Morgunblaðið - 08.04.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fyrst og síðast er þessi árangur afrakstur
mikillar vinu. Það safnast í sarp reynslunnar
og sú krafa að nýta allt hráefni í afurðir hefur
orðið til þess að menn fara að leita hug-
mynda. Sumum kemur maður í verk og fram-
leiðslu og fær á stundum góðar viðtökur, seg-
ir Jón Þorsteinsson, kjötmeistari Íslands.
78% vara unnu til verðlauna
Fulltrúar Sláturfélags Suðurlands stóðu
sig vel í fagkeppni Meistarafélags kjötiðn-
aðarmanna sem haldin var á dögunum. Fimm
fulltrúar félagsins, þeir Hrafn Magnússon,
Steinar Þórarinsson, Björgvin Bjarnason,
Bjarki Freyr Sigurjónsson og Jón Þor-
steinsson sendu samtals 19 vörur inn í keppn-
ina. Hlutu þeir fjórtán gullverðlaun, tvö silfur
og eitt brons og fimm sérverðlaun til við-
bótar.
Alls bárust 143 vörur og hlutu 111 þeirra
verðlaun eða 78%. Fyrirkomulag keppninnar
er á þann veg að kjötiðnaðarmenn senda und-
ir nafnleynd inn vörur til meistarahóps, sem
dæmir vörurnar eftir faglegum gæðum. Allar
vörur byrja með 50 stig. Dómarar leita svo
hugsanlegra galla og við hvern sem finnst
fækkar stigum.
Meira unnið úr folaldakjöti
Auk þessa fengu SS-menn fimm sérverð-
laun og Jón Þorsteinsson vann hinn eftirsótta
titil, Kjötmeistari Íslands. Fékk 250 stig sem
er 100% skor. Það hefur ekki gerst fyrr í
keppninni. Jón fékk jafnframt verðlaun fyrir
athyglisverðustu nýjungina og um leið bestu
vöruna úr hrossa- og folaldakjöti og bestu
hráverkuðu vöruna, það er salami camem-
bert. Einnig verðlaun fyrir grísa rillette sem
bestu vöruna úr svínakjöti og svo gull-
verðlaun fyrir hangikjet, sölpylsur, katalónsk-
ar Bratwurstpylsur, grísa rillette, hreindýra-
lifrarkæfu, Salami Camembert, bolabita og
purupopp.
„Menn eru farnir að vinna sífellt meira
úr folaldakjöti. Þetta er úrvalshráefni og við
erum að alltaf að þróa okkur áfram með það.
Verðum nú í sumar með piparlegið folaldafille
sem grillkjöt, en nýjungarnar á því sviði
verða reyndar fleiri,“ segir Jón sem hefur
starfað hjá SS sl. 18 ár. Í verksmiðju félags-
ins eru vöruþróunarmál talsvert á hans
könnu, það er að fylgja eftir hugmyndum
markaðsfólks og kjötiðnaðarmannanna sjálfra
um nýjar afurðir.
Spurt um aukaefnin
„Á ári hverju komum við inn með
kannski 10 til 15 ný vörunúmer. Kröfur neyt-
enda eru síbreytilegar og nú spyr fólk mikið
um aukaefni, eins og krydd, og vill halda
þeim í lágmarki. Ótti við fitu er ekki jafn mik-
ill og áður, enda benda rannsóknir til að hrein
og náttúruleg sé hún ekki skaðleg,“ segir Jón.
Leita hugmynda og nýta allar afurðir
Sigursælir kjötmeistarar frá SS í fagkeppni Sendu inn alls nítján vörur og fengu fjórtán gull-
verðlaun Kjötmeistarinn Jón Þorsteinsson náði 100% skori Minni ótti við fituna en áður var
Hæfileikar Jón Þorsteinsson hjá SS var sig-
ursæll í fagkeppni og fékk fjölda verðlauna.
Tvö hundruð og áttatíu ökumenn
voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu
um helgina í sérstöku umferðareft-
irliti lögreglunnar. Þrír ökumenn
reyndust ölvaðir eða undir áhrifum
fíkniefna við stýrið og eiga þeir
ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.
Einum til viðbótar var gert að
hætta akstri en sá hafði neytt
áfengis en var undir refsimörkum.
Þetta segir þó ekki alla söguna því
alls voru sautján ökumenn teknir
fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á
höfuðborgarsvæðinu um helgina,
en hinir síðarnefndu fjórtán öku-
menn voru stöðvaðir víðs vegar í
umdæminu.
Sautján ökumenn
óku undir áhrifum
Morgunblaðið/Júlíus
Norðurlandaráð heldur vorþing
með áherslu á sjálfbæra nýtingu
náttúruauðlinda í Hofi á Akureyri í
dag.
Fram kemur á vef Norðurlanda-
ráðs, að eftirspurn auðlinda úr
jörðu fari vaxandi á Norðurlöndum
eftir því sem velmegun aukist víða
um heim. Því telji Norðurlandaráð
þörf á að dýpka norrænt samstarf
um náttúruauðlindir.
Ýmis önnur mál verða til um-
ræðu. Þannig er m.a. gert ráð fyrir
því að ástandið í Úkraínu, samstarf
Norðurlanda og Rússlands og við-
fangsefni tengd lýðræðisþróun í
Úkraínu verði til umfjöllunar við
upphaf þingsins.
Þingið hefst kl. 13 en áætluð
þingslit eru klukkan 18.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Norræn samvinna Frá vorþingi Norður-
landaráðs í Reykjavík 2012.
Vorþing Norður-
landaráðs í Hofi
STUTT
Máttur matar-
ins er yfirskrift
málþings Nátt-
úrulækninga-
félags Íslands
sem haldið
verður á Hótel
Natura í
Reykjavík í
kvöld klukkan
19.30.
Fram kemur í tilkynningu að á
málþinginu verði fjallað um hvað í
raun gerist þegar óhollur eða holl-
ur matur er borðaður.
Þá segir að frummælendur séu
allir sérfræðingar á sínu sviði og
muni koma með ferska og nýja sýn
á hvað mataræði skiptir í raun og
veru miklu máli.
Málþing um mat
Félags- og mannvísindadeild Há-
skóla Íslands stendur á fimmtudag
fyrir málþingi um hlutverk há-
skólakennara í samfélaginu.
Málþingið verður í stofu 101 í
Odda klukkan 14-16. Í tilkynningu
segir að þar verði komið inn á hvort
eða hvernig hægt sé að samþætta
mismunandi kröfur til starfsins.
Spurt er: Eiga háskólakennarar
að taka þátt eða fjalla um pólitísk
álitamál? Eða þýðir það óhjákvæmi-
lega að pólitík hlaupi í starf há-
skólakennara?
Ræða um hlutverk
háskólakennara