Morgunblaðið - 08.04.2014, Page 1
Stofnað 1913 83. tölublað 102. árgangur
Þ R I Ð J U D A G U R 8. A P R Í L 2 0 1 4
LITADÝRÐ
OG GÓÐUR
BOÐSKAPUR
TRYMBILL
SEM ELSKAR
TRYLLITÆKI
BÖRN HVÖTT
TIL AÐ SEMJA
EIGIN TÓNLIST
NICK MASON BÍLAR UPPTAKTURINN 10BOLLYWOOD 38
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Borgaryfirvöld vilja stórefla
hjólreiðar á kostnað einkabílsins.
Borgaryfirvöld í Reykjavík
þrengja markvisst að einkabílnum í
því skyni að efla vistvænar sam-
göngur, ferðir með almennings-
vögnum og hjólreiðar. Þetta kemur
fram í fréttaskýringu í Morgun-
blaðinu í dag. Fram kemur að í nýju
aðalskipulagi höfuðborgarinnar sé
það yfirlýst stefna að breyta um-
ferðarkerfinu og þar með dag-
legum ferðavenjum borgarbúa.
Stefnunni hafi þegar verið komið í
framkvæmd með þrengingu gatna,
fækkun bílastæða og með því að
hætta við gerð mannvirkja, svo sem
mislægra gatnamóta, sem greiða
fyrir bílaumferð. Á móti sé staða
gangandi og hjólandi umferðar og
almenningssamgangna bætt veru-
lega. »16-17
Vistvænar sam-
göngur komi í
stað einkabílsins
Skiptar skoðanir eru meðal for-
ystumanna stjórnmálaflokka og fé-
lagasamtaka um skýrslu Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands um
aðildarviðræður Íslands við ESB.
Vigdís Hauksdóttir, formaður
Heimssýnar, gagnrýnir vinnu-
brögð við skýrslugerðina og Birgir
Ármannsson, formaður utanríkis-
málanefndar, segir niðurstöður
skýrslunnar „einkennast af full-
mikilli bjartsýni eða jafnvel ósk-
hyggju“. Jón Steindór Valdimars-
son, formaður Já Ísland, segir
skýrsluna sýna að mörgum spurn-
ingum sé ósvarað og þeim verði
ekki svarað nema aðildarferlið
verði klárað.
Fram kemur í skýrslunni að
fimm þættir hafi tafið viðræður og
að makríldeilan hafi komið í veg
fyrir að hægt væri að opna kaflann
um sjávarútveg áður en hlé var
gert á viðræðum.
MESB-skýrsla » 12, 14 og 19
Vinnubrögð við
skýrsluna gagnrýnd
Skiptar skoðanir um ESB-skýrslu Síldin við Snæfellsnes
Loftmyndir ehf.
Leiðangurslínur
Snæfellsnes
Mestur þéttleiki
síldarinnar
Sá hluti stofns íslenskrar sumar-
gotssíldar sem ekki skilaði sér í rann-
sóknum í fyrrahaust er fundinn út af
Snæfellsnesi. Vísbendingar bárust
frá loðnuskipum fyrir um mánuði að
síld væri að finna í Kolluál. Það var
staðfest þegar Hafrannsóknastofnun
mældi þar rúmlega 200 þúsund tonn í
síðustu viku. Þekkt er að síldin hafi
áður haft vetursetu í Kolluál og á
Látragrunni.
Guðmundur J. Óskarsson fiski-
fræðingur segir að ef þessi síld hefði
ekki skilað sér hefði þurft að taka til-
lit til þess í stofnmati, sem hefði síðan
leitt til ráðgjafar um minni veiði.
Stofnmatið og veiðiráðgjöfin verði nú
væntanlega í meiri takti við það sem
verið hefur síðustu ár, að sögn Guð-
mundar.
Í fyrrasumar var talið að hrygn-
ingarstofninn hefði verið tæplega hálf
milljón tonna. Áætlað er að um 200
þús. tonn af blandaðri síld hafi verið í
Breiðamerkurdýpi í vetur og um 70
þúsund tonn í Kolgrafafirði. Heimilt
var að veiða 87 þús. tonn af sumar-
gotssíld á vertíðinni í haust og vetur.
Um mánaðamótin var búið að veiða
um 66.500 tonn á fiskveiðiárinu. »6
Týnda síldin fundin
Stór hluti hrygningarstofnsins hafði vetursetu í Kolluál
Fólk notar mismunandi aðferðir til að halda sér í
líkamlegu formi. Jorge Arias Parra æfir sig í
leiktækjunum á Klambratúni á meðan aðrir fara
í ræktina eða hlaupa úti. Spáð er þokkalegu úti-
vistarveðri næstu daga þótt áfram megi búast
við skúrum sunnanlands og éljum norðanlands.
Morgunblaðið/Golli
Æfir sig í
leiktækjunum
Sérbruggaður
bjór, Jörundur,
verður á kran-
anum í öl- og
matstofu í Aust-
urstræti sem
verður opnuð á
næstu dögum.
Staðurinn er
nefndur eftir Jör-
undi hundadaga-
konungi sem var
allsráðandi á Íslandi árið 1809 og sat
þá í Austurstræti 22, en einmitt þar
er nýi staðurinn sem Þórir Gunn-
arsson veitingamaður mun reka. »4
Þórir opnar Jörund
í Austurstrætinu
Þórir
Gunnarsson
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ráðgert var að fyrsta vinnustöðvun
flugvallarstarfsmanna Isavia myndi
hefjast klukkan 4 í morgun og standa
til klukkan 9. Áhrifanna mun gæta
fram á morgun. Flugstöðin á Kefla-
víkurflugvelli verður opin, en ekki
verður byrjað að innrita farþega fyrr
en kl. 9 og er gert ráð fyrir að öllu
morgunflugi seinki um þrjá til fjóra
klukkutíma vegna þessa.
Boðað hefur verið til frekari vinnu-
stöðvana 23. og 25. apríl nk. og verk-
falls frá og með 30. apríl hafi ekki ver-
ið samið þá.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir að sjö vélar
frá Bandaríkjunum til Íslands sem
áttu að lenda á sjöunda tímanum muni
lenda rétt upp úr kl. 9. Sú töf hafi
keðjuverkandi áhrif á flug til Evrópu.
Seinkun verði því á flugi félagsins
næsta sólarhringinn. Í heildina sé
gert ráð fyrir að um 38 ferðir raskist
hjá Icelandair vegna stöðvunarinnar.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, segir að tafir
verði á þremur ferðum félagsins, en í
morgun átti að fljúga til London og
Kaupmannahafnar. Þá muni flugi
WOW air til Berlínar kl. 15.25 einnig
seinka. Svanhvít segir að aukavél hafi
verið útveguð, þannig að síðdegisflug
WOW til London verður á áætlun.
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að áætlað sé að vinnustöðvun
einn morgun hafi áhrif á tæplega
6.000 farþega. Helga segir að seink-
unin sem fylgi muni hafa tímabundin
áhrif á ferðaþjónustuna en að hún hafi
ekki heyrt af neinum afbókunum
vegna aðgerðanna.
Flug tefst í 3-4 klukkutíma
Vinnustöðvun starfsfólks Isavia í morgun Hefur áhrif á um 6.000 farþega
Hefur áhrif á allt flug hjá Icelandair Tafir á þremur ferðum hjá WOW air
Tafir á flugi
» Vélar Icelandair frá Banda-
ríkjunum munu lenda upp úr
kl. 9. Annað flug Icelandair
tefst um 3-4 tíma.
» Flug WOW til London og
Kaupmannahafnar tefst til
kl. 10.30.
» WOW leigir aukavél fyrir
síðdegisflugið.