Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 22
FRÉTTASKÝRING
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Gróður, varplönd og fuglar,jarðfræðilega merksvæði, náttúru- og menn-ingarminjar eru undir
töluverðu álagi af mannavöldum á
Dyrhólaey. Fjöldi ferðamanna og
ökutækja sem fara inn á eyna ár
hvert hefur margfaldast og ferða-
mannatíminn hefur lengst. Þetta
kemur fram í tillögu verndar- og
stjórnunaráætlunar Dyrhólaeyjar
2014-2023, sem Umhverfisstofnun
vann.
Ef tillagan verður samþykkt
verður gripið strax til aðgerða á
þessu ári til úrbóta og verndunar á
svæðinu. Frestur til að skila at-
hugasemdum er til 25. apríl nk.
Markmið áætlunarinnar er að
leggja fram stefnu um hvernig
hægt sé að viðhalda verndargildi
svæðisins í sátt við landeigendur,
heimamenn og aðra hagsmunaaðila.
Umhverfisstofnun fer með
málefni friðlandsins en sveitarfé-
laginu Mýrdalshreppi var falin dag-
leg umsjón og rekstur svæðisins ár-
ið 2011.
Mýrdalshreppur er stærsti eig-
andi Dyrhólaeyjar, einnig eru
nokkrir aðrir eigendur að eynni.
Verndun landslags og lífríkis
Frá því Dyrhólaey var friðlýst
árið 1978 hefur mikið vatn runnið
til sjávar en lagt var töluvert upp
úr verndun fuglalífsins samhliða
hefðbundnum nytjum.
Í þessari áætlun er litið til
svæðisins sem heildar. Bent er á að
Dyrhólaey myndi falla betur í flokk
V friðlýstra svæða um verndað
landslag og er þar vísað til flokk-
unar IUCN, Alþjóðlegu nátt-
úruverndarsamtakanna. „Megintil-
gangur með friðun svæðisins ætti
því að liggja í að vernda landslag
jafnt og lífríki og þau náttúru-
verndargildi sem orðið hafa til með
íhlutun mannsins,“ stendur í áætl-
uninni.
Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri
Umhverfisstofnunar, segir sérstöðu
svæðisins ekki síst liggja í því áber-
andi landslagi sem þar er og ein-
stöku samspili náttúru og manns
auk verndunar á fjölbreyttu fugla-
lífi.
„Við erum ánægð með áætl-
unina í stórum dráttum. Þetta er
vinnuplagg þar sem fest er niður
hvernig uppbyggingunni verður
háttað samhliða verndun svæðisins
sem er lykilatriði,“ segir Ásgeir
Magnússon, sveitarstjóri Mýrdals-
hrepps. Hann segir að hátt á annað
hundrað þúsund manns sæki Dyr-
hólaey heim árlega. Því sé mikil-
vægt að vernda svæðið fyrir ágangi
fólks.
Salerni árið 2015
Úrbætur sem farið verður í á
þessu ári eru endurbætur á veg-
inum upp á Háey og endurbætur á
bílastæðum. Það er í verkahring
Vegagerðarinnar. Þá er stefnt að
því að bæta stígagerð og merkingar
á gönguleiðum á stöðum þar sem
gæta þarf varúðar. Einnig er stefnt
að því að lokið verði við að byggja
upp salerni við bílastæði á Lágey
árið 2015.
Takmörkuð umferð fólks er um
eyjuna á varp- og ungatímabilinu
sem er í maí og fram í júní. Land-
vörður er í eyjunni sem stýrir um-
ferð fólks svo varpið verði ekki fyr-
ir truflun.
Dyrhólaey er klettaeyja, um
120 m hár höfði sem gengur í sjó
fram við suðurströnd Íslands. Við
sunnanverða Dyrhólaey er kletta-
tanginn Tóin, og í gegnum hann er
gat.
Brugðist við auknu
álagi á Dyrhólaey
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Dyrhólaey Þessi eftirsótti ferðamannastaður hefur látið á sjá en til stend-
ur að bæta vegi og göngustíga til að vernda eyjuna sem og bæta öryggi.
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
BenediktJóhann-esson tók
fréttaviðtal við
sjálfan sig á úti-
fundi á Austur-
velli um stofnun
nýs stjórnmálaflokks. Það
var óneitanlega merkileg
uppákoma. En Benedikt
hafði þá afsökun fram að
færa fyrir henni að hann
fengi ekki frið í morguns-
árið hvern dag vegna fjöl-
miðlamanna sem væru í
spreng vegna þessa hugð-
arefnis hans og þeirra.
Á þessum tveggja
manna fréttamannafundi á
Austurvelli spurði Bene-
dikt sig sjálfan fyrst að
því hvort hann teldi að nýr
stjórnmálaflokkur yrði
stofnaður á næstunni. Svo
hvort einhverjir hefðu hist
af því tilefni og loks hvort
þeir hefðu velt vöngum yf-
ir niðurstöðum skoðana-
kannana. Öllum þessum
spurningum svaraði Bene-
dikt hiklaust játandi, enda
virtist engin þeirra koma
beinlínis flatt upp á hann.
En þegar Benedikt spurði
sjálfan sig óvænt um það,
hvort „eitthvert frægt fólk
yrði í flokknum“ virtist
hann verða undrandi, en
benti sér svo á að um slíkt
hefði hann auðvitað ekki
neina hugmynd.
Aðspurður af sjálfum
sér tók Benedikt hins veg-
ar fram að ólíklegt væri að
Sveinn Andri Sveinsson
yrði formaður nýja flokks-
ins, sem ekki er búið að
stofna. Benedikt gekk ekki
lengra að sér um þetta at-
riði, en óneitanlega hefði
verið fróðlegt að vita hvort
mennirnir „sem hittust“
hefðu útilokað fleiri for-
mannsefni eða hvort nægj-
anlegt hafi verið talið að
útiloka Svein Andra strax,
áður en frekari skref yrðu
stigin. Þetta er allt saman
óneitanlega dálítið sér-
stakt og ekki alveg laust
við að hægt sé að hafa
gaman af því, þótt ekki sé
víst að það sé meiningin.
En það er óneitanlega
uppörvandi að allt er þetta
gert í góðum og samræmd-
um stíl. Þannig er frægt,
að félag sem styður ákaft
aðild að Evrópusamband-
inu, gerir það undir kjör-
orðinu „Já Ís-
land!“
Félag, sem
kallar sig Sjálf-
stæða Evr-
ópumenn og hef-
ur sama
hugðarefni og fyrrnefnda
félagið, segir í upphafi
stefnuyfirlýsingar sinnar
að „tilgangur félagsins sé
að standa vörð um sjálf-
stæði Íslands!“ Ef menn
hefðu ekki aðeins séð til
félagsins gæti vart nokkr-
um dottið í hug að fé-
lagsskapur, sem býður
viðmælendum sínum góð-
an dag með þessum orð-
um, hefði þá skoðun í
mestum hávegum að það
væri þess virði að farga
drjúgum hluta af íslensku
fullveldi til þess að mega
uppskera sem endurgjald
þess, að fá að lúta faglegri
forsjá frá Brussel upp frá
því.
Þegar Benedikt Jóhann-
esson kynnir svo umgjörð
nýja flokksins síns og
„þeirra sem hittast,“ þá er
það líka í stíl: Í þeirri
kynningu leggur hann höf-
uðáherslu á að „baráttu-
mál slíks flokks yrðu frelsi
í viðskiptum og vestræn
samvinna“. En hann minn-
ist ekki einu orði á að nýi
flokkurinn ætli sér að
berjast fyrir aðild að Evr-
ópusambandinu.
Óskaplega hljóta þeir í
Samfylkingunni að hafa
orðið fegnir, ef ekki himin-
lifandi, þegar þeir heyrðu
hver yrðu helstu áherslu-
atriði nýja flokksins sem
ætti að flísa út úr Sjálf-
stæðisflokknum. Þeir sam-
fylkingarmenn sjá ekki
betur en að þeir geti þá,
hvað sem nýjum flokki líð-
ur, fengið að vera áfram
og til eilífðarnóns hinn
tæri einsmálsflokkur ís-
lenskra stjórnmála. Enda
má undir það taka með
þeim, að það er auðvitað of
í lagt að hafa tvo heila
flokka um aðeins eitt og
sama málið.
En hitt er svo umhugs-
unarefni, hvort líklegt sé
til árangurs, þegar lagt er
upp í vegferð, að telja að
slíkt óbragð og ódaunn sé
af veganestinu sínu að í
það megi hvergi glitta og
enginn fái að hnusa af því.
Það þykir ekki stór-
mennska að vilja
helst ekki kannast
við sinn króga}
Spurull svarar
sér út úr
Í
athyglisverðri samantekt í Morg-
unblaðinu á dögunum kom fram að
meirihluti þeirra sem skipa efstu sæti
framboðslista fyrir komandi borg-
arstjórnarkosningar í Reykjavík eru
búsettir í miðborginni og vesturbæ Reykjavík.
Aðeins einn frambjóðandi, sem búsettur er í út-
hverfi, er í því sem kalla má öruggt sæti. Það
skapar nokkra hættu á því að ójafnvægi geti
myndast við stjórn borgarinnar og að hverfin
ofan Elliðaáa verði afskipt hvað varðar upp-
byggingu og þjónustu. Raunar hafa borgarfull-
trúarnir – þvert á flokka – verið nokkuð mið-
borgarmiðaðir í störfum sínum og viðhorfum,
sem kann að haldast í hendur við að flestir
þeirra búa í póstnúmerum 101 og 107.
Flestir borgarfulltrúanna sem nú sitja eru
ungt fólk og búseta þeirra er í samræmi við tíð-
arandann. Samkvæmt nýrri könnun Capacent vilja 80-
90% fólks á aldrinum 25 til 34 ára búa í hjarta borgarinnar.
Slíkt þarf kannski ekki að koma á óvart, ungt fólk vill vera
í fjörinu en ráðsett og komið með börn og bú leitar það í
úthverfin og gerir þá kröfur um góða skóla, íþrótta-
aðstöðu, útivistarsvæði, strætóferðir og fjölskylduvænt
umhverfi. Allur gangur er á því hvort borgaryfirvöld
standa sína plikt að þessu leyti og svari væntingum fólks-
ins.
„Borgaryfirvöld hafa yfirleitt komið vel til móts við ósk-
ir Breiðholtsbúa varðandi úrbótamál hér. Flest minnihátt-
ar mál eru leyst bæði fljótt og vel. Það er helst í stærri og
veigameiri málum sem skortir samráð við
íbúana. Þegar nýtt aðalskipulag var í vinnslu
á dögunum komum við með athugasemdir við
margt,“ sagði Helgi Kristófersson, formaður
íbúasamtakanna Betra Breiðholts, í viðtali við
Morgunblaðið í nóvember sl.
Síðasta sumar fjallaði blaðið um stöðu mála
í Grafarholti og þar kom fram gagnrýni á að
ýmsa þjónustu í hverfinu skorti og að upp-
bygging hefði tekið langan tíma. Íþrótta-
félagið Fram sem að hálfu leyti er flutt í
hverfið væri á hrakhólum. „Börn og ung-
menni eiga að geta sótt alla íþróttaiðkun í
skólahverfinu sínu og í næsta nágrenni á líka
vera heilsugæsla, bókasafn og tómstunda-
starf,“ sagði Berghildur Erla Bernharðs-
dóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarholts.
Sjónarmið íbúa í Úlfarsárdal eru á sömu
lund en þar í hverfinu er nú verið að hanna þjónustubygg-
ingu þar sem íþróttahús, sundlaug, skóli, menningar-
starfsemi og bókasafn verða undir sama þaki. Kemst þessi
bygging í gagnið á næstu misserum ef að líkum lætur.
Skiptir þá miklu að úthverfabúarnir veiti borgaryfir-
völdum þrýsting og staða þeirra væri óneitanlega sterkari
ættu þeir fulltrúa í borgarstjórn.
Í Árbæ, Breiðholti, Grafarvogi, Grafarholti, í Úlfars-
árdal og á Kjalarnesi búa um 56 þúsund manns. Þetta er
um helmingur Reykvíkinga og taki fólkið höndum saman í
baráttu fyrir hagsmunum úthverfanna ræður það úrslit-
um í borgarstjórnarkosningum 31. maí. sbs@mbl.is
Sigurður Bogi
Sævarsson
Pistill
Úthverfin ráða úrslitum
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
„Það eru
engin áform
um gjald-
töku á svæð-
inu, hvorki
af hálfu Um-
hverfisstofn-
unar né
landeigenda
á svæðinu.
Það er frekar
andstaða við
það en hitt og enginn áhugi á
því. Við viljum taka sómsamlega
á móti gestum okkar og því
brýnt að verndun Dyrhólaeyjar
og uppbygging á svæðinu fari
saman ásamt landnýtingu,“
segir Ásgeir Magnússon, sveit-
arstjóri Mýrdalshrepps.
Ásgeir bendir á að lítið hafi
verið um grasnytjar og eggja-
töku í seinni tíð á eyjunni en
æðarvarpið er enn nýtt. Í áætl-
uninni er gert ráð fyrir að kort-
lagt verði nákvæmlega umfang
nytjanna á svæðinu.
Engin áform
um gjaldtöku
DYRHÓLAEY
Ásgeir
Magnússon