Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía GWalthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
„...Virkilega vönduð, lipur
og góð þjónusta“
Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha,
til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann
fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr
að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni.
Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst
og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha.
Kv. Áslaug og Benni
820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Framkoma Reykjavíkurborgar í garð
eigenda flugskýla í Fluggörðum á
Reykjavíkurflugvelli hefur vakið
furðu hjá Alfhild Nielsen, talsmanni
hagsmunaaðila á svæðinu.
„Af hálfu Reykjavíkurborgar
liggja fyrir skipulagsáætlanir sem
miða að því að breyta Flug-
garðasvæðinu í íbúabyggð. Hér virð-
ist stefnt að eignaupptöku á mann-
virkjum en Reykjavíkurborg hefur
lítið sem ekkert samráð haft við þing-
lýsta eigendur mannvirkja á svæð-
inu,“ segir Alfhild en samþykkt var
nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í borg-
arstjórn í síðustu viku sem gerir ráð
fyrir því að öll flugstarfsemi víki af
svæðinu strax á næsta ári. „Hér er
verið að setja allt kennslu- og einka-
flug á landinu í uppnám. Það flug hef-
ur ekki verið velkomið á Keflavík-
urflugvöll og því á það ekki í nein
önnur hús að venda eins og stendur.“
Mikil starfsemi er í Fluggörðunum
en þar eru um 85 flugvélar á hverjum
tíma í rúmum 8.000 fermetrum og að
starfsemi svæðisins koma mörg
hundruð manns að sögn Alfhildar.
Á ekki að koma á óvart
S. Björn Blöndal, varaborg-
arfulltrúi Besta flokksins og aðstoð-
armaður borgarstjóra, segir nýsam-
þykkt deiliskipulag vera í samræmi
við áform Reykjavíkurborgar um
framtíðarnýtingu flugvallarsvæð-
isins. „Bæði í síðasta aðalskipulagi og
núgildandi aðalskipulagi er gert ráð
fyrir því að flugvöllurinn fari og fleiri
en eitt samkomulag hefur verið gert
við innanríkisráðuneytið um að
kennslu og einkaflug flytji annað,“
segir Björn.
Spurður um mögulega eignaupp-
töku á svæðinu segist hann ekki geta
svarað því á þessu stigi málsins.
„Ekkert mat liggur fyrir um verð-
mæti eigna á svæðinu og ég get ekki
svarað því núna hvort og þá hvernig
staðið verður að eignaupptöku.“
Virðingar- og skilningsleysi
Fulltrúar Félags íslenskra einka-
flugmanna, FÍE, og hagsmunaaðila á
Fluggörðum, Bygg á BIRK, áttu
fund með borgarstjóranum í Reykja-
vík, Jóni Gnarr, og S. Birni Blöndal,
aðstoðamanni hans, vegna málsins.
Alfhild segir félögin hafa mætt litlum
skilningi á fundinum. „Við fengum
þau skilaboð að Fluggarðar væru
ekki á skipulagi og ættu að víkja og
um það var ekkert hægt að ræða
frekar. Eins var okkur sagt að starf-
semin væri öll lóðalaus og við gætum
því búist við því að málið færi í lög-
fræðinga með öllum þeim mála-
rekstri sem því fylgir,“segir Alfhild
en hún telur borgina hafa sýnt af-
stöðu Fluggarðanna virðingar- og
skilningsleysi.
Segir framgöngu borgarinnar harða
Öll starfsemi Fluggarða á Reykjavíkurflugvelli á að víkja á næsta ári samkvæmt nýju deiliskipulagi
Talsmenn hagsmunaaðila á Fluggarðasvæðinu segjast mæta skilningsleysi borgaryfirvalda
Morgunblaðið/RAX
Vinna Mikil starfsemi fer fram á svæði Fluggarða á Reykjavíkurflugvelli.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Jörundur hundadagakonungur, nýr
veitingastaður í Austurstræti í
Reykjavík, verður opnaður á næstu
dögum. Það er Þórir Gunnarsson
sem stendur að rekstrinum, en veit-
ingastaðurinn verður alhliða mat-
sölustaður með áherslu á skjóta af-
greiðslu fyrir fólk sem er á ferðinni í
miðbænum. Starfsemin er í húsinu
að Austurstræti 22, en þar hafðist
Jörundur hundadagakonungur við
þá daga sem hann var ríkti sem kon-
ungur á Íslandi sumarið 1809.
Prag, Harpan og Jörundur
Umrætt hús, sem var breytt til
og frá í tímans rás, eyðilagðist í elds-
voða vorið 2007. Var svo endurreist
sem stokkhús og var gerð hússins
frá 1850 þá höfð sem fyrirmynd.
„Í ljósi sögunnar kom aldrei
annað til greina en að kenna staðinn
við Jörund,“ segir Þórir Gunnarsson
sem hefur verið viðloða veitinga-
starfsemi í hálfa öld. Hefur starfað í
Tékklandi frá 1990 en er nú snúinn
heim. Hafði veitingarekstur í ráð-
stefnu- og tónlistarhúsinu Hörpunni
með höndum um nokkurt skeið og
fram á síðasta sumar þegar hann
sneri sér að Jörundi.
Matbúa og leggja á borð
„Við bíðum eftir að fá formleg
leyfi í hendur. Erum með allt tilbúið
og getum farið að leggja á borð og
matbúa,“ sagði Þórir. Veitingastað-
inn segir hann munu verða opnaðan
snemma dags og þá verði staðgóður
morgunverður á boðstólum. Kaffi og
brauðmeti um miðjan daginn en
ýmsir skjótframreiddir réttir í há-
deginu og á kvöldin. Nefnir Þórir
þar sérstaklega fiskisúpu úr ís-
lensku sjávarfangi, en slíka
var Þórir með á boðstólum í
Prag og naut hún þar vin-
sælda. Annars verður mat-
seðillinn mjög fjölbreyttur og
bjórinn Jörundur, sem Víf-
ilfell sérbruggar fyrir staðinn,
á væntanlega eftir að gera góða
lukku meðal gesta.
Konungurinn snýr aftur
Jörundur hundadagakonungur er nýr veitingastaður við
Lækjartorg Með sérbruggaðan bjór í endurbyggðu húsi
Morgunblaðið/Ómar
Austurstræti Þórir Gunnarsson veitingamaður við merki staðarins sem verður bæði öl- og matstofa í hjarta borgar.
Þorskverð hefur verið lágt á fisk-
mörkuðum síðustu vikuna og með-
alverð fyrir kíló af óslægðum
þorski var í gær tæplega 213 krón-
ur. Birgir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Icelandic Ný-
Fiski í Sandgerði, segir að verð
fyrir ferskan fisk erlendis hafi
lækkað nú í byrjun apríl og það eigi
þátt í lægra verði á fiskmörkuðum.
Hann telur aðeins um tímabundna
lækkun að ræða.
Birgir segir að þessa vikuna séu
skólaleyfi í Bretlandi og víða á
meginlandi Evrópu. Margir séu því
á faraldsfæti og það hafi áhrif til
lækkunar á fiskverði.
Einnig hafi talsvert framboð ver-
ið á fiski á mörkuðunum undanfarið
þrátt fyrir veiðibann á grunnslóð
vegna hrygningar þorsksins, en
það leiði alla jafna til lækkunar á
mörkuðum. Það teljist til tíðinda á
þessum vetri, sem hafi einkennst af
ótíð, að nú hafi bátar getað róið tíu
daga í röð og aflað ágætlega.
„Í raun hefur verðið hér innan-
lands ekki verið óeðlilegt síðustu
daga og því kannski réttara að tala
um leiðréttingu en lækkun,“ segir
Birgir. Hann segir að lágt verð fyr-
ir stærsta þorskinn hafi vakið at-
hygli undanfarið og það dragi með-
alverðið niður. aij@mbl.is
Lágt verð fyrir
þorsk á mörkuðum
Sá guli Meðalverð fyrir þorsk hefur
verið rúmar 200 krónur undanfarið.
Skólaleyfi í Evrópu hafa áhrif á fiskverð
Hinn danski Jörgen Jörgensen
fór ungur í heimshornaflakk.
Snéri til Danmerkur árið 1807 og
þá var skollið á stríð milli Dana
og Breta. Hafði Jörundur þá
gerst mikill aðdáandi alls á Bret-
landi og þar hitti hann íslenskan
kaupmann, Bjarna Sívertsen,
sem sagði honum frá mögu-
leikum á Íslandi. Jörundur ákvað
að fara til Íslands og þegar hing-
að kom vorið 1809 tóku Jör-
undur og félagar höndum
Trampe greifa, æðsta full-
trúa danskra yfirvalda.
Þeir aftengdu embætt-
ismenn, lækkuðu skatta
og fleira. Öllu var stýrt
úr Austurstræti 22 en í
ágúst var ævintýrabylt-
ingin brotin á bak aftur.
Lækkaði skatta
ÆVINTÝRAMAÐUR
Lögmannsstofan LEX hefur haft
til skoðunar eignarréttarlega
stöðu flugskýla í Fluggörðum á
Reykjavíkuflugvelli fyrir Byggá-
BIRK. Í niðurstöðum LEX kemur
fram að við útgáfu byggingar-
leyfa gerði Reykjavíkurborg
enga fyrirvara um að lóðarrétt-
indi væru tímabundin. Þá er
ljóst að 14 af 17 flugskýlum hafa
staðið í fullan hefðartíma sbr. 2.
gr. hefðarlaga. Í því sambandi er
vísað til dóms Hæstaréttar frá
2002 þar sem niðurstaðan var
sú að stofnast hefði til hefðar
að lóð undir mannvirki á flug-
vellinum enda hafði það staðið
þar lengur en 20 ár.
Hafa staðið
í hefðartíma
LÖGFRÆÐIN