Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
LÆKKUN HÚSNÆÐISLÁNA
OG VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐUR
Fræðslufundur í Arion banka, Borgartúni 19,
miðvikudaginn 9. apríl kl. 17.15.
Á fundinum verður farið yfir fyrirhugaðar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar til höfuðstólslækkunar húsnæðislána. Auk
þess verða kostir viðbótarlífeyrissparnaðar kynntir.
Aðgerðirnar skiptast í þrennt:
· Niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána
eða með sérstökum persónuafslætti.
· Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar inn á
höfuðstól húsnæðislána.
· Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar upp
í útborgun á íbúð.
Fyrirlesari er Snædís Ögn Flosadóttir, sérfræðingur á
eignastýringarsviði Arion banka.
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund.
Léttar kaffiveitingar í boði.
Allir velkomnir – skráning á arionbanki.is
Umhverfis- og skipulagssvið
Reykjavíkurborgar hefur óskað eft-
ir heimild hjá borgarráði til að fara
í ýmsar framkvæmdir og bjóða út
kaup á búnaði vegna frjálsíþrótta-
leikvangsins í Laugardal, Laug-
ardalsvelli. Framkvæmdirnar eru
m.a. vegna Smáþjóðaleikanna sem
haldnir verða á Íslandi sumarið
2015 að hluta til á Laugardalsvelli.
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir því
að verja 70 milljónum króna á þessu
ári vegna verkefnisins og 30 millj-
ónum á næsta ári. Þegar er fallinn
kostnaður upp á 20 milljónir og því
er áætlaður heildarkostnaður um
120 milljónir.
Meðal þess sem þarf að gera er að
lagfæra yfirborð hlaupabrautar og
æfingasvæði fyrir kast- og hlaupa-
greinar. Ýmsan annan tækjabúnað
þarf að endurbæta eða endurnýja
eins og stökkdýnur og kastbrú. Þá
þarf að lagfæra lausan búnað og
tæknibúnað eins og myndavélar og
ljósaskilti. vilhjalmur@mbl.is
Lagfæringar
vegna Smá-
þjóðaleika
Áætlaður kostn-
aður 120 milljónir
Morgunblaðið/Ómar
Íþróttir Ýmsar framkvæmdir við
Laugardalsvöllinn skoðaðar.
Enn er nægur snjór í Bláfjöllum og
gangi spá eftir um kólnandi veður
og frost aðfaranótt næstkomandi
fimmtudags ætti þar að verða kom-
ið gott skíðafæri í vikulokin.
„Ef allt fer á besta veg eru hér
góðir dagar framundan. Þegar
best lætur koma hingað 5.000-
6.000 manns á einum degi og ef vel
viðrar má búast við slíkum aðsókn-
artölum á næstunni því margir
nota dagana í kringum páska til að
skreppa á skíði,“ sagði Einar
Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöll-
um, í samtali við Morgunblaðið í
gærdag.
„Núna er bloti í snjónum og fær-
ið ómögulegt. Hins vegar er snjór-
inn nægur og mér sýnist að við get-
um haft opið hér alveg út apríl ef
það frystir aðeins,“ segir Einar og
bætir við að í vetur hafi verið opið
alls 62 daga í Bláfjöllum en fimm-
tíu daga í fyrra. Væntanlega sé
talsvert eftir enn – og vonandi
verði dagarnir í vetur fleiri en í
fyrra þegar þeir urðu alls 78. – Í
Skálafelli er enn talsverður snjór
og gera má ráð fyrir að skíðasvæð-
ið þar verði opið að minnsta kosti
fram yfir páska. Slíkt ráðist þó al-
farið af veðráttu.
Einar segir að börnum og ung-
lingum sem stunda skíðaíþróttina
sé að fjölga. Fjöldi nýrra iðkenda
með spánný skíði hafi verið að
koma á svæðið í vetur með for-
eldrum sínum og það sé ánægjuleg
þróun. sbs@mbl.is
Snjór út apríl í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Þórður
Mjöll Enn er nægur snjór í Bláfjöllum og fólki í vetrarsporti fjölgar.
Færi í frosti Margir á skíði um páska Nýir iðkendur
Í mars flutti Ice-
landair 159.000
farþega í milli-
landaflugi og voru
þeir 10% fleiri en í
mars í fyrra.
Framboðsaukn-
ing í sætis-
kílómetrum nam
17%.
Aukning á
framboði til Norð-
ur-Ameríku var
28%, m.a. vegna flugs á nýjan áfanga-
stað, Edmonton, ásamt því að flug til
Toronto og Washington var aukið.
Framboðsaukning á Evrópu-
leiðum nam 5%. Sætanýting var
78,2% og minnkaði um 1,1% á milli
ára.
Farþegar í innanlandsflugi og
Grænlandsflugi voru um 24.000 í
mars sem er fækkun um 7% á milli
ára. Sætanýting nam 72% og dróst
saman um 2,1% á milli ára.
Fjölgun í
millilandaflugi
Icelandair
Icelandair Aukn-
ing var í milli-
landaflugi í mars.