Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Að undanförnu hefur
gætt vaxandi nei-
kvæðra viðhorfa til
þeirra sem þiggja fjár-
hagsaðstoð sveitarfé-
laga. Þessi umræða er
því að miklu leyti á al-
gerum villigötum. Hún
er auk þess mjög skað-
leg því hún vegur að
mikilvægri stoð hins fé-
lagslega kerfis og
þeirrar sáttar sem hér hefur skapast
fyrir manneskjulegu samfélagi þar
sem allir geta lifað með reisn.
Hluti af þeirri umræðu er hug-
myndir um nauðsyn þess að auka
heimild til skerðingar á greiðslum eða
svipta fólk rétti til hennar. Þó að slíkar
hugmyndir séu yfirleitt settar fram
með jákvæðum formerkjum, með það
markmið að auka eigi skilvirkni eða
virkja fólk, hafa þær þó í raun þver-
öfug áhrif og stuðla að því að festa fólk
í enn alvarlegri fátæktargildru.
Hlutverk fjárhagsaðstoðar
sveitarfélaga
Samkvæmt lögum um félagsþjón-
ustu sveitarfélaga ber sveitarstjórnum
að greiða íbúum sem ekki geta séð sér
farborða með öðrum hætti, fjárhags-
aðstoð. Litið hefur verið á þá aðstoð
sem tímabundið neyðarúrræði þeirra
sem t.d. ekki hafa unnið sér rétt til at-
vinnuleysisbóta, hafa fullnýtt rétt
sinn, eða bíða eftir vinnslu umsókna
um atvinnuleysisbætur, endurhæfing-
arlífeyri eða örorku. Á núverandi kjör-
tímabili hefur þeim sem þiggja fjár-
hagsaðstoð frá Reykjavíkurborg
fjölgað, sem má meðal annars skýra
með vaxandi langtímaatvinnuleysi
sem birtist í því að æ fleiri hafa full-
nýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta.
Aukningin er mest meðal yngsta ald-
urshópsins, 18-25 ára. Fjárhagsaðstoð
sveitarfélaga á að vera öryggisnetið
sem tekur við þegar allt annað þrýtur.
Dulbúnar skerðingar
En á sama tíma og þörfin hefur auk-
ist hafa því miður einnig verið tekin
mörg smá, en alvarleg, skref í þá átt
að skerða þá aðstoð sem veitt er. Það
virðist vera svo að meirihlutinn í vel-
ferðarráði Reykjavíkurborgar sé
þeirrar skoðunar að til þess að koma
fólki í virkni þurfi að vera hægt að
hóta fólki því að það missi aðstoð. Í
þessu máli hafa fulltrúar Besta flokks-
ins og Samfylking-
arinnar verið sammála
fulltrúum sjálfstæð-
ismanna í ráðinu.
Mörg skref hafa verið
stigin í þeim efnum, m.a
hafa verið skilgreindir
mismunandi hópar sem
fá mismunandi aðstoð,
t.d. fá þeir sem búa með
öðrum skerta fjárhags-
aðstoð. Auk þess hafa
greiðslur til þeirra sem
fá fjárhagsaðstoð á
grundvelli læknisvott-
orða verið skertar.
En um hvað snúast þessar skerð-
ingar? Fjárhagsaðstoð í Reykjavík til
þeirra sem fá óskerta upphæð er
156.586 krónur eftir skatta. Það er nú
allt. Margir hverjir sem fá greidda
fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg
glíma við fjölþættan félagslegan
vanda, t.d. langvarandi líkamleg eða
andleg veikindi eða fíknisjúkdóma.
Ætlum við virkilega að hvetja fólk til
virkni og þátttöku í samfélaginu með
því að hóta fólki því að svipta það
þeirri litlu framfærslu sem það þó
hefur? Eru einstaklingar í þessari
stöðu betur settir til að taka á sínum
málum þegar þeir eiga enga mögu-
leika á grunnnauðsynjum á borð við
mat, húsaskjól eða lyf?
Allir eiga að geta lifað með reisn
Það eina sem hefst upp úr skerð-
ingum er að þeim fjölgar sem ekki
geta lifað með lágmarks reisn, heldur
neyðast til að lifa í örbirgð. Við hljót-
um að geta rekið félagsþjónustu sem
veitir fólki stuðning og hvatningu til
þátttöku í virkniúrræðum með það að
markmiði að komast á vinnumarkað
eða í nám án þess að þurfa að standa í
hótunum um að svipta það því litla
viðurværi sem það þó hefur. Það ætti
að vera okkar metnaður. Að búa í
borg sem styður við þá sem minnst
hafa, en hefur ekki í hótunum við þá.
Vegið að þeim
sem síst skyldi!
Eftir Elínu
Oddnýju
Sigurðardóttur
Elín Oddný
Sigurðardóttir
» Samkvæmt lögum
um félagsþjónustu
sveitarfélaga ber sveit-
arstjórnum að greiða
íbúum sem ekki geta séð
sér farborða með öðrum
hætti, fjárhagsaðstoð.
Höfundur er fulltrúi Vinstri grænna í
velferðarráði Reykjavíkurborgar.
Eitt af aðals-
merkjum hægrimanna
hefur verið að sýna
ólíkum skoðunum um-
burðarlyndi. Þannig er
virðing fyrir mismun-
andi skoðunum og því
að þær geta verið eins
margar og mennirnir
það sem sker okkur frá
þeim sem fylgja vilja
alræði, miðstýringu. Á
þessu byggist hugmyndin um frelsi
einstaklingsins til orðs og athafna. Í
stað þess að allir séu steyptir í sama
form höfum við fagnað fjölbreytileik-
anum og hvatt til nýrrar hugsunar og
sköpunar. Þetta á við í atvinnulífi sem
og menningarlífi. Innan hinna skap-
andi greina eru ótalmörg tækifæri til
atvinnusköpunar – uppúr þeim
spretta hugmyndir og vörur sem hægt
er að selja. Eitthvað sem hægrimönn-
um hugnast.
En hvernig stendur þá á því að
Sjálfstæðisflokkurinn – hinn hægri-
sinnaði umburðarlyndi
flokkur – er orðinn
ímynd þess hjá svo
mörgum að vera á móti
menningu, nýsköpun og
fjölbreytileika mannlífs-
ins? Er eitthvað til í
þessu eða er þetta vel
ígrunduð ímynd-
arherferð gegn flokkn-
um? Ef rætt er við hinn
almenna sjálfstæð-
ismann þá hefur hann
ekki síður en hver annar
dálæti á myndlist, tónlist
og kvikmyndum. Sjálfstæðisfólk, á
hinum og þessum vettvangi, hefur ver-
ið og er leiðandi í lista- og menningar-
lífi þjóðarinnar. Eru öflugir stuðnings-
aðilar nýsköpunarfyrirtækja og
þróunarverkefna innan hinna „skap-
andi greina“. En nokkrar háværar
raddir innan flokksins um að lista-
menn eigi að „fá sér vinnu“, það eigi
ekki að styrkja kvikmyndagerð o.s.frv.
hafa leitt að einhverju leyti til þess að
hinn almenni kjósandi telur að þetta
sé stefna eða skoðun allra hinna í
Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki rétt
– og í raun eru þessar háværu raddir
minnihluti, lítill minnihluti.
Það sem hefur alltaf verið
skemmtilegast og mest gefandi í
starfi Sjálfstæðisflokksins er að þar
koma saman ólíkir hópar fólks sem
sameinast undir þeim merkjum að
berjast fyrir frelsi, fyrir því að menn
njóti ávaxta vinnu sinnar og að allir
standi sameiginlega vörð um þá sem
minnst mega sín í samfélaginu. Frelsi
með ábyrgð. Við sama borð sitja og
ræða málin – vélstjóri, fram-
kvæmdastjóri, bóndi og myndlist-
armaður. Ólíkur bakgrunnur en sama
hugsjón – kannski með ólíkri nálgun
en sama hugsjón engu síður.
Sjálfstæðismenn mega aldrei
gleyma á hvaða hugsjón og grunni
stefna flokksins byggist. Innan Sjálf-
stæðisflokksins eiga öll sjónarmið
hægristefnunnar að gilda – frjáls-
hyggja, íhaldsstefnan, með og á móti
ESB, flugvöllurinn í eða úr Vatns-
mýrinni o.s.frv. Enginn er meiri eða
minni sjálfstæðismaður en einhver
annar innan flokksins.
Ég er hluti af glæsilegri forystu-
sveit sjálfstæðismanna og -kvenna í
sveitarstjórnum um allt land. Fólks
sem vill samfélaginu sínu vel og hefur
brennandi þrá til að bæta um betur og
sjá sitt nærumhverfi vaxa og dafna.
Fólks sem finnst heiður að því að
sinna almannaþjónustu með hag íbú-
anna að leiðarljósi. Ég vil biðla til
þeirra sem bera hag Sjálfstæðis-
flokksins fyrir brjósti að treysta nýrri
kynslóð fyrir því að leiða Sjálfstæð-
isflokkinn og þjóðina til betri tíma –
að treysta okkur að fylgja eftir grunn-
hugsjón flokksins og ná aftur eyrum
þess stóra hóps sem sér sér ekki fært
um að styðja við bakið á Sjálfstæð-
isflokknum lengur. Umburðarlyndi
og virðing fyrir ólíkum nálgunum inn-
an hægristefnunnar er lykilatriði í
þeirri baráttu.
Erum við búin að
gleyma umburðarlyndinu?
Eftir Jens Garðar
Helgason
Jens Garðar Helgason
» Í raun eru þessar há-
væru raddir minni-
hluti, lítill minnihluti.
Höfundur er í 1. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
og formaður bæjarráðs.
Gunnar B. og Magnús E. Ís-
landsmeistarar í tvímenningi
Gunnar B. Helgason og Magnús
E. Magnússon sigruðu í Íslands-
mótinu í tvímenningi sem fram fór
um helgina. Spennan í lokaumferð-
unum var mögnuð því fleiri höfðu
áhuga á titlinum en 24 pör spiluðu í
mótinu. Jón Baldursson og Sigur-
björn Haraldsson voru þeirra á
meðal og enduðu með sömu prósent-
skor og sigurvegararnir en aðeins
lakari útkomu, 1.427 stig gegn 1.428
stigum sigurvegaranna.
Feðgarnir Gabríel Gíslason og
Gísli Steingrímsson enduðu í þriðja
sæti eftir að hafa leitt mótið lengi
vel.
Lokastaða efstu para:
Gunnar B. Helgas. – Magnús Magnúss. 56,4
Jón Baldurss. – Sigurbjörn Haraldsson 56,4
Gabríel Gíslason – Gísli Steingrímss. 56,0
Hrólfur Hjaltas. – Sveinn R. Eiríkss. 55,2
Aðalst. Jörgensen – Bjarni H. Einarss. 53,8
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 1. apríl var spilaður
36 para tvímenningur.
Efstu pör í N/S (% skor):
Jón Sigvaldason – Katarínus Jónss. 59,9%
Helgi Sigurðsson – Ásgeir Sölvason 58,5
Bjarnar Ingimarss. – Bragi Björnsson 54,3
Ragnar Björnsson – Óskar Karlsson 54,3
Guðm. Sigursteinss. – Auðunn Guðmss. 53,8
A/V
Ágúst Stefánss. – Sigurður Kristjánss. 61,9
Sturla Snæbjss. – Ormarr Snæbjörnss. 60,9
Kristján Þorláksson – Örn Jónsson 59,1
Kristrún Stefánsd. – Sverrir Gunnarss. 57,7
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 55,9
Bridsfélag eldri borgara í Hafn-
arfirði spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara, Flatahrauni 3 í Hafnar-
firði.
Spilaður er eins dags tvímenning-
ur. Stökum spilurum hjálpað til við
myndun para.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Harðar deilur hafa
staðið alltof lengi um
skipulag Mýrdals-
hrepps þegar rætt hef-
ur verið um færslu
hringvegarins til suð-
urs og stutt jarðgöng
undir Reynisfjall án
þess að þingmenn Suð-
urkjördæmis hafi séð
sóma sinn í því að
kynna sér þessa sam-
göngubót. Tímabært er
að undirbúningsrannsóknum á jarð-
gangagerð undir Reynisfjall verði
hraðað sem fyrst. Sem kunnugt er
eiga hugmyndir bænda í Reyn-
ishverfi og íbúa Víkurþorps enga
samleið á meðan þeim tekst ekki að
leysa þessa deilu. Reynslan af jarð-
gangagerð sannar að hér er um að
ræða varanlega lausn í vegagerð. Vilji
Skipulagsnefndar stendur til að
hringvegurinn verði lagður um Vík-
urfjöru í veggöngum sunnarlega í
Reynisfjalli um tún og mýrar á mörk-
um náttúruverndarsvæðisins við
Dyrhólaós og sunnan við Geitafjall.
Vegagerðin telur að það geti kostað
þrjá milljarða króna. Í
Reynishverfi vildu land-
eigendur endurbættan
veg á núverandi stað og
að hann lægi áfram í
gegnum íbúðarhverfið í
andstöðu við heima-
menn í Vík sem vilja um-
ferðina út fyrir þorpið
vegna mikillar slysa-
hættu. Önnur hugmynd
ábúendanna í Reyn-
ishverfi er að vegurinn
verði fluttur norður fyr-
ir íbúðarbyggðina.
Hvorugt geta heima-
menn austan Reynisfjalls fallist á
sem eðlilegt er. Um Mýrdalinn er nýr
vegur ekki á samgönguáætlun án
þess að vilyrði hafi verið gefin um
þessa framkvæmd. Fram hefur kom-
ið í fjölmiðlum á síðustu árum að
stefnt væri að færslu hringvegarins
hvort sem málinu lýkur með sátt eða
ekki. Illt er að heyra að heimamenn í
Víkurþorpi og bændur í Reynishverfi
skuli frekar koma með krók á móti
bragði til að flækja málin á víxl í stað
þess að finna málamiðlun sem yrði
aðgengileg fyrir báða deiluaðila. Það
er til háborinnar skammar að svona
hatrammar deilur skuli vera í óleys-
Færsla hringvegarins
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
D
U
X®
,D
U
XI
A
N
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
A
B
20
12
.
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni,
góðu handverki, stöðugum prófunum
og vandlega völdum efnum.
Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn
á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.com
DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950
Gæði og þægindi síðan 1926