Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
til þess fallin að draga úr
álitaefnum um túlkun og
inntak ákvæða laganna og
auka þar með traust ein-
staklinga á stjórnsýslunni og
réttaröryggi þeirra.
28.11. | Bogi Þór Arason
Krabbameinssjúku fólki
mismunað eftir búsetu
Hver er sparnaðurinn í raun
þegar heimahjúkrunin er
skorin svo við nögl að sjúk-
lingar geta ekki dvalið á
heimilum sínum og þurfa að
liggja í dýrum sjúkrarúmum?
30.11. | Óskar Bergsson
Aðalskipulag einsleits hóps
Ríkisstjórn, sem setti það í
stjórnarsáttmálann að mið-
stöð innanlandsflugsins yrði
áfram í Vatnsmýrinni, mun
aldrei geta staðfest þetta
skipulag.
3.12. | Þröstur Helgason
Úkraína og Ísland
Við stöndum frammi fyrir
sambærilegri spurningu.
Hvar eru pólitísk heimkynni
þjóðarinnar meðal þjóðanna?
4.12. | Hróbjartur Jónatansson
Erindi til almennings?
Það verður fróðlegt að sjá
hvort fleiri blaðamannaverð-
laun á Íslandi verða veitt fyrir
óleyfilega opinbera birtingu á
einkamálefnum fólks sem eiga
„erindi til almennings“ að mati dómstóla.
5.12. | Kristín Heimisdóttir
Refsað fyrir að ná árangri
Í því ljósi er algjörlega óskilj-
anlegt að Menntaskólinn í
Reykjavík skuli fá lægst fram-
lag allra framhaldsskóla á Ís-
landi.
6.12. | Árni Sigfússon
Við erum að mennta
okkur út úr kreppunni
Ég tek undir með fræðslu-
stjóra sem segir að skyn-
samlegasta leið okkar út úr
kreppunni sé að mennta
samfélagið.
7.12. | Jón Gerald Sullenberger
Yfir 3.500 manns vildu eignast
Season All-kryddið
Er kannski verið að skerða
vöruúrvalið í íslenskum mat-
vöruverslunum til þess að
vernda evrópskan mat-
vælaiðnað með viðskipta-
hindrunum?
9.12. | Helgi Sigurðsson
Hver ber ábyrgð
á misbeitingu valds?
Ljóst er að fjöldi fólks á besta
aldri hefur ekki getað starfað
með eðlilegum hætti vegna
tilhæfulausra ásakana.
10.12. | Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Árétting vegna
Heimspíanista í Hörpu
Áheyrendur höfðu á orði að
tónleikarnir hefðu verið ein-
hverjir þeir áhrifamestu sem
þeir hefðu heyrt. Ég get
heilshugar tekið undir það.
11.12. | Pétur Blöndal
Föst áskrift að gjaldeyristekjum
fyrir þjóðarbúið
Á síðasta ári greiddi áliðn-
aðurinn rúmlega 60 þúsund
reikninga fyrir innlendar
vörur og þjónustu, samtals
að upphæð um 40 milljarðar
króna, fyrir utan raforkukaup.
12.12. | Kristinn Þór Sigurjónsson
Húsaleigumarkaður
í heljargreipum
Sú hugmynd að leigumark-
aður hér á landi sé eins og
villta vestrið kristallast í
þessum tölum. Það er ekk-
ert aðhald eða regluverk
Morgunblaðið/RAX
25.10. | Jón Bjarnason
Gefum ekki eftir okkar
hlut í makrílveiðunum
Og alls ekki bogna fyrir ríkja-
sambandi sem í krafti stærð-
ar og óskammfeilni heldur
uppi hótunum um beitingu
valds eins og ESB hefur gert
gagnvart Íslendingum og Færeyingum.
Sild í Kolgrafarfirði
Mikill síldardauði var á
árinu í Kolgrafarfirði,
þar sem síldin synti nán-
ast upp á land.
26.10. | Magnús Örn Guðmundsson
Sjálfstætt Seltjarnarnes
Þrátt fyrir að skuldir á hvern
íbúa á Seltjarnarnesi séu enn
með því lægsta sem gerist á
landinu má ekki gleyma því
að stórar framkvæmdir sem
teknar væru að láni myndu breyta mynd-
inni mikið.
28.10. | Ragnheiður Davíðsdóttir
Heilbrigðisþjónusta innan
gæsalappa
Þegar gífurlegt álag á lækna
og annað heilbrigðisstarfs-
fólk bætist við, auk úr sér
gengins tækjabúnaðar, er að-
eins tímaspursmál hvenær
enn alvarlegri afleiðingar koma í ljós.
29.10. | Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
Að vekja hagkerfið okkar
Það má svo stýra með skatta-
kerfinu fjármagni inn á þau
svið sem hvetja til sköpunar
og athafna okkur öllum til
hagsbóta.
30.10. | Kristján Oddsson
Leit að brjóstakrabbameini
Það er ljóst að slök mæting
leiðir til verri árangurs í bar-
áttunni við þennan vágest
sem brjóstakrabbamein er.
31.10. | Ólafur F. Magnússon
Landsbyggðin svikin
í flugvallarmálinu
Borgarstjórnarkosningar eru
framundan og brýnt er að í
þeim kosningum verði það
valkostur að standa með
Reykjavíkurflugvelli.
1.11. | Geir Andersen
Hver tryggir Evrópu – Ísland?
Markmiðið þarf að vera það
sama, að berjast gegn
hryðjuverkastarfsemi, en um
leið með því að virða friðhelgi
einkalífsins.
2.11. | Börkur Gunnarsson
Herskip í borgarstjórn!
Best væri að setja eitt her-
skip frá NATO á lista sjálf-
stæðismanna og koma því
alla leið inn í borgarstjórn.
Og láta Jón Gnarr horfast í
augu við herskipið alla daga.
4.11. | Ari Edwald
Tillögur Illuga um
auglýsingar á RÚV
Ég vona að Staksteinar hafi
rétt fyrir sér um umfang
væntanlegra tillagna
menntamálaráðherra. Þá
verðum við Ragnar Reykás
örugglega báðir til að óska honum til ham-
ingju með það.
5.11. | Árni Björnsson
Moggalygin söm við sig
Við þessi umskipti gerðist
Morgunblaðið afar ósvífið í
allri pólitískri umfjöllun. Á
hinn bóginn hefur það haldið
því að vera að öðru leyti
vandað fréttablað og síðustu
hálfa öld sinnt menningarmálum ágæt-
lega.
6.11. | Ómar G. Jónsson
Kjósendur bíða úrlausna
ríkisstjórnarinnar
Svo langt var gengið að flest-
ar grunnstoðir þjóðarinnar
eru enn verulega laskaðar
sem og eignastaða og fram-
færslugeta hins almenna
borgara.
7.11. | Svanhvít Harðardóttir
Opið bréf til landlæknis
Tannlæknastofur eru lítil
munnsjúkrahús og því er
sjálfsagt að þær séu tengdar
ákveðnum upplýsingabanka
þar sem hægt er að nálgast
upplýsingar um hvern og einn sjúkling.
8.11. | Gunnar Einarsson
Sameiningin er
ekki íþyngjandi
Garðbæingar geta því áfram
glaðst yfir því að búa í sveit-
arfélagi þar sem vel er haldið
utan um fjármálin, útsvarið
er lægra en í flestum stærri
sveitarfélögum landsins.
11.11. | Ólína Þorvarðardóttir
Já, hver er
svo hæfastur?
Stjórnsýslulög veita ekki ger-
ræðisvald. Þarna var viðhöfð
geðþóttastjórnsýsla og regl-
ur háskólans brotnar. Sá
blettur verður seint máður af
skólanum.
12.11. | Geir Waage
Á þjóðkirkjan
eignir kirkna?
Mun þetta skipbrot málsins
hafa átt nokkurn þátt í því
samkomulagi ríkis og kirkju
sem gert var með þjóð-
kirkjulögunum árið 1997.
13.11. | Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Fjötrar stundatöflunnar
Núverandi stundatöfluskipu-
lag og kjarasamningar er
kerfisvilla sem hefur verulega
hamlandi áhrif á gæði skóla-
starfsins.
14.11. | Ólafur H. Jónsson
„Ríkispassi“ eða
náttúruverndargjald?
Þetta auðlindagjald ásamt
jafnháu framlagi ríkisins
mætti eingöngu renna til
þeirra staða sem ekki geta
eða treysta sér ekki til að
leggja út í gjaldtöku.
15.11. | Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyra ekki allir í mér?
Það þarf smáæfingu við að
tala í hljóðnema. Flestum
bregður í fyrstu og sumir
lækka röddina til að heyra
lægra í sér.
16.11. | Halldór Halldórsson
Hið lýðræðislega vald
Ég kem nýr að málefnum
borgarinnar með beinum
hætti en legg fram reynslu og
þekkingu á sveitarstjórn-
armálum og rekstri fyrirtækja.
19.11. | Roger Croft
Að gjörnýta jarðhita á Íslandi til
að leysa raforkukreppu Evrópu
Fyrirtæki sem þrífast á virkj-
anaframkvæmdum sem
leggja undir sig náttúruna og
gjörnýta auðlindir hennar
eiga ekki ráða ferðinni í
þessu máli.
20.11. | Þorsteinn Eggertsson
Afsak … ið
Ég hef heyrt mann halda því
fram að Íslendingar tali elsta
tungumál heimsins og búi í
minnsta landinu! Hvílík þjóð-
remba.
21.11. | Einar Stefánsson
Hvers vegna er Landspítalinn
í kreppu?
Það er ótrúlegt að svo veiga-
miklar ákvarðanir um fjár-
veitingar til Landspítala skuli
hafa verið teknar án sér-
stakrar umræðu og án þess
að opinber stefnumótun hafi farið fram.
22.11. | Ingibjörg Gunnarsdóttir og
Bryndís Eva Birgisdóttir
ÁTVR verður GÁTVR
Tillagan sem
sett er hér
fram gengur
ekki út á að
fjarlægja alfarið
gos- og svaladrykki af íslenskum markaði,
heldur eingöngu að takmarka aðgengi að
þessum heilsuspillandi vörum.
23.11. | Sigmundur Guðbjarnason
Hvernig má bæta minnið?
Vísindamenn hafa bent á að
algengasta orsök gleymsku
og aukins minnistaps hjá
eldra fólki sé aukaverkanir
lyfja.
25.11. | Pálmi Stefánsson
Darwin og þarmaflóran okkar
Samsetning flórunnar eða
öllu heldur innbyrðis barátta
örveranna fyrir tilverunni í
ristlinum ræðst af þeim mat
og magni sem við látum ofan
í okkur og endar í ristlinum.
26.11. | Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir
Hjúkrunarheimili á krossgötum
Aldraðir einstaklingar sem í
dag eiga undir högg að sækja
eru sá hópur fólks sem hefur
lagt landi okkar hvað mest í
auknum framförum með sínu
vinnuframlagi og sköttum.
27.11. | Sara Lind Guðbergsdóttir
Bótasvik – tjón okkar allra
Skýr og gagnsæ löggjöf á þessu sviði væri
sem ver leigutaka gegn hækkunum á leigu
umfram þróun íbúðarverðs.
13.12. | Sjöfn Þórðardóttir
Njótum þess að lesa
með börnunum um jólin
Lestur er undirstaða alls
náms og því er mikilvægt að
við vinnum öll saman að því
markmiði að efla lestrar-
áhuga og auka færni nem-
enda í lesskilningi.
14.12. | Toshiki Toma
Friður sé með oss
Samt verðum við að segja að
þessi skilgreining á friði, að
friður sé staða þar sem ekk-
ert stríð sé í gangi, sé frekar
óvirk skilgreining. Er sérhvert
samfélag án stríðs sannarlega friðsælt
samfélag?
16.12. | Gunnar Þórarinsson
Að njóta gæða náttúrunnar
Fórnarkostnaður þess að
tefja virkjanir og þar með
sölu á raforku til fyrirtækja,
sem hafa bolmagn til að
greiða það orkuverð sem
skilar virkjunum og þjóðarbúinu arðsemi
til langframa er óbærilegur.
18.12. | Ari Gísli Bragason
Kaþólska kirkjan á tímamótum
Þau mörgu tilvik sem áttu
sér stað eru skelfileg og
verulega ámælisverð, ekki
síður hvernig þáverandi þjón-
ar kirkjunnar og aðrir sem
eru reyndar enn starfandi innan kirkjunnar
leyndu upplýsingum.
19.12. | Einar S. Hálfdánarson
Um Al Thani-málið
Þá er til vansa fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur að nota
orðalag eins og „hlaut hon-
um að vera ljóst“ án þess að
skýra það nánar til að fella
sök á mann og telja það fullgilda sönnun
um sekt.
20.12. | Guðríður Arnardóttir
Nú erum við sammála,
Gunnar Birgisson
Nú reynir á, Gunnar Birg-
isson hefurðu kjark þegar á
reynir að ganga gegn fé-
lögum þínum í meirihlut-
anum og móta með okkur
hinum tillögu um byggingu leiguhúsnæðis
í Kópavogi?
21.12. | Ármann Kr. Ólafsson
Gunnar og Guðríður á hraðferð
Í svo stórum og fjárfrekum
málum sem húsnæðismálin
eru þarf að vanda til verka
enda er verið að horfa til
langrar framtíðar af hálfu rík-
isstjórnar. Sem ég tel að sé rétt nálgun.
23.12. | Jónína Erna Arnardóttir
Kýr í stað flugvallar
í Vatnsmýrina
Stjórnmál snúast ekki bara
um krónur og aura heldur
einnig um pólitík og stefnu.
Ég spyr mig hvort þetta sé
virkilega pólitík núverandi
ríkisstjórnar og ég auglýsi einnig eftir
byggðastefnu hennar.
27.12. | Tinna Þorsteinsdóttir
Vanlíðan um jólin
Ef markmiðið er að eiga
notaleg jól getur ekki talist
vænlegt til árangurs að halda
í það sem skilar hinu gagn-
stæða.
28.12. | Sigrún Magnúsdóttir
Þjóð á tímamótum
Markverð þáttaskil eru hjá
íslensku þjóðinni um þessi
áramót. Hallalaus fjárlög
hafa verið afgreidd og nýir
kjarasamningar um aukinn
kaupmátt undirritaðir á vinnumarkaði.