Morgunblaðið - 08.04.2014, Side 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
„Kristján Ragn-
arsson, fram-
kvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra
útvegsmanna, var eitt
sinn að því spurður
hvers vegna útgerð-
armenn sæktu svo
stíft eftir heimildum
til að kaupa nýrri og
stærri togara fyrst þeir væru rekn-
ir með bullandi tapi. Kristján svar-
aði, og eflaust af hreinskilni, að það
gerðu þeir vegna þess að þeir
þyrftu ekki að hætta sínu eigin fé
við fjárfestingarnar. Þeir fengju
lánað nær til fulls fyrir kaupunum
úr opinberum sjóðum og veðin
væru aðeins í skipunum sjálfum.
Útgerðarmenn hefðu því engu að
tapa. Mér þótti þetta heldur vafa-
samt siðferði þótt skýringin ætti
eflaust við rök að styðjast.
Það er umhugsunarefni að fáum
árum síðar voru þessir sömu menn,
sem ekki hættu eigin fjármagni
nema að litlu leyti til kaupa á skip-
um, eftir því sem Kristján Ragn-
arsson sagði, taldir sjálfsagðir
handhafar, ef ekki eigendur kvót-
ans þegar hann kom til sögunnar.
Þá voru rökin þau að þeir hefðu
með eigin dugnaði, fjármagni og
fórnarlund dregið fiskinn úr sjó og
fært hann á land áratugum sam-
an.“ (Steingrímur Hermannsson,
eftir Dag B. Eggertsson, 2. bindi
bls. 283 Vaka Helgafell Rvk. 1999)
Steingrímur var sjávarútvegs-
ráðherra í ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen 1980-1983. Hann fékk
Vestfirðinginn og reynsluboltann
Baldur Jónsson frá Aðalvík sér til
aðstoðar. Þeir settu saman tillögur
um nýtt kerfi í fiskveiðistjórnun.
Grundvöllur þess var að það leiddi
ekki til byggðaröskunar. Kvót-
anum átti að deila á milli fisk-
vinnsluhúsa, skipa og báta á hverju
tilgreindu svæði. Sem sagt beint til
fólksins á viðkomandi stað. Fólks-
ins sem hafði lifað á fiski frá upp-
hafi byggðar í landinu. Ekki skipti
máli hvar fiskinum yrði landað inn-
an hvers löndunarsvæðis. Innan
þess mátti jafnframt framselja
hann milli fiskverkenda og báta.
Nú er þjóðarnauðsyn að rifja upp
þessar tillögur þeirra félaga. Þær
voru því miður jarðaðar og tröllum
gefnar á sínum tíma. Útgerð-
armenn í LÍÚ gerðu tillögur um
kvóta á skip með stuðningi sjáv-
arútvegsráherrans sem tók við af
Steingrími. Þeir fengu að ráða
ferðinni. Þetta var upphafið að
þeirri feigðarför fyrir hinar dreifðu
byggðir sem Íslendingar hafa síðan
gengið.
Íslenskir útgerðarmenn eru alls
góðs maklegir. Og það er auðskilið
að þeir aki seglum sínum eftir
vindi. En að þeim skyldi afhentur á
silfurfati frumburðarréttur þjóð-
arinnar er algjörlega með ólík-
indum. Þeir hafa raunverulega ráð-
ið því hvar byggð skyldi vera í
landinu. Óskiljanlegt venjulegu
fólki, einkum þeim sem hafa unnið
við fisk alla sína hunds- og katt-
artíð. Fréttir dagsins staðfesta þau
geigvænlegu mistök. Spurningin er
aðeins þessi: Er orðið of seint að
snúa við á feigðargöngunni?
Hvað sagði Steingrímur
Hermannsson?
Eftir Hallgrím
Sveinsson og
Bjarna Georg
Einarsson
» Íslenskir útgerðar-
menn eru alls góðs
maklegir. En að þeim
skyldi afhentur á silfur-
fati frumburðarréttur
þjóðarinnar er algjör-
lega með ólíkindum.
Hallgrímur Sveinsson
Hallgrímur er fyrrverandi stjórn-
arformaður Kaupfélags Dýrfirðinga
og Bjarni er fyrrverandi útgerð-
arstjóri og núverandi ellilífeyrisþegi á
Þingeyri.
Bjarni Georg Einarsson
Nú styttist í að
samsveitungar ykkar
þurfa að vega og meta
kosti ykkar, áherslur
ykkar og hvað skiptir
ykkur máli. Þrátt fyr-
ir að vera vel inni í
bæjar-, borgar- og
sveitarmálum þá er
ekki hægt að gera ráð
fyrir að þið hafið yf-
irsýn yfir allt. Eitt af
þeim málefnum sem lítið hefur
verið rætt um og alls ekki nógu
vel tekið á er aðgengismál fatl-
aðra og réttindi þeirra. Það sem
ég ætla að biðja ykkur um að
gera er að ímynda ykkur í einn
dag að þið séuð í hjólastól. Hafið
augun opin gagnvart því sem þið
gætuð gert og sérstaklega hvað
þið gætuð ekki vegna þess að þið
væruð í hjólastól. Hugsið síðan
um hvernig ykkur myndi líða ef
þið væruð í hjólastól og fyndist
þið ekki vera velkomin. Aðgeng-
ismál eru til skammar á Íslandi
þó að sum sveitarfélög hafa vissu-
lega tekið sig á, en betur má ef
duga skal. Fatlað fólk er hógvært
fólk og það hreinlega forðast staði
sem það veit að hafa lélegt að-
gengi, t.d. er miðbær Reykjavíkur
svæði sem flestir fatlaðir forðast
eins og heitan eldinn, bæði vegna
skorts á bílastæðum en helst
vegna ömurlegs aðgengis í versl-
anir og stofnanir. Hvað með er-
lenda fatlaða ferðamenn, eiga þeir
ekki rétt á að skoða allt, versla
alls staðar, fá sér kaffibolla og
svo famvegis? Nú á að fara að
endurskoða nýju bygging-
arreglugerðina af því að fólki
finnst fáránlegt að þurfa breyta
öllu út af nokkrum í hjólastól. En
þessir nokkrir eru bara nokkuð
margir og má gera ráð fyrir að
um 10% af þjóðinni, eða um
30.000 manns, búi
við einhvers konar
fötlun. Því miður
lendir fólk ennþá í
slysum og veikist og
ég get lofað ykkur
því að enginn þeirra
ætlaði sér að verða
hjólastólanotandi.
Þetta fólk hefur
gengið í gegnum
skelfilega lífsreynslu
þar sem það missir
sína fyrri getu, en
það sorglegasta við þetta allt er
að það missir rétt sinn til að geta
notið lífisns eins og áður bara
vegna þess að enginn hefur
áhuga á að bæta aðgengi. Ég
skora á ykkur að skoða málefni
fatlaðra í ykkar sveitarfélagi.
Skoðið uppáhaldsstaði ykkur og
spáið í hvort þið mynduð komast
þangað í hjólastól. Setjið ykkur í
spor þeirra sem eru niðurlægðir
og útilokaðir á hverjum degi frá
íslensku þjóðfélagi. Gott aðgengi
nýtist öllum. Barnafólk með börn
í kerrum, eldri einstaklingar með
skerta göngugetu, vöruflutningar
inn og út úr húsi og svo mætti
lengi telja. Ég bið ykkur að sýna
fatlaða fólkinu okkar að ykkur sé
ekki sama um þau og takið á
þessum málum. Munið að þið
gætuð orðið næst eða enn þá
verra, börnin ykkar gætu lent í
hjólastól. Hvernig samfélagi viljið
þið þá búa í?
Kæru fram-
bjóðendur til
sveitarstjórna
Eftir Guðbjörgu
Ludvigsdóttur
Guðbjörg Ludvigsdóttir
» Setjið ykkur í spor
þeirra sem eru nið-
urlægðir og útilokaðir á
hverjum degi frá ís-
lensku þjóðfélagi.
Höfundur er endurhæfingarlæknir
á Grensási.
Að greinast með
krabbamein eða aðra
ámóta lífsógnandi
sjúkdóma veldur
flestum óhjákvæmi-
lega skelfilegri ang-
ist, ómældum ótta og
hugarangri. Það
reynist viðkomandi
og fjölskyldu hans
eðlilega þungbært
áfall, eins og óvænt
hressilegt kjaftshögg. Tilveran
breytir um lit á einu augabragði.
Skýin hrannast upp og dökkna.
Skelfing grípur um sig, tárin taka
að streyma fram, ótti, hræðsla.
Spurningar vakna, hvað verður?
Hvað ef? Af hverju ég? Gerði ég
eitthvað vitlaust? Er verið að refsa
mér fyrir eitthvað?
Minningarnar þyrlast upp.
Framtíð sem kannski ekki verður,
stórir dagar í lífi barnanna okkar,
fæðing og uppvöxtur hugsanlega
væntanlegra barnabarna o.s.frv.
Áfallið er vægast sagt gríðarlegt
og vonbrigðin yfirþyrmandi.
Vanmáttur og erfitt
sorgarferli
Afneitun, lost, þetta getur ekki
verið, þeir hljóta að hafa ruglast á
sýnum. Þetta er ekki að koma fyrri
mig. Margir dofna, verður orða
vant, þurfa að vera einir með sjálf-
um sér. Sumir reiðast þótt þeir viti
kannski ekki almennilega út í hvað
eða hvern þeir eru reiðir eða hvert
þeir eigi að beina reiðinni. Verða í
einhverjum tilfellum reiðir sjálfum
sér, aðstæðum sínum og umhverfi,
jafnvel Guði. Við tekur tilvist-
arglíma. Spurningarnar leita á
hugann, spurningar
sem oft á tíðum eru fá
svör við. Margir missa
matarlyst, verða fjar-
rænir og daprir, til-
finningalausir og utan
við sig. Og ég veit að
margir upplifa sam-
félagið ekki meðtaka
stöðuna eða skilja sig.
Upphefst í flestum til-
fellum langt og strangt
sorgarferli. Fólk reyn-
ir að klóra í bakkann,
ná áttum, sigla í gegn-
um skaflana, oft með illum leik þar
sem fórnarkostnður og lífs-
gæðaskerðing getur verið umtals-
verð. Það geta verið góðar fréttir
einn daginn en slæmar þann
næsta. Tilfinningasveiflur eru
miklar og rússíbanareiðin virðist
endalaus. Tekjur fólks rýrna oft
verulega og fjárhagur margra rús-
tast á meðan kostnaður við rann-
sóknir, lyf og læknaþjónustu er
fljótur að hlaupa á hundruðum
þúsunda.
Fyrirbænir og faðmlög
Ég fullyrði að í slíkum að-
stæðum séu í rauninni engar til-
finningar rangar. En gott er að
eiga skýra lífssýn, gott bakland og
skilningsríka ástvini og sam-
ferðamenn sem standa með þér og
biðja fyrir þér. Sumir bera harm
sinn og vonbrigði í hljóði. Margir
velja að vera ekki að íþyngja fólki
með raunum sínum. Einhverjir
halda að þeir geti bara töffarast
þetta áfram á keppnisskapinu og
þrjóskunni. Á meðan enn aðrir tjá
sig og fá þannig frekar en ekki vel-
viljaða og kærleiksríka samferða-
menn til að bera byrðarnar með
sér, sem ég segi fyrir mitt leyti að
sé algjörlega ómetanlegt.
Þeir sem upplifað hafa áföll
hverskonar vita það hvað upp-
hringingar, faðmlög, fyrirbænir,
velvild og vinarhugur, þótt ekki sé
nema á facebook, skiptir miklu
máli og getur hreinlega ráðið úr-
slitum um líðan fólks, viðbrögð og
úrvinnslu tilfinninga.
Jarðneskir englar
Boðberar kærleikans eru jarð-
neskir englar sem leiddir eru í veg
fyrir fólk til að veita umhyggju,
miðla ást, fylla nútíðina innihaldi
og tilgangi, veita framtíðarsýn
vegna tilveru sinnar og kærleiks-
ríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir,
styðja, uppörva og hvetja. Þeir
sýna hluttekningu, umvefja og
faðma. Sýna nærgætni og raun-
verulega umhyggju, í hvaða kring-
umstæðum sem er, án þess að
spyrja um endurgjald.
Að bera umhyggju fyrir fólki
Þegar þú vitjar sjúkra, sorgbit-
inna eða þeirra sem ellin þjakar þá
þarftu ekki endilega alltaf að
staldra svo lengi við. En, vertu
endilega á meðan þú ert, án þess
að vera stöðugt að líta á klukkuna.
Mundu að spakmæli, reynslusögur,
viðmið eða of mörg orð yfirleitt
eiga ekki við í slíkum aðstæðum.
Hlustaðu heldur bara, faðmaðu,
sýndu skilning og vertu í þol-
inmæði á meðan þú ert. Fegraðu
þannig umhverfi þitt með gjöfum.
Stráðu fræjum kærleika og um-
hyggju. Og þín verður minnst sem
þess sem elskaði. Þess sem bar
raunverulega umhyggju fyrir fólki.
Að greinast með krabbamein
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Tilveran breytir um
lit á augabragði,
skýin hrannast upp,
skelfing grípur um sig,
minningarnar þyrlast
upp, langt og strangt
sorgarferli tekur við.
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
mánudaginn 28. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
Íslandsmótið
Pepsí-deild karla í
knattspyrnu 2.maí.
Farið verður um
víðan völl og
fróðlegar
upplýsingar
um liðin sem leika
sumarið 2014.
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2014