Morgunblaðið - 31.12.2013, Qupperneq 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Starfsfólk
Krumma óskar
landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári
og akkar vi skiptin
á árinu sem er
a lí adl
l
dl
l
dl
ld
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú nýtur þess að vera með vinum
þínum í dag. Maður skilur ýmislegt með því
að ferðast aftur í æsku í huganum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þolinmæði er dyggð, en ekki endilega
hátt skrifuð í samfélagi sem einkennist af
flýti. Ekki flýta þér um of.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Taktu enga áhættu því það skilar
þér engu þegar til lengri tíma er litið. Það
væri frískandi að rabba við einhvern í hrúts-
merkinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver í fjölskyldunni lætur orð
falla sem gætu eyðilagt eða bjargað deg-
inum. Við njótum öll góðs af styrk annarra á
einn eða annan hátt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ævintýraþráin blundar í þér. Þú ert
gædd/ur nægilegu velsæmi til þess að forð-
ast góðan smekk ef hann er litlaus.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gættu þess að bregðast ekki of hart
við minniháttar málum. Ef friðsæld er það
sem þú þráir, þarftu að stýra umhverfi þínu
af vægðarleysi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Brjóttu til mergjar leyndarmál tengd
peningum í dag. Marseraðu fram með þá
valkosti sem færa þér það sem þú vilt – og
innri andstæðingurinn heldur sig til hlés.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Farðu þér hægt og taktu and-
mæli annarra ekki of nærri þér því þú ert á
réttri leið eins og koma mun í ljós. Taktu
það ekki nærri þér þótt það fari framhjá
öðrum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert einskonar lausnari í dag,
þótt það sé meira í formi leiðbeininga.
Sláðu ekki slöku við eigin rannsóknir, þær
færa þér svarið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt einkamálin séu þýðing-
armikil, verður þú að læra að skilja á milli
þeirra og starfsins. Gættu þess að láta ekki
letina ná tökum á þér því þá er verr farið en
heima setið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu afleiðingum gjörða þinna
og mundu að til þess að ná árangri þarftu
að leggja þitt af mörkum. Hikaðu ekki við að
spyrja ráða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einlægni er það sem þú þarft að
hafa í huga, þegar þú talar fyrir þeim mál-
efnum, sem þú berð fyrir brjósti. Ef þú sýnir
tillitssemi munu aðrir hlusta á þig.
Ágamlárskvöld 1871 bjugguststúdentar og skólapiltar sem
álfar: gengu þeir í tveim fylkingum
frá holtinu austan við tjörnina í
Reykjavík og báru blys hver í hönd-
um; sungu þeir á leiðinni vísur (eftir
annan höfund). Á miðri tjörninni
hittust þeir og slógu í hringdans á
svellinu. Við dansinn sungu þeir
fyrra kvæðið hér á eftir. Síðan
gengu þeir í fylking frá dansinum
vestur yfir tjörn og upp á Hólavöll
og hurfu þar vestur af. Á leiðinni frá
dansinum sungu þeir síðara kvæð-
ið.“
Þetta er inngangurinn að kvæð-
inu „Máninn hátt á himni skín“ eftir
Jón Ólafsson í ljóðabók hans
„Söngvar og kvæði (1866 – ‘77)“
sem út kom á Eskifirði árið 1877.
Fyrsta erindið í fyrra kvæðinu,
Álfadansinn, kunna allir Íslend-
ingar. Lagboðinn er „Góða
skemmtun gjöra skal“.
Einn:
Máninn hátt á himni skín
hrímfölur og grár.
Líf og tími líður
og liðið er nú ár.
Allir:
Bregðum blysum á loft,
bleika lýsum grund.
Glottir tungl, en hrín við hrönn
og hratt flýr stund.
Kvæðið er níu erindi. Þetta er
fjórða erindið:
Komi hver sem koma vill!
Komdu, nýja ár!
Dunar dátt á svelli,
dunar ísinn blár.
Í næstu vísum er þess síðan beðið,
að hið nýja ár færi „unað yndi og
heill / öllum vættum lands“, – bónd-
anum björg og heyja-gnótt og reki
fiskinn á mið. Síðara kvæðið „Braut-
förin frá dansinum“, sem sungið var
undir laginu „Táp og fjör og frískir
menn“ er gleymt og hef ég aldrei
heyrt það sungið. Það er níu erindi
og byrjar.þannig:
Einn:
Dans er hættur; höldum brott!
Hér var svell að dansa á gott.
Heim er mál að halda nú;
höldum lengra, flytjum bú.
Allir:
Yfir frer förum vér.
Fagurt er á landi hér!
Fögnum ári nýju nú;
nýtt við skulum reisa bú.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Álfasöngvar og
dansar á nýársnótt
Í klípu
„ÉG FÉKK STARFIÐ! VIÐ SKULUM FAGNA ÞVÍ,
EN EKKI OF MIKIÐ. ÉG ÞARF AÐ VERA MEÐ
ÞENNAN ÖKKLASENDI ÞAR TIL ÞRIGGJA
MÁNAÐA REYNSLUTÍMINN ER BÚINN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SEGÐU BARA EITTHVAÐ UM
HVERNIG ER AÐ BÚA HÉRNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna ástarbréf frá
henni í vinnupóstinum.
FYRIR UTAN
HELLING AF NÝJUM
HÚSGÖGNUM ...
... VEISTU
HVAÐ OKKUR
VANTAR?
NEI,
HVAÐ?
NÝJAN
VARÐHUND.
ELLA, ÉG VILDI BARA SEGJA
ÞÉR AÐ ÉG Á STEFNUMÓT Á
FÖSTUDAGINN!
JÁ, MEÐ
SPENDÝRI!
VERTU BLÍÐUR,
HÚN ER Í
SÁRUM.
Knattspyrnumaðurinn NicolasAnelka hleypti öllu í bál og
brand í heimalandi sínu, Frakk-
landi, um helgina þegar hann fagn-
aði marki fyrir lið sitt, West Brom-
wich Albion, í ensku úrvalsdeildinni
með kveðju sem tengd hefur verið
við nasista og þykir lýsa fordómum
í garð gyðinga.
Anelka hefur varið gjörðir sínar
og kveðst aðeins hafa verið að lýsa
yfir stuðningi við vin sinn, spéfugl-
inn Dieudonné M’bala M’bala, en
hann hefur gert téða kveðju að ein-
kennismerki sínu.
Gjörningur Anelkas, sem er
múslimi, hefur vakið hörð viðbrögð
í Frakklandi og hafa stjórn-
málamenn, til hægri jafnt sem
vinstri, lýst vanþóknun sinni á
honum og krafist þess að leik-
manninum verði refsað. Enska
knattspyrnusambandið rannsakar
nú málið og verði Anelka fundinn
sekur um „óviðeigandi hegðun“
gæti hann átt leikbann yfir höfði
sér.
x x x
Dieudonné M’bala M’bala er afarumdeildur í Frakklandi og ný-
verið hótaði innanríkisráðherra
landsins, Manuel Valls, að setja
lögbann á uppistand hans með
þeim rökum að það ógnaði þjóð-
aröryggi. „Tjáningarfrelsið er heil-
agt en ekki kynþáttafordómar, gyð-
ingahatur og glæpir,“ sagði Valls.
M’bala M’bala hefur margoft lát-
ið vafasöm ummæli falla um gyð-
inga og í síðustu viku svaraði hann
blaðamanninum Patrick Cohen,
sem er gyðingur, á þennan veg:
„Þegar ég heyri í Patrick Cohen,
segi ég við sjálfan mig: Gasklef-
arnir. Verst að þeir eru ekki lengur
til.“
x x x
M’bala M’bala hefur einnig veriðsektaður fyrir að gera gys að
helförinni í sönglagatexta. Hefur
hann til að mynda kallað minning-
arathafnir henni tengdar „minn-
ingaklám“.
M’bala M’bala er á leið í ferð um
landið með uppistand sitt eftir ára-
mótin en í ljósi síðustu atburða eru
nokkrar borgir þegar gengnar úr
skaftinu. Vilja ekki spyrða sig við
boðskap hans. víkverji@mbl.is
Víkverji
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á
vegum mínum.
(Sálmarnir 119:105)