Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir.
Meðferðin tekur 30-45 mínútur.
HYDRADERMIE
LIFT
Andlitslyfting
án skurðaðgerðar!
Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur:
Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044
Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070
Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025
Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262
Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791
GK snyrtistofa – s. 534 3424
Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120
Dekurstofan – s. 568 0909
Guinot-MC stofan – s. 568 9916
Snyrtistofan Þema – s. 555 2215
Snyrtistúdíó Önnu Maríu – s. 577 3132
SG snyrtistofa – s. 891 6529
Landið:
Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616
Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200
Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700
Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867
Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366
www.guinot.isVAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu
ofbeldi á þeim tíma sem það á sér
stað eða fljótlega á eftir.
Flottar túnikur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Str. M-XXXL
Litir: bleik orange og blá
Verð 8.900 Landssamtök um
Spítalann okkar
Stofnfundur landssamtaka um nýbyggingu og endurnýjun
Landspítala verður að Engjateigi 7 í Reykjavík miðviku-
daginn 9. apríl kl. 17.
Fundurinn er opinn öllum þeim er vilja vinda bráðan bug að
úrbótum í húsnæðismálum Landspítala samkvæmt fyrir-
liggjandi áætlunum og leita allra mögulegra leiða til að
tryggja fjármuni til framkvæmda.
Verkefnið hefur verið undirbúið undir kjörorðunum
Spítalinn okkar og gert er ráð fyrir því að setja
landssamtökunum stofnskrá og kjósa þeim stjórn á
fundinum.
Undirbúningshópurinn
Mætum öll og sýnum hug okkar í verki!
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skemmdir á sitkagreni af völdum
sitkalúsar í fyrra blasa við þegar sól
hækkar á lofti og annar gróður fer að
grænka. Nálarnar á grenitrjánum
sem lúsin lagðist á eru ýmist brúnar
eða dottnar af.
Edda S. Oddsdóttir, sérfræðingur
hjá Skógrækt ríkisins, sagði að sitka-
lús hefði verið snemma á ferðinni í
fyrravor. Vorfaraldrar sitkalúsar eru
tiltölulega nýbyrjaðir hér á landi. Áð-
ur þekktust einungis haustfaraldrar.
Þá voru vetur svo kaldir að lúsin náði
sér ekki á strik á vorin. Fullorðnu
dýrin þola ekki mikið frost og drep-
ast en yngri dýrin virðast þola kuld-
ann betur. Séu vetur kaldir kemur
því lægð í lúsastofninn. Edda sagði
að svo virtist sem kuldarnir í nóv-
ember og desember í vetur hefðu
höggvið skörð í lúsastofninn.
Eftir að veðurfar fór að hlýna hafa
komið vorfaraldrar. Nokkuð skæður
sitkalúsarfaraldur kom í fyrravor og
var lúsastofninn þá nokkuð stór, sér-
staklega á suðvesturhorninu og á
Suðurlandi. Miklu minna er af sitka-
lús annars staðar á landinu.
Edda sagði að sitkalúsin tæki sér
hvíld yfir sumarið á meðan trén væru
í mestum vexti. Þegar hægði á trjá-
vextinum á haustin færi sitkalúsin
aftur á kreik. Hún fjölgar sér með
meyfæðingu og getur því fjölgað
hratt þegar vel árar.
Brún tré við Miklubraut
Skemmdir eru nú áberandi á
grenitrjám meðfram Miklubraut í
Reykjavík. Þau eru töluvert brún og
óásjáleg.
„Talið er að þessar miklu skemmd-
ir séu vegna sitkalúsar og samverk-
andi áhrifa vegna mengunar og
ákomu af salti,“ sagði Edda. Lang-
varandi þurrkar í vetur hjálpuðu
ekki trjánum. Ekki kom deigur dropi
úr lofti í febrúar en miklu salti var
ausið á götur dag eftir dag. Saltið
leggst á trén og smeygir sér inn um
götin eftir sitkalúsina. Edda sagði að
tré sem væru undir miklu álagi, eins
og trén við Miklubraut, mættu illa
við auknu álagi.
„Þessi tré eru afskaplega dýrmæt
sem mengunarvörn. Sitkagreni er
mjög duglegt að sía burt svif-
ryksmengun og þau virka líka sem
hljóðmön. Sumir segja að þessi tré
séu með þeim dýrmætustu á landinu.
Maður veltir því fyrir sér hvort ekki
sé forsvaranlegt að fylgjast vel með
þessum trjám og eitra fyrir lúsina
þegar hún sést, þótt eitrun sé alltaf
neyðarúrræði,“ sagði Edda.
Sitkalúsin var
skæð í fyrra
Dýrmæt tré við Miklubraut illa farin
Morgunblaðið/Ómar
Skemmdir Á greinum grenitrjánna má sjá skemmdir af völdum sitkalúsar.
„Þetta var ekki auðveld ákvörðun
því mér var farið að líka vel við hið
ljúfa líf,“ segir Einar G. Bollason
sem aftur er tekinn við stjórn Ís-
hesta, hins þekkta ferðaþjónustufyr-
irtækis sem hann byggði upp með
fjölskyldu sinni.
Einar segir að eigendur fyrirtæk-
isins hafi beðið hann að koma þeim
til aðstoðar við reksturinn. Þeir séu
með önnur viðamikil verkefni. „Mér
rennur blóðið til skyldunnar, þetta
er barnið mitt,“ segir Einar og tekur
fram að þarna sé gott starfsfólk sem
hann hafi unnið með á sínum tíma.
Hann segir rætt um að hann verði
þarna frameftir ári á meðan leitað
verði að nýjum framkvæmdastjóra.
Fannar Ólafsson sem tók við
framkvæmdastjórastarfinu fyrir
tveimur og hálfu
ári, þegar Einar
seldi, er einn af
eigendum Íshesta
og formaður
stjórnar.
Bókanir eru
góðar fyrir sum-
arið, að sögn Ein-
ars. Aukning er í
löngu hestaferð-
unum sem fyrir-
tækið er einna þekktast fyrir og
dagsferðunum út frá hestamiðstöð-
inni í Hafnarfirði. Mesta aukningin
er hins vegar í ævintýraferðum sem
Íshestar skipuleggja, það eru
gönguferðir og fleira og hestar
koma lítið eða ekkert við sögu.
helgi@mbl.is
„Mér var farið að líka
vel við hið ljúfa líf“
Einar
Bollason
Örvar Kristjánsson,
harmonikkuleikari og
söngvari, lést á Land-
spítalanum í Fossvogi í
gær.
Örvar var fæddur 8.
apríl 1937 í Reykjavík,
sonur þeirra Kristjáns
Þorgeirs Jakobssonar
lögfræðings og Olgu
Ágústu Margrétar Þór-
hallsdóttur húsmóður.
Örvar lærði bifvéla-
virkjun, var með meist-
araréttindi í faginu og
vann í mörg ár við það.
Einnig lagði Örvar
stund á listmálun og
eftir hann liggur fjöldi
málverka.
Ungur að árum
byrjaði Örvar að spila
á harmonikku og var
aðeins 14 ára þegar
hann var farinn að
spila fyrir dansi á
Hornafirði. Hann var
sjálfmenntaður á
hljóðfærið og hafði, frá
árinu 1990, hljóðfæra-
leik að aðalstarfi og lék með mörg-
um landsþekktum tónlistarmönnum.
Örvar spilaði inn á á annan tug
hljómplatna, sú fyrsta kom út árið
1972 og sú síðasta kom út 2010.
Undanfarin 20 ár bjó Örvar á
Kanaríeyjum og spilaði þar yfir
vetrarmánuðina, lengst af á Cosmos
(Klörubar).
Örvar átti miklu barnaláni að
fagna og lifa öll börn hans föður
sinn. Eftirlifandi eiginkona Örvars
er Guðbjörg Sigurðardóttir.
Jarðarför Örvars mun fara fram í
kyrrþey.
Andlát
Örvar Kristjánsson tónlistarmaður
mbl.is
alltaf - allstaðar