Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
NÆSTA FERÐ ER ÆVINTÝRIÐ.
Meðan þú leitar að skemmtilegri upplifun, leitar BMW að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir
BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið í BMW X3. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er akstursánægjan í X línunni eitthvað sem
þú getur treyst á.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
11
4
3
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Less emissions. More driving pleasure.
BMW X3 xDrive20d - 5,6 l/100 km*
Verð frá 6.990 þús. kr.
Hrein
akstursgleði
BMW X3
www.bmw.is
Mikilvægt væri að hafa í huga að
lán eða lánalínur frá erlendum ríkjum
sé ekki það sem ræður mestu um af-
nám hafta. „Raunar er það svo,“ segir
í skýrslunni, „að ef slík lán yrðu nýtt
til þess að fjármagna óforsjálar áætl-
anir sem hafa ekki tiltrú og ganga
ekki upp, getur landið hæglega endað
í verri stöðu en áður.“
Stuðningur Evrópska seðlabank-
ans myndi auka trúverðugleika við af-
námsferlið og jafnframt það fyrirheit
að íslenskar krónur muni breytast í
evrur innan ákveðins tíma ef landið
stefndi að inngöngu í ESB og upp-
töku evru. „Gjaldeyrismarkaðir eru í
eðli sínu framsýnir og bregðast við
um leið og aðildarsamningur hefur
verið samþykktur, og þar með breyt-
ast allar forsendur til afnáms hafta á
svipstundu til hins betra.“
Ef fyrir liggur skýr áætlun um að
Ísland ætli strax að hefja ERM II-
ferlið, með fasttengingu við evru og
síðan myntskipti, ætti það að styrkja
trúverðugleika krónunnar þar sem
Evrópski seðlabankinn myndi kaupa
upp allt peningaframboð innan tiltek-
ins tíma. Þannig fá allir íslenskir fjár-
munir alþjóðlegt greiðsluhæfi og
hægt yrði að flytja þá úr landi án þess
að orsaka gjaldeyriskreppu.
Á lágu gengi í ERM II
Rétt eins og vakin er athygli á í
skýrslu Alþjóðamálastofnunar þá
getur Ísland ekki orðið hluti af ERM
II-samstarfinu fyrr en höftin hafa
verið afnumin. Það myndi skipta gríð-
arlega miklu máli að myntskiptin
ættu sér stað á gengi sem samræmd-
ist þjóðhagslegu jafnvægi Íslands
með tilliti til hagvaxtar og greiðslu-
jafnaðar. Er talið raunhæft að vera
Íslands í ERM II-kerfinu þyrfti ekki
að vera lengri en tvö til þrjú ár.
Að mati skýrsluhöfunda yrði Ísland
að velja tiltölulega lágt viðmiðunar-
gengi í upphafi til að tryggja afgang á
utanríkisviðskiptum. Í öðru lagi að
gengið yrði fest þegar aðstæður eru
hagfelldar á erlendum mörkuðum. Í
þriðja lagi væri nauðsynlegt að
smækka bankakerfið og minnka pen-
ingamagn í umferð. Að lokum þarf Ís-
land að hafa aðgang að gildum forða
til þess að auka trúverðugleika fast-
gengisins og geta brugðist við með
gjaldeyrisinngripum til að verja
gengið ef það fellur.
Stuðningur Evrópska seðlabank-
ans nær aðeins til 15% vikmarka sem
eru mun víðari mörk en Íslendingar
þurfa að geta viðhaldið til þess að út-
skrifast úr ERM II-samstarfinu og
tekið upp evru. Seðlabanki Íslands
þyrfti sjálfur að taka ábyrgð á því að
halda genginu innan 2,25% vikmarka
gagnvart evru. „Það verkefni er vel
leysanlegt en felur í sér nokkra
áhættu,“ segir í skýrslunni.
Þýddi „gríðarlegan velferðarábata“
Morgunblaðið/Þórður
Skýrslan kynnt Ásgeir Jónsson hagfræðingur, einn skýrsluhöfundanna.
Með aðild að evrópska myntbandalalaginu yrði loks hægt að njóta samtímis fastgengis og viðskipta-
frelsis Í skýrslu Alþjóðamálastofnunar segir að Ísland gæti útskrifast úr ERM II á 2-3 árum
Ísland og ESB
» Stuðningur ESB við afnám
hafta myndi að mestu felast í
auknum trúverðugleika og því
fyrirheiti að krónur breytist í
evrur innan ákveðins tíma.
» ERM II-ferlið gæti aðeins
hafist eftir afnám hafta. Mik-
ilvægt er að velja tiltölulega
lágt viðmiðunargengi í upphafi.
» Til mikils að vinna fyrir ís-
lensku bankana að njóta sömu
skilyrða og evrópskir. Samevr-
ópskur ábyrgðarhringur myndi
minnka áhættu ríkisins og gæfi
bönkum heilbrigðari hvata.
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Með aðild að evrópska myntbanda-
laginu yrði loks hægt að leysa hina
miklu þverstæðu sem Íslendingar
hafa barist við í heila öld; að geta notið
samtímis fastgengis og frelsis í við-
skiptum með vörur, þjónustu og fjár-
magn. Ekki verður annað séð en að
upptaka evru myndi því „fela í sér
gríðarlegan velferðarábata fyrir Ís-
land“ enda þótt fórnarkostnaðurinn
væri að gefa eftir sjálfstæði í peninga-
málum og meiri breytileiki yrði í at-
vinnuleysi samfara hagsveiflum.
Þetta kemur fram í skýrslu Al-
þjóðamálastofnunar um aðildarvið-
ræður Íslands við Evrópusambandið
(ESB) sem var birt í gær en skýrslan
er unnin fyrir Alþýðusamband Ís-
lands, Félag atvinnurekenda, Samtök
atvinnulífsins og Viðskiptaráð.
Í umfjöllun skýrslunnar um efna-
hags- og peningamál, sem er rituð af
Ásgeiri Jónssyni, hagfræðingi og
lektor við Háskóla Íslands, segir að
afnám fjármagnshafta skipti miklu í
viðræðum við ESB. Möguleg aðstoð
af hálfu ESB myndi ekki koma fram
fyrr en á síðustu metrunum og yrði þá
ávallt að vera hluti af áætlun og undir
eftirliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.