Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Upptakturinn, tónsköp-unarverðlaun unga fólks-ins, er nú haldinn í annaðskipti. Í keppninni er
börnum og ungu fólki gefinn kostur á
að senda tónsmíð eða drög að tón-
smíð til sérstakrar dómnefndar sem
velur síðan 12 bestu hugmyndirnar.
Það er til mikils að vinna en þær tón-
smíðar sem valdar eru verða fluttar á
tónleikum í Hörpu af fagfólki. Þátt-
takendur Upptaktsins eru á aldr-
inum 10-15 ára og er þeim skipt í tvo
hópa, 10-12 ára og 13-15 ára. „Eftir
að dómnefnd Upptaktsins fer yfir allt
sem sent er inn eru tólf hugmyndir
valdar. Höfundunum tólf stendur síð-
an til boða að fara í vinnusmiðju þar
sem tónskáldin Tryggvi M. Baldvins-
son og Kristín Þóra Haraldsdóttir
vinna í verkunum ásamt krökk-
unum,“ segir Elfa Lilja Gísladóttir,
verkefnastjóri Upptaktsins.
„Þó þurftum við að þessu sinni
að kalla út einstaka aðila til að hjálpa
okkur með einstök verk. Til að
mynda fengum við Sveinbjörn Thor-
arensen, Hermigervil, til að vinna
með tveimur strákum í tölvutónlist,
Ragnheiði Gröndal til að aðstoða eina
stúlku og síðan mun Unnsteinn
Manuel úr Retro Stefson syngja og
spila lag eftir 10 ára dreng,“ bætir
Elfa við og segir jafnframt að líkleg-
ast komi þessir aðilar til með að
koma fram á tónleikunum sjálfum í
Kaldalóni í Hörpu á opnunardegi
Barnamenningarhátíðarinnar 29.
apríl nk.
Hugmyndir barnanna virtar
Nú eru þátttakendur Upptakts-
ins að ljúka sinni vinnu í vinnusmiðj-
unni og þá fara verkin í hendurnar á
tónskáldunum. Segir Elfa að tón-
skáldin bæti sínu við verkin og þau
litist af tónskáldinu sem gætir þess
þó að virða og nýta hugmyndir
barnsins vel.
„Núna fyrir páska verður búið
að fullvinna hugmyndirnar og eru
þær þá sendar til hljóðfæraleikar-
anna. Við erum með fagfólk með okk-
ur eins og Gretu Salóme Stefáns-
dóttur, Grím Helgason, Steinunni
Birnu Ragnarsdóttur, Jón Rafnsson
og Sólrúnu Sumarliðadóttur. Mögu-
lega þarf þó að kalla fleiri til er á líð-
ur. Við höfum fagmennskuna í fyrir-
rúmi og reynum að sinna hverjum
einstaklingi eins vel og nokkur kost-
ur er á,“ segir Elfa.
Þegar verkin verða flutt í Kalda-
lóni sitja börnin úti í sal og fá að njóta
verka sinna þaðan. „Sumir krakkar
hafa viljað taka þátt í flutningnum en
við ákváðum að halda þessu hjá fag-
fólki og leyfa krökkunum að sitja úti í
sal,“ segir Elfa. Segir hún einnig að
tónleikarnir í ár séu mikið tilhlökk-
unarefni. Í fyrra hafi þetta verið stór-
kostleg tónlistarveisla og í ár hlakka
þau mikið til að hlusta á afrakst-
urinn.
Sköpun, skráning
og flutningur
Upptakturinn er samstarfsverk-
efni Hörpu og Barnamenning-
arhátíðar í Reykjavík en markmið
verkefnisins eru þríþætt.
Þau eru að stuðla að tónsköpun
Börn og ungmenni
hvött til sköpunar
Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun unga fólksins, er nú í fullum gangi en mark-
mið hans er m.a. að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og unglinga til
að semja eigin tónlist. Hápunktur Upptaktsins er 29. apríl næstkomandi þegar
verk þátttakendanna verða flutt í Kaldalóni í Hörpu.
Tónsköpun Elfa Lilja Gísladóttir er verkefnastjóri Upptaktsins.
Tónskáld Jón Arnar Einarsson hefur spilað á básúnu í níu ár eða síðan 2005.
Það verður mikið um dýrðir á morg-
un, miðvikudag, á Seltjarnarnesinu í
tilefni þess að liðin eru 40 ár frá því
að bærinn öðlaðist kaupstaðarrétt-
indi. Afmælishátíð verður fyrir alla
aldurshópa á Eiðistorgi kl. 17-19.
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarn-
arness blæs í afmælislúðra og ekur
um götur bæjarins; í Mýrarhúsaskóla
verður sýning sem nemendur hafa
unnið út frá sögu skólans, fuglum á
Nesinu, fjörunni og merkum bygg-
ingum; Björnsbakarí og Veislan hafa
útbúið afmæliskökur í tilefni dagsins
og allir fá sneið og drykki með, Wally
trúður og félagi hans verða á staðn-
um; Jóhann Helgason flytur lagið
Seltjarnarnes við texta Kristjáns
Hreinssonar; bæjarlistamaðurinn Ari
Bragi Kárason ásamt söngkonunni
Sigríði Thorlacius og hljóðfæraleik-
urum flytur dægurlög; forsetahjónin
heimsækja Mýrarhúsaskóla; úti-
listaverk verður afhjúpað; myndlist-
arkonurnar Guðrún Einarsdóttir,
Kristín Gunnlaugsdóttir og Sigrún
Hrólfsdóttir opna sýninguna Ná-
grannar í Eiðisskeri; fyrirtæki og
stofnanir á Seltjarnarnesi bjóða
ókeypis aðgang, afslætti, kynningar
og tilboð og opna dyr sínar fyrir gest-
um. Um kvöldið er boðið til tónleika-
veislu í kirkjunni. Margt fleira verður
í boði. Nánar um dagskrána á vefsíðu
bæjarins: www.seltjarnarnes.is.
Vefsíðan www.seltjarnarnes.is
Morgunblaðið/Rósa Braga
Söngur Sigga Thorlacius og Ari Bragi Kárason ætla að flytja dægurlög.
Hátíð og gleði á Seltjarnarnesi
Nú þegar vorið er farið að láta á sér
kræla vaknar löngun fólks til útivist-
ar. Sumir fara og viðra sig í rólegheit-
um á meðan aðrir hafa ánægju af því
að keppa. Nú er lag fyrir bæði full-
orðna og ungmenni með keppnis-
skap, því næsta laugardag 12. apríl
verður Heiðmerkurtvíþrautin 2014.
Keppt verður í flokki karla og kvenna
og flokki ungmenna. Rásmark, skipt-
ingar og endamark er við Furulund í
Heiðmörk. Fullorðnir hlaupa tvisvar 4
km en ungmenni hlaupa tvisvar 2 km.
Á milli hlaupanna hjóla fullorðnir 15
km en ungmenni 7,5 km.
Skráning á www.aegir3.is.
Endilega …
… skellið ykkur í Heiðmerkur-
tvíþraut í vorblíðunni
Ljósmynd/norden.org
Útivist Gaman að hjóla og hlaupa.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Til að skilja annað fólk betur og
okkur sjálf er gott að hlusta á
reynslusögur annarra. Í kvöld verður
Batakvöld hjá Geðhjálp í Borgartúni
3 kl. 19.30. Þar ætla þrír ein-
staklingar að segja reynslusögur
sínar og hér eru tilvitnanir úr þeim
erindum: „Núna er ég háskóla-
menntuð, gift, móðir og með tvo
ketti.“ „Þessi reynsla skilaði mér
skýrari sýn á tilveruna.“
Batakvöld hjá Geðhjálp
Heyrið allar
batasögurnar
Bati Leiðin liggur upp á við.