafan um
gegnsæi hins opinbera og beinni aðkomu almennings að
ákvörðunum ríkisins mun því aðeins verða háværari. Þeir sem
sjá undiröldu breyttra gilda fá tækifæri til að fljóta með, á
meðan þeir sem halda í úrelt viðskiptalíkön og stjórnmála-
hefðir skolast burt.
Undiralda upplýsingabyltingarinnar er að færa okkur í átt
til upplýstara samfélags þar sem allir hafa í ríkara mæli rétt á
að koma að ákvörðunum sem þá varðar. Þetta er framtíð-
arsýnin sem Píratar stefna að. Aðrir flokkar munu fylgja því
fordæmi eða tapa fylgi samhliða fjölgun þeirra sem nota int-
ernetið í ríkum mæli.
2013 var gjöfult Pírötum.
Árangur Pírata á árinu sýnir að eitthvað séum við að gera
rétt. Sem nýstofnaður flokkur komum við þremur á þing og
höfum frá kosningum tvöfaldað fylgið.
Árið byrjuðum við með skýra grunnstefnu sem end-
urspeglar nýja forgagnsröðun gilda fólks í nettengdum heimi
og skapaði þannig Pírötum sérstöðu. Án skýrrar stefnu er
hætt við að ungur stjórnmálaflokkur nái hvorki að haldast
saman né að ná eyrum kjósenda. Í kjarnann snýst grunn-
stefnan um að vernda og efla grunnréttindi fólks. Á manna-
máli þá segir hún að allir eigi rétt á því að koma að ákvörð-
unum sem þá varða og það á upplýstan hátt. Sérstaða Pírata
er svo fókusinn á réttindi sem eru netverjum kær, eins og upp-
lýsingafrelsi, friðhelgi einkalífs og beinna rafrænt lýðræði.
Í kosningabaráttunni náðum við að byggja á styrkleikum
fólks sem vildi taka þátt og að nýta frumkvæði þeirra. Þar sem
Píratar eru blessunarlega flestir mjög sjálfstæðir sættum við
okkur við mistök sem fylgja ómiðstýrðu skipulagi en upp-
skárum þess í stað miklu fleiri sjálfboðaliða sem sýndu frum-
kvæði og áhuga.
Á Alþingi höfum við nýtt tækifærin til að vernda og efla öll
grunnréttindi, en ekki aðeins þau sem internetið gerir mik-
ilvæg. Við settum því fókus á bætta réttarstöðu lántakenda.
Með góðu samstarfi á þinginu fyrir jól voru svo nauðung-
arsölur stöðvaðar fram til 1. september á komandi ári sem
skapar skjól m.a. þar til dómur fellur í máli Hagsmuna-
samtaka Heimilanna um lögmæti verðtryggingar á neyt-
endalánum.
Tækifærin 2014
Tækifæri lántakenda fyrir uppreisn æru eru mikil á árinu.
Áður en þessi grein er birt gæti hópur lántakenda verið laus
úr Dróma, því til stendur að lánin þeirra verði flutt yfir í Arion
banka fyrir áramót. Á fyrri hluta ársins mun svo dómur falla í
máli Hagsmunasamtaka Heimilanna um lögmæti verðtrygg-
ingarinnar. Niðurstöðu er líka að vænta um fyrirspurn Hæsta-
réttar Íslands til EFTA dómstólsins um lögmæti verðtrygg-
ingarinnar. Fjölmargir lántakendur geta svo um mitt árið sótt
um skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar upp að 4 milljónum
króna sem er borguð út á næstu fjórum árum. Við Píratar
munum fylgjast grannt með öllum þessum málum og þrýsta á
öflugari neytendavernd fyrir lántakendur í framtíðinni.
Tímaritið The Economist, ásamt helstu ráðgjafarfyr-
irtækjum heims, bendir á að næstu ár verða áfram gjöful fyrir
upplýsingatæknifyrirtæki. Framundan eru mikil tækifæri fyr-
ir lönd sem skapa netvænt umhverfi fyrir verðmætasköpun
með internetinu. Víðtæk rannsókn ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey sýnir að fyrirtæki í öllum geirum tvöfalda vöxt sinn
og útflutningstekjur með því að nýta sér internetið í miklum
mæli. Ragnheiður Elín iðnaðar- og viðskiptaráðherra er
áhugasöm um að skapa vistkerfi fyrir verðmætasköpun int-
ernetsins og mun leggja fram nýsköpunar- og atvinnustefnu
sína í upphafi árs og netverjar bíða spenntir eftir því. Ísland er
nú þegar í fjórða sæti á lista ráðgjafarfyrirtækisins The Bost-
on Consulting Group yfir þroska internetmarkaða. Við Píratar
munum leggja okkar af mörkum við að koma okkur í það
fyrsta.
Á nýja árinu verður nóg af málum sem eru Pírötum kær.
Bradley Manning og Edward Snowden hafa unnið hug og
hjörtu heimsbyggðarinnar og gert uppljóstrara að hetjum. Þó
að engin ný stjarna stígi fram á það sjónarsvið á komandi ári
þá er enn verið að fara í gegnum upplýsingarnar sem Snowden
lak til fjölmiðla. Friðhelgi einkalífsins verður áfram í brenni-
depli því fyrirtæki munu tapa og græða mikið eftir því hve vel
fólk treystir þeim fyrir persónuupplýsingunum sínum. Þar
sem við höfum hvorki her né leyniþjónustu á Íslandi getum við
með lagalegri sérstöðu um vernd á friðhelgi einkalífsins styrkt
verulega samkeppnishæfni landsins sem stað til að hýsa
gagnaver. Helmingur mannkyns verður nettengdur 2016 og
mestur vöxtur verður á nettengingum í gegnum snjallsíma
sem geyma mikið af upplýsingum í skýinu (gagnaverum). Rík-
isstjórnin ætlar að halda áfram vinnu við að Ísland skapi sér
lagalega sérstöðu varðandi upplýsinga- og tjáningarfrelsi sam-
kvæmt þingsályktun sem Birgitta lagði fram 2010 og allir 63
þingmenn samþykktu. Píratar munu svo bjóða fram í borginni
og mögulega annars staðar í vor. Svo það er mikið og
skemmtilegt starf framundan.
Við Píratar erum þakklátir fyrir móttökurnar á árinu sem er
að líða og hlökkum til að starfa með öllum sem deila okkar
framtíðarsýn á komandi ári, sama hvort eða hvar í flokki þeir
finnast. Óskum öllum farsældar á nýja árinu.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata
Morgunblaðið/Ómar
Þökkum móttökurnar
Krafan um gegnsæi hins opinbera og beinni að-
komu almennings að ákvörðunum ríkisins mun
því aðeins verða háværari. Þeir sem sjá undir-
öldu breyttra gilda fá tækifæri til að fljóta með, á
meðan þeir sem halda í úrelt viðskiptalíkön og
stjórnmálahefðir skolast burt.