Morgunblaðið - 17.01.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.01.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2014 Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Verð: 3.990.000 kr. Volkswagen Passat Highline ALN62 Skráður mars 2011, 1,4i metan, sjálfsk. Ekinn 37.000 km. Verð: 2.790.000 kr. Citroën C4 Comfort SNZ90 Skráður mars 2013, 1,6i dísil, beinskiptur Ekinn 29.000 km. Tilboð: 1.990.000 kr. Mitsubishi Pajero GLX4x4 ZY404 Skráður júlí 2005, 3,2Di dísil, sjálfsk. Ekinn 188.000 km. Ásett verð: 2.390.000 kr. Við tökum notaðabílinn þinn uppí áhagstæðu verði og þúgetur fengið milligjöfinalánaða - möguleiki áengri útborgun. Fylgstu með á FACEBOOK Notaðir bílar - Brimborg NOTAÐIR BÍLAR MIKIÐ ÚRVAL Komdu. FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS TÖKUM ALLAR GERÐIR BÍLA UPPÍ! Gerðu betri Tilboðsbílarnir fara beint á Facebook! Í ábyrgð bílakaup! Tilboð: 2.990.000 kr. Ford Focus Trend Edition JTE22 Skráður apríl 2013, 1,6TDCi dísil, beinsk. Ekinn 31.000 km. Ásett verð: 3.190.000 kr. NOTAÐUR UPP Í NOTAÐAN! BÍLALÁN ALLT AÐ100%FJÁRMÖGNUN Í ábyrgð BÍLADÍLL Hafðu sambandstrax! DAGSINS! Tilboð: 1.690.000 kr. FordMondeo Titanium JZK97 Skráður ágúst 2008, 2,2i bensín, sjálfsk. Ekinn 104.000 km. Ásett verð: 1.950.000 kr. við hnig hans. Þetta gerist vænt- anlega ekki lengur á Okinu, jökl- inum sem í barnaskólalandafræði var sagður minnsti frístandandi jök- ull landsins. Úr 16 í 0,7 ferkílómetra Ýmsir smájöklar, sem sumir hafa hlotið nafn, eru horfnir. Má þar nefna Forsælu-, Hattar- og Snót- arjökul í Kerlingarfjöllum sem hurfu um 1970. Morsárjökull, sem var skriðjökull úr Hofsjökli í Lóni, varð að engu og á Tröllaskaga sjást greinilega ummerki eftir jökla. „Enginn þessara jökla er eins kunn- ur og Okjökull. Að þeir hverfi svona má án vafa rekja til hlýnandi veðr- Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sá nafntogaði jökull, Okjökull, er að öllum líkindum úr sögunni. Þetta segir Oddur Sigurðsson jöklafræð- ingur. Myndir og fyrirliggjandi upp- lýsingar benda til þessa, það er að jökullinn uppfylli ekki lengur þau viðmið að hægt sé að nefna hann jök- ul. „Við ætluðum að gera út leið- angur á Okið í haust en komumst ekki fyrir snjóa. Munum því bíða fram á sumarið með mælingar en okkur virðist allt hníga í sömu átt. Jökullinn virðist vera orðinn dauðís, það er að segja hreyfingarlaus,“ seg- ir Oddur sem sinnt hefur mæl- ingum og rann- sóknum á jöklum landsins í áratugi. -En hvað er jök- ull? Þumalputt- aregla vísinda- manna er sú að jökullinn hnígi eða skríði fram undan eigin fargi og til þess þurfi hann að vera 40-50 metra þykkur. Ekki eru líkur til að sprungur myndist í jöklinum nái hann ekki að hníga. Einnig að svelg- ir sem myndast í hlýindum á sumrin niður í gegnum jökulísinn sígi saman áttu, ekki síst síðastliðin tuttugu ár eða þar um bil,“ segir Oddur. Ok er tæplega 1.200 metra há dyngja, vestan Kaldadals en þar er nyrsti hluti leiðarinnar frá Þingvöll- um í Húsafell í Borgarfirði sem er afar fjölfarinn ferðamannavegur yfir sumartímann. Á fjallinu er gígur og er eða var sjálfur jökullinn norðan hans. Árið 1890 var Okjökull 16 fer- kílómetrar að flatarmáli, en hefur minnkað jafnt og þétt síðan og var orðinn aðeins fjórir km2 um aldamót- in síðustu. Sumarið 2012 mældist jökulinn aðeins 0,7 km2 og er talið ósennilegt að hann hafi stækkað að ummáli síðan þá sé mið tekið af veðráttu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Okið á miklu á undanhaldi  Kunnur jökull á Kaldadal talinn heyra sögunni til að mati vísindamanna  Hefur farið úr 16 ferkílómetrum í 0,7 á rúmri öld Oddur Sigurðsson Flugsýn Horft yfir Okið sem er um 1.200 metra há dyngja. Fremst og áberandi á myndinni er gígurinn á fjallinu, en við hans sést jökullinn sem var. Barnaskólajökullinn bráðinn Að jafnaði urðu meira en 14 vinnuslys á degi hverjum árið 2012 samkvæmt tölfræði Slysa- skrár Íslands eða 5.287 slys. Þetta kemur fram í nýju rafrænu fréttabréfi sem VÍS hleypti af stokkunum í gær. Kostnaður vegna vinnuslysa leggst ekki aðeins á fyr- irtækin sjálf heldur líka samfélagið í heild. Erlendar rannsóknir benda til þess að allt að 4% af landsfram- leiðslu þjóða glatist vegna vinnu- slysa og atvinnutengds heilsutjóns. Á forvarnaráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins 6. febrúar nk. verður fjallað um vinnuvernd og öryggismál frá mörgum hliðum. „Að stjórna eða fórna er beinskeytt ádrepa til stjórnenda um þeirra hlutverk í öryggismálum,“ segir í tilkynningu frá VÍS en meðal fyr- irlesara verður Vilborg Arna Giss- urardóttir, þá nýkomin af toppi Aconcagua í Suður-Ameríku. 14 vinnuslys að jafn- aði á degi hverjum „Það er ekkert til sem heitir könnunarvið- ræður, ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann. Ef menn sækja um aðild að Evr- ópusambandinu þá vilja menn ganga í Evrópu- sambandið á forsendum þess og þessi ríkisstjórn vill ekki ganga í Evrópusambandið.“ Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í sérstakri umræðu um stöðu um- sóknarinnar um inngöngu Íslands í Evrópusambandið sem fram fór á Alþingi í gær. Málshefjandi var Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar. Kallaði Árni eftir því að fram færi þjóðaratkvæði um framhald umsóknarinnar samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. „Vill ekki ganga í Evrópusambandið“ Sigmundur Davíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.