Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Þórður
Framtíðin Hér má sjá tónskáldin tólf sem taka þátt í Upptaktinum 2014. Krakkarnir eru á aldrinum 10-15 ára.
ungs fólks og hvetja börn og ung-
linga til að semja eigin tónlist, að að-
stoða börn og unglinga við að full-
vinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju
og varðveita þannig tónlistina og að
gefa börnum og unglingum tækifæri
á að upplifa eigin tónlist flutta af fag-
fólki við kjöraðstæður á tónleikum í
Hörpu.
Jón Arnar Einarsson er 15 ára
gamall Grafarvogsbúi og básúnuleik-
ari sem tekur þátt í Upptaktinum í
ár. Að sögn Elfu Lilju sá Jón Arnar
verk sitt fyrir sér fyrir brass-
hljóðfæri en teymi Upptaktsins að-
stoðaði hann við að þróa það fyrir
strengi. „Ég hef alltaf verið hrifinn af
því að semja tónlist,“ segir Jón Arnar
blaðamanni. „Það er píanó heima
þannig að ég hef lengi verið að reyna
að spila á það og semja. Mig langaði
að taka þátt í fyrra en gerði það ekki.
Í ár setti ég saman nokkrar hug-
myndir mínar í eitt lag. Sumar þess-
ara hugmynda eru mjög gamlar, á
minn mælikvarða allavega. Það eru
kannski svona eitt til tvö ár síðan ég
spilaði sumar þeirra fyrst á píanóið
heima og ég hef verið að þróa þær
síðan,“ segir Jón Arnar sem fékk að-
stoð frá tónskáldinu Tryggva M.
Baldvinssyni við að gera hugmynd-
irnar að tónverki. „Þegar ég ákvað að
taka þátt í Upptaktinum setti ég
saman gamlar og nýjar hugmyndir,
skrifaði þær á blað og sendi.“ Jón
Arnar er enginn byrjandi í tónlistinni
en hann hefur spilað á básúnu í níu ár
eða síðan 2005. Jón Arnar er að klára
tíunda bekk í Foldaskóla í Grafarvogi
í vor og stefnir að því að leggja tón-
listina fyrir sig í framtíðinni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR
3,7 L/100 KM*
CO2 ÚTBLÁSTUR 95 GRÖMM
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
P
FRÍTT Í
STÆÐI!
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR – VERÐ 3.090.000 KR.
Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval
sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur
saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
3
0
2
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Dagskrá um bóndann og heimspek-
inginn Þorstein Jónsson á Úlfs-
stöðum í Hálsasveit verður í kvöld í
Snorrastofu í Reykholti, kl. 20:30.
Fjallað verður um Þorstein og konu
hans Áslaugu A. Steinsdóttur. Sagt
verður frá brautryðjendastarfi þeirra
að ferðaþjónustu í sveit og sérstöku
ljósi varpað á ritstörf, skáldskap og
heimspekihugleiðingar Þorsteins.
Framsögu hafa Ragnhildur dóttir
þeirra og tengdasonurinn Sveinn Vík-
ingur Þórarinsson. Einnig mun dótt-
ursonur þeirra, Þorsteinn Þorsteins-
son, flytja erindi. Saman draga þau
upp mynd af heimilinu á Úlfsstöðum
og fjalla um ritstörf, skáldskap og
heimspekihugleiðingar Þorsteins og
ýmislegt annað, sem setti svip á ævi-
feril þeirra hjóna.
Þorsteinn Jónsson, skáld, rithöf-
undur og bóndi, fæddist 5. apríl 1896
á Úlfsstöðum í Hálsasveit. Þorsteinn
ólst þar upp og átti heima nær alla
tíð. Hann gekk í Hvítárbakkaskóla og
dvaldi einn vetur í Sviss. Kona hans,
Áslaug Aðalheiður Steinsdóttir,
fæddist 5. september 1907 á Spena í
Austurdal í Miðfirði. Þau hjónin eign-
uðust fjórar dætur. Eftir að bærinn
brann á Úlfsstöðum árið 1952 reistu
þau hið glæsilega hús sem nú stend-
ur á Úlfsstöðum og þar hófu þau
meðal annars merkilegt brautryðj-
endastarf við ferðaþjónustu, sem þau
ráku árin 1972-1981. Þar tóku þau á
móti ferðamönnum frá öllum heims-
hornum, alls 15 löndum. Baðstofa
torfbæjarins var tekin niður árið 1974
og var þá talin ein best varðveitta
baðstofa á landinu. Hún er nú til sýn-
is í Safnahúsi Borgarfjarðar.
Þorsteinn stundaði alla tíð ritstörf
og tileinkaði sér af gaumgæfni heim-
spekikenningar Dr. Helga Pjeturss.
Snorrastofu er heiður að því að geta
boðið til kvöldstundar til að minnast
þeirra hjóna og býður alla velkomna
að njóta. Að venju verður boðið til
kaffiveitinga og umræðna.
Dagskrá um Þorstein á Úlfsstöðum í Hálsasveit
Eftirminnilegur Þorsteinn ásamt Helgu Seidel á góðum degi í gróandanum.
Bóndinn og heimspekingurinn