Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Margar gerðir
af innihurðum
Hjá Parka færðu gullfallegar inni-
hurðir frá Grauthoff. Mikið úrval,
sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Páskaegg
úr 65% lífrænu
súkkulaði
sem kemur allt
af ekrunni
Madirofolo,
af eyjunni
Madagskar
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Nýjung!
Áfram verðum við með
„Dulcey blond“ súkkulaðið
sem er flauelsmjúkt með
karamellubragði ásamt 33%
gæða belgísku súkkulaði.
Eggin eru fyllt með hand-
gerðu konfekti og málshætti
og fást hjá okkur á Háaleitis-
braut 58-60 í Reykjavík og í
Háholti 13-15 í Mosfellsbæ.
Kyndill til minningar um að tuttugu
ár eru liðin frá þjóðarmorðinu í Rú-
anda árið 1994 sem gengið hefur um
landið undanfarna þrjá mánuði kom
til höfuðborgarinnar Kigali í gær.
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, sagði við minningarathöfn
að viðstöddum fjölda þjóðarleiðtoga
að hún væri tækifæri til að minna
heimsbyggðina á að gera allt sem
hægt er til að koma í veg fyrir að
slíkir glæpir endurtækju sig.
„Fólk alls staðar ætti að setja sig í
spor hinna berskjölduðu, allt frá
Sýrlandi til Mið-Afríkulýðveldisins,
og spyrja sig hvað það gæti gert
meira til að skapa heim með mann-
réttindum og reisn fyrir alla,“ sagði
Ban.
Enginn fulltrúi franskra stjórn-
valda var viðstaddur athöfnina. Þau
kusu að senda ekki ráðherra til Rú-
anda og þarlend yfirvöld sögðu
sendiherra Frakka í höfuðborginni
ekki velkominn á athöfnina. Frakkar
eru sakaðir um að vera meðsekir í
þjóðarmorðinu, þeir hafi þjálfað her-
menn Hútúmanna og hjálpað þeim
að sleppa undan réttvísinni. Þeir
hafa hins vegar ætíð neitað því.
AFP
Sorg Ban Ki-moon og forsetahjón Rúanda bíða eftir að kveikt sé á kyndl-
inum. Hann mun loga í hundrað daga, jafnlengi og morðin stóðu yfir.
Gerist aldrei aftur
Enginn fulltrúi Frakka við minning-
arathöfn um þjóðarmorðið í Rúanda
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Forsætisráðherra Úkraínu sakaði
rússnesk stjórnvöld í gær um að
kynda undir ófriði í austurhluta
landsins til þess að geta hlutað það
niður. Mótmælendur sem hallir eru
undir Rússa sölsuðu undir sig stjórn-
arbyggingar í borgum í austurhluta
Úkraínu um helgina.
„Það eru áform um að valda óstöð-
ugleika, áform um að erlendur her
fari yfir landamærin og taka yfir
hluta af landinu sem við munum ekki
leyfa. Þessi áform eru skrifuð upp af
rússneska sambandsríkinu og eini
tilgangur þeirra er að hluta í sundur
Úkraínu,“ sagði Arsení Jatsenjúk
forsætisráðherra.
„Pútín, hjálp!“
Mótmælendur í Donetsk sem
lögðu undir sig stjórnarbyggingu í
borginni lýstu í gær yfir stofnun al-
þýðulýðveldis í borginni, sjálfstæðu
frá stjórnvöldum í Kænugarði. Yf-
irlýsingunni var tekið með fagnaðar-
ópum fyrir framan stjórnarbygg-
inguna. Kyrjuðu mótmælendurnir:
„Pútín, hjálp!“ Þeir ákváðu svo að
nýja lýðveldið skyldi ganga í rúss-
neska sambandsríkið.
Spenna á milli ríkjanna er mikil en
varnarmálaráðuneyti Úkraínu sagði
í gær að rússneskir hermenn hefðu
drepið úkraínskan herforingja sem
enn hélt tryggð við stjórnina í Kænu-
garði á Krímskaga á sunnudag.
AFP
Órói Mótmælendur hlynntir Rússum við stjórnarbygginguna í Donetsk.
Sái fræjum
ófriðar í austri
Lýst yfir sjálfstæðu ríki í Donetsk
Helmingurinn Rússar
» Austur-Úkraína var helsta
bakland Viktors Janúkóvitsj, fv.
forseta Úkraínu, sem var hallur
undir Rússa. Hann flúði til
Rússlands í kjölfar mótmæla
gegn stjórn hans.
» Um helmingur íbúa svæð-
isins er af rússneskum ættum.
Stór hluti þeirra telur núver-
andi stjórnvöld öfgasinnaða
þjóðernissinna sem muni kúga
Rússa.
Leitin að flugrita
malasísku flug-
vélarinnar sem
hvarf fyrir mán-
uði hélt áfram í
gær en merki
frá honum
greindist um
helgina. Leitin
hefur nú staðið í
um mánuð og hleypur kostnaður-
inn við hana á fleiri milljónum
bandaríkjadollara.
Á þriðja tug ríkja hefur lagt leit-
inni lið með flugvélum og skipum
undanfarnar vikur, þar á meðal
Kína, Ástralía, Malasía, Bandaríkin
og Japan.
Bandaríkin ein höfðu eytt jafn-
virði tæpra 380 milljóna króna í
leitina í síðustu viku. Samkvæmt
upplýsingum ástralskra yfirvalda
er kostnaðurinn við að halda úti
einu leitarskipi jafnvirði um 62,4
milljóna kr. á dag.
Yfirvöld í Malasíu og Kína vildu
ekki gefa upplýsingar um kostn-
aðinn við leitina þegar AP-
fréttastofan leitaði eftir því.
LEITIN AÐ MH370
Kostnaðurinn hleyp-
ur á fleiri milljónum
Öfgahægriflokk-
urinn Jobbik
vann góðan sig-
ur í þingkosn-
ingunum í Ung-
verjalandi um
helgina. Flokkur
Viktors Orbans
forsætisráðherra
er áfram stærsti
flokkurinn með um 44,5% en Job-
bik vann á og hlaut um fimmtung
atkvæða.
Jobbik er þekktur fyrir andúð
sína á rómafólki og gyðingum og
hafa aðrir öfgahægriflokkar í Evr-
ópu, eins og Frelsisflokkurinn í
Austurríki og flokkur Marine Le
Pen í Frakklandi, lítið vilja með
hann hafa. Þingmenn flokksins
hafa meðal annars kallað eftir
lista yfir fólk af gyðingaættum
sem ógni þjóðaröryggi Ungverja-
lands.
UNGVERJALAND
Flokkur öfgahægri-
manna vann á