Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Meintir heimildarmenn í Bruss-el, sem ekki vilja láta nafns
síns getið en talið er að kunni að
vera starfsmenn Evrópusambands-
ins og jafnvel ekki í lægsta þrepi,
telja víst einhverjir, eða í það
minnsta hugsanlega einn þeirra, að
Ísland gæti mögulega í viðræðum
við Evrópusam-
bandið náð fram
einhverjum und-
anþágum eða sér-
lausnum, þó ekki
þeim sem kynnu
að stangast á við
grundvallarrétt
sambandsins.
Þessir sömu – eða sami – meintuleynilegu heimildarmenn sem
einhverjum skýrsluhöfundi Evr-
ópusamtaka Já Íslands við HÍ tókst
ef til vill að finna á göngum tiltek-
innar skrifstofubyggingar í Bruss-
el, eða í einhverju af kokteilboðum
Evrópusambandsins, eru líka þeirr-
ar skoðunar að aðlögunarviðræð-
urnar, eins og ESB hefur opin-
berlega sagt að aðildarviðræður
séu í raun, séu það þrátt fyrir það
alls ekki.
Nafnlausi maðurinn í kokteil-boðinu álítur þegar líður á
kvöldið að þegar líði að lokum að-
lögunarviðræðnanna kunni þær,
þrátt fyrir margítrekaðar yfirlýs-
ingar ESB um annað, að breytast
skyndilega í samningaviðræður.
Í þessum mögulega væntanlegusamningaviðræðum muni Ísland
jafnvel hugsanlega geta samið um
eitthvað við ESB, enda sé það góð
samningatækni af hálfu sambands-
ins að gefa umsóknarríkjum rangar
upplýsingar um eðli viðræðnanna
til að hægt sé að semja um þýðing-
armestu málin í miklum spreng á
síðustu mínútunum fyrir undirritun
aðildarsamnings.
Seint verður ofmetið að eigavirðulega stofnun sem sinnir
brýnum fræðistörfum.
Aðildar-
viðræður
Íslands
við
ESB
Úttekt unnin fyrir Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins,
Viðskiptaráð Íslands og Félag atvinnurekenda
Fræðimennskan
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.4., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 8 léttskýjað
Nuuk -8 heiðskírt
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 7 súld
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 20 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 10 skýjað
London 13 skýjað
París 21 léttskýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 18 skýjað
Vín 20 léttskýjað
Moskva 5 alskýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -1 alskýjað
Montreal 10 alskýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 9 skýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:21 20:40
ÍSAFJÖRÐUR 6:19 20:51
SIGLUFJÖRÐUR 6:02 20:34
DJÚPIVOGUR 5:48 20:11
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Mikill áhugi er á lausum stöðum í
framkvæmdastjórn RÚV, en á þriðja
hundrað umsókna bárust. Þeim sem
gegna stöðunum nú var sagt upp í
síðasta mánuði, en það var liður í
hagræðingaraðgerðum nýs útvarps-
stjóra. Umsækjendum var gefinn
kostur á að draga umsókn sína til
baka, þar sem nöfn þeirra yrðu birt.
Stóðu þá eftir 146 manns sem sóttu
um níu lausar stöður. Átján þeirra
sóttu um fleiri en eina stöðu, og var
því heildarfjöldi umsókna 163.
Tólf manns hafa hug á stöðu
fréttastjóra hjá RÚV, þeir eru:
Benedikt Sigurðsson, aðstoðarmað-
ur ráðherra, Hanna Lára Kristjáns-
dóttir, Heiðar Örn Sigurfinnsson
fréttamaður, Hlynur Gauti Sigurðs-
son verkefnastjóri, Ingólfur Bjarni
Sigfússon nýmiðlastjóri, Jakob Jó-
hann Sveinsson verkfræðinemi, Jó-
hann Hauksson, fréttamaður og
fyrrverandi dagskrárstjóri, Jóhann
Hlíðar Harðarson fréttamaður,
Pálmi Jónasson fréttamaður, Rakel
Þorbergsdóttir varafréttastjóri, Sig-
ríður Hagalín Björnsdóttir vara-
fréttastjóri og Svavar Halldórsson,
framkvæmdastjóri og fjölmiðlamað-
ur. Þeir Ingólfur Bjarni, Jakob Jó-
hann og Jóhann Hauksson sækja
einnig allir um stöðu nýmiðlastjóra,
en Ingólfur Bjarni gegnir þeirri
stöðu nú. Jóhann Hauksson sækir
einnig um stöðu dagskrárstjóra hjá
Rás 1 og dagskrárstjóra hjá Rás 2.
Af öðrum umsækjendum í stöður
má nefna að Ólína Þorvarðardóttir,
fyrrverandi þingmaður, sækist eftir
stöðu dagskrárstjóra á Rás 1, Rás 2,
og hjá Sjónvarpinu. Flestir sóttu um
stöðu framkvæmdastjóra rekstrar-,
fjármála- og tæknisviðs eða 34.
Margir sækja um hjá RÚV
Tólf manns sækja um stöðu fréttastjóra Átján sóttu um
fleiri en eina stöðu Talsvert fleiri karlar í hópi umsækjenda
Morgunblaðið/Ómar
Útvarpshúsið 146 manns hafa nú
sótt um að vinna í þessu húsi.
Af þeim 163 umsóknum sem bár-
ust í stöðurnar níu voru 103 frá
körlum og 60 frá konum. Hlut-
fallslega fæstar konur sækja um
stöðu vef- og nýmiðlastjóra, en
þar bárust 22 umsóknir frá körl-
um á móti sex frá konum. Hlutfall
kynjanna er jafnast í umsóknum
um stöðu framkvæmdastjóra
samskipta-, þróunar- og mann-
auðssviðs, en þar sækja um 13
manns af hvoru kyni. Fleiri konur
en karlar sækjast síðan eftir því
að vera næsti mannauðsstjóri
RÚV, eða 15 á móti 7.
Fleiri karlar
en konur
UMSÆKJENDUR EFTIR KYNI