Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
Teg. Miriam – push up á kr. 6.850,
buxur á kr. 2.580.
Teg. Roksana – push up kr. 6.850,
buxur við á kr. 2.580.
Teg. Luisa – push up á kr. 6.580,
buxur við á kr. 2.580.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.–föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 23001 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 17.985.
Teg. 204203 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 16.985.
Teg. 455201 Vandaðir og þægilegir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 39–48. Verð: 17.975.
Teg. 505602 Vandaðir og þægilegir
herra-inniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40–47. Verð: 12.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Frú Sigurlaug
Mjóddin s. 774-7377
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Ný sending
af náttfatnaði
Linda
kjólaklæðskeri
- saumastofa
er í Mjóddinni
S: 662-3743
Saumastofa
• Viðgerðir
• Breytingar
• Saumaþjónusta
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Smáauglýsingar
Gisting
Sveitasetrið við
Laxá í Kjós
Fundir, móttökur, veislur
Hentugt fyrir hópa
Með og án þjónustu
Nánari upplýsingar
Júlíus
s. 892-9263
www.sveitasetur.hreggnasi.is
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 130 m2 verslunar-
og skrifstofuhúsnæði
á 1. hæð við umferðargötu á
Ártúnshöfða. Stórir gluggar,
flísalagt gólf og góð aðkoma.
Upplýsingar í síma 892 2030.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bátar
Hvalaskoðun og ferðaþjónusta
,,Nú er tíminn”
Hraðskreiðasti farþegabáturinn á
Íslandi, Technomarine Rib 2007, er nú
til sölu. Ferðaþjónusta, hvalaskoðun,
hvataferðir, ferja. 20 sæti, gengur 50
mílur. Fáðu bátinn greiddan til baka í
sumar. Verð aðeins 19,9 milljónir.
Uppl. í síma 820 5181.
Mín kæra vin-
kona Inga var spor-
göngukona í svo
mörgu. Hún vakti
aðdáun fyrir glæsi-
leika, hreinskiptni og jákvæðni.
Hún hafði einstaklega fágaðan
smekk og var alltaf glæsileg, al-
veg fram undir lok sinna veik-
inda.
Inga hringdi í mig fyrir all-
mörgum árum, þá þekkti ég hana
ekki neitt, hún hafði heyrt í
gegnum sameiginlega vinkonu að
ég gæti ef til vill aðstoðað hana í
gegnum sameiginlegt áhugasvið.
Í Kópavoginum tók á móti mér
glaðvær og glæsileg kona, alúð-
leg en umfram allt var ljóst að
þar var kona sem vissi hvað hún
vildi.
Heimili þeirra Ingu og Eyfa
voru eins og listasöfn en Inga
Ingveldur
Gísladóttir
✝ IngveldurGísladóttir
fæddist 22. ágúst
1949. Hún lést 20.
mars 2014. Útför
Ingveldar fór fram
1. apríl 2014.
byrjaði að safna
listaverkum sextán
ára gömul og hafði
einstakt auga fyrir
list. Uppröðun lista-
verka var svo
smekklega úr garði
gerð að það var eins
og ekki væri hægt
að koma þeim fyrir
á nokkurn annan
hátt. Inga hefði
sómt sér vel sem
sýningarstjóri á hvaða listasafni
sem er. Allt í kringum Ingu bar
vott um þessa fágun og smekk-
vísi, útlit og framkoma. Inga var
alltaf glæsileg.
Þegar Inga fór í nýrnaað-
gerðina, um það leyti sem meinin
uppgötvuðust, var eins og eitt-
hvað undursamlegt hefði gerst.
Það var eins og Inga væri böðuð
ljósi, uppfull af undraverðum
styrk sem er á engan hátt hægt
að lýsa á jarðbundinn hátt, hún
bókstaflega ljómaði. Læknar og
heilbrigðisstarfsmenn áttu ekki
orð, þetta höfðu þeir sjaldan séð
áður, að einstaklingur í sömu
stöðu færi nánast að hlaupa um á
fyrsta degi. Inga gekk í þessu
ljósi og í þessum styrk allt fram
undir það síðasta. Hún var svo
sterk enda ekki kölluð heims-
meistarinn af læknum út af engu.
Á Kópavogsbrautinni í hvíldar-
innlögn, þar ljómaði Inga enn
sterk og jákvæð. Hún hafði alltaf
svo mikið að gefa. Alltaf. Vertu
sæl mín kæra vinkona, ég var
lánsöm að fá að kynnast þér.
Eyfa og fjölskyldu votta ég inni-
lega samúð.
Jóhanna.
Það var á þjóðhátíðinni 1977
sem við Inga kynntumst fyrst.
Þau hjónin buðu okkur Kjalari
heim á föstudagskvöldið. Þá um
nóttina fórum við Inga heim úr
Dalnum til að sækja eitthvað
sem okkur vantaði. Við fórum á
svokölluðum pallbíl. Þessi nótt
var sú sem maður gleymir ekki,
enda var ekki farið að sofa fyrr
en sólin var komin upp. Öll þessi
ár síðan hefur vinskapur okkar
Ingu varað. Hún var ótrúlega
mikil kona og hvernig hún tók á
veikindum sínum er með ólíkind-
um. Ég geymi í huga mínum
minningu um frábæra vinkonu.
Fjölskyldu hennar og vinum
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð blessi ykkur
öll.
Særún Sigurgeirsdóttir.
✝ SunnevaGuðjóns-
dóttir Snæhólm,
f. 18. september
1936, d. 19. des-
ember 2013.
Guðmundur H.
Snæhólm raf-
virkjameistari,
f. 27. mars
1928, d. 28.
febrúar 2014.
Foreldrar Sunn-
evu voru Guðjón Jónsson, sjó-
maður og umsjónarmaður
verkamannabústaðanna við
Hringbraut, og Gróa Guðna-
dóttir frá Tungufelli í Hruna-
og Halldór Halldórsson Snæ-
hólm frá Auðkúlu í Húnavatns-
sýslu, bóndi og farandkennari.
Börn þeirra voru Alda, Njörð-
ur, Kristín, Guðmundur og
Edda Snæhólm, en hún ein lifir
systkini sín. Dóttir Sunnevu og
Guðmundar er Hrefna Snæ-
hólm, gift Ómari Ólafssyni.
Þeirra synir eru Guðmundur,
Óttar og Tryggvi. Elsta dóttir
Hrefnu, Sunneva, er gift Stef-
áni Fannbergssyni. Þeirra
börn eru Arnar Freyr, Krist-
ófer Jón og Hrefna Karen.
Útför Sunnevu fór fram 8.
janúar 2014 og útför Guð-
mundar 10. mars 2014.
mannahreppi. Bróðir Sunnevu,
Guðmundur J. Guðjónsson, er
látinn. Foreldrar Guðmundar
Snæhólm voru Elín Guðmunds-
dóttir Snæhólm frá Hnífsdal
Faðmur Guðs fullur hlýju fagnar vini
að ferðalokum.
(HA)
Ferðalok vina eru runnin upp.
Hjónin Sunneva og Guðmundur
Snæhólm eru bæði fallin frá. Öð-
lingurinn Guðmundur Snæhólm
lést 28. febrúar síðastliðinn,
tveimur mánuðum eftir andlát
eiginkonu sinnar Sunnevu. Voru
þau jarðsungin í kyrrþey. Mynd-
brot liðinna áratuga frá heimili
þeirra hjóna renna í gegnum
hugann. Ég sé fyrir mér fallega
tvílyfta einbýlishúsið þeirra á
Þinghólsbraut 11 í Kópavogi.
Hús með sál, sem var nostrað við
allt árið um kring. Hver hlutur á
sínum stað. Verðlaunagarðurinn
þeirra umlukti húsið. Ég sé fyrir
mér Sunnevu á kafi í moldarbeð-
unum að hlúa að og tala við blóm-
in sín og Guðmund með kantsker-
ann og gömlu handsláttuvélina.
Engin grasflöt var grænni og
vænni en þeirra. Garðurinn, sem
angaði af blóma-, birki-, gras- og
greniilmi, var alla tíð töfrum lík-
ur. Missir fjölskyldu Hrefnu
dóttur þeirra og Sunnevu yngri
er mikill og sár og ég sendi þeim
samúðarkveðjur. Ég kveð kæra
vini, Guðmund Snæhólm og
Sunnevu mágkonu mína, með
broti úr ljóðum Hákonar Aðal-
steinssonar:
Mannlífsins bratta bára
ber okkur milli skerja.
Víðfeðmar okkur velur
vegleiðir stundu hverja.
Markandi mannsins tíma
meitlandi spor í grundir,
mótandi margar götur
misjafnar ævistundir.
Lokið er vöku langri,
liðinn er þessi dagur.
Morgunsins röðulroði
rennur upp nýr og fagur.
Miskunnarandinn mikli
metur þitt veganesti.
Breiðir út ferskan faðminn,
fagnandi nýjum gesti.
Nú er vík milli vina,
vermir minningin hlýja.
Allra leiðir að lokum
liggja um vegi nýja.
Við förum til fljótsins breiða,
fetum þar sama veginn
þangað sem bróðir bíður
á bakkanum hinum megin.
Ég er þess fullviss að Mummi
bróðir hefur tekið á móti þeim
báðum, Sunnevu og Guðmundi
Snæhólm, „á bakkanum hinum
megin“.
Guðrún Sverrisdóttir.
Sunnefa Guðjónsdóttir og
Guðmundur Halldór Snæhólm
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, "Senda inn minn-
ingargrein", valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Minningargreinar