Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Af um 20 kenn-
ingum um öldrun er
ein sem ber hæst.
Nefnilega kenning
prófessors Harmans
um skaðsemi mynd-
efna frá innri súerfn-
isöndun í frumunum
og hvernig þessi
hvarfgjörnu og raf-
hlöðnu efni gangi í
samband við efni í
frumuhimnunum, við erfðaefnið í
frumunum, við efni í hvatberunum
og önnur efni í frymi frumunnar
(m.a. hormóna og hvata). Þau valda
skemmdum og þá öldrun. Þetta eru
afleiðingar bruna eða oxunar súr-
efnis og næringar og byrjar á unga
aldri. Hvatberarnir í frumunni sjá
um orkuvinnsluna en þær skemmdir
sem myndefnin (oft kölluð sind-
urefni) geta valdið hlaðast upp og
hefta starfsemi frumnanna. Þá geta
skemmdir á erfðaefninu líka leitt til
sjúkdóma. Auk þessa myndast ný
efni eins og „lipofuscin“ (samanber
ellibletti) sem fruman á erfitt með að
losna við og hægja á allri starfsemi
hennar og geta gert út af við hana.
Þetta er nokkuð sem fylgir lífs-
starfseminni og verður ekki umflúið.
En Harman taldi að með því að fylla
frumurnar af andoxunarefnum sem
hvörfuðust strax við myndefnin frá
orkuvinnslunni mætti hægja á öldr-
uninni því að andoxunarefnin (sind-
urvarar) gerðu þessi sindurefni ósk-
aðleg. Harman, efnafræðingur og
læknir, kom fram með þessi fræði
fyrir réttum 60 árum. Fyrstu ára-
tugina vakti þetta lítinn áhuga en er
orðið vinsælt í dag sem „Free radi-
cal“-ógnin. Talið var að úr fæðunni
væri ekki unnt að fá yfriðnóg af an-
doxunarefnum, einkum hjá hinum
eldri sem borða minna, og því ekki
annað vænna en sturta í sig fæðu-
bótarefnum, vilji menn hægja á öldr-
uninni.
Fróðlegt er að skoða hvað Harm-
an sjálfur tók af fæðubótarefnum.
Um áttrætt er það haft eftir honum
og hefur hann því væntanlega byrj-
að um fertugt en hefði
viljað byrja fyrr eða um
10 ára aldur. Tekið skal
fram að öll þessi efni
hafa margháttuð önnur
verkefni í frumunum en
hér voru þau ætluð sem
viðbótarandoxunarefni
til að hægja á ellinni:
Vít. E 150-300 A.E.
(sama og I.U.) daglega
og þá væntanlega nátt-
úrulegt eða d-tocoferol.
Vit. C 2000 mg, 4
sinnum 500 mg yfir daginn. Efna-
smíðað er talið jafngott og nátt-
úrulegt.
Beta-caroten 25000 A.E. (15 mg)
annan hvern dag. Efni unnið úr
plöntum og breytist í Vít. A í lík-
amanum. Það hefur engar eiturverk-
anir og því talið betra og virkara en
Vít. A úr dýraríkinu auk þess sem
áhrif þessara þriggja ku vera mest
sameiginlega.
Coenzym Q-10 10-30 mg, best
þrisvar sinnum 10 mg yfir daginn.
Þessi hvati myndast í hvatberunum
en mjög dregur úr framleiðslu hans
með aldrinum. E.t.v. eldumst við
þess vegna hraðar er við verðum
eldri? Þetta er sterkt andoxunarefni
og virkar líkt og vít. E á fituna.
Selen 100 míkrógrömm, tvisvar
hálfur skammtur á dag. Þetta stein-
efni er andoxunarefni og gengur líka
í samband við þungmálma sem síðan
skolast út með þvagi.
Zink 30 mg, annan hvern dag. Mg
250 mg. Þetta steinefni er virkt í
orkuvinnslu frumunnar, fyrir bein-
myndun og nauðsynlegt fyrir ónæm-
iskerfið og myndun dópamíns í heila
en virkar líka sem andoxunarefni.
Ein tafla á dag af miðlungsstyrk
fjölvítamína og steinefna án járns.
Harman og
andoxunarefnin
Eftir Pálma
Stefánsson
Pálmi Stefánsson
»Ellin eða öldrunin
verður ekki umflúin
en með bætiefnum er
talið að hægja megi á
þróuninni.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Birst hefur á vef-
miðlinum austur-
frett.is yfirlýsing frá
bæjarráði og bæj-
arstjóra Fjarðabyggð-
ar vegna beiðni P/F
Smyril Line um hafn-
araðstöðu fyrir ferjuna
Norröna. Yfirlýsingin
fjallar um ákvörðun
hafnarstjórnar Fjarða-
byggðar sem hefur
verið staðfest af bæjarráði og bæj-
arstjórn þar á bæ, um að hefja við-
ræður við P/F Smyril Line um að
byggja ferjulægi fyrir millilanda-
siglingar í Fjarðabyggð á Eskifirði
eftir að fram hefur farið skoðun á
staðarvali. Um er að ræða umtals-
verða fjárfestingu. Greinarhöfundur
telur óhjákvæmilegt að varpa
gleggra ljósi á málavexti en yfirlýs-
ingin ein og sér ber með sér.
Í yfirlýsingunni er leitast við að
skýra og réttlæta þá ákvörðun að
ganga til áframhaldandi viðræðna
við P/F Smyril Line og það gegn
eigin samþykktum á sameiginlegum
vettvangi Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi, SSA, um árabil um
uppbyggingu og nýtingu samgöngu-
mannvirkja í fjórðungnum. Sam-
þykktirnar má sjá á heimasíðu SSA.
Fyrir utan að vera brot á framan-
greindum samþykktum er ákvörð-
unin ógætileg í fjárhagslegu tilliti
hvað varðar meðferð og nýtingu op-
inberra fjármuna og óskiljanleg
þegar horft er til samstöðu og sam-
vinnu til framtíðar á Austurlandi.
Nokkuð er fjallað um þá óþægi-
legu stöðu sem fulltrúar Fjarða-
byggðar (fórnarlömbin) lentu í
vegna beiðninnar og að beiðninni
hafi ekki verið hægt að synja. Að
sjálfsögðu hefði ekki verið um eig-
inlega synjun að ræða þegar beint lá
við að benda skipafélaginu á að nota
áfram þau mannvirki sem það samdi
um byggingu á og um leið að benda
erindisbeiðanda á þær samþykktir
sem gerðar höfðu verið um upp-
byggingu og nýtingu dýrra sam-
göngumannvirkja sem að stórum
hluta hafa verið fjármagnaðar úr
sameiginlegum sjóðum landsmanna.
Mögulega hefðu fulltrúar Fjarða-
byggðar getað greint fyrirtækinu
frá því að þeir stæðu með Seyðfirð-
ingum og öðrum Austfirðingum í að
vinna að því að fá samgöngubótum
með Fjarðarheiðargöngum flýtt til
muna og að þeirra lóð væru á þeim
vogarskálum. Jafnframt að þar væri
um að ræða einn áfanga af fleirum
til að stórbæta sam-
göngur í heild á Aust-
urlandi sem kæmi út-
gerð Norröna ásamt
heildinni til góða.
Í yfirlýsingunni er
því haldið fram að í
samþykkt Sambands
sveitarfélaga á Austur-
landi um samgöngu-
öxlana þrjá byggist sá
hluti samþykktarinnar
sem lýtur að ferju og
skemmtiferðaskipa-
höfn á Seyðisfirði á samstarfi Smyr-
il Line og bæjaryfirvalda á Seyðis-
firði og að ákvörðun útgerðarinnar
um að skoða aðra kosti setji sam-
þykktina í uppnám. Þetta er skýring
sem sett er saman eftir á til að rétt-
læta þann farveg sem málinu var
valinn.
Vikið er að markaðssetningu
skemmtiferðaskipa í yfirlýsingunni.
Það er undarleg framganga að
standa að samþykktum um árabil á
aðalfundum Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi en hafast síðan allt
annað að þegar heim er komið.
Markmiðið, eins og því er lýst í yfir-
lýsingunni, er gott og gilt: að fjölga
komum skemmtiferðaskipa á Aust-
urland. Að því hefur verið unnið í
áratugi á Seyðisfirði með umtals-
verðum tilkostnaði og var komu-
fjöldi skipa til hafnar á Seyðisfirði
sum seinni ár þangað til á síðasta ári
kominn fast að 20. Voru og eru
áform og áætlanir um að gera enn
betur. Samanburður seinni ára við
það sem fram kemur í yfirlýsingu
Fjarðabyggðar sýnir svo ekki verð-
ur um villst að komum skemmti-
ferðaskipa hefur snarfækkað á
Seyðisfirði. Það eru afleiðingar
taumlausra undirboða hafnargjalda
sem staðfest hafa verið af geranda,
til handa skipafélögum sem höfðu
haft viðkomu í höfn á Seyðisfirði í
fjölda ára. Af höfundum yfirlýsing-
arinnar kallast undirboðin markaðs-
setning. Ekki verður hér þó öðru
haldið fram en að undirboðin hafi þó
bara verið einn þáttur hennar. Að
fjölmörgu öðru þarf að hyggja en
hafnaraðstöðunni einni saman og
því er óráðlegt að dreifa komum
skipanna um of.
Með umdeildri uppbyggingu
Kárahnjúkavirkjunar og stóriðju í
Fjarðabyggð hefur Fjarðabyggð
eflst, eins og fram kemur í yfirlýs-
ingunni. Órofa stuðningur var við
uppbygginguna af hálfu SSA og
sveitarfélaga á svæðinu. Nöturleg
er því ásóknin í atvinnutæki ná-
granna sem í góðri trú studdu af
heilindum uppbygginguna ásamt
öðrum framfaraskrefum í Fjarða-
byggð, svo sem jarðgöng, en sátu
sjálfir eftir með stærsta hagsmuna-
mál eigin byggðarlags, samgöng-
urnar, óleyst enn sem komið er og
gjalda þess nú.
Í yfirlýsingunni kemur fram að á
engum tímapunkti hafi forsvars-
menn Fjarðabyggðar nálgast stjórn
P/F Smyril Line um flutning Nor-
röna frá Seyðisfirði sem hafi hafist
með bréfi frá P/FSmyril Line til
Fjarðabyggðar með beiðni um við-
ræður. Ljóst er þó orðið að lengri
aðdragandi er að málinu og að nokk-
ur samskipti áttu sér stað vegna
þess af hálfu aðila sem tengjast
bæði P/F Smyril Line og Fjarða-
byggð áður en það, sem hægt er að
kalla formlegt ferli, hófst. Af þessu
höfðu aðilar í þjóðfélaginu, meira að
segja aðilar sem hægt ætti að vera
að kalla ábyrga aðila, spurnir.
Einnig er í yfirlýsingunni fjallað
um mikilvægi þess að sanngirni sé
gætt í vandmeðfarinni umfjöllun og
að það sé mikilvægt fyrir samstarf
og samstöðu sveitarfélaganna á
Austurlandi. Það er allt saman hár-
rétt og er hér undir það tekið. Seyð-
firðingar standa nú frammi fyrir því
sem virðist allt að tvöföld atlaga af
hálfu sama aðila sem höfundar yfir-
lýsingarinnar eru í forsvari fyrir.
Atlaga með afli og styrk þess fjár-
sterka að störfum og afkomu fjölda
fólks sem mun snerta allt sam-
félagið hér. Seyðfirðingar og fleiri
spyrja af hverju sé ekki unnið að
uppbyggingu annarrar atvinnu-
starfsemi í stað þess að reyna að
hafa af nágrönnum það sem byggt
hefur verið upp á áratugum. Undir-
ritaður minnist þess að hafa haft
uppi varnaðarorð vegna þess hve
málið yrði viðkvæmt á svæðinu bæði
við forsvarsmenn Fjarðabyggðar og
forstjóra P/F Smyril Line síðastliðið
haust þegar málið var gefið út.
Eftir Vilhjálm
Jónsson
» Svar við yfirlýsingu
Fjarðabyggðar
vegna beiðni P/F Smyril
Line um hafnaraðstöðu
fyrir Norrænu.
Vilhjálmur Jónsson
Höfundur er bæjarstjóri Seyðisfjarð-
arkaupstaðar.
Fórnarlömb erindis?
anlegum hnút þegar hugmyndin um
stutt jarðgöng er gerð að pólitísku
reiptogi. Í stað þess að færa hring-
veginn til suðurs ættu báðir deiluað-
ilar að svara því hvort til greina komi
að bora 2,5 km löng veggöng undir
Reynisfjall ef þau yrðu tekin sunnan
við núverandi veg um Gatnabrún og
færu suður fyrir Víkurþorp. Þá losna
vegfarendur við slysahættuna á nú-
verandi stað og umhverfisspjöll verða
minni. Báðir aðilar sem ná ekki sam-
komulagi um skipulag sveitarfé-
lagsins skaðast jafnmikið ef þessar
hörðu deilur snúast upp í kostn-
aðarsöm málaferli sem enginn græðir
á. Hvað eftir annað hafa allar til-
raunir til að ná sáttum í þessum deil-
um mistekist. Möguleiki á því að
lausn finnist á þessari deilu milli
bændanna vestan Reynisfjalls og
heimamanna í Víkurþorpi næstu árin
án þess að þingmenn Suður-
kjördæmis og innanríkisráðherra
komi að þessu máli er ekki sjáan-
legur. Allir landsbyggðarþingmenn
sem hafa starfað í samgöngu-
ráðuneytinu tvo síðustu áratugina
hefðu ásamt þingmönnum Suður-
kjördæmis átt að kynna sér þetta mál
löngu áður en farið var að tala um
neðansjávargöng til Vestmannaeyja
sem eru alltof áhættusöm og ótíma-
bær. Fyrir Mýrdalshrepp gilti að-
alskipulag til ársins 2005. Ári áður
kom fram tillaga að nýju skipulagi án
þess að gert væri ráð fyrir umbylt-
ingu í vegamálum þegar tekið var frá
land í Víkurfjöru fyrir hugsanlega
færslu hringvegarins í framtíðinni.
Jarðgöngin sem deilt er um gagnast
öllum ábúendum í Reynishverfi og
íbúum Víkurþorps. Á leiðinni upp á
fjallið að vestanverðu um Gatnabrún
sem er brött lenda ökumenn alltaf í
vandræðum vegna hálku, snjó-
þyngsla og illviðris, þarna getur veð-
urhæð farið í 30 metra á sekúndu. Við
þessar aðstæður getur Vegagerðin
aldrei tryggt að uppbyggður vegur í
fullri breidd á núverandi stað verði
öruggur fyrir miklum blindbyl og
átta metra snjódýpt. Þá verða snjó-
mokstrar óframkvæmanlegir. Ekki
er útilokað að snjóflóð sem enginn sér
fyrir hrelli vegfarendur á þessari leið
milli Reynishverfis og Víkurþorps.
Ákveðum fljótlega jarðgöng undir
Reynisfjall.
» Það er til háborinnar
skammar að svona
hatrammar deilur skuli
vera í óleysanlegum
hnút þegar hugmyndin
um stutt jarðgöng er
gerð að pólitísku reip-
togi.
Höfundur er farandverkamaður.
Flokkunarílát
sem einfalda ferlið
Viðarhöfða 2 110 Reykjavík | Sími 577 6500 | www.takk.is | takk@takk.is
ýmsar stærðir
og gerðir