Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NISSAN LEAF VAR FYRSTI RAFBÍLLINN Í HEIMINUM
sem hlaut 5 stjörnur í Euro NCAP árekstrarprófunum árið 2012.
Öllum Nissan Leaf sem BL selur fylgir 5 ára
ábyrgð á rafhlöðu og tengdum háspennuhlutum.
VERÐLÆKKUN!
Nissan EURO LEAF
VERÐ 4.690 ÞÚS. KR.
NÚ HLEÐUR ÞÚ LEAF
Á AÐEINS 20 MÍNÚTUM
• Tvær hraðhleðslustöðvar komnar í gagnið:
BL Sævarhöfða og höfuðstöðvar ON Bæjarhálsi
• 80% hleðsla á 20 mínútum
• Hraðhleðslustöðvar á 10 stöðum á næstunni
• Frí hleðsla í boði ON og Nissan Europe
NÝJAR HRAÐHLEÐSLUSTÖÐVAR ON OG NISSAN
ON, í samstarfi við BL ehf. og Nissan Europe, setur upp 10 hraðhleðslustöðvar fyrir
rafbíla á næstu mánuðum. Þær fyrstu hafa verið opnaðar við BL ehf. Sævarhöfða og
höfuðstöðvar ON á Bæjarhálsi. Þetta er sannkölluð bylting fyrir rafbílaeigendur því
það tekur ekki nema um 20 mínútur að hlaða geyminn upp í 80%. Það sem meira er:
fyrst um sinn þurfa rafbílaeigendur ekki að greiða fyrir hleðsluna.
Þessi unga stúlka beið þolinmóð í röð ásamt full-
orðnum kjósendum utan við kjörstað í Dibrugarh á
Indlandi en þingkosningar fóru fram í landinu í gær.
Þær eru umfangsmestu lýðræðislegu kosningar í
heimi en alls eru um 814 milljónir manna á kjörskrá.
Fólksfjölgun er svo ör á Indlandi að um hundrað
milljónir kjósenda hafa bæst í hópinn frá síðustu
kosningum árið 2009.
Búist var við að kjósendur myndu refsa Kongress-
flokknum, sem verið hefur við völd á Indlandi í ára-
tug undir forystu Ghandi-ættarinnar, harðlega vegna
lítils efnahagsvaxtar og spillingar.
Þess í stað var búist við því að flokkur þjóðern-
issinnaðra hindúa, Bharatiya Janata, ynni sigur í
kosningunum. Leiðtogi flokksins, Narendra Modi,
hefur m.a. lofað að binda enda á spillingu í landinu.
AFP
Stærstu kosningar í heimi
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Kjörsókn í forseta- og héraðs-
stjórnarkosningum sem fóru fram
í Afganistan á laugardag virðist
hafa farið fram úr björtustu vonum
þrátt fyrir ógnanir talibana. Ekki
er von á úrslitunum fyrr en eftir
nokkrar vikur en útlit er fyrir að
allt að 60% landsmanna hafi greitt
atkvæði.
Yfirmenn kosningaeftirlits Sam-
einuðu þjóðanna töldu fyrir kosn-
ingarnar að allt yfir 40% þátttöku
væri frábær niðurstaða. Heimildir
herma að þegar hafi á bilinu 7-7,5
milljónir atkvæða verið taldar en
um tólf milljónir Afgana eru á
kjörskrá.
Mikil spenna hafði ríkt í landinu
í aðdraganda kosninganna en talib-
anar reyndu að hræða fólk frá því
að kjósa. Að minnsta kosti 23 voru
drepnir á kjördag og daginn fyrir
kosningarnar, meirihlutinn lög-
reglu- og hermenn. Engar meiri-
háttar árásir áttu sér hins vegar
stað og tala látinna var lægri en
búist hafði verið við.
Kjósa eftir þjóðarbrotum
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun
benda fyrstu tölur frá höfuðborg-
inni Kabúl til þess að Afganar
kjósi enn eftir þjóðarbrotum. For-
setaframbjóðendurnir átta reyndu
að virðast yfir ættbálkana í land-
inu hafnir en svo virðist sem kjós-
endur hafi ekki verið það. Það gæti
flækt verulega myndun nýrrar
ríkisstjórnar.
Þannig sýna bráðabirgðatölur að
Abdullah Abdullah, forseta-
frambjóðandi þjóðarbrots tadjíka,
hafi fengið um 75% atkvæða í
nokkrum helstu hverfum tadjíka.
Ashraf Ghani, sem er pastúni,
hlaut næstflest atkvæði þar, tæpan
fimmtung. Í hverfum pastúna er
hlutföllunum hins vegar öfugt far-
ið. Í hverfum hasara hafði Abdul-
lah svo afgerandi sigur en varafor-
setaefni hans er stríðsherra úr
röðum hasara.
Kjörsóknin
framar vonum
Um 60% Afgana greiddu atkvæði
AFP
Kosningar Starfsmaður kjör-
stjórnar ber kjörkassa í Kandahar.