Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
á nýjum hjólhýsum,
A-hýsum og fellihýsum
Komdu og skoðaðu, við
töku gamla vagninn uppí
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - isband@isband.is - www.isband.is
Opið alla virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Útsala
MultiMaster
fjölnotavél
slípar - sagar - skefur
raspar - brýnir - o.fl.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
● Hlutabréfamark-
aðir fóru illa af stað
á fyrsta við-
skiptadegi vik-
unnar. FTSE 100
vísitalan í London
féll um 1,09% í
gær, CAC 40 í París
um 1,08% og DAX
30 í Frankfurt um
1,91%. Lækkun
hlutabréfa hófst á
föstudaginn í Bandaríkunum og hélt
áfram í gær. Þróunin er einkum rakin til
þess að fjárfestar hafa vaxandi áhyggj-
ur af verðlagningu tæknifyrirtækja, sem
olli lækkun fjölda fyrirtækja í Evrópu,
Bandaríkjunum og Asíu.
Hlutabréf lækkuðu á
helstu mörkuðum í gær
Hlutabréf Vikan
hófst á lækkun.
Sé miðað við hlutfallslega stærð
Reykjavíkur ætti hlutur höfuðborg-
arinnar að vera um 900 íbúðir, en
sjá má að enn vantar töluvert upp á
núverandi fjölda til þess að jafnvægi
sé náð. Þá er ekki tekið mið af því
að á síðustu fjórum árum hefur
fjöldi íbúða sem hafist var handa við
að byggja aðeins verið um 160 á ári
að meðaltali. Líklegt er því að ein-
hver uppsöfnuð þörf sé fyrir hendi.
Ari segir að þá verði einnig að
horfa til þess að búið sé að byggja
upp á meirihluta lóðasvæða nokk-
urra bæjarfélaga og því megi jafn-
vel færa rök fyrir því að stærri hluti
muni á komandi árum tilheyra
Reykjavík. Þá hafi Reykjavíkurborg
verið gagnrýnd mikið á árunum
1995 til 2007 fyrir að bjóða upp á
hlutfallslega fáar lóðir og að upp-
bygging þar væri minni en í ná-
grannasveitarfélögum. Því sé fjöld-
inn núna enn undir því sem gæti
talist eðlilegt til lengri tíma.
Ekki offramboð
íbúða í Reykjavík
Nýbyggingar í fyrra nálægt meðaltali síðustu 40 ára
Morgunblaðið/Golli
Nýbyggingar Þrátt fyrir uppgang í byggingariðnaðinum heldur hann samt
sem áður ekki í við aukna eftirspurn miðað við náttúrulega fjölgun íbúa.
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Á síðasta ári jókst fjöldi sam-
þykktra byggingarframkvæmda
rúmlega tvöfalt og um fjórfalt ef
horft er aftur til ársins 2011. Þá var
hafin bygging á tæplega sexfalt
fleiri íbúðum á síðasta ári en árið
2011. Í nýlegri frétt á RÚV var bent
á að áform um byggingu hótela og
veitingahúsa hafa hundraðfaldast
milli ára.
En hvað segja þessar tölur okk-
ur? Er byggingargeirinn farinn að
ofhitna og stefnir
í offramboð á
fasteignum á
næstunni? Eða er
hér um eðlilega
aukningu að
ræða til þess að
mæta uppsafn-
aðri þörf?
Til þess að fá
raunhæfan sam-
anburð á bygg-
ingarfram-
kvæmdum er nauðsynlegt að skoða
hver viðmiðunarpunkturinn er og
hvert er meðaltal yfir lengri tíma.
Ara Skúlason, sérfræðingur hjá
hagfræðideild Landsbankans, bend-
ir á að mjög margt sé í pípunum
þessa dagana, en að hagfræðideildin
hafi engu að síður bent á að enn sé
hægagangur í byggingargeiranum
og að töluvert megi bætast við áður
en hægt sé að fara að tala um bólu-
myndun eða offramboð.
Sextíuföldun frá árinu 2010
Byggingarmarkaðurinn hér á
landi hefur farið í gegnum mikla
sveiflu síðustu ár, en eftir hrun
drógust framkvæmdir mikið saman
og um tíma var markaðurinn svo
gott sem í frosti.
Í tölum frá byggingarfulltrúa
Reykjavíkur má sjá að árið 2009 var
hafist handa við nýbyggingu á 159
íbúðum, en árið eftir var aðeins
byrjað að byggja 10 íbúðir.
Árið 2011 varð örlítið ris á mark-
aðinum og hafist var handa við 113
íbúðir, sem fjölgaði í 356 árið 2012
og 614 í fyrra. Það er því ljóst að frá
árinu 2009 hefur fjöldi nýbygginga
meira en sextíufaldast.
Þrátt fyrir það voru nýbyggingar
í fyrra mjög svipaðar og meðaltal
síðustu 40 ára í Reykjavík. Nýbygg-
ingar árið 2013 voru jafnframt sex-
tíu færri en meðaltal áranna 2000 til
2008. Viðmiðunarpunkturinn skiptir
því afar miklu máli og síðustu fjögur
ár gefa heldur villandi mynd af eðli-
legum fjölda nýbygginga.
Þarf 900 íbúðir á ári í borgina
Í útreikningum sem hagfræði-
deild Landsbankans gerði um fast-
eignamarkaðinn er því spáð að ár-
lega þurfi að byggja 1.500 íbúðir á
öllu höfuðborgarsvæðinu til að anna
náttúrulegri fjölgun íbúa.
Ari
Skúlason
!
"!#
#
$%
" $
!
$
%%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"%
!
!"%
"!
#
"$
"#
!"$
%$%
"
$
!"
"!
$
"$
" $
!%#
$$
%%"
"!#!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Sjóðastýringarfyrirtækið Landsbréf
tilkynnti í gær að Sigþór Jónsson fram-
kvæmdastjóri hefði sagt starfi sínu
lausu hjá félaginu. Sigþór hóf störf hjá
Landsbréfum í september 2012 og hef-
ur því starfað hjá fyrirtækinu í rúmlega
eitt og hálft ár. Hann var áður for-
stöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá
Stefni. Uppsögn Sigþórs bar brátt að,
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Landsbréf eru dótturfélag Lands-
bankans, en meirihluti stjórnar félags-
ins er óháður Landsbankanum og er
það rekið sem sjálfstætt fjármálafyr-
irtæki. Í tilkynningu frá Landsbréfum
kemur fram að á stjórnarfundi í gær
hafi verið tekin ákvörðun um að Her-
mann Már Þórisson, sem gegnt hefur
stöðu staðgengils framkvæmdastjóra
Landsbréfa hf., yrði framkvæmdastjóri
félagsins þar til annað verður ákveðið.
Sigþór hættur sem framkvæmdastjóri Landsbréfa
Landsbréf Hermann Þórisson tekur við
framkvæmdastjórn af Sigþóri Jónssyni.
Stuttar fréttir ...