Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
flottir í flísum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Húsið við Austurstræti 16, sem lengstum hýsti
Reykjavíkurapótek og síðan ýmsa veitinga-
starfsemi, gengur nú í gegnum mikla endurnýjun,
en þar verður nýr veitingastaður opnaður í haust.
Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og
byggt árið 1916. Ytra byrði þess og hluti innrétt-
inga var friðað árið 1991. Í gær var verið að moka
út úr kjallara hússins og er það hluti af endurnýj-
uninni.
Morgunblaðið/Golli
Austurstræti 16 fær enn eitt hlutverkið og mun hýsa nýjan veitingastað í haust
Mokað út úr kjallara
Reykjavíkurapóteks
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Markmiðið er að færa upplýsingar
um veður, færð og aðstæður til
ferðamanna,“ segir Jónas Guð-
mundsson, verkefnastjóri slysa-
varna ferðamanna hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg. Fyrsti
skjárinn í nýju skjáupplýsingakerfi
SafeTravel var tekinn í notkun á Ol-
ís-stöðinni í Norðlingaholti í gær.
Upplýsingagjöf til ferðafólks er
eitt mikilvægasta atriðið í forvörn-
um, ekki síst hér á landi þar sem veð-
ur breytist hratt og náttúran leikur
stærra hlutverk í ferðalaginu en víða
annars staðar. „Við höfum rekið vef-
inn SafeTravel og náð góðum ár-
angri með honum. Nú erum við að
taka verkefnið einu skrefi lengra og
færa það út á þá staði sem ferða-
mennirnir koma á,“ segir Jónas.
Stefnt er að því að skjáir verði komn-
ir upp á um 30 fjölförnum ferða-
mannastöðum innan þriggja ára og
vonast Jónas til að fimm til tíu verði
komnir upp fyrir sumarið. Sam-
kvæmt því ættu upplýsingarnar að
ná til hundraða þúsunda ferðamanna
í sumar og nokkur hundruð þúsund
muni geta notið þeirra eftir þrjú ár.
Staðbundnar upplýsingar
Á skjánum rúlla upplýsingar um
veður, færð á vegum og almenn heil-
ræði við ferðalög og akstur.
Upplýsingarnar eru staðbundnar,
þannig sýnir skjárinn á Norðlinga-
holti færð á vegum á Reykjanesi og
nágrenni, birtir veðurspá fyrir svæð-
ið og útsýnið úr vefmyndavélum á
Hellisheiði og víðar. Upplýsingarnar
eru á ensku.
Upplýsingar til ferðafólks
SafeTravel vonast til að ná til hundraða þúsunda ferðamanna með nýju
skjáupplýsingakerfi Veður, færð og almenn heilræði sjást á skjánum
Morgunblaðið/Kristinn
Öryggi Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, opnaði upplýs-
ingavefinn á Olís-stöðinni á Norðlingaholti, með Jónasi Guðmundssyni.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Kynning á nýjum kjarasamningi
framhaldsskólakennara hófst í gær
með fundi í Tækniskólanum um
fimmleytið, en þar var farið yfir
helstu atriði samningsins með kenn-
urum skólans. Kynningu á samn-
ingnum lýkur á fimmtudaginn og
hefst svo atkvæðagreiðsla um samn-
inginn á föstudag.
Elna Katrín Jónsdóttir, sérfræð-
ingur hjá Félagi framhaldsskóla-
kennara, segir að sér hafi sýnst
kennarar Tækniskólans taka vel í
samninginn. Mikið hafi verið spurt
út í samninginn, enda sé hann mjög
yfirgripsmikill. „Ég gat ekki heyrt
annað en að mörgum fyndist þetta
mjög athyglisverður árangur. Það er
um mjög margt að hugsa, það er
bæði laun og launaþróun, en svo er
líka verið að mæta nýjum framhalds-
skólalögum og stefnt á algjörlega
nýtt vinnumat,“ segir Elna Katrín.
Breytingarnar séu því nokkuð mikl-
ar.
Kosning hefst á föstudaginn
Guðríður Arnardóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, seg-
ir að kynningarfundirnir muni halda
áfram og standa fram á fimmtudag-
inn næsta. Í dag og á morgun verða
fundir í Verzlunarskólanum og í
Flensborg, þar sem kennarar í fram-
haldsskólum á höfuðborgarsvæðinu
fá að kynna sér samninginn. Þá verði
samningurinn kynntur á morgun á
Akureyri og á Akranesi og Suður-
landi á fimmtudaginn. „Við byrjum
að greiða atkvæði á föstudaginn,
þannig að við ætlum að vera búin að
kynna þetta á fimmtudaginn,“ segir
Guðríður.
Í kjarasamningnum er gert ráð
fyrir að niðurstaða kosningarinnar
liggi fyrir 23. apríl næstkomandi kl.
16. Guðríður segir að hún muni hitta
kjörstjórn í dag og að þar verði farið
nánar yfir framgang kosninganna.
Guðríður segir að ekki sé búið að
ákveða hvenær kosningunni ljúki, en
að það verði í síðasta lagi hinn 22.
apríl, eða degi áður en niðurstaðan
liggi fyrir. Kosningin verður rafræn.
Samningurinn kynntur
framhaldsskólakennurum
Morgunblaðið/Golli
Í verkfallinu Framhaldsskólakenn-
arar voru í verkfalli í 3 vikur.
Fundað með
kjörstjórn í dag
Velferðarnefnd
Alþingis leggur til
að frumvarpi um
breytingu á lögum
um brottnám líf-
færa, þar sem lagt
er til að lögfest
verði svokallað
ætlað samþykki
fyrir líffæra-
gjöfum látinna
einstaklinga,
verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Nefndin telur ekki tímabært að
leggja til þá grundvallarbreytingu að
í löggjöf skuli gert ráð fyrir ætluðu
samþykki fyrir líffæragjöf. Er það
fyrst og fremst vegna þess að reynsla
annarra þjóða hefur sýnt að laga-
breyting ein og sér hefur ekki til-
ætluð áhrif og getur vegið að sjálfs-
ákvörðunarrétti einstaklinga.
Nefndin telur jafnframt brýnt að
leitað verði leiða til að fjölga líf-
færagjöfum frá látnum ein-
staklingum og segir að lagabreyting
sem þessi geti verið ein þeirra að-
ferða sem koma til greina. Nefndin
tekur undir tillögu aðstandanda
manns sem lést í kjölfar bílslyss fyrr
á árinu um að einn dagur á hverju ári
verði gerður að degi líffæragjafa til
að minna á mikilvægi málefnisins.
kij@mbl.is
Ekki gert
ráð fyrir
samþykki
Spítali Læknar
að störfum.
Hugmynd um ár-
legan dag líffæragjafa
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverf-
isráðherra sagði á Alþingi í gær að
plast væri stórkostleg umhverfisvá.
Hann sagði að þróunin í þessum efn-
um væri ekki góð, ekki bara hér á
landi, heldur víða á Vesturlöndum.
Úrbóta væri þörf enda hlytist af
plastumbúðum mikill kostnaður sem
lenti á skattgreiðendum. Hann benti
jafnframt á að frumvarp um úr-
gangsmál lægi fyrir á Alþingi.
Sigurður svaraði fyrirspurn Mar-
grétar Gauju Magnúsdóttur, vara-
þingmanns Samfylkingarinnar, en
hún kom af stað átaki á sam-
skiptasíðunni Facebook þar sem
hvatt er til að draga úr magni plast-
umbúða.
Umbúðir eru
umhverfisvá